Morgunblaðið - 23.07.1991, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 23.07.1991, Blaðsíða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 1991 Hreinsun á Straumnesfjalli hafin; Björgunarsveitir við Djúp afla sér tekna með hreinsuninni Tvær Chinook þyrlur frá bandaríska hernum annast þungaf lutninga ísafirði, frá Trausta Ólafssyni, blaðamanni Morgunblaðsius. BJÖRGUNARSVEITARMENN frá Isafirði, Bolungarvík, Hnífsd- al og Súðavík vinna nú að hreins- un í ratsjárstöð Varnarliðsins á Straumnesfjalli við norðanverða Aðalvík, en starfsemi stöðvarinn- ar var lögð niður árið 1960. Allt lauslegt rusl á fjallinu verður fjarlægt, mest af því verður urð- að á fjallinu, en leifar rafgeyma og blýplötur verða fluttar í burtu. Byggingarnar á fjallinu eru úr steinsteypu og verða þær látnar standa. Björgunarsveitirn- ar fá geiddar um 1,5 milljónir króna fyrir vinnu og koma þeir peningar sér vel fyrir starfsemi sveitanna, að sögn forsvars- manna þeirra. Alls vinna i kring um 40 björgun- arsveitarmenn við hreinsunina, að jafnaði 25 í senn. Jón Guðbjartsson John A. Speight Verk eftir John A. Speight valið til flutnings ALÞJÓÐLEG hátíð samtímatón- listar (ISCM) sem haldin er ár- lega í mismunandi þjóðlöndum verður haldin vorið 1992 í Varsjá í Póllandi. Alþjóðleg dómnefnd valdi eitt íslenskt verk til flutn- ings á hátíðinni, Sinfóníu nr. 2 eftir John A. Speight. Verkið, sem flutt verður í febrúar 1992 með Sinfóníuhljómsveit ís- lands, er fyrir stóra sinfóníuhljóm- sveit og dramatískan sópran. Til hátíðarinnar í Varsjá bárust alls 648 verk frá 43 löndum, en 63 þeirra voru valin til flutnings á hátíðinni, þar af 13 fyrir sinfóníu- hljómsveit. Hugmyndina að Sinfóníu nr. 2 segist John hafa fengið út á Túnis í fyrra og var það þrennt sem hafði áhrif á smíði hennar. í fyrsta lagi Sahara-eyðimörkin, stórkostleg og 60 gráðu heit, þjóðlagatónlistin sem er gróf og ágeng og í þriðja lagi innrásin í Kúvæt. John samdi sinfóníuna í júlí 1990 til janúar 1991. Samtímis hátíðinni verður haldið þing alþjóðlegrar samtimatónlistar og er Tónskáldafélag íslands aðiii að þeim samtökum. Síðast var há- tíðin haldin í Ósló haustið 1990 og var þá flutt verk fyrir píanó eftir Hróðmar Inga Sigurbjörnsson. formaður björgunarsveitarinnar Ernis í Bolungarvík segir, að þeir björgunarsveitarmenn líti á þetta verk öðrum þræði sem æfingu fyrir sveitirnar. Hinu sé þó ekki að leyna að þóknunin sem þeir fá fyrir hreinsunina komi sér vel fyrir starf- semi sveitanna, en reiknað er með að þóknun til þeirra nemi um einni og hálfri milljón króna. Jón var í hópi þeirra sem fóru í fyrstu ferðina á fjallið um hádegis- bilið í gær og hann mun dvalja þar uns hreinsuninni er lokið. í fyrstu ferðinni voru aðstæður á Ijallinu kannaðar, en þangað voru í gær fluttar þungavinnuvélar til að vinna við hreinsunina, tvær dráttarvélar ásamt kerrum og ein grafa. Herþyrla af gerðinni CH-Chinook var notuð til þessara flutninga og í dag kemur til ísafjarðar önnur þyrla af sömu tegund. Þyrlurnar tvær verða til flutninga á fjallið og af meðan á hreinsun stendur. Að henni lokinni verða þær notaðar í heræfingunum sem fyrirhugaðar eru hérlendis. Varnarmálaskrifstofa utanríkis- ráðuneytisins hefur yfirumsjón með hreinsuninni á Straumnesfjalli í samvinnu við umhverfisráðuneytið og Náttúruverndarráð. Áætlað er að hreinsunin kosti íslenska ríkið alls 2,5 til 3 milljónir króna, en framlag Varnarliðsins til verksins er í formi afnota af þyrlunum. Með í fyrstu för á fjallið í gær voru Eiður Guðnason umhverfisráð- herra og Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra. Þá var einnig í förinni Sigurður Þráinsson líffræð- ingur og starfsmaður Náttúru- verndarráðs. Að sögn Sigurðar hófst undirbúningur hreinsunarinn- ar á Straumnesijalli af hálfu Nátt- úruverndarráðs þegar árið 1987. Sigurður segir að ekki hafi farið fram neinar mengunarrannsóknir á íjallinu. Ástæðuna segir hann vera þá að ekki sé talin hætta á teljandi mengun af völdum þeirra hluta sem skildir voru eftir í stöðinni. Þó hafi þar verið rafgeymar sem hafi sprungið og sýran farið í jarðveg- inn. Sigurður segir hins vegar að fyrirhugað sé að taka sýni og greina jarðgas til að athuga hvort einhver mengun hafi orðið á Heiðarfjalli á Langanesi, þar sem einnig var rat- sjárstöð á vegum Varnarliðsins. Reiknað er með að hreinsuninni á Straumnesfjalli ljúki á föstudag. Jón Baldvin Hannibalsson ut- anríkisráðherra á göngu ásamt öðrum gestum í þokunni á Straumnesfjalli. Morgunblaðið/Árni Sæberg CH-Chinook herþyrlan sem notuð var til að flylja vinnuvélar og mannskap á Straumnesfjall. FJALLABILL A FINU VERÐI Lada Sport er ódýr 4 manna ferðabíll sem treysta má á jafnt sumar sem vetur. Aldrifið og læsta drifið gera bílinn mjög öruggan og stöðugan í akstri. Hann er með 1600 cnf vél og er fáanlegur bæði með fjögurra og fimm gíra skiptingu. Farangursrými má stækka með því að velta fram aftursæti. Lada Sport er fjallabíllinn í ár. Z LADA SPORT 5ÍÍMÍf> BIFREWAR & LAHDBUHAOARVELAR HF. Ármúla 13108 Reykjavík Símar 6812 00 & 312 36

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.