Morgunblaðið - 17.06.1992, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 17.06.1992, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1992 25 Hja Konovalov og Olga Pushetschnikova spila af innlifun. Snillingar á fiskveiðum Rússnesku undrabörnin með aflann, frá vinstri: ílja Konovalov, fiðluleikari, Irina Kossenko, túlkur, Alexander Kobrin, píanóleik- ari, Grígiríj Goriatsjov, gítarleikari, Vladímír Pushetschnikov, trompetleikari, og Olga Pushetschnikova, píanóleikari. Ísafirði. RÚSSNESKU undrabörnin fimm létu sér ekki nægja að halda tónleika á Vestfjörðun- um sl. helgi heldur héldu þau einnig til fiskjar út á Djúpið. 011 veiddu undrabörnin þorsk nema fiðluleikarinn, ílja Konovalov, er fékk stærðar steinbít. Rússnesku undrabömin höfðu aldrei áður dregið fisk úr sjó og þótti þeim bitkraftur steinbítsins stórmerkilegur. Af miðunum var haldið í skoðunarferð til Bolung- arvíkur þar sem þau nutu veit- inga hjá skólastjóra tónlistar- skólans, Guðrúnu Bjarnveigu Magnúsdóttur. Rússnesku undrabörnin héldu síðan fyrstu tónleikana í Grunu- skólanum á ísafirði sl. laugar- dag og var þeim mjög vel tekið. Ungu tónlistarmennirnir spiluðu jafnframt um kvöldið á sam- komu aflaskipanna Guðbjargar og Hafdísar er haldin var í til- efni sjómannadagsins en slíkar óvæntar uppákomur eru nánast óþekktar hjá ungu snillingunum. Ivetta N. Voronova, fram- kvæmdastjóri, sagði þetta vera gert í virðingarskyni við afla- mennina í tilefni hátíðardags þeirra. Úlfar Samtök evrópskra verktakasambanda: Umhverfísmál aðalefm ársfundar samtakanna ÁRSFUNDUR Samtaka evrópskra verktakasambanda, FIEC, fyrir árið 1992 verður haldinn í Reykjavík dagana 18. til 20. júní nk. Á milli 400 og 500 erlendir gestir koma til fundarins, úr öllum heimsálfum. Meðal þeirra eru margir aðaleigendur og stjórnendur stærstu verktakafyrir- tækja Evrópu og alls heimsins. Meginefni fundarins í Reykjavík verða umhverfismál og hlutur verktaka í endurnýjun og verndun umhverfis- ins. Forseti íslands, frú Vigdís Finnbogadóttir, verður viðstödd opnun- arhatið arsfundarms í Haskolabíói. samband íslands, sem er aðili að banda. Umhverfisvernd og verkefni henni tengd verða sífellt stærri þáttur í starfsemi verktaka í Evrópu og víðar í heiminum og láta verktakafyrirtæki þau málefni _til sín taka í stöðugt ríkari mæli. í Þýskalandi, svo dæmi sé tekið, er umhverfisvemd stærsti vaxtarbroddurinn hjá verktakafyrir- tækjum, svo sem við mótun og end- urnýjun umhverfis, sorphirðu og hreinsun, auk þróunar margvíslegrar byggingartækni sem gerir mönnum kleift að ráðast í stórvirki án þess að valda umhverfisspjöllum. Á árs- fundinum munu þekktir fyrirlesarar halda erindi um umhverfismál, auk þess sem fundurinn mun afgreiða ályktanir um fundarefnið. Önnur mál sem rísa munu hátt á ársfundinum í Reykjavík eru málefni tengd innri markaði Evrópuríkjanna, þróunin í Austur-Evrópu og mögu- íeikar evrópskra verktakafyrirtækja í tengslum við hana. Samtök evrópskra verktakasam- banda, FIEC, voru stofnuð árið 1905. Aðild að samtökunum eiga sambönd átján þjóðlanda Evrópu, þ.e. frá tólf aðildarlöndum Evrópubandalagsins og EFTA-ríkjunum sex. Á fundinum í Reykjavík munu Tékkar og Ung- veijar gerast aðilar að FIEC. Auk Gestgjafi ársfundarins er Verktaka- Samtökum evrópskra verktakasam- fulltrúa frá aðildarsamtökum FIEC, munu fulltrúar systursamtaka úr öll- um heimsálfum koma til fundarins sem áheymarfulltrúar. Verktakasamband íslands á veg og vanda að ársfundinum í Reykja- vík og hefur falið ferðaskrifstofunni Samvinnuferðum - Landsýn umsjón með undirbúningi og framkvæmd einstakra þátta er snerta fundarhöld- in og þjónustu við þátttakendur. Óhætt mun að fullyrða að sjaldan eða aldrei áður hafí komið hingað tii lands hópur einstaklinga sem býr yfir jafn miklum auðæfum og völdum og fulltrúar á ársfundi Samtaka Evrópskra vektakasambandsins í Reykjavík. Merki ársfundarins að þessu sinni er mynd af íslenskum hestum. Gestg- jöfum fundarins þótti íslenski hestur- inn táknrænn fyrir umhverfismál og verndun náttúrunnar. Þriggja manna undirbúningsnefnd hefur unnið að undirbúningi ársfund- arins í Reykjavík. Hana skipa Ár- mann Öm Ármannsson, formaður, Öm Kjæmested og Jón Ingi Gísla- son. Með nefndinni starfar Pálmi Kristinsson, framkvæmdastjóri Verktakasambands íslands. (Fréttatilkynning) Félag um nýja sjávarútvegsstefnu: Landsfundur og framhalds- stofnfundur á laugardag LANDSFUNDUR og framhalds- stofnfundur Félags um nýja sjáv- arútvegsstefnu verður settur næstkomandi laugardag, 20. júní, kl. 20.30 í fundarsal íþróttasam- bands Islands (við hlið Laug- ardalshallar) og lýkur síðdegis á sunnudag. Á laugardeginum frá kl. 16.15- 19.00 gengst félagið fyrir ráðstefnu á sama stað um málefni sjávarút- vegsins undir fyrirsögninni Mistök í fiskveiðistjórnun. Frummælendur verða Guðfinnur Sigurvinsson, sem ræðir um áhrif kvótakerfisins í Kefla- vík, Óskar Þór Karlsson, en hans erindi nefnist Núverandi fiskveiðilög — markmið þeirra og framkvæmd, Kristinn Pétursson, erindi hans nefn- ist Nýting fískistofna og tillögur Hafrannsóknarstofnunar, og Guð- mundur J. Guðmundsson, sem flytur erindið Atvinnuleysi og fiskvinnsla úti á sjó. Að loknum framsöguerind- um verða fyrirspurnir og fijálsar umræður. Ráðstefnunni lýkur kl. 19.00 og er hún öllum opin. Dagskrá fundarins í heild er nánar auglýst í dagblöðunum. Skrifstofa félagsins er á Suðurlandsbraut 12, Reykjavík. íslenskt tónlistarsum- ar hafið í annað sinn ÍSLENSKT tónlistarsumar ’92 var sett í gær, þriðjudaginn 16. júní, með sérstakri dagskrá á útvarpsstöðvunum jafnframt sem hljómleikarnir Bíórokk voru haldnir í gærkvöldi í Laugardalshöll. Tónleikarnir tengjast gerð kvikmyndarinnar Stuttur frakki, sem byggist á íslenskri tónlist, segir enda, flyijenda og höfunda. í fréttinni segir jafnframt að útgáfa á ísienskri tónlist verði eðlilega mikil á íslensku tónlistars- umri ’92. Flestir af þekktustu flytj- endum íslenskrar tónlistar verði með nýtt efni á boðstólum, mikið verði um að tónlist sem áður hefur komið út á hljómplötum verði gef- in út á geisladiskum og margar Arekstur bif- hjóls og bíls BIFHJÓL og bifreið skullu sam- an á mótum Álfabakka og Arnar- bakka um kl. 22 á mánudags- kvöld. Ökumaður bifhjólsins hlaut minni háttar skrokkskjóður og var fluttur á slysadeild. í frétt frá samstarfshópi útgef- nýjar hljómsveitir og flytjendur verði með frumraun sína í útgáfu á sumrinu. íslenskt tónlistarsumar ’92 verður einnig helgað réttindabar- áttu þeirra sem standa að ís- lenskri tónlistarsköpun, flutningi og útgáfu hennar. Sumarið 1991 var fyrsta ís- lenskra tónlistarsumarið. Þá tóku sig saman helstu samtök þeirra er tengjast íslenskri tónlist, Félag íslenskra hljómlistarmanna (FÍH), Samband tónskálda og eigenda flutningsréttar (STEF), Samband hljómplötuframleiðenda (SHF) og Félag tónskálda og textahöfunda (FTT), til að standa að öflugri útgáfu og umfjöllun á íslenskri tónlist. í fréttinni segir að það hafi verið vel heppnað og því hafi verið ákveðið að stofna til samkon- ar átaks aftur. Nánari upplýsingar veitir Gunnlaug Hannesdóttir í síma 35060 milli kl. 9 og 12 á morgnana. Kær kveðja, Sigrún Olsen Þórir Barðdal ^
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.