Morgunblaðið - 26.07.1991, Síða 36

Morgunblaðið - 26.07.1991, Síða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 1991 Miles - sjálfsævisagan Jass Guðjón Guðmundsson „Ég æfi mig á hverjum degi og borða oftast hollan mat. Stundum verð ég veikur fyrir negramat, eins og grillmat, steiktum kjúkl- ingum - þið vitið - mat sem ég má helst ekki borða. En ég reyki hvorki né drekk og er hættur að nota lyf - nema þau sem læknirinn minn gefur mér við sykursýkinni. Mér líður vel vegna þess að mér hefur aldrei fundist ég vera jafn skapandi. Mér finnst eins og há- punktinum sé enn ekki náð...“ Þetta eru lokaorð Miles Davis í sjálfsævisögu hans sem gefin var út í Bandaríkjunum 1989, en er nýlega komin í bókaverslanir hér á landi. í bókinni rekur Miles ævi sína á afar hispurslausan hátt. Ýmsir samferðamenn og kollegar fá það óþvegið frá meist- aranum, og þverskurður hinnar bandarísku þjóðar fær ekki háa einkunn. Hann segir að á meðan bandarískur almenningur lét sér fátt um hann og tónlist hans finnast var honum tekið _sem þjóð- höfðingja í Evrópu. Ástæðuna segir hann þá að Evrópumenn viðurkenni að jass, eða tónlist svartra eins og Miles kýs að kalla fyrirbærið, sé upprunninn meðal blökkumanna og meti framlag kynstofnsins til heimsmenningar- innar að verðleikum. Hvítir Bandaríkjamenn geti á hinn bóg- inn á engan hátt unnt þeim þess og reyni að gera hlut þeirra sem minnstan. Kynþáttafordómar eru honum áleitið umhugsunarefni og undirlægjuháttur kynbræðra hans er honum jafnógeðfelldur og fá- fræði hins almenna hvíta Banda- ríkjamanns um framlag blökku- manna til heimsmenningarinnar. Sagan hefst í East St. Louis, litlum bæ í miðvesturríkjunum þar sem Miles ólst upp. Þar segir frá fyrstu kynnum hans af tónlist blökkumanna og brösóttum sam- skiptum foreldra hans sem voru efnað millistéttarfólk. Þar átti leið um sveit Billy Eckstine, en með sveitinni léku meðal annarra Diz- zy Gillespie og Charlie Parker. Kynni tókust með þeim og skömmu síðar ákvað Miles, 18 ára gamall, að halda til New York til tónlistarnáms, en þó einkum til að leita uppi Gillespie og Parker. Þeir voru þá farnir að leika í eig- in hljómsveit tónlist sem féll í grýttan jarðveg meðal flestra djassgagnrýnenda en mæltist vel fyrir á 52. stræti, og hver djass- búllan á fætur annarri spratt upp í frjóum jarðvegi skapandi tónlist- ar. Fæðing beboppsins var um garð gengin. Gillespie gafst upp á samstarfinu við Parker sem samkvæmt frásögn Miles var að mestu leyti utanveltu af heróín- Miles Davis. neyslu. Síðar átti Miles eftir að slíta samstarfí við Parker af sömu ástæðu og eru lýsingarnar á sukk- inu heldur ókræsilegar. Miles lýsir því hvernig hann sjálfur féll fyrir heróíni sem fór eins og eldur í sinu á meðal djass- leikara og hrikalegri baráttunni við að losna undan viðjum þess, hvernig það umbreytti persónu- leika hans og nánustu vina hans og lifnaðarháttum þeirra - áföllin þegar ungir menn með mikla tón- listargáfu féllu hver á fætur öðr- um í valinn vegna eiturlyfja- neyslu. Það sem einkennir lífshlaup Miles öðru fremur er leitin að hinu nýja - hann var einn af spor- göngumönnum beboppsins en segist ekki skilja hvernig djass- tónlistarmenn geti ennþá sótt inspírasjón í boppið. í einum af eftirminnilegri köflum bókarinnar er Miles staddur í Hvíta húsinu ásamt fyrrverandi eiginkonu sinni í samkvæmi til heiðurs Ray Char- les. Hann lendir til borðs með hvítri konu sem spyr hann hvers vegna djasstónlist er ekki gefinn nægilegur gaumur í Bandaríkjun- um. Miles svarar því til að hvítir menn vilji sjá aðra hvíta menn skara fram úr en þegar djass og blús er annars vegar hafi þeir ekki vinninginn úr því tónlistin er upprunnin meðal blökkumanna. Frúin fyrtist við og spyr Miles hvað hann hafí svo sem afrekað sjálfur og hann svarar: „Ég hef líklega umbylt tónlistinni fimm eða sex sinnum... Segðu mér hvað þú hefur afrekað annað en að vera hvít.“ Miles - sjálfsævisagan er ómet- anleg heimild um umbrotatíma í lífi og list bandarískra blökku- manna - fæðingu beboppsins, fijálsdjassins, djassrokksins og fönksins. Hún er líka krassandi frásögn af daglegu lífi fijórra og sérkennilegra listamanna og gef- ur innsýn í hvernig perlur djass- bókmenntanna urðu til. ■ DAGANA 26. júlí til 3. ágúst munu eftirfarandi hljómsveitir skemmta gest- um Gauks á Stöng: Föstu- dag og laugardag munu i^hinir eldhressu Austfjarða- menn í hljómsveitinni Sú Ellen hrista upp í höfuð- borgarbúum. Sunnudag og mánudag munu síðan hinir- „ungu“ og efnilegu meðlim- ir Sniglabandsins halda enn eina útgáfutónleika. Þriðjudag og miðvikudag mætir Rokkabillyband Reykjavíkur til leiks, enn betra en síðast. Fimmtu- daginn 1. ágúst, föstudag- inn 2. ágúst og laugardag- inn 3. ágúst er það Rokk- 1 hljómsveit íslands með Friðrik Karlsson í broddi fylkingar, sem sér um stemmninguna. Þú svalar lestrarþörf dagsins á cír^iim MrKypranc* / Lúxus-terta. Rúllutertur Heimilishorn Bergljót Ingólfsdóttir Það er ekki amalegt að fá rúllutertusneið í eftirrétt eða með kaffinu, fáir afþakka slíkt góðgæti þegar boðið er. Hér fylgja með uppskriftir af þremur rúllutertum, tvær þeirra eiga það sameiginlegt að í þeim er kakó og þar af leiðandi dökkar, þó misjafnlega mikið sé í þær borið. Ein er svo Ijós en með súkkulað- ikremi. Gott er að hvolfa kökun- um á sykristráðan smjörpappír um leið og þær eru teknar úr ofninum.. Lúxus-terta 1 dl eggjahvítur (5-6 stk.), 3 dl sykur, 100 g saxaðar hnetur, 1 dl hveiti, l‘/2 msk. kakó, 1 pk. möndluflögur. Eggjahvíturnar stífþeyttar, sykrinum bætt smám saman í og þeytt vel á milli. Deigið á að vera stíft. Hnetur, hveiti og kakó sett varlega saman við. Deigið sett á smjörpappír á plötu, 3040 cm að stærð, möndluflögum stráð yfir. Kakan verður að bak- ast strax, í miðjum ofni við 175°C í 15-20 mín. Um það bil 4 dl af ijóma stífþeyttur og smurt á kalda kökuna og hún vafín lauslega saman. Gott er að setja niðursoðna ávexti, t.d. aprikósur á milli. Mokka-kaka 4 egg, 150 g sykur, 3 msk. kalt, sterkt kaffi, 60 g hveiti, 35 g kartöflumjöl, ■A tsk. lyftiduft, 3 msk. kakó. Krem: 150 g smjör, 150 g flórsykur, 2 tsk. vanillusykur, 2 eggjarauður, 50 gr. möndluflögur. Egg og sykur þeytt vel sam- an, kaffi, sigtað hveiti, kartöflu- mjöl, lyftiduft og kakó sameinað og sett varlega út í eggjahrær- una. Deigið sett á smjörpappír á bökunarplötu (3040 cm), bakað í miðjum ofni í u.þ.b. 8 mín. við 225°C. Kremið: Smjör og flórsykur hrært vel saman, vanillusykri og eggja- rauðum hrært saman við og kre- mið hrært vel. Helmingur þess er smurt á kalda kökuna og henni rúllað saman, afganginum smurt yfir kökuna og möndlu- flögur settar yfír. Terta með súkkulaðikremi 2 egg, 1 dl sykur, 1 dl hveiti, 1 msk. kartöflumjöl. Kremið: 50 g smjör, 50 g flórsykur, 1 eggjarauða, 2 msk. kakó, 1 tsk. vanillusykur. Egg og sykur þeytt vel, hveit- ið sett varlega saman við. Deigið sett á smjörpappír á plötu, bakað í 8-10 mín. I miðjum ofni við 225°C. Kökunni hvolft á syk- urstráðan pappír. Það getur ver- ið gott að bleyta pappírinn sem kakan er bökuð á ef hann ætlar að festast. Kremið: Smör og sykur hrært vel, eggjarauða, kakó og vanillusyk- ur sett út í og blandað vel. Krem- inu smurt á kökuna og henni rúllað upp, stráð er flórsykri yfir kökuna til skrauts. I HJArfrASTAD LDtfE ME TENDEB SfOASTA SÝNINGARHELGI FYRIR SUMARFRÍ. MEIFtlHA TTAFt NILLABAR DÚETTINN MUMMI & BALU rokka í tilefni af 2ja ára afmæli ,NILLA“ )} ‘ OPIÐ FRA KL. 18-03 1ÓTEL jgJAND Miöa- oö borðapantannir í síma 687111 Rjómalöguð súpa veiðimannsins m/laxabitum Lambafantasía m/lyngberjasósu Eldristaðir ávextir m/bláberjaís

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.