Morgunblaðið - 17.06.1992, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1992
HÁTÍ Ð ARHÖLD ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGSINS
Dagskrá með hefð-
bundnu sniði í Reykjavík
FJÖLBREYTT dagskrá verður í
miðborg Reykjavíkur í tilefni af
þjóðhátíðardegi íslendinga 17.
júní. Dagskráin verður með hefð-
bundnu sniði.
Dagskráin hefst með samhljómi
kirkjuklukkna í Reykjavík kl. 09.55.
Klukkan 10.00 leggur forseti borg-
arstjómar blómsveig frá Reykvík-
ingum á leiði Jóns Sigurðssonar í
kirkjugarðinum við Suðurgötu.
Þá hefst hátíðardagskrá við
Austurvöll kl. 10.40. Eftir setning-
arávarp Júlíusar Hafstein, borgar-
fulltrúa, leggur forseti íslands, frú
Vigdís Finnbogadóttir, blómsveig
frá íslensku þjóðinni að minnisvarða
Jóns Sigurðssonar og Davíð Odds-
son, forsætisráðherra, flytur ávarp.
Síðan verður ávarp fjallkonunnar
flutt. Karlakórinn Fóstbræður
syngur og Lúðrasveitin Svanur leik-
ur.
Klukkan 11.15 hefst guðsþjón-
usta í Dómkirkjunni. Sr. Pálmi
Matthíasson predikar og Dómkór-
inn syngur undir stjóm Marteins
H. Friðrikssonar en einsöngvari er
Þorgeir J. Andrésson.
Skrúðgöngur verða frá Hlemmi
og Hagatorgi. Skrúðgangan frá
Hlemmi leggur af stað kl. 13.40
en gangan frá Hagatorgi kl. 13.45.
Skátar ganga undir fánum og
stjóma báðum göngunum.
Klukkan 14.00 hefst í miðbænum
skemmtidagskrá á íjórum sviðum,
Þórshamarsplani, Lækjargötu,
Lækjartorgi, og Hljómskálagarði.
Fram koma ýmsir skemmtikraftar
m.a. Spaugstofan, Möguleikhúsið,
Harmonikkufélagið, Síðan skein
sól, Todmobile, og Kolrassa krókríð-
andi. Einnig koma fram danshópar,
kórar, söngvarar, íþróttahópar,
trúðar, o. fl. Brúðubíllinn er með
Ieiksýningu við Tjarnarborg kl.
15.00. Á Tjörninni verða róðrabátar
og sýning módelbáta. í Hallargarði
verður minigolf, leiktæki, fimleika-
sýning og margt fleira. í Ráðhúsinu
verður bamaleikritið Dimmalimm
flutt, Rússnesku undrabömin spila,
og Operasmiðjan flytur verk.
Milli kl. 14.00-18.00 gengst Fé-
lagsstarf aldraðra fyrir skemmtun
fyrir eldri borgara í Reykjavík.
Fombílaklúbbur ekur frá Höfða-
bakka 9 kl. 13.15 og verður með
tvær sýningar í miðbænum, kl.
13.20 á Laugavegi við Hlemm og
kl. 14.00 á Bakkastæði. _ Sérstök
hátíðardagskrá verður á Árbæjar-
safni og aðgangur ókeypis.
Um kvöldið leika Vinir Dóra og
Ný Dönsk í Lækjargötu milli kl.
21.00-00.15, en á Þórshamarsplani
verða gömlu dansamir.
SVR17. júní
ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGINN 17.
júní mun Strætisvagnar Reykja-
víkur aka eftir tímaáætiun helgi-
daga, þ.e. á 30 mínútna fresti,
þó þannig að aukavögnum verð-
ur bætt á leiðir eftir þörfum,
segir í frétt frá SVR.
Um klukkan 13, eða þegar
hátíðahöld hefjast í Lækjargötu
og til kvölds er akstursleiðum
vagnanna breytt frá venjulegri
akstursleið. Breytingin nær til
níu leiða, sem fara um Lækjar-
götu.
Vagnar á leiðum 2, 3, 4, og 5 á
vesturleið munu aka um Sæbraut
og Tryggvagötu með viðkomu í
Tryggvagötu við brúna upp á toll-
stöð. Á austurleið hafa þessir vagn-
ar viðstöðu í Hafnarstræti.
Vagnar á leiðum 6, 7, 111, og
112, sem venjulega hafa endastöð
við Lækjaartorg færa sig að tollstöð
við Tryggvagötu.
Vagnarnir munu aka þar til da-
skrá hátíðahaldanna lýkur og verða
síðustu ferðir frá miðborginni
klukkan 01 eftir miðnætti.
Árbæjarsafn:
Hátíðadag-
skrá 17. júní
HÁTÍÐADAGSKRÁ verður á
Árbæjarsafni á -Þjóðhátíðardag-
inn 17. júní. Gömlu dansamir
verða sýndir við harmonikuund-
irleik. Einnig verða fornir leikir
sýndir og Lúðrasveit Árbæjar-
skóla ætlar að taka nokkur lög.
Hátíðadagskrá Árbæjarsafnsins
hefst kl. 14.00 á því að hópur eldri
borgara sýnir gömlu dansana við
undirleik Harmonikufélags Reykja-
víkur. Þá munu félagar í Glímufé-
lagi Ármanns sýna foma leiki, m.a.
glímih og hráskinnsleik. Að síðustu
ætlar Lúðrasveit Árbæjarskóla að
taka nokkur lög í tilefni dagsins.
Aðgangur að Árbæjarsafninu er
ókeypis 17. júní.
Hafnarfjörður:
Fjölbreytt
þjóðhátíð-
ardagskrá
í Hafnarfirði verður haldið upp
á þjóðhátíðardaginn 17. júní með
viðamikilli dagskrá frá klukkan
10.00 fram yfir miðnætti. Hátíð-
arhöldin fara nú fram á Víði-
staðatúni í fyrsta sinn.
Dagskráin hefst með hátíðarmóti
íþrótta- og leikjanámskeiða á Kapl-
akrikavelli kl. 10.00. Á sama tíma
verður leikið í knattspymu hjá yngri
flokkum Hauka og FH á Víðistað-
atúni. Klukkan 13.30 leikur Lúðra-
sveit Hafnaríjarðar og Karlakór
eldri Þrasta tekur lagið í Hellis-
gerði, en kl. 13.45 hefst þar helgi-
stund er sr. Gunnþór Ingason sér
um. Frá Hellisgötu verður síðan
gengið í skrúðgöngu er hefst kl.
14.15 um Fjarðargötu, Lækjargötu,
Tjamarbraut, Arnarhraun, Tungu-
veg, og Hraunbrú að Víðistaðatúni.
Þórir Jónsson, formaður þjóðhá-
tíðarnefndar, setur hátíðardagskrá
á Víðistaðatúni kl. 15.00. Þá flytur
Guðmundur Ámi Stefánsson, bæj-
arstjóri, ávarp og fjallkonan ávarp-
ar hátíðargesti. Siðan syngja börn
frá leikskólanum við Hjallabraut.
Um önnur skemmtiatriði sjá Bjark-
imar, Sálin hans Jóns míns, Klang-
kompaníið, Spaugstofan, Anna Pál-
ína og Aðalsteinn Ásberg.
Klukkan 17.15 hefst 17. júní mót
FH og Hauka í handknattleik í
íþróttahúsinu við Strandgötu. Á
sama tíma hefst kvikmyndasýning
fyrir böm í Bæjarbíói.
Um kvöldið hefst skemmtidag-
skrá á Víðistaðatúni kl. 20.30. Þar
skemmta Lúðrasveit Hafnarfjarðar,
Islandica, Bjarkirnar, Spaugstofan,
Hárflokkurinn, Sálin hans Jóns
míns, Anna Pálína og Aðalsteinn
Ásberg. Einnig mun nýstúdent
flytja ávarp. I Vitanum hefjast
gömlu dansamir kl. 21.00. Hátíðar-
höldunum'lýkur kl. 00.30.
Hrafnseyr-
arhátíð
HRAFNSEYRARNEFND stend-
ur fyrir hátiðardagskrá á
Hrafnseyri, fæðingarstað Jóns
Sigurðssonar, á þjóðhátíðardag-
inn 17. júní.
Hátíðin hefst með guðsþjónustu
er sr. Gunnar Björnsson sér um kl.
14.00. Aðalræðumaður hátíðarinn-
ar verður Gils Guðmundsson. Það
er Hrafnseyrarnefnd er sér um skip-
ulagningu hátíðarinnar á Hrafns-
eyri á þjóðhátíðardaginn.
Kópavogur:
Hefðbundin
hátíðardagskrá
KÓPAVOGSBÚAR halda upp á
þjóðhátíðardaginn á hefðbund-
inn hátt. Farið verður í skrúð-
göngu og boðið upp á hátíðar-
dagskrá á Rútstúni. Það er Hand-
knattleiksfélag Kópavogs sem
annast framkvæmd hátíðarhald-
anna.
Skrúðganga hefst frá Kópavogs-
skóla kl. 13.30 og gengið verður
að Rútstúni. Klukkan 14.00 hefst
hátíðin á Rútstúni við Sundlaug
Kópavogs. Sigurður Geirdal, bæjar-
stjóri, setur hátiðina. Þá syngja
Fóstbræður nokkur lög og Ámór
Pálsson, forseti bæjarstjórnar, flyt-
ur hátíðarræðu. Síðan verður dans-
sýning, Tóti trúður bregður á leik,
Leikfélag Kópavogs flytur leikþátt,
og unglingahljómsveit úr Kópavogi
spilar.
Klukkan 16.00 verður minning-
arleikur um Daða Sigurvinsson á
Vallargerðisvelli á milli 4. flokks
H.K. og Breiðabliks. En milli kl.
17-19 spilar hljómsveitin Stjómin.
Garðabær:
Hátíðar-
dagskrávið
Flataskóla
Dagskrá þjóðhátíðardagsins í
Garðabæ verður með hefð-
bundnu sniði í ár. U.m.f. Stjarnan
hefur séð um undirbúning og
framkvæmd hátíðarhaldanna.
Dagskráin byijar kl. 9.30 með
siglingakeppni á Árnarvogi, en milli
kl. 10.00-12.00 verður boðið upp á
útsýnissiglingu á vélbát um Arnar-
vog. Víðavangshlaup fyrir krakka
á aldrinum 6 til 13 ára verður við
íþróttamiðstöðina Ásgarð og hefst
hlaupið kl. 10.00. Klukkan 10.30
verður bæjarhlutakeppni_ 30 ára og
eldri í knattspyrnu við Ásgarð.
Skipulag Ingóifstorgs og Grófartorgs:
Stefnt er að því því að ljúka
framkvæmdum á næstaári
Morgunblaðið/Bjami
Á mánudag voru kynnt úrslit í hugmyndasamkeppni um skipulag
Grófartorgs og Ingólfstorgs. Á myndinni eru (frá vinstri) Páll Gísla-
son, varaforseti borgarstjórnar, sem afhenti verðlaunin, arkitektarn-
ir Helga Benediktsdóttir, Haraldur Örn Jónsson og Elín Kjartansdótt-
ir, aðstoðarmaður þeirra, Sigurður Gústafsson, og loks Vilhjálmur
Þ. Vilhjálmsson, formaður dómnefndar.
VILHJÁLMUR Þ. Vilhjálmsson,
formaður skipulagsnefndar
Reykjavíkur, segir að borgaryf-
irvöld hafi ákveðið að ljúka fram-
kvæmdum við Grófartorg og Ing-
ólfstorg á næsta ári. Á mánudag
voru tilkynnt úrslit í hugmynda-
samkeppni um skipulag torganna
og mælti dómnefnd með tillögu
arkitektanna Elínar Kjartansdótt-
ur, Haraldar Arnar Jónssonar og
Helgu Benediktsdóttur til frekari
útfærslu.
Hugmyndasamkeppnin nær ann-
ars vegar til Ingólfstorgs, sem af-
markast af Aðalstræti, Hafnar-
stræti, Veltusundi og Vallarstræti,
og hins vegar til Grófartorgs, sem
er svæðið norðan Geysishússins við
Vesturgötu, meðfram Grófínni að
Tryggvagötu.
Þegar úrslit í samkeppninni voru
kynnt sagði Vilhjálmur Þ. Vilhjálms-
son, formaður skipulagsnefndar, sem
jafnframt var formaður dómnefndar,
að dómnefndin teldi að keppnin hefði
leitt í ljós að sú lausn væri farsælust
að torgin stæðu sem sjálfstæð torg,
en tenging á milli þeirra væri líka
mikilvæg.
Hann sagði að í keppninni hefði
sú lausn verið algengust varðandi
Ingólfstorg að það yrði í stefnunni
norður-suður. Álmennt gerðu höf-
undar ráð fyrir að þar skapaðist að-
staða til menningar- og listviðburða,
auk aðstöðu til útivistar. Þá hefðu
höfundar verið sammála um að nýta
Geysishúsið, „Borgarhúsið", til
menningar;, félags- og kynningar-
starfsemi. í verðlaunatillögunni væru
þessi atriði leyst með ágætum, hún
væri í heild vel unnin og dómnefnd
mælti hiklaust með henni til frekari
útfærslu.
Þá sagði Vilhjálmur að borgaryf-
irvöld hefðu ákveðið að ljúka fram-
kvæmdum við torgin á næsta ári og
gengi það vonandi eftir. Torgin og
sú uppbygging og starfsemi sem
borgaryfírvöld hefðu ákveðið að
standa að við Aðalstræti, í húsi Inn-
réttinganna á lóð Aðalstrætis 12 og
í Geysishúsinu, væru tvímælalaust
þýðingarmikill áfangi í að efla mann-
líf og starfsemi í miðbæ Reykjavíkur.
Hugmyndasamkeppnin um skipu-
lag Ingólfstorgs og Grófartorgs var
lokuð og var leitað til eftirfarandi
arkitekta um tillögur, auk sigurveg-
aranna: 1. Hjördísar Sigurgísladóttur
og Gísja Sæmundssonar, 2. Jóns
Ólafs Ólafssonar og Sigurðar Ein-
arssonar, 3. Knúts Jeppesens, 4.
Kristins Ragnarssonar og 5. Mann-
freðs Vilhjálmssonar. Hverjum þess-
ara aðila vora greiddar 350 þúsund
krónur fyrir þátttöku í samkeppn-
inni. Tillögurnar sex verða til sýnis
í Geysishúsinu næsta mánuðinn.
feysishús
Lf/5 M
Ingólfstorg