Morgunblaðið - 26.07.1991, Síða 19

Morgunblaðið - 26.07.1991, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 1991 19 anna tveggja: „Við vorum á þeim tíma með aðrar hugmyndir um framtíðarfyrirkomulag. Við vorum í sameiningarviðræðum við Vinnslustöðina og eins við ísfélagið. Við höfðum í huga, ef af samruna við Vinnslustöðina hefði orðið, að gúanóið fylgdi í þeim pakka, en eins og þú veist þá á Vinnslustöðin 50% á móti okkur í Fiskimjölsverk- smiðjunni." Sigurður Einarsson bendir á að þótt hlutur Hraðfrystistöðvarinnar í loðnukvótanum sé jafnhár og raun ber vitni, þá hafi bræðsluafurðir á undanförnum árum ekki hækkað í verði, heldur staðið í stað. „Verðið á fiskimjölinu í dollurum er ósköp svipað og það var fyrir fímmtán árum, en á sama tíma hefur verðið á þorskblokkinni fjór- eða fimm- faldast í dollurum," segir Sigurður. Óvissan hvað varðar framtíð loðnuveiða gerir það að verkum að ákvörðun um nýja loðnubræðslu, fullkomna að tækjum og mengunar- varnabúnaði verður ekki tekin um sinn. Jafnlengi verður því frestað að ákveða hverjir koma til með að eiga nýja bræðslu og hvort stofnað verður almenningshlutafélag um byggingu hennar og rekstur. En eitt Iiggur þó Ijóst fyrir - það verða ekki reistar tvær nýjar fiskimjöls- verksmiðjur í Vestmannaeyjum. ís- landsbanki hefur gert Eyjamönnum grein fyrir því að bankinn muni ekki koma nálægt fjármögnun tveggja nýrra verksmiðja. Þessi af- staða bankans er eigendum beggja verksmiðja Ijós, og því mun reyna á heimamenn hvort þeir nái saman í þessum efnum, áður en ljóst verð- ur hvort ný fiskimjölsverksmiðja rís í Vestmannaeyjum. Fjöruskoðun í Kollafirði í DAG klukkan 17-19 og á morg- un klukkan 10-12 stendur Nátt- úruverndarfélag Suðvestur- lands fyrir kynningu á fjöru- skoðunarverkefninu Fjaran mín, sumarið 1991. Kynningin verður í Hafnarhús- inu að vestanverðu. Þar verða einnig eyðublöð afhent með korti yfir alla strandlengju Kollafjarðar, þ.e. frá Gróttutöngum að Kjalar- nestöngum. Alls eru þetta 150 reinar, 4 á Seltjarnamesi, 76 í Reykjavík, 8 í Mosfellsbæ og 51 á Kjalarnesi. Þátttaka í ijöruskoðuninni er auðveld og skemmtileg. Tilvalið fyrir ijölskylduna að taka sér eina eða fleiri fjörureinar (ein fjörurein er um 500 m langur fjörubútur). Skilyrði til fjöruskoðunar eru góð um þessa helgi. Háíjara er milli klukkan 13 og 14, báða dagana. Þátttökugjald er ekkert. ZERO BASE REGNGALLI y Jakki og buxur / Grei&slukjör: Ekkert út, 1. greiösla í sept. og eftirstöövar á þremur árum sem kemur ekki aftur! HUSTJALD + 2 SVEFNPOKAR (-5°C) 5 MANNA TJALD m/fortjaldi + 2 SVEFNPOKAR (-5°C) KULUTJALD DD-200 + SVEFNPOKI (-5°C) SEGLAGERÐIN ÆGIR Komið við í einni glæsilegustu þjónustumiðstöð landsins. Opið frá kl. 8-23.30 alla daga. Kjörbúð með miklu matvöruúrvali : Veitingasalur - Greiðasala - Olíu- og bensínsala - Útibú Sparisjóðs Mýrasýslu - Upplýsingamiðstöð ferðamanna - Úrvals snyrtiaðstaða með skiptiborði fyrir kornabörn. KAUPFÉLAG BORGFIRÐINGA - OLÍUFÉLAGIÐ HF.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.