Morgunblaðið - 17.06.1992, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1992
39
Fullveldið og evrópska
efnahagssvæðið
eftir Sigurrós
Þorgrímsdóttur
í umræðunni um aðild íslands að
evrópska efnahagssvæðinu er mikið
rætt um að með þátttöku í slíku sam-
starfi þurfum við að gefa eftir hluta
af fullveldi okkar og færa sjálfsfor-
ræði þjóðarinnar yfír í hendur yfír-
þjóðlegra stofnana. Þessi hræðslu-
áróður hefur vakið ugg í hugum
margra. En hvað felst í hugtakinu
fullveldi og getur verið að ráðamenn
þjóðarinnar séu að kasta því á glæ?
Fullveldi
Hugtakið fullveldi er í raun flókið
hugtak og ekki er til nein ein hald-
bær skilgreining til að styðjast við
því fræðimenn og kennismiðir hafa
sett fram ólíkar skilgreiningar og
kenningar um þetta hugtak.
Fullveldi er ekki eitthvað sem
hægt er að festa hönd á, heldur er
þetta hugtak sem menn hafa nýtt
sér við sérstakar aðstæður. Farið var
að nota það um svipað leyti og ríkis-
hugtakið, enda eru þetta nátengd
hugtök. Á tímum einveldisins þegar
hugtökin voru að verða til var litið
svo á að ríkið, með fullveldi sínu
yfir þegnunum og sjálfstæði gagn-
vart öðrum ríkjum væri fólgið f pers-
ónu þjóðhöfðingjans. Fólkið í ríkinu
væri ekki ríki heldur þegnar ríkisins,
þ.e. konungs, og þvi skylt að sýna
honum trúnað og hollustu. Þessi
hugsunarháttur fer ekki að breytast
fyrr en þegnamir verða að þjóð sem
ríkisvaldið grundvallast á.
Fullveldi ríkis nær til allra ein-
staklinga sem búa innan ákveðins
landsvæðis. Það nær jafnt til þeirra
sem eru í forsvari og stjórna ríkinu
sem hins almenna borgara.
Eitt helsta grundvallaratriði full-
veldis, sem er að löggjafarvaldið sé
í höndum ríkisins, var á tímum ein-
veldisins aðeins innantóm kennisetn-
ing. En þetta grundvallaratriði var
síðan staðfest og þá einnig að aðeins
fullvalda ríki gætu tekið þátt í samn-
ingum hvert við annað. Þetta þýðir
að stjómmálaeiningar sem ekki voru
fullvalda gátu ekki orðið löglegar
einingar. Þessar einingar gátu hvorki
gert samning né verið hluti af al-
þjóðasamningum né farið fram á
önnur réttindi og skyldur samkvæmt
alþjóðalögum. Þessi regla er ennþá
grunnur að öllum gagnkvæmum
samskiptum ríkja.
Alþjóðasamstarf ríkja
Þó ríki taki þátt í alþjóðasam-
starfi em þau áfram fullvalda og
stjómskipulega sjálfstæð. Þau em í
raun ekki að afsala eða fóma full-
veldi sínu eða sjálfsákvörðunarrétti
sínum, heldur era þau aðeins að
framselja það til sameiginlegra
stofnana. Þau hafa ekki gert það í
óþökk lands og þjóðar né gengið
gegn eigin hagsmunum. Þátttaka
þeirra í alþjóðastofnunum, þar sem
þau þurfa að framselja eitthvað af
valdi sínu til sameiginlegra stofnana,
er fyrst og fremst til hagsbóta fyrir
eigið land og lýð. Ávinningur og
hagnaður þjóðarinnar, sem heildar,
Sigurrós Þorgrímsdóttir
„Eitt megin grundvall-
aratriði fullveldis hvers
ríkis er að löggjafar-
valdið sé í höndum þess.
Með þessum samning-
um um EES verður eng-
in breyting gerð þar á.“
er fyrst og fremst haft að leiðarljósi.
íslendingar em aðilar að fjölmörg-
um alþjóðasamtökum sem við höfum
þurft að framselja vald til eins og
til að mynda mannréttindadómstóls-
ins, Atlandshafsbandalagsins og Al-
þjóðahvalveiðiráðsins. En þetta vald-
aframsal hefur ekki skert sjálfsá-
kvörðunarrétt okkar til mikilla muna.
Ríki geta, ef þau kjósa, afturkallað
valdaframsal sitt og gengið út úr
þeim alþjóðasamtökum sem þau hafa
gerst aðili að. Við íslendingar höfum
þegar afturkallað valdaframsal okk-
ar sem við létum af hendi er við
gerðumst aðilar að Alþjóðahvalveið-
iráðinu vegna þess að stefna þess í
hvalveiðimálum brýtur í bága við
sjónarmið íslendinga.
Ríkin em því ekki að brenna allar
brýr að baki sér þótt þau taki þátt
í alþjóðasamstarfí með öðmm full-
valda ríkjum. Ekki er hægt að líta á
þjóðríki sem eingangraða einingu.
Ríki em stöðugt að auka samstarf
sitt við önnur fullvalda ríki og um
leið styrkja þau fullveldi sitt.
Fullveldi og
EES-samningurinn
Samningurinn um evrópska efna-
hagssvæðið, sem lagður hefur verið
fyrir Alþingi íslendinga og önnur
þjóðþing EFTA-ríkjanna, er alþjóða-
samningur um gagnkvæm samskipti
fullvalda ríkja.
Eins og fram hefur komið er eitt
megin grundvallaratriði fullveldis
hvers ríkis að löggjafarvaldið sé í
höndum þess. Með þessum samning-
um um EES verður engin breyting
gerð þar á gagnvart löggjafarvaldi
íslenska ríkisins. Löggjafarvaldið
verður eftir sem áður í höndum Al-
þingis. Þau ríki sem em aðilar að
evrópska efnahagssvæðinu munu
Úr kvikmyndinni „Á bláþræði".
Bíóborgin sýnir „A bláþræði“
BÍÓBORGIN hefur hafið sýningar
á myndínni „Á bláþræði“, en hún
heitir á frummálinu „Fourth
Story“. Hún er framleidd af Frank
Koningsberg, leikstjóri er Ivan
Passer og aðalhlutverk leika Mark
Harmon og Mimi Rogers.
Myndin segir frá dularfullu saka-
ekki framselja löggjafarvald sitt til
þeirra stofnana sem fyrirhugað er
að setja fót með EES-samningnum.
Öll lög sem setja þarf á hinu evr-
ópska efnahagssvæði þarf að leggja
fyrir þjóðþing íslendinga og annarra
EFTA-ríkja. Það er síðan í valdi Al-
þingis hvort slik fmmvörp verða að
lögum eða ekki.
Við þurfum heldur ekki að lúta
einhverju ofurvaldi þar sem atkvæði
okkar fámennu þjóðar skiptir engu
máli því allar ákvarðanir sem teknar
eru innan stofnana EES, eins og
EES-ráðsins og sameiginlegu nefnd-
arinnar, verður að taka samhljóða.
íslendingar hafa, eins og aðrar
EFTA-þjóðir í þessu EFTA-sam-
starfí, neitunarvald.
Hlutverk eftirlitsstofnana sem fyr-
irhugað er að setja á fót er að fylgj-
ast með því að aðildarríki EES haldi
þann samning sem þau hafa gert sín
á milli og virði hina sameiginlegu
samkeppnisreglur sem er einn af
homsteinum sameiginlegs efnahags-
svæðis.
Ef ríki eða fyrirtæki verða uppvís
að því að btjóta samninginn eða sett-
ar reglur getur eftirlitsstofnuiiin
höfðað mál gegn viðkomandi aðila
og stofnunin getur fylgt ákvörðun
sinni eftir með sektum. Það er þó
ekki í hennar verkahring að fullnusta
slíkt sektarákvæði heidur fer það
alfarið eftir lögum þess ríkis þar sem
fullnustan fer fram.
Ekki valdaframsal
Vegna þess að ísland er fullvalda
og sjálfstæð þjóð getur hún tekið
þátt í alþjóðasamstarfí við aðrar full-
valda þjóðir. Sá samningur sem við
íslendingar emm að gera ásamt
frændum okkar á Norðurlöndum við
önnur ríki í Evrópu mun ekki svifta
okkur fullveldinu, sjálfræði né sjálf-
stæði. Við emm ekki að færa þetta
vald né sjálfstæði þjóðarinnar á
silfurfati til yfirþjóðlegra stofnana í
Brassel. Löggjafarvaldið og
ákvarðanataka verður áfram í hönd-
um íslenskra ráðamanna. Þátttaka
okkar í þessu samstarfí mun fyrst
og fremst verða okkar hagur. ’
Höfundur er stjómmálafræðingur.
Fermingarbörn
með ggaffakort ffró Tæknivali
Númskeið t Windows ásamt
kynníngu á Windows hugbúnaði
fer fram þann 22. júnt
kl. 1 3:00 f húsi Rafiðnaðarskólans,
Skeifunni 11,3. hæð.
Þátttaka tilkynnist til Tæknivals
fyrir föstudaginn 1 9. júnf.
A FRAMTlMNA
ITæknival
SKEIFAN17
128 KEYKJAVÍK
tr 91-681665
FAX91-680664
GLEÐILEGA HÁTID
I tilefni dagsins bjóöum viö upp á
glœsilept kaffihlabborb í Lóninu
frákl. 15.00.
Verid velkomin
, FLUGLEIÐIR
IIPÍII LOFTLEIÐIR
Reykjavíkurflugvelli, sími 22322.
máli. Einkaspæjari tekur að sér að
leita eiginmanni konu, sem horfðið
hafði sporlaust. Þegar hann rannsak-
ar málið, kemur í ljós, að eiginmaður-
inn hafði ekki hreinan skjöld og
ýmislegt óvænt kemur upp á yfír-
borðið.
SUZUKIVITARA
5 DYRA LÚXUSJEPPI
Suzuki Vitara er rúmgóður 5 manna lúxusjeppi, búinn öllum helstu þæg-
indum fólksbíls og kostum torfærubíls. Hann er grindarbyggður og má
auðveldlega hækka og setja undir hann stærri dekk. Suzuki Vitara er,
með 4ra strokka, 16 ventla vél með beinni innspýtingu.
4 | SUZLðlCI
Verð frá kr. 1.576.000.- ..-
suzuki bílar hf
SKEIFUNNI 17 SlMI 68 51 00