Morgunblaðið - 17.06.1992, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1992
21
stjórnvöld að láta stjórnarskrána
njóta vafans. Möguleikarnir eru þá
þessir: 1) að knýja fram breytingar
á samningnum samanber afstöðu
Dana til Maastricht-samkomulags-
ins 2) hafna samningnum 3) breyta
stjórnarskránni.
d) utanríkisráðuneytið viðurkennir
að forúrskurðirnir krefjist stjórnar-
skrárbreytingar. Það er ekíd gert
ráð fyrir því að sú lagaheim-
ild/stjórnarskrárbreyting verði gerð
strax. Engu að síður eru forúr-
skurðirnir hluti samkomulagsins.
Þeir eru bindandi forsenda af hálfu
Evrópubandalagsins. Það er því frá-
leitt sýnist mér að taka samninginn
fyrir með 107. greininni. í raun
viðurkennir utanríkisráðuneytið að
107. greinina sé ekki hægt að sam-
þykkja án breyttrar stjómarskrár.
Rökrétt niðurstaða af þessu er sú
að alþingi neiti að taka samninginn
fyrir af því að úrslitaatriði hans af
hálfu hins samningsaðilans, Evr-
ópubandalagsins, stríðir gegn
stjórnarskránni.
Siðferðijegur réttur hvers
Islendings
Við alþýðubandalagsmenn höf-
um að undanförnu efnt til funda
með félögum okkar í nær öllum
kjördæmum landsins þar sem við
höfum svo til eingöngu fjallað um
Evrópskt efnahagssvæði. Til þessa
höfum við haldið tólf slíka fundi.
Það er alveg ljóst að þessi stjórnar-
skráratriði sem hér hafa verið rakin
vega þungt. Og það er ennfremur
ljóst að allir þeir sem um málið fjalla
gagnrýna utanríkisráðuneytið fyrir
að hafa leynt að reynt að leyna
þessum aðalatriðum í litprentuðum
bæklingum og auglýsingum fyrir
tugi milljóna króna að undanförnu.
Krafan um þjóðaratkvæði hlýtur
því að verða aðalatriði umræðunnar
á næstu vikum og mánuðum. Það
er siðferðilegur réttur hvers einasta
Islendings að fá að greiða atkvæði
um þennan samning. Þann siðferði-
lega rétt eiga stjórnvöld að virða.
Ella eru hátíðaræður þeirra á þjóð-
hátíðinni innihaldslaust hjóm, leikur
að orðum sem engu skipta og enga
merkingu hafa í raun fyrir þjóðina.
Höfundur er þingmaður fyrir
Alþýðubandalagið í Reykjavík.
Ráðstefna um
kýlaveiki í
villtum fisk-
um og í eldi
HALDIN var í nýju Fiskrannsókn-
arhúsi á Keldum, ráðstefna nor-
rænna sérfræðinga um kýlaveiki
í fiskum, dagana 5. og 6. júní.
Kýlaveiki hefur verið eitt aðal-
sjúkdómsvandamái í eldi laxfiska
hér á landi og hefur einnig greinst
hér í þorski. Vitað er að lúða og
fleiri tegundir geta tekið sýkina.
Alls héldu 13 sérfræðingar erindi,
5 íslenskir og 8 erlendis, þar af einn
gestafyrirlesari frá Skotlandi. Erind-
in fjölluðu um m.a. um faraldsfræði,
sjúkdómsmynd, meinvirkni sýkilsins
og sjúkdómsvarnir en þar bar einna
hæst umræða um bólusetningu gegn
veikinni.
Að loknum erindum voru niður-
stöður dregnar saman og brýnustu
rannsóknarsviðin afmörkuð. Þar má
m.a. nefna faraldsfræðilegar rann-
sóknir sem taka til samanburðar á
bakteríustofnum úr ýmsum fiskteg-
undum og af mismunandi landsvæð-
um; athuganir á hýsilsérhæfingu
bakteríunnar og áhrifum umhverfis
á þróun sjúkdómsins; svo og rann-
sóknir er lúta að þróun bóluefna
gegn sýkinni.
A ráðstefnunni kom fram að nið-
urstöður rannsókna lofa góðu um
framleiðslu á virkum bóluefnum
gegn kýlaveiki. Stefnt er að því að
önnur sambærileg ráðstefna verði
haldin eftir nokkra mánuði. Ráð-
stefnan var styrkt af norrænu vís-
indaendurmenntunarstofnuninni
(NorFA), norrænu ráðherranefndinni
(norrænni samvinnu um ónæm-
isfræði fiska) og Tilraunastöð Há-
skóla íslands í Meinafræði, Keldum.
OPEL ASTRA. Háþróuð þýsk
tækni frá minnsta smáatriði til
fallegrar heildarmyndar. Hárrétt
blanda af þægindum, öryggi og
góðum aksturseiginleikum.
HINN NÝI OPEL
ASTRA ER KYNSLÓÐ
Á UNDAN
KEPPINAUTUNUM.
OPEL ASTRA er fyrsti bíllinn í
sínum stærðarflokki með nýtt
öryggiskerfi sem verndar þig og
þína; tvöfaldir styrktarbitar eru í
hverri hurð og að auki ný tegund
öryggisbelta sem draga
2
verulega úr hættu á
w
höfuðáverkum við árekstur.
ASTRA er hljóðlátur bíll, afar
rúmgóður og útsýnið er frábært.
Sætin eru sérlega þægileg og
öll stjórntæki eins og þau gerast
best. I ASTRA er einnig nýtt og
fullkomið miðstöðvarkerfi með
lofthreinsibúnaði sem eykur enn
á þægindin.
Nýju vélarnar frá OPEL ASTRA
auka orkunýtingu verulega og
draga úr mengun. ASTRA hefur
engu að síður þann kraft og
snerpu sem þarf, til að það sé
skemmtilegt að vera úti að aka.
Líttu inn. Reynsluakstur segir
meira en mörg orð.
UmboSsaöili General Motors ó íslondi. Höfðabakka 9. Sími 91-63 40 00 & 63 40 50
Hjá okkur gerirðu bestu bílakaupin: Opel Astra 3 dr. GL 1,4L Kr. 996.000. Opel Astra 5 dr. GL 1,4L Kr. 1.195.000. Opel Astra 5 dr. GT 1,8L
Kr. 1.495.000. Opel Astra 3 dr. GSi 2,0L Kr. 1.855.000. Opel Astra 5 dr. GL 2,0L skutb. Kr. 1.485.000.