Morgunblaðið - 26.07.1991, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 26.07.1991, Qupperneq 44
-8™ve' CSgtv, LVKILIJlWj AÐ CÓBH KVÖLUI setryggt Jjl ioraunDlnínD 'sjóváSSalmennar LÉTTÖL FÖSTUDAGUR 26. JÚLÍ 1991 VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR. Flugleiðir: Yfír 400 millj. tap fyrstu 6 mánuðina ÚTLIT er fyrir að afkoma Flugleiða hf. fyrstu sex mán- uði þessa árs verði svipuð og í fyrra, að mati Sigurðar Helgasonar forstjóra félags- ins. Fyrri hluta síðasta árs varð um 440 milijóna króna tap á rekstrinum, en árið í heild skilaði um 400 miiyóna króna hagnaði. Sigurður lagði áherslu á að miklar sveiflur væru í afkomu félagsins, þannig væri yfírleitt hagnaður fimm mánuði ársins en tap hina sjö mánuðina. Sveifl- urnar geta verið miklar á skömm- um tíma, þannig varð tapið fyrstu sex mánuðina í fyrra um 440 milljónir króna, en eftir fyrstu átta mánuðina var hagnaður um 600 milljónir. Sigurður sagði að rekstur Ameríkuflugsins, milli íslands og Bandaríkjanna, hefði gengið samkvæmt áætlun á þessu ári, eftir þeim upplýsingum sem þeg- ar liggja fyrir sé sætanýting á tímabilinu maí til ágústloka vel yfir 90%. Hins vegar sagði hann að Evr- ópuflugið, milli Islands og Evr- ópulanda, næði ekki að uppfylla þær áætlanir sem um það voru gerðar. Svo virðist að ferðir ís- lendinga, sem og Evrópubúa, verði færri en vænst hafði verið. Sjá frétt á miðopnu. Frá slysstað við Mývatn. Björgunarsveitarmenn aðstoða við vettvangskönnun. Morgunblaðið/Guðmundur Hrafn Þrír slasaðir el'tir brotlend- ingii flugrélar við Mývatn Vætusamt um helg’ina -wgíVÆTUSAMT verður um sunnan- og austanvert landið um helgina. Afram verður frekar hlýtt um allt land. Búast má við áframhaldandi rigningu á Suður- og Austurlandi á laugardag og sunnudag. Sam- kvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Islands verður helst þurrt í innsveit- um á Norðurlandi. Hiti mun haldast í 12-14 stigum. LÍTIL einkaflugvél brotlenti í gær, skömmu eftir flugtak, í hraun- klungri á milli þjóðvegar og vatns, beint suður af flugvellinum í Mývatnssveit. í vélinni voru flugmaður og tveir farþegar. Einn mannanna slasaðist þeirra mest en allir voru þeir fluttir á Fjórðungs- sjúkrahúsið á Akureyri. Flugvélin hefur skollið niður á hraunklett og kastast til hliðar og er mjög mikið brotin og rifin og samankuðluð. Það var klukkan 15.02 að Flug- umsjón bárust tilkynningar um slysið. Lögreglan á Húsavík var kölluð út ásamt Björgunarsveitinni Stefáni í Mývatnssveit. Löggæslu- menn voru skammt undan og komu mjög fljótt á staðinn. Að sögn lög- gæslumanns hafði tveimur mann- anna gengið vel að komast úr flak- inu en sá þriðji hefði virst mest slas- aður og lengri tíma tekið að færa hann á brott. Þeir tveir fyrrnefndu voru fluttir í sjúkrabíl til Akureyrar en sá þriðji var fluttur þangað með flugvél sem stödd var á flugvellin- um í Mývatnssveit. Á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak- ureyri fengust þær upplýsingar í gærkveldi að einn mannanna væri í aðgerð en verið væri að rannsaka hina tvo og ekki væri tímabært að segja til um ástand þeirra. Enginn þeirra var í lífshættu. Flugvélin sem um ræðir er einka- flugvél frá Akureyri, af gerðinni Piper Tripacer, fjögurra sæta og Burger King hættir að kaupa íslenskan þorsk „VEITINGAHÚSAKEÐJAN Burger King hefur í hyggju að hætta að kaupa íslenskan þorsk af okkur um mánaðamót ágúst og september næstkomandi vegna hás verðs á þorski miðað við verð á Alaska-ufsa, svo og nýlegri markaðskönnun Burger King, sem sýndi engin viðbrögð viðskiptavina þegar Alaska-ufsi var notaður í stað þorsks,“ segir Magn- ús Friðgeirsson framkvæmdastjóri Iceland Seafood, dótturfyrirtækis íslenskra sjávarafurða hf. í Bandaríkjunum. Burger King er stærsti viðskiptavinur Iceland Seafood hvað varðar unna vöru og byrjaði að kaupa þorsk af Sambandinu árið 1955 en Burger King hefur ekki keypt fisk af Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna í neinum mæli. Magnús Friðgeirsson segir að slensk þorskblokk kosti nú 2,05-2,10 bandaríkjadali pundið en Alaska-ufsi 1,45-1,50 dali pundið. Þorskblokkin hafi hins vegar kostað 2,50-2,55 dali pundið í apríl síðastliðnum en Alaska-ufsinn 1,55-1,60 dali pundið. „Burger King ætlar að miða sína verðlagningu við verð á Alaska-ufsa frá og með mánaðamótum ágúst og ~yeptember næstkomandi en það á eftir að koma reynsla á þetta,“ segir Magnús. Hann upplýsir að vörulýsingin hjá Burger King geri hins vegar ráð fyr- ir annaðhvort þorski eða Alaska-ufsa en meðan þessi munur sé á verði þorsks og ufsa geti Iceland Seafood ekki afgreitt þorsk til Burger King, nema Alaska-ufsinn verði uppurinn einhverra hluta vegna. Iceland Se- afood hafi notað nær eingöngu íslenskt hráefni fyrir Burger King en þurfi nú að sækja hráefnið til Kyrrahafsins og íslenski fiskurinn fari í afurðir fyrir aðra viðskiptavini. „Framboðstími Alaska-ufsa er nú þrengri en undanfarin ár og það gæti haft áhrif á þetta í framtíðinni. Það borgar sig ekki fyrir okkur að selja þorskinn fyrir saina verð og Alaska-ufsa meðan aðrir viðskipta- vinir okkar greiða hærra verð fyrir þorskinn." Magnús segir að nú sé þrýstingur á að lækka þorskverðið í Banda- ríkjunum, því nú standi þorskveiðar við Kanada sem hæst og fiskneysla sé lítil á þessum árstima. „Þetta er árviss viðburður en við gerum ráð fyrir að kanadísku vertíðinni ljúki því sem næst í ágúst og gerum ráð fyrir að verðið styrkist þá aftur. Eft- irspurnin fer vaxandi frá ágúst til október en það fer að halla undan í nóvember og eftirspurnin minnkar verulega í desember. Hins vegar er mikil eftirspurn yfir föstuna en heil- mikil lægð í maí og út júlí,“ segir Magnús. hefur einkennisstafina TF TOM. Hún hafði verið á flugi þarna um slóðir og lent tví- eða þrívegis á flugvellinum. Sjónarvottur að slysinu og sá sem fyrstur kom á slysstað var Þór Kjartansson, ungur Flugbjörgunar- sveitarmaður úr Reykjavík sem starfar í sumar við ferðaþjónustu í Mývatnssveit. Hann sagðist í sam- tali við Morgunblaðið hafa verið á tjaldsvæði skammt frá flugbrautar- enda. Hann hefði séð vélina fljúga um og veitt henni eftirtekt vegna þess að hann hefði ekki séð vél með þessum einkennisstöfum fyrr. í þessu síðasta flugtaki hefði flugvél- in „misst mótor“, eins og kallað er, skömmu eftir að hún kom út yfír flugbrautarendann, en flugvöllur- inn í Mývatnssveit stendur hátt. Fljótt hefði drepist á mótornum, hann svo hrokkið í gang í andartak en síðan drepist á honum á ný. Flug- vélin hefði misst hæð jafnt og þétt meðan á þessu stóð en að lokum svifið vélarvana í átt að vatninu, tekið nokkra beygju til hægri áður en hún skall niður á hraunklettinn og kastaðist til hliðar. Þór sagðist hafa gripið sjúkragögn og ekið áleiðis að slysstaðnum og komið fyrstur manna að flakinu. Um að- komuna vildi hann ekki hafa fleiri orð, en fljótlega hefðu fleiri komið til hjálpar, meðal annars lögregla og björgunarsveit. Sem fyrr segir er flugvélin mjög mikið brotin og varla talið að henni verði flogið aftur. Slysstaðurinn er skammt vestur af aðaltjaldsvæðun- um í Mývatnssveit, á milli þjóðveg- arins og vatnsins. Innan við hundr- að metra vantar á að hún hefði náð að nauðlenda á vatninu. Flugvél Flugmálastjórnar kom til Mývatnssveitar um tveimur stund- um eftir slysið með fulltrúa frá Loftferðaeftirlitinu og Flugslysa- nefnd, sem hófust þegar handa við rannsókn á slysinu. Orsakir þess að drapst á mótor flugvélarinnar eru enn óljósar. \Flugvölluf í ReyKlaldíO J Cy-jMýuatn \ > '£ I Þór sló KR úr bikamum ÞÓR frá Akureyri, sem er í öðru sæti 2. deildar, lagði KR-inga að velli í átta liða úrslitum bikarkeppni KSI í gærkvöldi en KR er í efsta sæti 1. deildar. Úrslit leiksins urðu 4:2. Bikarmeistarar Vals slógu Breiðablik út í vítaspyrnukeppni þar sem úrslit réðust ekki fyrr en í tíundu og síðustu vítaspym- unni. Víðismenn, sem hafa ekki unnið leik í 1. deild í sumar, unnu Stjörnuna 3:2 og eru komnir í undanúrslit eins og FH-ingar sem unnu Leiftur á Ólafsfirði 2:1 og gerðu þeir sig- urmarkið á síðustu mínútu framlengingar. Nánar bls. 38 og 39

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.