Morgunblaðið - 26.07.1991, Blaðsíða 4
Lítrc,
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 26. JULI 1991
Gjaldþrot BCCI-bankans:
Ekkert í húfi fyr-
ir íslenska banka
BCCI-BANKINN kom lítilsháttar við sögu skreiðarviðskipta hér
á iandi á fyrri helmingi níunda áratugarins en þær upplýsingar
fengust lyá bönkunum að þessir samningar væru að fullu greidd-
ir og yrðu bankarnir ekki fyrir neinum skakkaföllum þótt bank-
inn yrði lýstur gjaldþrota.
Björn Tryggvason, aðstoðar- sem væri útistandandi væru tvær
bankastjóri í Seðlabankanum, síðustu skreiðarsendingarnar sem
sagði að þeir skreiðarsamningar hefðu verið seldar án banka-
sem BCCI-bankinn hefði ábyrgst ábyrgðar. Sömu svör fengust hjá
^æra áð'íullu greiddir. Það eina*" viðskiptabönkuniim!
Húsavík:
Dýpka þarf hðfnína fyr-
ir 160 milljónir króna
Eimskipafélagið telur höfnina varasama stærri skipum
HÖFNIN á Húsavík er varasöm stærri skipum, að mati Eimskipafé-
lags íslands hf. í bréfi félagsins til bæjarstjórnar Húsavíkur er
bent á, að skip félagsins hafi orðið fyrir verulegum botnskemmdum
í höfninni undanfarin ár og verði ekki bætt úr, telji félagið höfn-
ina of varasama fyrir Mánafoss og önnur stærri skip. Halldór Blönd-
al samgönguráðherra hefur látið vinna áætlun um framkvæmdir
við endurbætur á höfninni og lagt málið fyrir ríkisstjóm. Halldór
segir að áætlað sé, að endurbæturnar kosti 160 milljónir króna og
að í þær verði að ráðast þegar á næsta ári.
Halldór Blöndal sagði í samtali telji félagið að áætlunarsiglingar
við Morgunblaðið, að í maí síðastl-
iðnum hafi Eimskipafélagið ritað
bæjarstjóm Húsavíkur bréf og
skýrt frá því að skip félagsins
hefðu orðið fyrir verulegum botn-
skemmdum í Húsavíkurhöfn síð-
astliðin ár.
Halldór sagði að í bréfinu komi
fram að ef ekki verði ráðist í dýpk-
unarframkvæmdir í höfninni, þá
til Húsavíkur séu of varasamar
fyrir Mánafoss eða önnur stærri
skip og að þessi hafnaraðstaða
setji félaginu verulegar skorður
varðandi frekari þróun áætlunar-
siglinga til Húsavíkur.
Um Húsavíkurhöfn fara meðal
annars flutningar frá Kísiliðjunni
við Mývatn og hefur Mánafoss
meðal annars annast þá flutninga.
Auk dýpkunarframkvæmda þarf
að endurbæta ýmis hafnarmann-
virki.
Samgönguráðherra sagði afar
bfynt að skjótt verði brugðist við.
„Eg tók þetta mál upp við bæjar-
stjóra fyrir skömmu og síðan hefur
hafnamálastjóm unnið áætlun um
hvað nauðsynlegt sé að gera. Þá
erum við að tala um framkvæmdir
fyrir um 160 milljónir króna sem
yrðu að vinnast á næsta ári. Ég
geri mér vonir um að það takist
að fá viðunandi úrlausn á næsta
ári, en þetta mál er í afgreiðslu í
ríkisstjórninni og er þar í athug-
un,“ sagði Halldór Blöndal sam-
gönguráðherra.
Nauðsynlegt að fækka
í hreindýrastofmnum
- segir Aðalsteinn Aðalsteinsson
bóndi á Vaðbrekku í Hrafnkelsdal
NAUÐSYNLEGT er að fækka hreindýrum til að koma í veg fyrir
að stofninn bíði skaða af of mikilli fjölgun, að sögn Aðalsteins Aðal-
steinssonar, bónda á Vaðbrekku í Hrafnkelsdal. Umhverfisráðuneyt-
ið hefur ákveðið að í ár megi veiða 1.097 dýr en það er um fjögur
hundruð dýrum fleira en veiða mátti í fyrra. Að sögn Aðalsteins
Htur vel út með veiðina í ár en veiðitímabilið hefst þann 10. ágúst
nk. og stendur til 15. september.
„Hreindýrin ganga á kjarrgróð-
urinn og ef þau verða of mörg þá
endar það með hruni. Mest munar
um fléttugróður sem dýrin nærast
á yfir veturinn og er mjög lengi að
vaxa,“ sagði Aðalsteinn í samtali
við Morgunblaðið.
„Dýrin eru auk þess farin að
ganga mikið niður í byggð á veturn-
ar og hafa sótt í skógræktina sem
er héma. Að mínu mati er ástæðan
fyrir því efnaskortur sem hijáir
þau. Þau naga börkinn og smærri
tré, sérstaklega vissar tegundir, af
því að það vantar efni í fæðu
þeirra,“ sagði Aðalsteinn.
Hann sagði að það hefði ekki
komið í ljós fyrr en í vetur hve
mörg fullorðnu hreindýrin voru en
talið er að í hreindýrastofninum séu
nú rúmlega 4.000 dýr.
„Annað nýmæli er nauðsynlegt
og athyglisvert í nýju reglum um-
hverfisráðuneytisins en það er að
veiða megi tiltekinn fjölda af törf-
um, kúm og kálfum í hveiju sveitar-
félagi. Þetta er nauðsynlegt til að
halda dýmnum í jafnvægi og
tryggja betri nýtingu á afurðum,“
sagði Aðalsteinn Aðalsteinsson.
Patreksfj örður:
Fékk 140 kg lúðu á færi
Patreksfirði.
ÞAÐ var líf og fjör við höfnina á Patreksfirði þegar fréttarit-
ari leit þar við einn góðviðrisdaginn. Ánægðastur allra var áreið-
anlega Leifur Egilsson úr Keflavík, sem var að landa einhverri
stærstu lúðu sem hér hefur sést um langan aldur.
Menn fengu vatn í munninn af
tilhugsuninni um rafabeltið. En
lúðan var sett beint í gám og fer
á markað fyrir sunnan. Lúðan
reyndist vega 140 kg og fékkst á
færi 22 sjómflur norðvestur af
Blakk. Leifur hafði snör handtök
og batt ferlíkið upp á síðuna,
svona rétt eins og hvalfangarar
fara að og hélt til lands. Þetta
er fyrsta úthald Leifs á skaki en
hann er þó enginn nýliði til sjós
enda brást hann alveg hárrétt við
og sóaði ekki kröftunum í að
reyna að innbyrða skepnuna.
Hann keypti bát sinn, Pollý KÓ
44, 23 feta mótunarbát, í vor á
kaupleigusamningi og líst vel á
að komast frá því, enda búinn að
gera það gott síðan hann kom
hingað 19. júní. Svona happafeng-
ur hlýtur að boða gott fyrir mann
sem er að hefja útgerð.
- Hilmar
Leifur og lúðan.
Morgunblaðið/Hilmar Árnason
VEÐURHORFUR í DAG, 26. JÚLÍ
YFIRLIT: Um 400 km suðaustur af Hvarfi er víðáttumikil 994ramb
læað sem þokast austur.
SPA Suðlæg átt. Rigning víða um land fram eftir morgni, en stytt-
ir upp og hlýnar norðaustanlands í kringum hádegi. Aftur riging
norðanlands undir nótt.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG:Suðaustlæg átt. Skýjað
og rigning eða skúrir víða um land, síst þó á Vestfjöröum og í inn-
sveitum vestantil á Norðurlandi. Hiti verður 9-12 stig um landið
sunnanvert, en 10-18 stig norðanlands.
Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
10 Hitastig:
10 gráður á Celsius
SJ Skúrir
*
V El
— Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—|- Skafrenningur
[~<^ Þrumuveður
n/. y, Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar
IV.
Heiðskírt vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig.
Léttskýjað Hálfskýjað / / / / / / / Rigning / / / * / * / * / * Slydda
Skýjað / * / * * *
Alskýjað * * * * Snjókoma
VEÐUR I/ÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hiti veður
Akureyri 12 skýjað
Reykjavík____11 rigningogsúld
Bergen 21
Helsinki 17
Kaupmannahöfn 16
Narssarssuaq 16
Nuuk
Osló
Stokkhólmur
Þórshöfn
13
23
21
11
skýjað
skýjað
rlgning
skýjað
léttskýjað
skýjað
léttskýjað
súldásfð.klst.
Algarve
Amsterdam
Barcelona
Berlln
Chlcago
Feneyjar
Frankfurt
Glasgow
Hamborg
London
Los Angeles
Lúxemborg
Madrid
Malaga
Mallorca
Montreal
NewYork
Orlando
París
Madeira
Róm
Vín
Washington
Winnipeg
24 heiðskirt
17 skúr 6 sfð. klst.
18 rigning
22 hálfskýjað
17 léttskýjað
29 léttskýjað
16 þrumuveður
22 léttskýjað
20 skýjað
19 skýjað
19 alskýjað
16 skúrásfð.klst.
30 heiðskírt
26 mistur
31 hálfskýjaS
20 léttskýjað
22 þrumuveður
24 léttskýjað
16 rignlng
21 skýjað
27 hálfskýjað
23 skýjað
22 þrumuveður
11 léttskýjað
'r
VEÐUR