Morgunblaðið - 17.06.1992, Side 55

Morgunblaðið - 17.06.1992, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 17. JÚNÍ 1992 55 KNATTSPYRNA / 1. DEILD - SAMSKIPADEILD Stærsti sigur Fram á Val Í42ár Framarar hafa ekki unnið Valsmenn með eins miklum mun og í gær- kvöldi, 4:1, í 1. deildarkeppninni, eða síðan deildarkeppnin vartekin upp 1955. Þá er þetta mesti sigur Framara á Valsmönnum í íslandsmóti í 42 ár, eða síðan 1950. Þá unnu Framarar Valsmenn einnig 4:1. Morgunblaðið/Bjarni Ingólfur Ingólfsson skorar þriðja mark Framara og leggur grunninn að stórsigri þeirra. Ágúst Gylfason kom engum vömum við. Framarar sýndu meistaratakta URSLIT Valur-Fram 1:4 Valsvöllur að Hlíðarenda, íslandsmótið 1. deild - Samskipadeild - þriðjudaginn 16. júní 1992. Aðstæður: Sunnan fimm vindstig, örlítið rakt og sjö stiga hiti. Mark Vals: Anthony Karl Gregory (54.) Mörk Fram: Valdimar Kristófersson 2 (30. og 76.), Pétur Amþórsson (41.), Ingólfur Ingúlfsson (67.) Gult spjald: Anthony Karl Gregory (39.) fyrir að röfla í dómaranum. Rautt spjald: Enginn Dómari: Sæmundur Víglundsson, stóð sig vel. Línuverðir: Eyjólfur Ólafsson og Einar Sigurðsson. Áhorfendur:738 borguðu sig inn. Valur: Bjami Sigurðsson - Izudin Dervic, Jón Grétar Jónsson (Hörður M. Magnússon 67.), Sævar Jónsson - Amijótur Davíðsson (Einar Páll Tómasson 45.), Salih Porca, Gunnlaugur Einarsson, Ágúst Gylfason - Anthony Karl Gregory, Baldur Bragason. Pram: Birkir Kristinsson - Pétur Ormslev, Steinar Guðgeirsson, Kristján Jónsson - Kristinn R. Jónsson (Ásgeir Ásgeirsson 45.), Ingólfur Ingólfsson (Guðmundur Gisla- son 81.), Anton Bjöm Markússon, Pétur Amþórsson, Baldur Bjamason - Valdimar Kristófersson, Ríkharður Daðason. Pétur Ormslev, Kristján Jónsson, Pétur Amþórsson, Valdimar Kristófersson og Steinar Guðgeirsson, Fram. Birkir Kristinsson, Ingólfur Ingólfsson, Kristinn R. Jónsson, Anton Bjöm Markús- son, Baldur Bjamason og Ríkharður Deiða- son, Fram. Izudin Dervic, Ágúst Gylfason, Steinar Adólfsson, Anthony Karl Gregory og Gunnlaugur Einarsson, Val. FJ. leikja u j T Mörk Stig ÞÓR 4 3 1 0 5: 2 10 ÍA 4 2 2 0 6:3 8 FH 4 2 1 1 8: 7 7 KA 4 1 3 0 8: 6 6 fram 4 2 0 2 7: 5 6 VÍKINGUR 4 2 0 2 5: 6 6 KR 4 1 2 1 5: 6 5 VALUR 4 1 1 2 5:8 4 ÍBV 4 1 0 3 4:6 3 UBK 4 0 0 4 1: 5 0 Meistarakeppni kvenna Mosfellsbær: Akranes - Breiðablik.............3:0 Jónfna Viglundsdóttir (65.), Helena Ólafs- dóttir 2 (70., 80.). Bikarkeppni karla: Neskaupsstaðun Þróttur Nes. - Höttur............5:1 Ólafur Viggósson 2, Guðbjartur Magnús- son, Goran Micic, Zoran Cikic — Zoran Matijevic. 4. deild Fjölnir - Leiknir...................,.0:1 Ernir - Afturelding...................1:4 Hvatberi - Víkingur Ó1................1:6 Árvakur - Njarðvík....................2:3 Reynir S. - Hafnir....................7:0 Snæfell - Léttir......................5:0 Bolungarvík - Ármann..................0:1 Víkveiji - HK.........................0:3 - Jón Birgir Gunnarsson, Zoran Ljubicic, Jóhann Unnar Sigurðsson HM-keppnin Tóftir, Færeyjum: Færeyjar -Kýpur.............0:2 Andreas Sotiriou (30.), Nikidimos Papav- aslion (50.). ídagogámorgun Hlaup í dag fer hið árlega 17. júní hlaup fram á Kópavogsvelli og hefst kl. 10.30. Keppt er í fimm aldursflokkum. Knattspyrna 2. deild: ÍBK - Þróttur leika annað kvöld kl. 20.30. ÞAÐ var boðið upp á opinn og skemmtilegan leik að Hlíðar- enda í gærkvöldi, þegar Fram vann stórsigur á Val, 4:1 í fjórðu umferð 1. deildar. Fimm mörk voru skoruð, fjórum sinn- um fór boltinn í rammann, auk þess sem ótal önnur færi litu dagsins Ijós. Það var heldur annar bragur á þessum leik en þeim leikjum sem knattspyrnu- áhugamönnum er boðið upp á í sjónvarpinu þessa dagana, og annar bragur á leik Fram en í leiknum á móti ÍA í síðustu umferð. Þeir hristu af sér slen- ið og sýndu hvað í liðinu býr, og það er óhætt að fullyrða að þegar Framarar sýna sitt besta þá stenst ekkert íslenskt lið þeim snúning. að er vægt tekið til orða þegar sagt ert að Framarar hafi mætt ákveðnir til leiks. Eftir 20. mfnútúr höfðu þeir þegar sent Stefán boltann tvisvar í Eiríksson markumgjörðina, og -skrífar strax á fimmtu mín- útu var Ríkharður Daðason einn með boltann á móti Bjama Sigurðssyni, sem bjargaði vel. Valsmenn vom mjög óömggir i vöminni þessar fyrstu mínútur. Þeir áttu engu að síður nokkrar vænlegar sóknir og virtust vera að komast inn í leikinn, þegar fyrsta mark Fram kom á 30. mínútu. Valsmenn misstu þrátt fyrir það ekki móðinn, og fengu tækifæri til að jafna á 39. mínútu, þegar Porca skaut í stöng úr auka- spymu rétt fyrir utan vítateig Fram. Annað mark Fram kom síðan tveimur mínútum síðar, og var þar ferðinni einstaklega glæsilegur þmmufleygur úr smiðju Péturs Arnþórssonar. Valsmenn komu grimmir til leiks í síðari hálfleik eins og við var að búast. Einar Páll Tómasson kom inn á í vömina hálfleik, og Dervic var færður af miðjunni í sóknina. Þessar breytingar skiluðu sér í marki á 54. mínútu. Framarar, sem misstu Krist- inn R. Jónsson út af í hálfleik vegna meiðsla, vom ekki sannfærandi fyrsta stundarfjórðunginn í síðari- hálfleik, en sóttu í sig veðrið er á leið. Á 67. mínútu gerði Ingólfur Ing- ólfsson út um leikinn með ágætu marki. Allur vindur var úr Valsmönn- um eftir þriðja mark Fram, og fór það svo að lokum að þeir bættu fjórða markinu við, um stundarfjórðungi fyrir leikslok. Framarar Voru mun öflugri nær allan leikinn. Það var helst í bytjun seinni hálfleiks sem Valsmenn sýndu lit, en þeir bláklæddu héldu haus og unnu sig út úr.vandanum. Vömin hjá Val var slök, alltof oft komust and- stæðingamir í gegnum hana fyrir- hafnalítið, og vamarmennirnir virk- uðu þungir og á stundum vart með hugann við leikinn. Það var helst á miðjunni sem eitthvað gerðist hjá Val, og voru það einkum Ágúst Gylfa- son, Gunnlaugur Einarsson og Stein- ar Adolfsson sem sáu fyrir því. Vörn- in hjá Fram var hins vegar ákaflega traust. Miðjan skilaði sínu vel og sóknarmennimir einnig, sem sést best á úrslitunum. Hajzrudin Cardaklija UBK (1) Pétur Ormslev Fram (2) Gunnar Gíslason ' KA(2) Hlynur Birgisson Þór (2) Pétur Arnþórsson : Fram (2) Hallsteinn Arnarson FH(1) Rúnar Kristinsson KR (2) Kristján Jónsson Fram (1) Haraldur Ingólfsson (A(2) Sigurjón Kristjánsson UBK (1) Valdimar Kristófersson Fram(2) LIÐ 4. UMFERÐAR Engin spuming eflir þríðja markið -sagði Pétur Ormslev Það er ekki hægt annað en að vera ánægður með þetta,“ sagði Pétur Ormslev, þjálfari og leikmaður Fram eftir stórsigur þeirra á Val. „Við viss- um að Valsmenn kæmu bijálað- ir til leiks í síðari hálfleik. Við töluðum um það í leikhléinu að leika skynsamlega umfram allt, og spila boltanum út úr vörn- inni. Það gekk erfiðlega fyrstu fimmtán mínúturnar í síðari hálfleik, en síðan fór það að ganga. Þá kom sjálfstraustið og eftir þriðja marlrið var enginn spuming að við myndum sigra,“ sagði Pétur. „Svartur dagur“ „Það var svartur dagur hjá okkur,“ sagði Ingi Björn Al- bertsson, þjálfari Vals eftir leik- inn. „Það getur hent öll lið að eiga slæman dag og þetta var okkar slæmi dagur. Við þriðja markið var þetta orðið mjög ill- sótt, og við náðum okkur ekki upp. Við vorum í vandræðum vamarlega, vamarleikur liðsins í heild var ekki nógu góður. En ég vona að við lærum af þessu, það þýðir ekkert að leggjast í kör og fara að gráta. Við mun- um koma sterkir til næsta leiks,“ sagði Ingi Bjöm. Om 4 Pétur Amþórsson og ■ I Salih Porca börðust um boltann á miðjum vallar- helmingi Vals á 80. mínútu. Boltinn barst frá þeim til Krist- ins R. Jónssonar sem gaf faliega sendingu á Valdimar Kristó- fersson sem lék boltanum fram- þjá Bjarna í markinu og sendi hann í netið. Om O Baldur Bjarnason ■ ICíigaf bpltann á 41. mín. af vinstri kantinum yfir til hægri. Ríkharður Daðason hafði möguleika á að taka boltann en lét hann fara til Péturs Arn- þórssonar sem „smellhitt'ann"; skaut viðstöðulausu skoti, rétt fyrir innan hægra vítateigshom- ið, boltinn fór með ógurlegum hraða í neðanverða þverslána og í netið. Hreint út sagt stórglæsilegt mark. 1*OGunnlaugur Einars- ■ áEíison skallaði að marki Fram ú 54. mín. Birkir varði vel, en boltinn barst til vinstri til Ágústar Gylfasonar. Hann gaf fyrir á Anthony Karl Greg- ory sem skoraði af stuttu færi. 1m ^JValdimar Kristófers- ■ %#son gaf boltann á 67. mín. frá miðju á Ingólf lngólfs- son sem h\jóp inn í vítateiginn hægra meginn með Ágúst Gylfason á hælunum, og skaut boltanum framþjá Bjarna í markinu i homið Qær. 1m Ji Baldur Bjamason ■ "•‘braust upp kantinn vinstra meginn á 76. mínútu. Hann gaf irin í vítateiginn á Ríkharð Daðason sem var í ágætri aðstöðu til að skjóta. Hann gaf boltann hins vegar á Valdimar Kristófersson, sem var í enn betra færi, og skilaði hann boltanum í markið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.