Morgunblaðið - 17.06.1992, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1992
19
Brýn nauðsyn að endur-
skoða búvörusamninginn
eftir Árna
Johnsen
Það er lífsspursmál fyrir eðli-
lega byggð í landinu og sérstak-
lega með tilliti til búsetu í sveitum
landsins að endurskoða núverandi
búvörusamning einfaldlega vegna
þess að hann gengur ekki upp, er
slík gildra og þröskuldur fyrir
þúsundir landsmanna í sveitum
landsins að öll rök hníga að því
að taka málið upp aftur. Erfiðast-
ur er búvörusamningurinn fyrir
sauðfjárbændur, enda kreppir þar
harðast að í landbúnaði þar sem
um 2000 bændur eða um 80% af
sauðfjárbændum eru með undir
300 ærgildi og meðalbú sem er
lítið yfir hundrað ærgildi þegar
vísitölubúið er hins vegar miðað
við 440 ærgildi.
Núverandi búvörusamningur er
því miður óbrúklegur og gefur
ekkert eftir, hefur ekki þann
sveigjanleika sem þarf við erfiðar
aðstæður og samdrátt sem nú er
á mörgum sviðum bæði vegna
uppsafnaðs vanda og ófyrirséðra
þátta. Það sýnir sig til að mynda
að með núgildandi búvörusamn-
ingi kemur öll framleiðsla inn aft-
ur þar sem menn höfðu ekki nýtt
fullan rétt sinn og ástæðan er sú
að menn eru að veija jarðirnar.
Ef núverandi kerfi verður haldið
áfram þýðir það þjóðflutninga eða
fátækt og hokur. Það þarf því að
stokka upp spilin og gefa bændum
lengri og aðgengilegri aðlögunar-
tíma, því fjárfestingin og mannlíf-
ið í sveitum landsins á fullan rétt
eins og aðrar byggðir landsins.
Menn viðurkenna almennt að
breytingar eru nauðsynlegar í
landbúnaði og ákveðinn hluti sam-
dráttarins hefur í raun verið að
frumkvæði bændasamtakanna
vegna staðreynda þar að lútandi,
en allár breytingar verða að gefa
einhveija möguleika og varla er
nokkur að tala um það í alvöru
að leggja niður byggð í sveitum
landsins. Bændur fá nú greitt 50%
beint af framleiðsluverðmæti mið-
að við 8.000 tonna framleiðslu af
lambakjöti og framleiðslumagn.
Skylduniðurskurður þvingar hins
vegar augljóslega til framhjákjöt-
sölu. Ýmsar leiðir koma til greina
og til dæmis þarf að skoða vel þá
hugmynd að breyta kerfmu þannig
að bændur fái 70% af ~ beinu
greiðslunum hvort sem þeir fram-
leiða eða ekki, en skilyrðið sé að
búið sé á jörðinni. Eftir sem áður
hefðu afurðastöðvarnar 30% eftir
StS GœS,a
■ m eldfius-
X
HARÐVIÐARVAL HF.
KRÓKHÁLSI 4 R. SÍMI 671010
því magni sem innanlandsmarkað-
ur þolir. Þetta er aðeins ein hug-
mynd af mörgum, öllu máli skiptir
að opna á ný möguleika til þess
að feta leiðina til framtíðar á nót-
um nýs og sveigjanlegri búvöru-
samnings.
Það er stórkostlegt vandamál í
lambakjötsframleiðslu hve sala á
lambakjöti hefur dregist saman
og til þess að lækka verðið þarf
að gefa færi á hagræðingu, hag-
ræðingu sem er útilokuð með nú-
verandi kvótakerfi. Það er ekki
mikið frelsi innan núgildandi kerf-
„Það þarf því að stokka
upp spilin og gefa
bændum lengri og að-
gengilegri aðlögunar-
tíma, því fjárfestingin
og mannlífið í sveitum
landsins á fullan rétt
eins og aðrar byggðir
landsins.“
Ami Johnsen
is fyrir einstaklinga til þess að
gera vel, en til þess að auka söl-
una er ljóst að lækka þarf verðið.
Sölumál landbúnaðarafurða eru í
mörgum þáttum í mestri ólestri.
Það ætti að vera úrelt vinnulag
afurðastöðvanna að græða á
geymslu afurða og í reynd ættu
afurðasölurnar að geta keppt um
kaup á sláturfénaði um allt land.
Það yrði bæði bændum og neyt-
endum til hagsbóta. Menn verða
að horfast í augu við staðreyndir,
taka á vandamálunum og leggja
allt kapp á að finna lausn sem
leiðir til góðs fyrir sem flesta.
Dyrnar að framtíðinni eru því að-
eins spennandi valkostur ef menn
hugsa um það eitt að ná árangri.
Höfundur er 3. þingmaður
Suðurlandskjördæmis fyrir
Sjálfstæðisflokkinn.
'\f.
If ll
Y
K
J'
P
V
Auglýst er eftir
lögum til þátttöku í
„LANDSLAGINU Á AKUREYRI"
■í
sem haldið verður í Sjallanum
23. október n.k.
Lögin skal senda í umslagi merktu
.LANDSLAGIÐ AAKUREYRI I992‘
til íslenska útvarpsfélagsins
rf
V/jj-
w
Lynghálsi 5, 110 Reykjavík.
Skilafrestur er til hádegis I0. ágúst n.k.
Lögin skal senda inn á*hljóðsnældu
ásamt texta, merkt með dulnefni en nöfn höfunda skulu fylgja með í lokuðu
umslagi merktu dulnefninu. Reglur um „ LANDSLAGIÐ Á AKUREYRI I992‘
liggja frammi í afgreiðslu íslenska útvarpsfélagsins Lynghálsi 5,
til frekari glöggvunar.
Nánari upplýsingar fást
hjá dagskrádeild
íslenska útvarpsfélagsins
í síma 672255.
EIN
MILLJÓN KR.
\ %
KK
•: v' v i
S\
I VERÐLAUN FYRIR
LANDSLAGIÐ
I992
""""
•M'l í
VjWv/gj:.
SAMVER
Starfsmenn Islenska útvarpsfélagsis, Samvers á Akureyri og fjölskyldur þeirra hafa ekki þátttökurétt.
A