Morgunblaðið - 17.05.1991, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
FOSTUDAGUR 17. MAÍ 1991
KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ
Amór varla með gegn Albaníu
Erað athuga sinn gang varðandi
framhald mála í Frakklandi
ARNÓR Guðjohnsen telur litla
möguleika á að hann geti verið
með í landsleiknum gegn Al-
baníu íTírana sunnudaginn 26.
maí n.k. „Ég vil ólmur komast,
en aðstæður hér eru þess eðl-
is að ég efast um að ég geti
það,“ sagði Arnór við Morgun-
blaðið ígærkvöldi.
Hann sagði dómurinn um að
Bordeaux verði að leika 1 2.
deild í frönsku deildinni næsta tíma-
bil hefði verið mikið áfall. „Það var
búið að bjarga svo miklu og við
höfum leikið mjög vel í síðustu sex
umferðunum, áttum jafnvel mögu-
leika á Evrópusæti, en svo er allt
saman dautt, búið.“
Bordeaux hélt fund með leik-
mönnunum í gær og sagði Arnór
að félagið væri tilbúið að bjóða
mönnum eitt og annað, en sennilega
yrði það samt að selja marga og
stokka spilin upp á nýtt.
„Þetta er draumastaður og
draumafélag og ég hefði alveg vilj-
að leika áfram með liðinu, en það
er ekki spennandi að vera í 2. deild,“
sagði Arnór. Hann bætti við að
hann hefði ekki verið í beinum við-
ræðum við önnur félög, en nokkur
hefðu sýnt áhuga á að fá sig og
eins hefði hann heyrt af öðrum, sem
vildu viðræður. Bæði er um frönsk
og belgísk lið að ræða, en Arnór
sagðist hafa takmarkaðan áhuga á
að fara aftur til Belgíu.
„Eg er að athuga minn gang og
það gerist ekkert einn, tveir og
þrír,“ sagði landsliðsmaðurinn.
Bordeaux leikur í Lyon í síðustu
umferðinni föstudaginn 24. maí og
sagði Arnór að mikilvægt væri fyr-
ir sig að spila þann leik, því hann
vissi af liðum, sem ætluðu að fylgj-
ast með sér. Því væri landsleikurinn
gegn Albönum sennilega út úr
myndinni hjá sér, „en ég er pott-
þéttur í Tékkaleikinn."
BoJohansson, landsliðsþjálfari:
„Held í vonina“
Bo Johansson, landsliðsþjálfari, vildi ekki gefa upp alla von varðandi Arnór. „Ég
skil erfiða stöðu hans, en félög, sem hafa áhuga á honum, geta fylgst með
honum um þessa helgi. Ég reyni hvað ég get til að fá hann til að spila og held enn
í vonina um að dæmið gangi upp.“
Arnór Guðjohnsen ógnar vöm albanska liðsins i leiknum í
Reykjavík. Hann gerir tæplega ráð fyrir að vera með í Tirana.
ÚRSLIT
Íshokkí
NHL-deildin:
Úrslit i NHL-deildinni, Stanley-bikarinn:
Minnesota — Pittsburgh Penguins.5:4
■Minnesota hefur yflr 1:0. Það lið sem
fyrr vinnur fjóra leiki vinnur NHL-deildina.
Neal Broten gerði tvö marka Minnesota,
sem sló bæði Chicago Black Hawks og
Edmonton út, en þau voru talin sigurstrang-
leg fyrirfram.
Knattspyrna
EVRÓPUKEPPNI LANDSLIÐA
Belgrad, Júgóslavíu:
Júgóslavía — Færeyjar.........7:0
Ilija Najdoski (20.), Robert Prosinecki (24.),
Darko Pancev (50. og 74.), Zoran Vulic
(66.), Zvonimir Boban (70.), Davor Suker
(86.) Áhorfendur: 8.000
Staðan í 4. riðli:
Júgósiavía........6 5 0 1 20: 4 10
Danmörk...........4 2 11 7: 5 5
Færeyjar..........4 112 3:12 3
Norður-írland.....5 0 3 2 3: 8 3
Austurríki........3 0 12 1: 5 1
Helsinki, Finnlandi:
Finnland - Malta.............'.....2:0
Petri Jarvinen (51.), Jari Litmanen (88.)
SVISS
Young Boys - Lausanne..............1:1
Sion-Lugano........................1:0
Grasshopper - Luzem................3:2
Servette - Neuchatel Xamax.........1:4
Staða efstu Iiða:
Grasshopper..........10 6 2 2 19: 8 28
Sion.................10 3 6 1 10: 9 27
Lausanne.............10 4 4 2 12: 9 25
Neuchatel............10 4 4 2 14:10 25
■Sigurður Grétarsson og félagar í Grass-
hopper eru þar með einir i toppsætinu.
NOREGUR:
Lyn - Strömsgodset...................1:0
■Lið þeirra bræðra, Ólafs og Teits Þórðar-
sona, er í 2. sæti norsku 1. deildarinnar
eftir sigurinn í gær.
HANDBOLTI
IMM19 ára og yngri
Norðurlandamót 19 ára og yngri í
handknattleik hefst í Finnlandi í dag.
Island mætir Svíum í fyrsta leik. Geir
Hallsteinsson þjálfar lið íslands en
leikmannahópinn sem hélt utan skipa:
Reynir Reynisson, Víking, Ásgeir
Baldursson, UBK, Ingvar Ragnarsson,
Stjömunni, Andri V. Sigurðsson,
Fram, Gunnar Ó. Kvaran, Fram, Jason
Ólafsson, Fram, Karl Karlsson, Fram,
Páll Þórólfsson, Fram, Dagur Sigurðs-
son, Val, Ólafur Stefánsson, Val, Val-
garð Thoroddsen, Val, Róbert Sig-
hvatsson, Víkingi, Björgvin Björgvins-
son, UBK og Patrekur Jóhannesson,
Stjömunni.
íslandsmeistararnir eiga engan leikmann í landsliðinu:
Sterkir menn
úti í kuldanum
„Skil vel vangaveltur manna, en vona að þetta sé
sterkasta liðið," sagði landsliðsþjálfarinn
ÍSLANDSMEISTARAR Fram
eiga engan leikmann ílands-
liðshópnum, sem Bo Johans-
son, landsliðsþjálfari valdi
fyrir landsleikinn gegn Möltu
um aðra helgi. Kemur það
mörgum á óvart enda sjálf-
sagt einsdæmi að meistarar
eigi ekki landsliðsmann.
Bo sagði að menn hefðu ávallt
misjafnar skoðanir á liðsvali.
„Ég skil vel vangaveltur manna,
en vona að þetta sé sterkasta lið-
ið,“ sagði hann við Morgunblaðið.
í fyrra voru Bjami Sigurðsson
og Birkir Kristinsson markverðir
landsliðsins, en nú hefur Ólafur
Gottskálksson tekið stöðu Birkis.
Bo sagði að þessir þrír væru mjög
jafnir, en vandamálið væri að
hann gæti aðeins valið tvo hverju
sinni. „Birkir er mjög góður mark-
vörður, en Ólafur er markvörður
framtíðarinnar. Hann er efnileg-
asti markvörðurinn og ég lít
þannnig á, þegar hugsað er til
framtíðar, að hann verði að fá
tækifæri. En Birkir er sannarlega
áfram inni í myndinni."
Pétur aö koma tíl
Hlynur Stefánsson er tekinn
framylír Pétur Amórsson. „Hlyn-
ur hefur komið mér mjög á óvart.
Hann hefur mikla hæfileika, vinn-
ur vel og heldur boltanum — er
framtíðarmaður. Ég hef hrifist
n\jög af Pétri. Hann virkaði þung-
Bo Johansson.
ur í Reykjavíkurmótinu, en hefur
bætt sig mikið og lék vel um helg-
ina. Hann er vissulega baráttu-
maður, en Þorvaldur, Sigurður
Grétarsson og Rúnar stóðu sig
vel í æfingaferð landsliðsins og
sýndu að þeir geta líka barist.“
Krístján litið leikið
Kristján Jónsson var í hópnum
í fyrra, en Ólafur Kristjánsson
heftir tekið sæti hans. „Ólafur
stóð sig vel í æfíngaferðinni og
hann er einn af þessum framtíðar-
mönnum rétt eins og Einar Páll,
sem hefur leikið’ vel að undanf-
örnu og tekið miklum framfömm.
Ég valdi Kristján ekki að þessu
sinni vegna þess að hann hefur
lítið leikið í vor.“ En hvað þá með
Ragnar Margeirsson? ;,Ragnar er
í lagi og verður með í Islandsmót-
inu á mánudag. Hann tók ekki
áhættu á að spila á gervigrasinu,
en hann er heill og styrkir hóp-
inn.“
Þú valdir Grétar Einarsson í
undirbúningsferðina, en ekki
núna? „Eyjólfur Sverrisson kemur
í staðinn. Hins vegar er gott að
geta gefíð mönnum eins og Grét-
ari tækifæri og gott að sjá þá í
landsleik til að fá samanburð, en
Grétar keppir við Eyjólf og Eyjólf-
ur hefur vinninginn."
Atli mikilvægur
Atli Eðvaldsson verður í banni
gegn Albaníu en engu að síður lék
hann alla þijá undirbúningsleik-
ina. Hefði ekki verið skynsam-
legra að gefa vörninni, eins og
hún verður gegn Albaníu, tæki-
færi á að spila saman áður?
„Þetta er ekki vandamál. Við
verðum líka að hugsa um Tékka-
leikinn, sem vei-ður 5. júní. Atli
er bara ( banni í einum ieik og
hann er mjög mikilvægur fyrir
liðið. Ég veit að Gunnar getur
skilað miðvarðarstöðunni með
sóma, við höfum rætt, hvað þarf
að gera og það verður ekki vanda-
mál.“
U-21 liðið:
Hópurinn
tilbúinn
Hólmbert Friðjónsson, þjálfari
U-21 landsliðsins í knatt-
spyrnu, hefur valið 16 manna leik-
mannahópinn vegna leiksins í Al-
baníu í lok næstu viku. Leikmenn-
irnir eru þessir:
MBrkverðir: Kristján Finnbogason, ÍA,
og Ólafur Pétursson, ÍBK.
Aðrir leikmenn: Steinar Adolfsson,
Ágúst Gylfason og Öm Torfason, Val.
Ríkharður Daðason, Steinar Guðgeirsson
og Ágúst Ólafsson, Fram. Þomióður Eg-
ilsson, KR. Valgeir Baldursson og Valdi-
mar Kristófersson, Stjömunni. Ámar
Grétarsson og Grétar Steindórsson,
Breiðabliki. Þorsteinn Jónsson, Þór.
Kristján Halldórsson, ÍR. Helgi Björgvins-
son, Víkingi.
49. vormót ÍR
Mótið fór fram á Varmárvelli í Mosfells-
bæ i gærkvöidi. Sigurður Einarsson, spjót-
kastari, vann besta afrek mótsins. Heístu
úrsiit:
KARLAR:
110 m grindahlaup:
Ólafur Guðmundsson, Selfossi......15,26
Auðunn Guðjónsson, HSK............15,28
100 m liiaup:
Einar Þ. Einarsson, Ármanni,......11,06
Egili Eiðsson, KR.................11,24
Gunnar Guðmundsson, FH,...........11,31
800 m hlaup:
Stefán Guðjónsson, ÍR,..........2.00,35
Amgrímur Guðmundsson, UDN,......2.00,58
Steindór Guðmundsson, Selfossi..2.01,28
Kaldalshlaupið, 3.000 m
Jóhann Ingibergsson, FH,........8.50,02
Daníel Smári Guðmundsson, KR....8.53,64
Kristján Skúli Ásgeirsson, ÍR...8.58,87
4x100 m boðhlaup:
SveitKR......................... 44,73
SveitFH......................... 45,16
Sveit ÍR (drengir)................45,24
(íslm. 17-18 ára drengja (45,6. KR 1970)
Metsveitina skipuðu: Jóhannes Már Mar-
teinsson, Hjalti Siguijónsson, Anton Sig-
urðsson og Daði Ingólfsson.
Kúluvarp:
Bjarki Viðarsson, HSK..............13,55
Helgi Bjömsson, UDN,...............11,69
Spjótkast:
Sigurður Einarsson, Ármanni........77,42
Besti árangur mótsins.
Unnar Garðarsson, ÍR...............69,20
Þorsteinn R. Þórsson, UMSS,........59,70
Sleggjukast:
Jón A. Siguijónsson, UBK,...........62,02
Guðmundur Karlsson, FH,............60,00
Eggert Ó, Bogason, FH,.............54,84
Langstökk:
Ólafur Guðmundsson, Selfossi........6,63
Óskar Finnbjörnsson, ÍR,............6,36
Hreinn Hringsson, UMSE,.............6,06
Stangarstökk:
Kristján Gissurarson, UMSE,.........4,20
Auðunn Guðjónsson, HSK,.............3,80
Rafn Steindórsson, UMSE.............3,60
Þristökk:
Haukur Snær Guðmundsson, Selfossi, 13,54
Kristján Erlendsson, UBK,..........12,80
ísleifur Karlsson, UBK.............12,74
KONUR
100 m grindahlaup:
Guðrún Amardóttir, UBK.............14,90
Þuríður Ingvarsdóttir, Selfossi,...14,97
Birgitta Guðjónsdóttir, UMSE,......15,71
100 m hlaup:
Þuríður Ingvarsdóttir, Selfossi....13,11
Kristfn Ásta Alfredsdóttir, ÍR,....13,29
Guðrún Guðmundsdóttir, HSK,........13,59
Kristinsbikarinn - 400 m hlaup:
Kristín Markúsdóttir, UMSB.........63,66
Edda Marý Óttarsdóttir, KR.........64,82
Sonja Van Der Kaa, HSH,............65,01
1.500 m hlaup:
Martha ERnstdóttir, ÍR...........4,31.54
Laufey Stefánsdóttir, Fjölni.....5.03,53
4x100 m boðhlaup:
Sveit ÍR (meyjar)..................54,23
Sveit UDN..........................57,72
Spjótkast:
Íris Gröndfeldt, UMSB..............56,84
Birgitta Guðjónsddóttir, UMSE,.....46,64
Unnur Sigurðardóttir, UMFK.........39,82
Kringlukast:
Margrét Óskarsdóttir, ÍR,..........35,78
Halla Heimisdóttir, Ármanni........35,30
Hanna Lind Ólafsdóttir, UMSB........25,60
Hástökk:
Sigríður Anna Guðjónsdóttir, HSK,...1,55
María Anna Hansen, UMSE,.............1,55
Berglind Lóa Sigurðardóttir, ÍR......1,40
ÖLDUNGAR
Kringlukast:
Helgi Hólm, ÍK,.....................33,12
Jóhann Jónsson, Víði,...............30,56
Gestur: Eggert Bogason, FH,.........56,18
Hástökk:
HelgiHólm, ÍK........................1,50
Jóhann Jónsson (73 ára), Víði,.......1,15
100 m hlaup:
Tr/wsti Sveinbjömsson,FH,..v.......12,74
Jóhann Jónsson, Víði,...............15,73