Morgunblaðið - 26.07.1991, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 26.07.1991, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 1991 Séra Bolli kvaddur SÉRA Bolli Gústavsson, nýkjör- inn vigslubiskup í Hólastifti, kveður Grenivíkursöfnuð við messu á sunnudag. Að lokinni messu verður honum haldið kveðjuhóf. Sr. Bolli stefnir að því að á Hólum í Hjaltadal verði kirkjulegt bókasafn og rann- sóknarmiðstöð. Séra Bolli hefur þegar sungið kveðjumessur sínar í Laufáskirkju og Svalbarðskirkju en kveðju- guðsþjónustan í Grenivíkurkirkju verður á sunnudag klukkan 13.30. Að henni lokinni munu sóknar- nefndir kirknanna þriggja halda honum og fjölskyldu hans kveðj- usamsæti í skóianum á Grenivík. Að sögn séra Bolla vinnur hann að því þessa dagana að ganga frá eigum sínum í Laufási og flytja til Hóla, en séra Pétur Þórarinsson hefur verið skipaður prestur í Laufási og byijar þjónustu sína þar um mánaðamót. Séra Bolli sagðist binda miklar vonir við að hið nýja starf sitt yrði fjölbreytt og ánægjulegt. Að því væri stefnt að á Hólum í Hjaltadal yrði kirkjuieg miðstöð fyrir Hólastifti og verið væri að vinna að reglugerð þar sem kveð- ið væri á um breytingar á starfs- sviði vígslubiskupa. Framvegis væri stefnt að því að vígslubiskup stæði fyrir námstefnum og ráð- stefnum á vegum kirkjunnar auk þess að heimsækja presta og söfn- uði og vinna að samstöðu og sam- vinnu prestanna í biskupsdæminu. Þá væri vígslubiskupum að auki ætlað að vinna ýmis störf beinlín- is í umboði biskups íslands, þann- ig að starfið væri öðrum þræði að létta á biskupsembættinu. Mestan áhuga sagðist séra Bolli hafa á því að á Hólum yrði komið upp kirkjusögulegu bóka- safni og þar yrði fræðimannsíbúð og aðstaða til rannsókna á kristi- legum efnum og eins yrði hægt að halda ráðstefnur á vegum kirkjunnar og skólans að Hólum. Þá væri sér ofarlega í huga, ekki síst vegna þess hve gott hljóðfæri væri í hinni glæsiiega endurgerðu Hóladómkirkju, að hafa uppi regl- ulegt tónleikahald. Þá gat hann þess að fyrir dyrum stæði að Sjón- Séra Bolli Gústavsson varpið tæki upp í septemberbyijun samnorræna guðsþjónustu í Þing- eyrakirkju og þar kæmu fram ein- vörðungu prestar og listamenn úr Hólastifti. Messan verður síðan send út samtímis í sjónvarpi á öllum Norð- urlöndum þann 15. september næstkomandi. Danskur kór á Sum artónleikunum ■ HLJÓMS VEITIN Stjórnin mun leika norðan heiða um helg- ina, Stjórnin verður í Sjallanum, Akureyri, í kvöld og Miðgarði, Skagafirði, laugardagskvöld. Hljómsveitin mun síðan taka sér frí næstu 3 vikurnar og hefja síð- an leik aftur 23. ágúst nk. ■ SÁLIN hans Jóns míns spilar á Norðurlandi um helgina. Hljóm- sveitin mun spila á Dalvík í kvöld og í Ydölum á laugardagskvöld. Á þessum viðkomustöðum mun Orv- arr Atli Örvarsson, hljómborðs- leikari, nota nýjan hátæknihljóð- gerfil frá Gong hf. Þessi gerfiil er nýstárlegur að því leyti að í stað þess að ýta á hnappa til þess að velja hljóð þá nemur gerfillinn tal- aðar skipanir gegnum hljóðnema. ■ SUMARKVÖLD í Sjallanum nefnist kvöldskemmtun sem efnt verður til annað kvöld, laugar- dagskvöld. Meðal þess sem í boði er á þessari sumarskemmtun eru léttur kvöldverður, söngur og tisk- usýning. Guðrún Gunnarsdóttir og Berglind Björk Jónasdóttir flytja við undirleik Níelsar Ragn- arssonar og Rokkbandsins dag- skrá með sönglögum frægra söng- kvenna á síðustu árum, tískusýn- ingarfólk mun sýna undirfatnað frá Amaro og Þorvaldur Hall- dórsson mun koma og syngja gömlu, góðu Sjallalögin. Að dag- skránni lokinni verður dansað við leik Rokkbandsins. HÖFÐABERG veitingasala 2. hæÖ Ingimar Eydal leikur fyrir matargesti föstudag og laugardag. Laugardagur: Hljómsveitin Herramenn leikur fyrir dansi. Borðapantanir í síma 22200. Hótel KEA ÞRIÐJU Sumartónleikarnir á Húsavík, í Mývatnssveit og á Akureyri verða nú um helgina. í þetta sinn kemur fram á tón- leikunum kór Sankti Morten- kirkjunnar í Randers í Dan- mörku. Þessi kirkjukór einkennist af því að söngvararnir eru afar ungir, á aldrinum 14 til 22 ára. Björn Stein- ar Sólbergsson, talsmaður Sumar- tónleika, sagði að kórinn hefði kom- ■ HLJÓMS VEITIN Ný dönsk, mun skemmta í kvöld og annað kvöld í veitinga-, dans- og kvik- myndahöllinni 1929 á Akureyri. Allir velkomnir á þennan de luxe“ dansleik Nýrrar danskrar á Akur- eyri. Hellu. ÞRIR listamenn munu á laugar- daginn opna myndlistarsýningu á vegum M-hátíðarnefndar Rangárvallasýslu og Mennta- málaráðuneytisins. Sýningin er sett upp í húsnæði sem áður hýsti kjötvinnslu hér á staðnum en var upphaflega byggt sem prent- smiðja. Listamenn þessir eiga það sameiginlegt að vera aðflutt- ir, búa á Hellu eða nágrenni og starfa hér við list sína. Elías Hjörleifson sýnir m.a. vatnslita-, olíukrítar og akrýlmynd- ir, ailt nýlegar myndir sem hann hefur ekki sýnt áður á íslandi, en Elías var búsettur í Danmörku í 27 ár. Þar hefur hann tekið þátt í fjölda samsýninga og einnig haldið einka- sýningar. Þá tók hann þátt í sam- sýningu í FÍM-salnum 1979. Guðrún Svava Svavarsdóttir nam í Myndlistarskólanum í Reykjavík og hefur tekið þátt í mörgum sýn- ingum, m.a. í FÍM-salnum, Kjar- valsstöðum, Listmunahúsinu, Gall- erí Súm, á Akureyri, ísafirði og Neskaupstað. Guðrún Svava sýnir olíumyndir, teikningar og blýants- myndir og nýjar vatnslitamyndir. Gunnar Órn Gunnarsson sýnir ið til Akureyrar í vikubyrjun og verið hér við æfingar. Hingað kæmu 20 af þeim 28 söngvurum sem væru í kórnum fullskipuðum. Þetta væri kór sem farið hefði víða um lönd til að flytja fjölbreytta sönglist sína, meðal annars til Póllands, Englands, Noregs og Svíþjóðar, en þetta væri fyrsta íslandsferðin. Á tónleikunum syngur kórinn sálmalög og kirkjutónlist frá ýms- um öldum, meðal annars eftir Pal- estrina, Mozart, Bach, Gade og Martein Lúther auk nútímavérka eftir stjómandann og fleiri. Kór- stjóri er Ulrik Rasmussen, en hann er auk þess organisti í Sankt-Mort- enkirkjunni. A tónleikunum leikur hann einnig orgeltónverk og það gerir jafnframt Lise Lotte Rasmus- olíumálverk unnin á síðustu tveim árum sem fæst hafa verið á sýningu áður. Einnig verður hann með nokkra skúlptúra. Gunnar Örn hef- ur haldið fjölmargar einkasýningar hér heima og erlendis og tekið þátt í samsýningum víða um heim. Hann var fulltrúi íslands á Tvíæringnum í Feneyjum 1988. Verk hans er að finna í söfnum í Reykjavík, New- York, Tókýó og Stokkhólmi. Listamennirnir voru önnum kafn- ir í vikunni að koma verkum sínum fyrir og skipuleggja sýningarhaldið, en þau hafa ekki sýnt áður heima í héraði. Er það kærkomin tilbreyt- ing fyrir Rangæinga að fá að sjá listaverk þeirra á heimavelli. Sýningin opnar nk. laugardag kl. 17.00 og við það tilefni mun kvartet leika djass. Kvartettinn skipa þeir Rúnar Georgsson á saxó- fón, Björn Thoroddsen á gítar, Bjarni Sveinbjörnsson á kontra- bassa og Guðmundur Steingríms- son á trommur. Sýningin stendur yfir dagana 27. júlí til 11. ágúst og verður opin daglega kl. 16.00 til 21.00. Að- gangur er ókeypis. - A.H. M-hátíð á Hellu: Myndlist o g djass í Kjötvinnslunni Norðurlandameist- aramót unglinga í golfi á Akureyri BESTU golfleikarar Norður- landa 18 ára og yngri reyna með sér á Norðurlandameistaramóti á Jaðarsvelli á Akureyri um helgpna. Mótið verður sett í dag en keppt verður á morgun og sunnudag. Keppendur voru komnir á Jað- arsvöll og voru þar að æfingum í góðviðrinu í gærmorgun. Móts- stjórinn, Stefán B. Einarsson, sagði að á Jaðri ríkti afar milt, norrænt andrúmsloft, enda væri veður gott og völlurinn með allra besta móti svo allir ættu að geta sýnt bestu hliðar sínar. Hannes Þorsteinsson hefur um- sjá með drengjaliði íslands á mót- inu en Inga Magnúsdóttir annast stúlkumar. Hannes sagði að ís- lendingar hefðu jafnan vermt neðsta sæti á móti sem þessu en Kór Sankti Mortenkirkju á tröppum Akureyrarkirkju. sen, sem að öðru jöfnu leikur undir við söng kórsins á tónleikunum. Tónieikamir í Húsavíkurkirkju í kvöld, föstudagskvöld, hefjast klukkan 20.30, í Reykjahlíðarkirkju í Mývatnssveit laugardagskvöld klukkan 20.30 og í Akureyrarkirkju klukkan 17 á sunnudag. í þetta sinn væri ekki óraunhæft að stefna á þriðja sæti, bæði í drengja- og stúlknaflokkum. Á Evrópumóti sem verið hefði í Osló fyrir skemmstu hefði verið ljóst að íslendingar ættu að eiga í fullu tré við Norðmenn og Finna, ekki síst á heimavelli. Hins vegar væru Danir og þó einkum Sviar með mjög sterk lið, enda hefðu þessar þjóðir skipst á að halda Norður- landameistaratitlinum. Stúlkurnar eru þijár í sveit hvers lands, en árangur tveggja bestu er talinn til vinnings. í stúlknaliði íslendinga em Karen Sævarsdótt- ir, Herborg Amarsdóttir og Andrea Ásgrímsdóttir. í drengja- flokki em 6 í hverri sveit en árang- ur fímm bestu er metinn til vinn- ings. íslensku strákarnir em Þórð- ur Ólafsson, Tryggvi Pétursson, Arnar Ástþórsson, Tómas Jónsson og Akureyringarnir Örn Arnarson og Sigurpáll Geir Sveinsson. Unglingamir leika stíft, 36 holur hvorn keppnisdaginn. Keppni hefst klukkan 8 að morgni báða dagana, en þá verða fyrstu keppendur ræst- ir út í fyrri hring. Seinni hringur- inn hefst svo klukkan 13. ■ SAMTÖK um sorg og sorgar- viðbrögð á Akureyri hyggja á að gera sér glaðan dag_ á morgun, laugardag. Að sögn Ólafar Hal- blaub, talsmanns Samtaka um sorg og sorgarviðbrögð, er ætlunin að fara í ferð að Selgili, sunnan Skóga í Fnjóskadal, og efna þar til grill- samkomu. Fyrirhugað er að félagar fari á einkabílum og leggi af stað frá Safnaðarheimili Akureyrar- kirkju klukkan 14 á morgun. í Selgili munu samtökin hafa útigrill til reiðu en félagarnir ætla að taka matföng með sér og njóta matar, skemmtunar og útivistar fram eftir degi. Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir Listamennirnir þrír; Elías Hjörleifsson, Guðrún Svava Svavarsdóttir og Gunnar Orn Gunnarsson. Kanadískur söng’vari og gítarleikari KANADÍSKI gítarleikarinn og söngvarinn, George Grosman, skemmtir gestum á veitinga- staðnum Gikknum, Ármúla 7, í kvöld, föstudagskvöld og á morgun, laugardagskvöld. Hann mun flytja popp- og blús- tónlist, þar a' meðal eigin lög. George Grosman hefur komið fram opinberlega í 15 ár, meðal annars í Toronto, Los Angeles og í London. á Gikknum Aðgangur er ókeypis fyrir gesti Gikksins og þeim er einnig boðið upp á „Draft Happy Hour“ frá klukkan 18-21 alla daga. George Grosman

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.