Morgunblaðið - 17.06.1992, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1992
Samband Al-
þýðuflokks-
félaga á
Suðurnesjum
STOFNFUNDUR Sambands Al-
þýðuflokksfélaga á Suðurnesjum
var haldinn í Alþýðuhúsinu í
Keflavik að kvöldi 9. júní sl. Stofn-
aðilar eru Alþýðuflokksfélögin í
Keflavík, Njarðvík, Grindavík,
Sandgerði, Garði og Vogum.
Markmið félagsins er að vera sam-
starfsvettvangur Alþýðuflokksfélága
á Suðumesjum til eflingar innra
starfi ásamt því að stuðla að og efla
framgang jafnaðarstefnunnar á Suð-
umesjum.
Stofnfundurinn var fjölsóttur og
fór þar fram mjög lífleg málefna-
umræða. Formaður samtakanna til
eins árs var kosinn Kristmundur
Asmundsson og ritari Ragnar Hall-
dórsson. (Fréttatilkynning)
-----♦ ♦ ♦
Búðardalur:
Breiðfirskar
konur heim-
sækja
heimabyggð
Búðardal.
Það var félag breiðfirskra kvenna
í Reykjavík er fór vestur í Dali á
uppstigningardag. Þessi ferð er
árleg skemmtiferð félags kvenna.
Þær keyrðu hér um, skoðuðu
byggðasafnið að Laugum, fóru í
Hjarðarholtskirkju og sáu breyt-
ingarnar sem hafa orðið á kirkj-
unni. Kirkjan hefur verið sett í
upprunalegt horf og er mjög
falleg. Svo er verið að klæða kirkj-
una að utan. Þá hefur kirkjugarð-
urinn verið sléttaður og stækkað-
ur.
Eftir þessa yfírreið komu konumar
aftur til Búðardals þar sem konur
úr kvenfélaginu Þorgerði Egilsdóttur
buðu til kaffídrykkju í Thomsens-
húsi en það er elsta húsið í plássinu
sem konumar keyptu og eru búnar
að flytja í nokkuð gott horf. Þar tóku
kvenfélagskonur á móti gestunum
og áttu ánægjulega samverustund
við kaffíveitingar og spjall.
Sýnir þetta hug burtfluttra til heima-
byggðarinnar. Gestimir færðu kven-
félaginu Þorgerði Egilsdóttur pen-
ingagjöf sem kemur sér vel vegna
húsakaupanna. Dagurinn var indæll
og eftirminnilegur.
- Kristjana
'BOSCH
V E R S L U N
Lágmúla 9 sími 3 88 20
RAFSTÖÐVAR
ALLT AÐ 30%
L Æ K K U N
0,67 kw 49.114 stgr.
1,90 kw 62.627 stgr.
2,15 kw 55.456 stgr.
3,00 kw 80.741 stgr.
3,40 kw 1 fasa 3,80 kw 3 fasa 115.446 ,tgr.
Baphomet
Strigaskór nr. 42
Sororicide
Forgarður helvítis
Cranium
Bar 8
In Memoriam
Óháð listahátíð:
Rokkað í Héðinshúsinu
ÓHÁÐA listahátíðin Loftárás á Seyðisfjörð stendur nú sem
hæst og í dag verða tónleikar í Héðinshúsinu. Þar koma fram
margar af fremstu hljómsveitum yngri kynslóðarinnar, auk-
inheldur sem skáld flytja ljóðmæli og listamenn gjörninga.
Loftárásin hófst 13. júní sl.
og stendur fram til 28. júní, en
aðal hennar hefur verið að
byggja á íslenskum listamönnum
og þá gjarnan lítt eða nánast
óþekktum. Þungamiðja dagskrár
hvers dags er jafnan í Héðins-
húsinu, en einnig hafa lista- og
tónlistarmenn hreiðrað um sig í
miðbænum og víðar. í kvöld
verða, eins og áður sagði, tón-
leikar ungsveita í Héðinshúsinu
og koma þá fram nokkrar af
frambærilegustu slíkum sveitum
landsins.
Sveitimar, sem koma víða að,
leika allar rokk í þess fjölbreyti-
legu myndum, allt frá geysi-
þungu grindcore og dauðarokki
í sýrurokk. Flestar eru sær dauð-
arokksveitir, enda slík tónlist
vinsæl vel um þessar mundir, en
aðrar helga sig hefðbundnara
rokki.
Fram koma Cranium, Maunir,
Condemned, Bar 8, Baphomet,
Clockwork Diabolus, Fökkopps,
Múliúlpa, Forgarður helvítis, In
Memoriam, Synir Raspútíns,
Strigaskór nr. 42 og Sororicide.
Flestar sveitanna eru kunnar
meðal annars fyrir þátttöku sína
í Músíktilraunum, t.a.m.
Sororicide, sem sigraði á síðasta
ári, en Craninum, Condemned,
Bar 8, Forgarður helvítis,
Baphomet, Clockwork Diabolus
og In Memoriam tóku þátt í
Músíktilraunum í mars/apríl sl.
In Memoriam komst reyndar í
annað sæti.
Sem meðlæti með tónlistinni
kynnir Valgeir Bragason og
fremur gjörninga, Ari Gísli Brag-
ason fer með Ijóð og Þórhallur
Guðmundsson les barnasögu.
Árni Matthíasson
FEGRIÐ GARÐINN OG BÆTID
MEÐ SANDI OG GRJÓTI
SANDUR
SIGURSTEINAR
VÖLUSTEINAR HNULLUNGAR
Þú faerö sand og aftskonar grjót hjá okkur.
Vi& mokum þessum efnum á bíla eba
í kerrur og afgreibum líka í smærri
einingum, traustum plastpokum
sem þú setur í skottið á bílum þínum.
Leigum út kerrur og hjólbörur.
BJÖRGUN HF.
SÆVARHÖFÐA 33
SfMI: 68 18 33
Afgreiðslan vib Elliðaár er opin:
mánud. -fimmtud. 7:30-18:30
föstod. 7:30 -18:00
laugardaga 7:30 - 1 7:00
Opið í hádeginu nema á laugardögum.