Morgunblaðið - 17.06.1992, Qupperneq 4
4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1992
Vinareitur í landi Kárastaða:
Sendifulltrúar gróður
setja 1200 trjáplöntur
í VINAREITI á Þingvöllum voru
í gær gróðursettar um 1.200 trjá-
plöntur, og er það þriðja árið í
röð sem gróðursetning fer fram
á þessum stað i landi Kárastaða
í Þingvallasveit. Að verki var
fjöldi erlendra sendifulltrúa,
bæði fastafulltrúa og annarra,
sem staddir eru hér á landi til
að halda þjóðhátíðardaginn há-
tiðlegan, auk íslenskra gestgjafa
þeirra.
Forseti íslands, frú Vigdís Finn-
bogadóttir, sagði að það væri vel
við hæfí að reitur sem þessi tengd-
ist Þingvöllum, svo hver sem þang-
að legði leið sína gæti skynjað
kærleik íslendinga til staðarins og
notið fegurðar hans. „Þessi reitur
er eign allrar þjóðarinnar," sagði
hún. „Við íslendingar höfum náð
þeim áfanga að sextán tré eru gróð-
ursett á mann á ári, og fer vax-
andi. Við höfum okkar skyldum að
gegna gagnvart heiminum, og því
betur sem við sinnum gróðurrækt
Hluti hópsins við gróðursetningu trjáplantna í Vinareiti.
Morgunblaðið/Sverrir
Hákan Branders sendiherra Finnlands, Halldór vmnu Skógræktar
Blöndal landbúnaðarráðherra og kona hans ríkisins, Land-
Kristrún Eymundsdóttir, Vigdís Finnbogadóttir græðslunnar,
forseti íslands og Hulda Valtýsdóttir formaður landbúnaðarráðu-
Skógræktarfélags íslands.
og gróðurvernd, því ríkari verður
sómi okkar.“
Hulda Valtýsdóttir, formaður
Skógræktarfélags íslands, kvað
skógræktarverkefnið sem Vina-
skógur er hluti af vera unnið í sam-
neytisins og Skóg-
ræktarfélags Is-
lands. Að sögn Huldu er búið að
gróðursetja hátt í þrjár milljónir
plantna þau tvö ár sem unnið hefur
verið að verkefninu, og í ár væri
ætlunin að gróðursetja um tvær
milljónir plantna. Markmiðið sé að
gróðursetja alls tuttugu milljónir
tijáplantna fyrir aldamót.
Hákan Branders, sendiherra
Finnlands á íslandi, hefur umsjón
með framtaki erlendu sendifulltrú-
anna hér á landi í uppgræðslumál-
um. „Hans Hermann Haferkamp,
fyrrum sendiherra Þýskalands hér
á landi, hringdi í mig fyrir tveimur
árum og spurði hvort ég gæti ekki
tekið að mér umsjón með skógrækt-
armálunum því ég væri frá svo
miklu skógarlandi,“ sagði Branders.
Kvaðst hann hafa tekið vel í það,
og væri þetta þriðja árið sem hann
stuðlaði að ferð sendiráðsfólksins í
Vinareit.
Halldór Blöndal, landbúnaðar-
ráðherra, sagði þetta landgræðslu-
framtak vera táknrænan stuðning
við að klæða landið að nýju. Hann
kvað ætlunina vera að gróðursetja
um 1.200 tré með aðstoð sendiráðs-
fólksins.
VEÐUR
VEÐURHORFUR IDAG, 17. JÚNI
YFIRLIT: Um 1300 km suður i hafi er víðáttumikil 1.040 mb hæð, en 1.004
mb lægð við strönd Grænlands norðvestan Vestfjarða á hreyfingu noröaust-
ur. Við Nýihjndnaland er 1.008 mb lægð á leið norðnorðaustur.
SPÁ: í fyrramálið lítur út fyrir hæga vestan- og suðvestanátt og þurrt um allt
land. Víða verður léttskýjað, síst suövestanlands. Seint á morgun fer svo að
rigna á Suöur- og Vesturlandi. Hiti verður 8-11 stig suövestan til en 12-18
stig noröan- og austanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAQ: Súðvestanátt, strekkingur um landið Vestanvert
en hægari austantil. Suld eöa rigning á Suöur- og Vesturlandi en þurrt og
bjart verður norðaustan til. Hlýtt, einkum norðaustan og austanlands.
HORFUR Á FÖSTUDAG: Vestanátt, nokkuð stif norðanlands. Skúrir á Vestur-
og Norðurlandi en léttskýjað á Austur- og Suðausturlandi. Heldur kólnandi
en þó áfram hlýtt austan- og suðaustanlands.
Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 980600.
Heiðskírt
r r r
r r
r r r
Rigning
Léttskýjað
* / *
* /
r * /
Slydda
Hálfskýjað Skýjað Alskýjað
V ^ v
Skúrír Slydduél Él
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindslefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.^
10° Hitastig
v Súld
= Þoka
itig-.
FÆRÐÁ VEGUM: <k«. 17.3019*0
Allir helstu þjóðvegir landsins eru nú færir, utan einstaka vegakafla sem lokað-
ir eru vegna aurbleytu og sumstaðar eru sérstakar öxulþungatakmarkanir af
þessum sökum. Klæöingaflokkar eru nú að störfum víða um land og að gefnu
tilefni eru ökumenn beðnir um að virða sérstakar hraðatakmarkanir til þess
að forða tjóni af völdum steinkasts. Allir hálendisvegir landsins eru lokaðir
vegna aurbléytu og snjóa nema vegir í Öskju og Kverkfjölium. Vegagerðin.
w VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tima hiti voftur Akureyri 9 rlgning Reykjavik 7 rigning
Bergen vantar
Helsinki 19 hálfskýjaö
Kaupmannahöfn 20 hálfskýjað
Narssarssuaq vantar
Nuuk vantar
Ósló vantar
Stokkhólmur 20 skúr
Þórshöfn 10 skýjað
Algarve 21 alskýjað
Amsterdam 19 alskýjað
Barcelona 21 léttskýjað
Berlín 24 skýjað
Chicago 14 hálfskýjað
Feneyjar 26 skýjað
Frankfurt 27 skýjaft
Glasgow 16 skýjað
Hamborg 20 hátfskýjað
London 20 skýjað
LosAngeles 15 heiðskírt
Lúxemborg 26 hálfskýjað
Madrid vantar
Malaga vantar
Mallorca vantar
Montreal vantar
NewYork vantar
Orlando vantar
París 25 skýjað
Madelra 21 rykmistur
Róm 25 léttskýjað
Vin 24 léttskýjað
Washington 21 skýjað
Winnipeg 16 úrkoma
Utlánsvextir spari-
sióðanna lækka um
0,15-0,25
SPARISJÓÐIRNIR lækkuðu út-
lánsvexti um 0,15-0,25% á síðasta
vaxtabreytingardegi 11. júní, en
Islandsbanki hækkaði útlánsvexti
um 0,15%. Vextir Landsbanka ís-
lands og Búnaðarbanka íslands
voru óbreyttir.
Eftir breytinguna eru forvextir
víxla 11,5% hjá sparisjóðunum,
Landsbanka og Búnaðarbanka en
11,7% hjá íslandsbanka. Kjörvextir
almennra skuldabréfalána eru 10% í
Landsbanka 10,25% í íslandsbanka,
10,3% hjá sparisjóðunum og 10,5%
hjá Búnaðarbankanum. Kjörvextir
verðtryggðra skuldabréfa eru 7% í
Landsbanka, 7,10% hjá sparisjóðun-
um, 7,15% hjá íslandsbanka og
7,25% hjá Búnaðarbanka.
Ef miðað er við algengustu skulda-
bréfavexti samkvæmt upplýsingum
Seðlabanka íslands eru verðtryggðir
vextir 9,25% hjá Landsbanka og
Búnaðarbanka, 8,9% hjá íslands-
banka og 9,6% hjá sparisjóðunum.
prosent
Ef miðað er við algengustu óverð-
tryggða vexti eru þeir 12,25% hjá
Landsbanka og Búnaðarbanka, 12%
hjá íslandsbanka og 12,8% hjá spari-
sjóðunum.
Skiptu yfir
á „ný“ dekk
LÖGREGLA stóð menn að verki á
mánudagskvöld, þegar þeir voru
að taka dekk undan bifreið og
setja undir sína eigin, en hjólbarð-
ar þeirra voru orðnir lúnir.
Mennirnir fóru á bíl sínum inn á
bílastæði við Grettisgötu. Um kl.
20.45 var komið að þeim, þar sem
þeir voru í óðaönn að skipta yfír á
„nýju" sumardekkin. Þeir vo'ru hand-
teknir og færðir á lögreglustöðina,
en þangað hafa þeir oftsinnis komið
áður.
Thor hlýtur verðlaun
sænsku akademíunnar
THOR Vilhjálmsson rithöfundur
hlýtur í ár norræn bókmennta-
verðlaun frá sænsku akadem-
íunni, en þau hafa verið veitt
árlega frá 1986. Thor er fyrsti
íslendingurinn sem hlýtur verð-
launin en þau eru 250 þúsund
sænskar krónur eða 2,5 milljónir
íslenskra króna.
Að sögn Pers Olafs Sundmans,
félaga í sænsku akademíunni, eru
þessi bókmenntaverðlaun veitt rit-
höfundum á Norðurlöndum og er
miðað við heildarverk höfunda en
ekki einstök rit. Thor er fyrsti ís-
lendingurinn sem fær verðlaunin
og fer hann til Stokkhólms 17.
september nk. til að veita þeim
viðtöku.
Hann segir þetta mestu opinberu
viðurkenningu sem hann hafí hlotið
fyrir verk sín. „Ég er afar glaður
ekki síst þar sem þetta kom svo
óvænt. Ég sat við mitt verk og var
að reyna að koma saman frambæri-
legum texta þegar bréfíð barst,“
segir Thor í samtali við Morgun-
blaðið.
Frá 1986 hafa Villy Sörensen
William Heinesen, Rolf Jacobsen,
Enkvist, Henrik Nordbrandt og
Tomas Tranströmer hlotið bók-
menntaverðlaun sænsku akadem-
íunnar.
Thor Vilhjálmsson rithöfundur.
„Mér fínnst gaman að vera kom-
inn í félagsskap þessara rithöfunda
og þykir vænt um að bókmenntir
á íslensku máli nái til þessara
frændþjóða okkar. Sú var tíðin að
fólk í þessum löndum gat skilið það
sem var borið fram á því máli sem
við tölum einir núna,“ segir Thor.