Morgunblaðið - 05.08.1992, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVTKUDAGUR 5. ÁGÚST 1992
Dráttarskip hf.
kaupa Erik Boye
Sjópróf vegna strandsins haldin í dag
FYRIRTÆKIÐ Dráttarskip hf. á Siglufirði hefur gert kaup á danska
saltflutningaskipinu Erik Boye, sem strandaði á Breiðdalsvik á
fimmtudag. Að sögn Jóhannesar Lárussonar, stjórnarmanns í fyrir-
tækinu, stendur til að taka skipið í slipp í Neskaupstað, draga það
síðan ór landi og selja í brotajárn. Að minnsta kosti tveir aðrir aðil-
ar munu hafa sýnt áhuga á skipinu.
b
Jóhannes kvað ætlunina hafa
verið að draga skipið frá Breiðdal-
svík fyrir miðnætti í gær. „Það
verður tekið í slipp í Neskaupstað
og soðið fyrir þau göt sem eru á
botninum," sagði hann. „Svo verður
skipið strax sett á flot aftur og
dregið úr landi. Það verður ekki
vandamál að selja það í brotajám,
en ef það kemur í ljós að það borg-
ar sig að gera við það verður sá
kostur tekinn.“
Jóhannes vildi ekki segja um
kaupin annað en það, að greitt hafi
verið með skipinu. „Állar viðræður
fóru fram í gegnum danska trygg-
ingafélagið Skuld, en Danirnir voru
í miklum vanda með bátinn," sagði
hann. Dráttarskip hf. tóku formlega
við Erik Boye á hádegi í gær.
„Þetta var besta lausnin,“ sagði
Anders Arfelt, fulltrúi Skuldar,
tryggingafélags bátsins, sem stadd-
ur er á Breiðdalsvík. „Eigendum
skipsins bámst nokkur tilboð í það,
en ákveðið var að ganga að tilboði
Dráttarskipa hf.,“ sagði hann. And-
ers sagði, að tryggingafélag kaup-
anda yrði nú ábyrgt fyrir því að
skipið yrði fjarlægt og því gerð
skil á tilhlýðilegan hátt.
Skipstjóri Eriks Boye er enn
staddur hér á landi og mun hann
taka þátt í sjóprófunum sem haldin
verða í dag að kröfu Breiðdals-
hrepps og Siglingamálastofnunar.
Páll Hjartarson, siglingamálastjóri,
sagði að aldrei hefði komið til greina
að sökkva skipinu í íslenskri lög-
sögu. Slíkt stangaðist á við Ósló-
Parísarsáttmálann um vemdun
hafsins. „Ég lít svo á að Siglinga-
málastofnun sé nú laus allra mála
og þurfi engin frekari afskipti að
hafa af skipinu,“ sagði Páll. „En
fjölmargir aðilar hafa lagt í mikinn
kostnað við björgunina, og hann
verða þeir að fá til baka.“
Landhelgisgæslan, björgunar-
sveitir, Breiðdalshreppur og Sigl-
ingamálastofnun em meðal þeirra
aðila sem lagt hafa hönd á plóginn
við björgunina.
Kartöflubændurnir í Þykkvabæ standa nú í ströngu
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir
Karl R. Ólafsson, kartöflubóndi, ásamt dóttur sinni Heiðbjörtu og Sighvati Hallssyni, vinnumanni,
i óða önn í gær að taka upp kartöflur. Þær verða komnar á diska neytenda í dag.
Nýjar kartöflur eru
komnar í verslanir
FYRSTU kartöflur sumarsins voru teknar upp og lands sendir á markað núna af svokallaðri Amazon-
sendar í verslanir á höfuðborgarsvæðinu nú fyrir gerð, frekar fljótsprottið afbrigði. Þær vom seldar í
helgina. Unnið er af fullum krafti við upptökuna verslunum í fyrsta sinn í fyrra og líkuðu mjög vel.
þjá nokkrum kartöflubændum í Þykkvabæ. Karl kvað stutt í að hann byijaði að taka upp rauðar
Að sögn Karls R. Ólafssonar, bónda í Stóra-Rima- kartöflur og gullauga og horfur séu á uppskem í
koti, em kartöflurnar sem Grænmetispökkun Suður- góðu meðallagi.
Unnur María Ríkarðsdóttir
Lést eftir
Læknafélag íslands mótmælir ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins:
Sérfræðingar hafi þak
á einingafjölda að en
Kostnaður vegna launa sérfræðinga 200 milljónir króna fram úr fjárlögum
FORMAÐUR Læknafélags íslands, Högni Óskarsson, hefur hvatt sér-
fræðinga til þess að taka ekki mark á þaki þvi sem Tryggingarstofnun
ríkisins hefur sett á starfseiningafjölda sérfræðinga á ári og tók gildi
1. ágúst sl. Formaður samninganefndar Tryggingastofnunar, Helgi
V. Jónsson, sagði í fréttum Ríkissjónvarps í gærkvöldi að til greina
kæmi að endurskoða þessa ákvörðun.
Jón Sæmundur Sigurjónsson vísitölu eða ríkjandi verðlagi. Að
deildarstjóri f heilbrigðisráðuneytinu
sagði að aðdragandi þessa máls væri
sá að fyrir einu og hálfu ári hefði
verið gerður samningur á milli
Tryggingarstofnunar og Læknafé-
lags Islands um laun sérfræðinga.
Launin væm reiknuð þannig að hvert
verk sérfræðings væri metið til ein-
inga og þær verðlagðar samkvæmt
sögn Jóns Sæmundar gerði samn-
inganefnd Tryggingarstofnunar sér-
staka bókun við gerð þessa samnings
þar sem tekið var fram að ef kostnað-
ur vegna launa sérfræðinga færi
fram úr fjárlögum yrði gripið til að-
gerða. Nú liti út fyrir að kostnaður
færi 200 milljónir króna fram úr fjár-
lögum og væri þess vegna sett þak
á einingarfjölda fyrir hvern sérfræð-
ing. Þakið miðaðist við 65.000 ein-
ingar á ári. Að sögn Jóns Sæmundar
tekur þetta þak til 44 sérfræðinga
eða 13% af öllum sérfræðingum.
Að sögn Högna Óskarssonar var
sérfræðingum tilkynnt um ákvörðun
samninganefndar Tryggingarstofn-
unar degi áður en hún tók gildi.
Högni sagði að þessi ákvörðun ætti
engan stað í samningnum né í þeirri
bókun sem væri vitnað í. Að sögn
Högna hefur þessi ákvörðun ekki
heldur stuðning þeirra sem hafa yfir-
stjórn í heilbrigðisráðuneytinu.
Högni sagði að þakið næði til 155
sérfræðinga eða helmings þeirra sem
samningurinn væri við. Með þessu
þaki væri 20% af þjónustu skorið
burt. Sérfræðingar væru á móti þess-
ari aðferð þar sem að baki hennar
lægi enginn rekstrarleg úttekt. Einn-
ig skapaði hún óhagræði fyrir sjúkl-
inga. Högni sagði að sérfræðingar
skildu þörfína á því að halda kostn-
aði innan fjárlaga, en benti jafnframt
á að hann hefði aðeins vaxið um 4%
það sem af væri þessu ári. Gert hefði
verið ráð fyrir aukningu útgjalda í
samningum. Högna sagði að þessi
aukning kæmi einnig vegna þess að
þjóðinni fjölgaði.
slys í Sviss
UNGA stúlkan sem lenti í
slysi á skátamóti í Sviss síð-
astliðinn miðvikudag lést á
sjúkrahúsi þar á sunnudag.
Stúlkan hét Unnur María
Ríkarðsdóttir, tuttugu og eins
árs gömul, til heimilis í Kotár-
gerði 10 á Akureyri. Hún fædd-
ist 22. maí 1971, dóttir Maríu
Árnadóttur og Ríkarðs B. Jón-
assonar.
íslenskur lýtaskurðlæknir við sjúkrahús í Svíþjóð vekur athygli fyrir óvenjulega aðgerð
Græddi höfuðleður á að nýju
ÍSLENSKUR lýtaskurðlæknir sem
starfað hefur við sjúkrahúsið í Malmö,
Þórir Njálsson, græddi fyrir skemmstu
um 80 fersentimetra stóran hluta höf-
uðleðurs á átta ára gamla stúlku sem
stór hundur hafði ráðist á. Aðeins einu
sinni áður hefur tekist að græða höfuð-
leður á að nýju í Svíþjóð eftir að það
hefur rifnað af, fyrir um tíu árum í
Gautaborg, þrátt fyrir að slíkar aðgerð-
ir hafi verið reyndar fimm sinnum.
Aðgerðin sem Þórir gerði á stúlkunni
ásamt samstarfsmanni sínum vakti at-
hygli í Svíþjóð, og var greint frá henni í
þarlendum fjölmiðlum. Þórir hefur starfað
við lýtaskurðlækningar í Malmö um nokk-
urra ára skeið, en hefur í hyggju að flytja
aftur til íslands með haustinu. Hann sagði
í samtali við Morgunblaðið að við árás
hundsins hafi höfuðleðrið efst á höfði
stúlkunnar rifnað af. Þegap ljóst var að
stúlkan yrði flutt til Malmö til aðgerðar
hefði hann þurft að taka ákvörðun um
hvað gera skyldi við hársvörðinn. „Ég
ákvað að hann yrði sendur með stúlkunni
á sjúkranúsið í ísbaði, þrátt fyrir að ekki
væru miklar líkur á að hægt væri að græða
hann á aftur,“ sagði Þórir. „Eftir að við
höfðum skoðað stúlkuna og höfuðleðrið
tókum við þá ákvörðun að reyna. Ef ekki
hefði heppnast að græða höfuðleðrið á
þegar í stað, hefði stúlkan þurft að ganga
í gegnum þrjár framhaldsaðgerðir til að
koma höfuðhúð og háralagi aftur í nokkuð
eðlilegt horf. Við skoðun höfuðleðursins
undir smásjá
fundum við slag-
æð, u.þ.b. hálfan
millimetra í
þvermál, sem
virtist vera hægt
að nýta til að
koma blóð-
rennsli í höfuð-
leðrið á ný, og
nokkru seinna
aðra til að taka
við blóðrennsli
frá því aftur.“
Til tengingar-
innar vpru flutt-
ar bláæðar úr fótum stúlkunnar upp til
höfuðsins, en alls tók aðgerðin um níu
klukkustundir. Þórir sagði, að gleði þeirra
sem að aðgerðinni stóðu hafí verið mikil
þegar í ljós kom að blóðrennsli var komið
af stað að nýju. Hann sagði að sár stúlk-
unnar hefðu gróið mjög vel, og ekki hafí
komist sýking í sárin. Eftir u.þ.b. þijá
sólarhringa var ljóst að aðgerðin hafði *
tekist, og tíu dagar liðu þar til kom í ljós
að hár hafði tekið að vaxa að nýju. „Hún
mun ekki hljóta varanlegan skaða af þessu
slysi, og innan skamms tíma mun þessa
ekki sjást nokkur merki,“ sagði Þórir enn-
fremur.
Eins og fyrr segir eru aðgerðir sem
þessar afar sjaldgæfar, en flest slys af
þessu tagi verða hjá síðhærðum konum
sem vinna við færibönd og flækja hárið í
þeim.
Þórir Njálsson, Iýta-
skurðlæknir.
►
i
\