Morgunblaðið - 17.05.1991, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 17. MAÍ 1991
98
37
Kristín Jóhannesdótt
ir - Aldarminning,
Fædd 17. maí 1891
Dáin 26. desember 1984
Þetta er ekki minningargrein í
venjulegum skilningi, þar sem ætt-
ir eru raktar og starfsferill, heldur
örfá minningarbrot rituð af þakk-
látum huga til mikillar vildiskonu,
sem hefði orðið 100 ára í dag,
hefði hún lifað, en hún lézt fyrir
nokkrum árum í hárri elli.
Heimilið á Freyjugötu 6 í
Reykjavík, þar sem við ýmsir
skólapiltar vestan af ljörðum vor-
um til húsa upp á leigu og kost,
hefir ávallt verið okkur minnis-
stætt og dvöl okkar þar skólaárin
í Reykjavík. Fyrir lítt reynda æsku-
menn og óharðnaða var það ómet-
anlegt að fá samastað á jafngóðu
og vönduðu heimili sem Freyjugata
6 var. Af piltum að vestan leigðum
við Gils Guðmundsson fyrstir
námsmanna þarna, í allrúmgóðu
kvistherbergi, sem sneri út að
Freyjugötunni. Þetta var um
haustnætur 1936. Á næstu árum
tók svo hver námsmaðurinn við af
öðrum sem leigjandi, m.a. Trausti
Friðbertsson, fyrrum kaupfélags-
stjóri á Flateyri, Hermann Guð-
mundsson, fyrrum símstöðvarstjóri
á Akranesi o.fl., o.fl. sem of langt
yrðj upp að telja.
Á kvistinum á Freyjugötu 6 var
oft kátt og glatt á hjalla og oft
erill af námsmönnum. Þar var
stundum með allmiklum tilburðum
reynt að fínna lausn á Iandsmálun-
um, heimsmálunum og jafnvel ei-
lífðarmálunum. Alltaf töldum við
okkur vera þá einu og sönnu þess
umkomna að bylta heiminum og
bæta hann. Og furðu gegndi hvað
húsfreyjumar á heimilinu, Guðlaug
Björg Bjömsdóttir og dóttir henn-
ar, Kristín, sem hér er minnst,
voru ríkar af tillitssemi og umburð-
arlyndi í garð okkar óstýrilátra
námsmanna.
Á efri hæðinni á Freyjugötu 6
bjuggu þær mæðgur Guðlaug
Björg og Kristín, sem var ekkja
með 5 börn, 2 þeirra voru uppkom-
in, Sigríður og Björn, sem var að
ljúka verslunarskólanámi og rak
seinna eigið endurskoðunarfyrir-
tæki í Tjarnargötunni, en 3 barn-
anna voru enn í bernsku, tvíbura-
systumar Guðlaug Björg og María
og sú yngsta, Petrína Kristín. Tvö
systkinanna eru látin, þau María
og Björn, en þijár systur era á lífi,
Sigríður, ekkja, býr á Selfossi,
Guðlaug Björg, fulltrúi hjá Pósti
og síma, Reykjavík, og Petrína
gift, kona í Reykjavík. Á efri hæð-
inni á Freyjugötu 6 bjó einnig Petr-
ína í skjóli systur sinnar, Guðlaug-
ar eldri. Á heimilinu var Petrína
frænkan og Guðlaug systir hennar
amman. I augum okkar skólapilt-
anna voru það ætíð „frænkan“ og
„amman“ sem gott var að eiga að
með ráð og ábendingar, enda voru
þessar konur miklar ágætiskonur,
sem okkur þótti afar vænt um og
bárum mikla virðingu fyrir. Guð-
laug Björg, húsmóðirin, var þeirrar
gerðar að hún mátti ekkert aumt
sjá. Þannig var einnig systirin,
Petrína, og dóttirin, Kristín. Eng-
inn var svo aumur, að Guðlaug
fyndi honum eða henni ekki eitt-
hvað gott til málsbóta. Hún þoldi
aldrei að nokkram væri hallmælt.
Á efri áram sínum knýttist hún í
baki og var lengi að mestu rúm-
föst. En alltaf var hugurinn og
skapið ljúfa hið sama, hvernig sem
fyrir henni sjálfri blés. Hún var
skarpgreind og skilningurinn og
minnið óbilandi allt til æviloka.
Hún var alveg einstök kona og
hverjum manni, sem henni kynnt-
ist, varð hún minnisstæð. Hún
hafði fæðst á hinum merka stað,
Bessastöðum, 8. febrúar 1862.
Bjöm faðir hennar hafði þá Bessa-
staðina á leigu um tíma. — Bróðir
Kristín Jóhannesdóttir
hennar var Erlendur bóndi á
Breiðabólsstað þar í sveit. Annar
bróðir hennar var séra Björn, sem
var prestur í Laufási við Eyjafjörð
um skeið. Þar höfðu þær systur
dvalið og búið með bróður sínum
um nokkurn tíma, en séra Björns
naut ekki lengi við því hann lést
langt um aldur fram. Kona séra
Björns var Ingibjörg Magnúsdóttir,
systir Jóns Magnússonar forsætis-
ráðherra.
Alltaf var talsvert viðhaft, þegar
frú Ingibjörg, ekkja séra Bjöms,
kom í heimsókn til mágkonu sinnar
á Freyjugötunni og nutum við
skólapiltar góðs af því.
Þriðji bróðir Guðlaugar var
Hjörleifur, bóndi á Hofsstöðum í
Miklaholtshreppi á Snæfellsnesi.
Á neðri hæðinni á Freyjugötu 6
bjó sonur Guðlaugar, Ólafur Jó-
hannesson með konu sinni, Guð-
rúnu Sigurðardóttur, ættaðri frá
Stokkseyri, og ungri dóttur þeirra
hjóna, Ástríði. Á neðri hæðinni var
einnig dálítið verslunarhúsnæði, en
þar rak Guðlaug verslun um all-
langt skeið eða þar til heilsan bil-
aði, en þá leigði hún verslunarhús-
Guðfinna Lýðs-
dóttir - Minning
Fædd 4. maí 1904
Dáin 9. maí 1991
Amma mín, Guðfinna Lýðsdóttir,
var fædd í Stóra-Langadal á Skóg-
arströnd 4. maí 1904. Ung að árum
fluttist hún til Reykjavíkur og bjó
hér við Faxaflóann síðan.
Hún giftist Hallvarði Rósinkars-
syni (d. 1975) og eignuðust þau sex
syni. Þeir eru Agnar Rósinkranz
kvæntur Magnúsínu Ólafsdóttur,
Helgi, kvæntur Þuríði Erlu Erlings-
dóttur, Birgir, kvæntur Sigfríði
Stellu Ólafsdóttur, Hilmar, kvæntur
Hafdísi Ólafsdóttur, Gylfí, kvæntur
Öldu Björgu Bjamadóttur og Guð-
mundur, kvæntur Hólmfríði Maríu
Ólafsdóttur.
Amma á Hrísateig, eins og við
krakkarnir kölluðum hana, var góð
amma og mjög annt um alla fjöl-
skylduna. Mér er minnisstætt þegar
ég eitt sinn, sem lítil stúlka, bank-
aði upp á hjá ömmu. Hún kom til
dyra og þegar hún sá mig fagnaði
hún mér ákaflega og sagði: „Finna
mín, þú kemur eins og engill send-
ur af himnum.“ Þá vantaði hana
eitthvað, sem ég gat skotist eftir.
Þegar ég kom úr sendiferðinni átti
ég von á góðu. Amma bauð mér inn
og hélt litla veislu.
Heimili þeirra ömmu og afa á
Hrísateig þótt mér ákaflega fallegt
og ég horfði hugfangin á stytturnar
og skrautið í stofunni hjá þeim. Það
var alltaf svo fínt og fágað hjá
ömmu, hún var myndarleg húsmóð-
ir. Sjálf var hún alltaf vel til fara
og fallega til höfð.
Þegar ég komst á fullorðinsár
átti ég því láni að fagna að búa
eitt ár í kjallaranum hjá afa og
ömmu. Heimili þeirra var friðsælt,
þótt mikið væri um gestakomur.
Synirnir sýndu þeim mikla ræktar-
semi og leið ekki sá dagur að þeir
ýmist kæmu ekki eða hringdu.
Eftir að afi dó flutti amma í
Vesturberg og síðan að Hrafnistu
í Hafnarfirði. Síðustu árin dvaldi
hún þar á sjúkradeild við gott at-
læti. Henni leið þar vel. Það eina
sem hún kvartaði yfír var að geta
ekki boðið okkur upp á neitt. Henni
var eðlislægt að vera veitandi en
ekki þiggjandi.
Amma var alin upp við húslestra
og kunni Passíusálmana og marga
aðra sálma. Þegar ég og fjölskylda
mín heimsóttum ömmu í sumarbyij-
un báðum við saman, eins og við
vorum vön. Það kom mikill friður
yfír ömmu og hún brosti svo fal-
lega. Hún var alltaf þakklát fyrir
bænina og fann í henni vellíðan og
blessun.
Hinn 4. maí sl. hélt amma upp
á 87 ára afmæli sitt í veislusal á
Hrafnistu. Þar vorum við saman-
komin, afkomendur hennar og fjöl-
skyldur þeirra ásamt eftirlifandi
systkinum hennar, Kristjáni og
Báru. Amma var með hressasta
móti og brosti af ánægju að geta
horft á hópinn sinn. Aðeins fimm
dögum síðar, aðfaranótt uppstign-
ingardags, var hún kvödd á Drott-
ins fund.
Við sjáum á bak heiðurskonu,
sem skilaði góðu ævistarfí. Pjöl-
skyldan er þakklát fyrir góðar
minningar og allt sem amma gerði
fyrir okkur.
Drottinn blessi minningu Guð-
finnu Lýðsdóttur.
Guðfinna Helgadóttir
Faðir okkar, t
ÞORKELL ÞORLEIFSSON húsgagnabólstrari, Rauðarárstíg 30,
lést í Landspítalanum 14. maí. Börnin.
Guðlaug Björg Björnsdóttir til
vinstri og Petrína Björnsdóttir til
hægri.
næðið öðrum. Ólafur sonur hennar
var lengi kaupmaður á Grandarst-
ígnum. Áður en hún hóf verslunar-
rekstur á Freyjugötu 6 rak hún
um nokkurn tíma verslun á
Frakkastíg 11. Hun var dugleg og
laginn kaupmaður og átti auðvelt
með að afla sér vina, sem virtu
hana vegna hennar miklu mann-
kosta. En þó fór það svo, að þau
Guðlaug og Jóhannes Vilhelm
Hansen Sveinsson, maður hennar,
slitu samvistir. En rómað var það
í fjölskyldu þeirra, að þótt fjöl-
skylduböndin brystu þá brastu
aldrei vináttuböndin. Þau Jóhannes
höfðu hafið búskap á Kirkjufelli í
Grundarfirði, þar sem hann var
útvegsbóndi og þar fæddust bömin
þeirra fjögur: Björn, sem fluttist
ungur til Kanada og vegnaði þar
vel, Sveinn, sem átti heima í
Reykjavík, Kristín, sem bjó með
móður sinni á Freyjugötu 6 og
Ólafur, kaupmaður á Grandarst-
ígnum. — 011 sín seinni ár rak
Jóhannes verslun á Öldugötu 41,
Reykjavík, og farnaðist vel. Guð-
laug andaðist 12. mars 1947, 85
ára að aldri, þrátt fyrir krankleika
sinn og lélega heilsu hélt hún and-
legri reisn sinni til hinsta dags,
elskuð og virt af öllum, sem hana
þekktu. Þá tók Kristín, dóttir henn-
ar, fyrir fullt og allt við hússtjórn-
inni á Freyjugötu 6 og reyndist
enginn eftirbátur móður sinnar
sem mikilhæf mannkostakona.
Petrína „frænka“ Björnsdóttir,
sem hafði búið í skjóli systur sinnar
alla tíð, var fædd 19. september
1875 og lést 12. maí 1962.
Þessar þijár merkiskonur, —
Guðlaug „amma“ Björnsdóttir,
Petrína „frænka“, systir hennar,
og Kristín, dóttir hennar, sem hefði
orðið 100 ára í dag, urðu á vegi
okkar vestfírsku skólapiltanna um
hríð og samferða okkur nokkur ár.
Eftir þá samferð og eftir þau góðu
kynni eram við ríkir af fögram
minningum, sem aldrei fyrnast.
Guð blessi þær allar.
Þorgeir Ibsen
t
Eiginkona mín, >
BRYNHILDUR SVALA EINARSDÓTTIR,
er látin.
Sveinbjörn Þorsteinsson.
t
Hjartkær eiginkona mín,
ÁSTA EINARSDÓTTIR,
andaðist f Landspítalnum miðvikudaginn 15. maí.
Esra Pétursson.
t
Eiginmaður minn, faðir okkar og sonur,
ARNÞÓR SIGTRYGGSSON,
er lést 12. maí, verður jarðsunginn frá Bessastaðakirkju í dag,
föstudaginn 17. maí, kl. 13.30.
Aðalheiður Guðjónsóttir,
Björg Arnþórsdóttir, Páll Heiðar Pálsson,
Andri Björgvin Arnþórsson, Sigtryggur Arnþórsson,
Björg Arnþórsdóttir, Sigtryggur Jósefsson.
t
Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir,
KRISTÍN MAGNÚSDÓTTIR,
Einimel 11,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Dómkirkjunni í dag, föstudaginn 17. maí,
kl. 13.30.
Magnús Tryggvason, Guðrún Beck,
Anna L. Tryggvadóttir, Heimir Sindrason,
barnabörn og barnabarnabarn.
t
Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐNI SIGURÐSSON,
Háa-Rima,
Þykkvabæ,
verður jarðsunginn frá Hábæjarkirkju laugardaginn 18. maí
kl. 14.00.
Jóna K. Guðnadóttir,
Guðrún Guðnadóttir,
Sigríður F. Guðnadóttir,
Sigurður Guðnason,
Guðjón Guðnason,
Sigvaldi Ármannsson,
Guðlaugur Árnason,
Benedikt Júlíusson,
Jóhanna Hallgrímsdóttir,
Magnea Gestsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.