Morgunblaðið - 17.05.1991, Page 44

Morgunblaðið - 17.05.1991, Page 44
44 MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 1.7. MAI 1991 Hljómsveitin Rauða eplið. ■ HLJÓMSVEITIN Rauða eplið mun koma fram mánu- dags- og þriðjudagskvöld nk. á veitingahúsinu Tveir vinir og annar í frii. Hljómsveitina skipa: Björn Sigurðsson, Vignir Stefánsson, Eyjólfur Sigurðsson, Stefán Hólm- geirsson og Einar Bárðarson. Sérstakur kynnir verður Björn Sigurðsson. í kvöld Miðaverð kr. 700. Snyrtilegur klæðnaður. Sólveig Eggertsdóttir. Sólveig’ sýnir í Gallerí einn einn Matargestir Mongolian Barbecue: Matur + miði = kr. 1.480,- Hljómsveitin Jötunuxar. ■ HLJÓMSVEITIN Jötunuxar leikur á veitingastaðnum Fimmunni í kvöld, föstudaginn 17. maí. Þeir munu meðal annars kynna lög af væntanlegri hljómplötu sinni sem kemur út í júní. Hljómsveitina skipa: Rúnar Orn Friðriksson, Hlöð- ver Eggertsson, Guðmundur Gunnlaugsson, Jón Oskar Gíslason og Jósep Sigurðsson. SÓLVEIG Eggertsdóttir opnar laugardaginn 18. maí sýningu á myndverk- um sinum í Gallerí einn einn við Skólavörðustig 4a. Sólveig útskrifaðist úr Myndmótunardeild Mynd- lista- og handíðaskóla ís- lands vorið 1990 og hefur gerst gestanemandi við sömu deild nú í vetur. A sýningunni sem er fyrsta einkasýning Sólveigar eru lágmyndir og þrívíddar- verk-unnin úrýmsum efnum, svo sem ryðjárni, sóti, bý- vaxi, gleri, ljósmyndum o.fl. Eastwood í örmum Braga Kvikmyndir Arnaldur Indriðason Nýliðinn („The Rookie"). Sýnd í Bíó- höllinni. Leikstjóri: Clint Eastwood. Aðalhlutverk: Clint Eastwood, Charlie Sheen, Raul Julia, Sonia Braga, Tom Skerritt. Bandaríkin. 1990. Þott Clint Eastwood sé farinn að fást við metnaðarfull verk í seinni tíð („White Hunter, Black Heart“, ,,Bird“) hefur hann ekki gleymt uppruna sínum. Nýjasta mynd hans, Nýliðinn, er ekta harðhausa- mynd sem hann leikstýrir sjálfur. Hún fer hægt að stað en vinnur á og það eru ein eða tvær senur í henni sem enginn sannur Eastwoodaðdáandi má missa af. Annars er varla frumlegan þráð að finna í formúluafþreyingunni. Eastwood leikui; pólska vandræðalöggu, fráskilinn drykkjuraft að sjálfsögðu, sem missir lögguvin sinn í byrjun og fær nýjan, ung- an og sparifataklæddan dreng frá milla- heimili sem félaga. Charlie Sheen leikur hann en Eastwood er ekki lengi að snúa honum af braut snyrtimennskunnar. Saman eiga þeir í höggi við óprúttna bíla- þjófa, sem hið glæsilega par Raul Julia og Sonia Braga leika mjög skemmtilega, en það er ekki heiglum hent að hafa þau undir eins og Eastwood fær sérstaklega að kenna á. Myndin er ansi brokkgeng og tekur ekki almennilega við sér fyrr en um mið- bikið en eftir það er skemmtuninni borg- ið. Myndin er löng, fullir tveir tímar, og fyrri hlutinn er langdreginn á meðan ver- ið er að kynna aðalpersónunnar til sög- unnar og ýmsar staðlaðar aukapersónur. Færðar eru rándýrar bílafórnir í hressi- legum bílaeltingaleik í upphafi og Charlie Sheen fær að sanna sig á þunnildislegan hátt með því að leggja pönkarabúllu í rúst í óvissum tilgangi. Áhættuatriðin eru vel af hendi leyst en skortir frumlegar nýjungar. Á meðan eru Eastwood og sérstaklega Sonia Braga að stela senunni í besta at- riði myndarinnar. Þjófapakkið rænir Eastwood og þegar enginn sér til nauðg- ar hún honum þar sem hann situr bund- inn við stól. Þetta er verulega sexí og skopleg sena, listilega uppfærð og gerð til grínast að harðjaxlaímyndinni og það tekst svo um munar. Aidrei hefur hetjan verið jafn pínlega hjálparvana og undir álögum hinnar glæsilegu Sonia Braga. Sjálfur er Eastwood léttur á bárunni og leggur áhersluna á húmorinn í hlut- verki sem hann veit að hann hefur leikið oftar en nokkur annar. Sheen tekur aftur á móti hlutverk sitt full hátíðlega og öll sálarkreppa hans vegna þess sem gerðist í fortíðinni og slæmt samband hans við föður hans fer fyrir ofan garð og neðan. En Julia og sérstaklega Braga standa við sitt þótt sú síðarnefnda líti ekkert of sann- færandi út með Uzi vélbyssu í höndunum. Andartök í Andabæ Leitin að týnda lampanum („Duck Tales - The Movie: The Treasure of the Lost Lamp“). Sýnd í Bíóborginni. Bandaríska Disney-teiknimyndin Leitin að týnda lampanum er eins og nafnið kannski bendir til teiknað afbrigði af Indi- ana Jones myndunum með viðkomu í arabísku æfintýrunum og jafnvel með snert af Gosa í lokin. Blandan heppnast ágætlega þótt hún sé ansi spör á frumleik- ann. Með aðalhlutverkin í myndinni fara hinn ótrúlega ríki Jóakim frændi úr Andabæ (stundum kallaður Skröggur en Kuggur í þessari þýðingu) og Ripp, Rapp og Rupp. Þeir finna mikinn fjársjóð í pýramída einum og þar á meðal töfra- lampa með góðum anda drengs sem get- ur uppfyllt hveija ósk þína (næstum því) en þráir það mest sjálfur að vera bara venjulegur strákur. Illmennið og þijóturinn Kalli Baba, sem breytt getur sér í hvaða skepnu sem er (hann er reyndar fyndnastur sem engi- spretta), fylgist grannt með ásamt spaug- ilegum aðstoðarmanni sínum, óforbetran- legum þjófi, og bíður þess að fá lampann í hendurnar svo hann öðlist heimsyfirráð, ekkert minna. Myndin hefst á Indiana Jones eftirlík- ingunni en ekkert sem á eftir kemur er jafn skemmtilegt henni. Þar er há- spenna/lífshætta á hverju horni, gildrur að varast áður en næst í fjársjóðinn, og æsileg undankoma í lokin. Miðkaflinn, sem er dauflegastur, lýsir uppgötvun Ripp, Rapp og Rupps á töfralampanum og andanum í honum, en lokakaflinn er fjörlegur bardaginn við Kalla Baba hinn ógurlega. Hér er svosem ekki byltingarkennt efni á ferðinni en Leitin að týnda lampanum skemmtileg teiknimynd gerð í anda Di- sney-hefðarinnar. Spaugið og fjörið er allsráðandi og það ætti engum krakka að jeiðast undir sýningunni. Á undan aðalmyndinni er stutt teikni- mynd um hrakfallabálkinn Plútó. Sýningin stendur til 30. maí og er opin alla daga frá kl. 14 til 18. DANSBARINN Grensásvegi 7, símar 688311 og 33311 Forsmekkur á breiðtjaldinu: Micbiko Koshino - f&anchester QibesQn Qbe Qrea - K-klass SUMARIÐ '91 UPPLYSINGASIMSVARI 688 273 • 20 ARA í kvöld: LOÐIN ROTTA Laugavegi 45 - s. 21 255 IIDYRUNUM

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.