Morgunblaðið - 17.06.1992, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1992
Nei, ekki EES!
eftir Þóri Karl
Jónasson
Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar,
Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks,
hefur nú setið að völdum í rúmt
ár. Hægt er að fullyrða að öll henn-
ar verk eru fædd til að mistakast,
vegna stefnu hennar í efnahagsmál-
um. Boðskapur hennar er óheft
markaðshyggja, frelsi peninganna,
öllu skal fómað á altari kapítalis-
mans, allt skal einkavætt í nafni
trúarinnar, öll ríkisfyrirtæki skulu
afhent „kolkrabbanum" á silfur-
bakka. Kapítalisminn, markaðs-
* hyggjan í Vestur-Evrópu er að
rotna innan frá. Aldrei frá stríðslok-
um hefur verið jafn mikið atvinnu-
leysi í Evrópu. Flestum vestrænum
ríkjum er stjórnað af hægri mönn-
um og eða svokölluðum sósíaldemó-
krötum. Þau stjórnmálaöfl í Vestur-
Evrópu, sem kalla sig sósialdemó-
krata, segjast hafa hag hinnar vinn-
andi stéttar að leiðarljósi. En haga
EURÓ-kratar sér í samræmi við
þá stefnu sína?
Það er mín skoðun að svo sé
ekki. Þeir stunda sama arðrán og
aðrir kapítalistar. EURÓ-kratar
sigla undir fölsku flaggi og hafa
alltaf verið hjálparhella auðvalds-
ins, allir evrópskir krataflokkar em
hlynntir EB-samveldinu. Til er
flokkur hér á landi, sem kallar sig
Alþýðuflokk - jafnarðamannaflokk
íslands. Forystumenn þess flokks
hafa riðið um sveitir landsins og
boðað fagnaðarerindið, um frjálsan
markaðsbúskap, grisjun sveita
Iandsins, einkavæðingu heilbrigðis-
kerfisins, einkaðvæðingu orkufyrir-
tækjanna. Sem sagt, selja öll fyrir-
tæki sem þjóðin á, og helst þau sem
skila miklum arði. Núverandi ríkis-
stjórn langar mikið til þess, að við
sækjum um aðild að EB en þeir
þora ekki að segja það beint framan
í þjóðina, heldur nota þeir málpípur
sínar, eins og Þórarin V. Þórarins-
son og Karl Steinar Guðnason og
á vísa þessi vel við núverandi ríkis-
stjóm:
„Ég er ekki í neinum
vafa að samningurinn
um EES verður felldur
í þjóðaratkvæða-
greiðslu. Ég vil skora á
alla andstæðinga EES-
samningsins að berjast,
því stutt er í lokaor-
ustuna.“
Flýgur með hatt og frakkalöfum þöndum
fapaðarboði meðfram Islands ströndum.
„Frelsist þú þjóð úr fomeskjunnar böndum
frfverslun stunda skal með öðram löndum.
Það er óhætt að fullyrða að nú-
verandi stjórnarflokkar hafa svikið
íslenska alþýðu. Þeir lofuðu hækk-
un skattleysismarka og nýsköpun í
atvinnulífí. En hvað hafa þeir gert
í staðinn? Farið sömu leið og Mar-
grét Thatcher gerði í Bretlandi, en
stefna hennar og Ronalds Regans
í Bandaríkjunum hefur beðið algjört
skipbrot. Og það vilja þeir kalla
yfír íslensku þjóðina, einkavæðingu
sjúkrahúsa og skóla og með nýrri
skipan í Lánasjóði íslenskra náms-
manna er skólaganga að verða for-
réttindi þeirra sem eiga peninga.
Böm fátækra Dagsbrúnarmanna
eiga ekki að geta notið neins fram-
haldsnáms, því lögmál markaðs-
hyggjunnar leyfa það ekki.
EES samningurinn
Utanríkisráðherra, Jón Baldvin
Hannibalsson, hefur nýverið undir-
ritað fyrir hönd íslands og EFTA
samning um EES og að hans sögn
fengum við allt fyrir ekkert og rúm-
lega það. Nú hafa öll EFTA löndin
sótt um aðild að efnahagsbandalagi
Evrópu, nema ísland. í upphafsorð-
um samningsins stendur að stuðla
eigi að frjálsum og óheftum mark-
aðsbúskap, sem þýðir, sameiginleg-
ar reglur á öllum sviðum og sameig-
inlegur dómstóll, fijálsir vömflutn-
ingar, fólksflutningar, þjónustu-
STÆRÐIR: 128 -176
=ullorðinsgallar: frákr. 4.980,
STÆRÐIR: XS - XXL
REYKJAVÍK: BoKamaAurinn, Trimmig, Sportmaðurint
Búsport, Sportval AKRANES: Versl.Óðlnn AKUREYRi:
Sporthúsið SELFOSS: Vöruhús KÁ ISAFJÖRÐUR:
Sporthlaðan SEYÐISFJÖRÐUR: Aldan Mf-IWi
Heildsöludreifing:
■meirihittar mtrkli
ENOK hf. Hamraborg 14, Ki
Þórir Kari Jónasson
starfsemi og frjáls fjármagnsflutn-
ingur. Þetta er hið margumtalaða
fjórfrelsi. Forystumenn EB líta
verkalýðsfélögin hornauga og öll
félög launamanna. Því halda marg-
ir fram, þar á meðal ég; að Evrópu-
bandalagið ætli sér að knésetja
verkalýshreyfínguna og helst banna
samtök launamanna. Við stofnun
EB voru uppi háværar kröfur um
svokölluð fimmtu fríðindin, en þar
var átt við bann á starfsemi stéttar-
félaga.
Forystumenn ríkisstjórnarinnar
kalla okkur, sem erum á móti EES
sammngnum, einangrunarsinna, og
hefur utanríkisráðherra verið þar
fremstur í flokki. En auðvitað er
það rangt hjá honum, eins og svo
margt annað, sem hann hefur látið
út úr sér. Því hættan við EES-samn-
inginn er ekki að við einangrumst
á alþjóðavettvangi, ef við gerumst
aðilar að honum, heldur er hættan
sú, að við einangrumst innan Evr-
ópu.
Samkvæmt Maastricht-fundin-
um á EB að sameinast í eitt sam-
bandsríki. Öll lönd samningsins eiga
að hafa sömu utanríkisstefnu, og
setja á laggirnar sameiginlegan
her, EB samveldið á að verða póli-
tískt hernaðarbandalag. Með því
bandalagi eigum við íslendingar
enga samleið.
Krafan um þjóðaratkvæði um
EES-samninginn
Samtökin Samstaða um óháð ís-
land voru stofnuð á síðastliðnu ári
og er megin markmið samtakanna
að beijast gegn aðild íslands að
EES og EB-samveldinu. 9. maí síð-
astliðinn var haldinn landsfundur
Samstöðu, og var það fjölmennur
og góður fundur, og flutt voru
mörg góð erindi þar. Niðurstaða
fundarins var að halda áfram og
krefjast þjóðaratkvæðis um EES-
samninginn.
En auðvitað óttast maður það
að reynt verði að keyra samninginn
í gegnum Alþingi Islendinga, án
þess að spyija þjóðina álits, saman-
borið Keflavíkursamninginn, og
aðild okkar að Atlantshafsbanda-
laginu.
Það verður að fara fram þjóðar-
atkvæðagreiðsla um EES-samning-
inn. Þegar svifta á þjóð fullveldi
verður þjóðin að fá að segja sitt
álit. Eða vilja menn sem ætla að
reyna að koma okkur inní EB-sam-
veldið lifa með það á bakinu að
hafa svikið þjóð sína?
Island er lítið og fámennt land,
en íslendingar eru vel menntaðir.
Island og íslendingar munu komast
vel af í framtíðinni, ef við stöndum
utan EB-samveldisins, því opnast
hafa stórir markaðir í Asíu, Japan,
Tævan, Kóreu og ekki má gleyma
Austur-Evrópu og fleri stórum
mörkuðum.
Sú rangfærsla forystumanna rík-
isstjómarinnar, að ef við stöndum
fyrir utan EB-samveldið þá sé okk-
ur öllum lokið, er bull og þvæla.
En það versta við það er, að þeir
trúa þessari vitleysu sinni sjálfir.
Ekki má gleyma embætti forseta
Islands, en hann getur haft úrslita
áhrif, ef núverandi stjórnarflokkar
ætla að koma sér undan því að
spyija þjóðina álits, því forseti Ís-
lands á að halda vörð um stjómar-
skrá lýðveldisins.
Ég er ekki í neinum vafa að
samningurinn um EES verður felld-
ur í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég vil
skora á alla andstæðinga EES-
samningsins að beijast, því stutt er
í lokaorystuna.
Höfundur er Dagsbrúnarmaður
ogí stjórn Samstöðu um óháð
Island í Reykjavík.
EB er framtíðin
eftir Gísla
Guðmundsson
í þeirri umræðu um Efnahags-
bandalag Evrópu, sem hefur verið
nú undanfarið, flnnst mér vanta
að minna á það efnahagsslys, er
varð 1929 og árunum þar á eftir.
Þá skalla kreppan á í Bandaríkjun-
um og breiddist fljótlega út til
Evrópu og náði að lokum til allrar
heimsbyggðarinnar, þetta efna-
hagsslys, sem kallað hefur'verið
kreppan mikla. Af hveiju skyldu
þessi efnahagsvandræði hafa orðið?
Ekki skorti neins konar neyslu-
vörur, það hlóðust upp nauðsynjar
hvers konar, svo sem matur og
hvers kyns vamingur. Samt varð
mikil neyð hjá almenningi og at-
vinnuleysingjar voru í tugmilljóna-
tali og fjöldi fólks lést af völdum
MYNDVORPUR
OG GLÆRUR
ÁRVÍK
ABHÚLI 1 - REyKJAVÍK - SIMI 687222 -TELEFAJÍ 687295
næringarskorts og annarra hörm;
unga er leiddu af þessari neyð. í
ljósi þessara staðreynda mætti
spyija, að ef þjóðirnar hefðu haft
samvinnu, hvort ekki hefði verið
mögulegt að koma í veg fyrir þær
hörmungar er kreppan olli.
Þær þjóðir, sem hafa stofnað
með sér EB ætla auðsjáanlega að
reyna að koma skipulagi á fram-
leiðslu sína og viðskipti í þeim til-
gangi að hindra efnahagsörðug-
leika, sem koma, ef allt er skip-
ulagslaust, eins og reynslan hefur
sýnt.
í ljósi þessara staðreynda er það
nauðsynlegt og sjálfsagt, að íslend-
ingar starfi með hinum EB-þjóðun-
um í þeim tilgangi að styrkja, efla
og gera markvissa þjóðarfram-
leiðslu til lengri tíma.
Er það ekki stórkostlegt að
margar þjóðir taki höndum saman
í þeim tilgangi að koma sameigin-
lega stjórn á efnahagsmálin, þar
af leiðir að margs konar samvinna
verður að vera milli þjóða og ein
styrk yfirstjóm. Þessir hlutir gerast
ekki af sjálfu sér, það er alveg víst.
Það væri gagnlegt innlegg í þessar
EB-umræður ef eldra fólk, sem
man ástandið eins og það var hjá
almenningi í þessum svokölluðum
krepputímum, segði frá reynslu
sinni, þegar sjávarafurðir og land-
búnaðarafurðir urðu skyndilega
óseljanlegar og verðlausar. At-
vinnuleysi og eymd skall yfir þjóð-
ina og því fylgdu ólýsanlegar hörm-
ungar fyrir allan almenning. Þessir
Gísli Guðmundsson
„Þessir tímar koma ör-
ugglega aftur ef ekki
verður komið skipulagi
á efnahagsmálin, líkt
og verið er að reyna að
koma á í EB-löndunum
nú.“
tímar koma örugglega aftur ef
ekki verður komið skipulagi á efna-
hagsmálin, líkt og verið er að reyna
að koma á í EB-löndunum nú.
Höfundur er cftirlaunamaður.
Álfaborg opnar úti-
bú í Hafnarfirði
Álfaborg hf. hefur opnað útibú
í Bæjarhrauni 20, Hafnarfírði.
Verða þar á boðstólum sömu vörur
og fengist hafa í Knarrvogi 4,
Macintosh fyrir byqendur
Grunnatriði Macintosh, Works - ritvinnsla, gagnasöfnun, teikning,
töflureiknir og stýrikerfi á 15 klst námskeiði fyrir byrjendur.
Tölvu- 09 verkfræðiþjónustan *£*
Verkfraeðistofa Halldórs Kristjánssonar Oy*
Grensá^vejljj 16 • stofnuð 1. mars 1986 (g v
Reykjavík. Einkum hefur verið
lögð áhersla á flísar ásamt efnum
og áhöldum til flísalagna.
Verslunarstjóri í Hafnarfírði er
Guðmundur Þorlákur Guðmunds-
son en Guðbjartur Halldórsson,
áður starfsmaður Húsasmiðjunnar,
er jafnframt ráðinn verslunarstjóri
í Knarravogi 4. Útlit nýju versl-
unarinnar annaðist Sigurþór Aðal-
steinsson arkitekt, Bæjarhrauni 2,
Hafnarfirði. Eigendur eru Ásdís
Samúelsdóttir og Össur Stefáns-
son.