Morgunblaðið - 05.08.1992, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. AGUST 1992
Norrænt gigtarár 1992;
Lýsi og- gigtarsjúkdómar
eftir Jón Þorsteinsson
Lýsið er langauðugasti
D-vítamíngjafinn
íslendingar hafa vitað um aldir
að lýsi er hollt. Sjómenn fengu sér
sopa af því áður en þeir fóru í róð-
ur og mæður gáfu bömum sínum
lýsi frá blautu barnsbeini. Það er
þó ekki ýkja langt síðan menn upp-
götvuðu hvað það er í lýsinu sem
gerir það svona hollt.
Um síðustu aldamót og á fýrstu
tveimur áratugum þessarar aldar
fundu menn að hægt var að fýrir-
byggja og lækna ýmsa hörgulsjúk-
dóma með ákveðinni fæðu og í kjöl-
farið fundust vítamínin eitt af öðru.
Beinkröm var læknuð með lýsi og
sólböðum og brátt tókst að sýna
fram á D-vítamín í lýsinu og að
sólarljósið myndaði D-vítamín í húð-
fitunni. Upp frá því hefur reynst
auðvelt að fyrirbyggja og lækna
bemkröm.
í suðrænum löndum reiða menn
sig á sólskinið en á norðlægum slóð-
um þar sem sólargangur er stuttur
verða menn að treysta á lýsið. D-vít-
amín finnst auðvitað í annarri dýra-
fitu en í fiski, s.s. í smjöri og eggj-
um, en lýsið er langauðugasti D-vít-
amíngjafinn. Hæfileg lýsisgjöf er
því langauðveldasti og öruggasti
mátinn að fyrirbyggja beinkröm.
Hvernig verkar D-vítamín
í líkamanum?
En hvernig verkar þá D-vítamín
Fjórar kiljur
komnar út
ÍSLENSKI kiijuklúbburinn hefur
sent frá sér þrjár nýjar bækur,
Snorra á Húsafelli eftir Þórunni
Valdimarsdóttur, Felix Krull—
játningar glæpamanns, eftir
Thomas Mann og Alexandriurós-
ina, eftir Manuel Vázquez Montal-
bán. Þá hefur Mál og menning
gefið út skáldsöguna Dreyrahim-
in, eftir Herbjörgu Wassmo.
Bókin um Snorra á Húsafelli fjall-
ar um þjóðsagnapersónuna Snorra
Björnsson á Húsafelli. Höfundur,
Þórunn Valdimarsdóttir sagnfræð-
ingur, vinnur úr hinum ýmsu heimild-
um um Snorra og setur sig í spor
18. aldar manna. Bókin kom fyrst
út 1989. Hún er 437 bls.
Felix Krull—játningar glæpa-
manns er skáldsaga eftir Nóbelsverð-
launahafann Thomas Mann. Felix
Krull beitir blekkingum og svikum
sjálfum sér til framdráttar. Ríkis-
sjónvarpið sýndi nýlega þáttaröð,
sem var byggð á bókinni. Kristján
Árnason þýddi bókina, sem er 322
bls., og ritaði eftirmála.
Alexandríurósin er spennusaga
eftir spænska rithöfundinn Manuel
Vázquez Montalbán og fjallar um
einkaspæjarann Carvalho, sem fær
það verkefni að rannsaka morð á
konu í spænskum smábæ. Jón Hallur
Stefánsson þýddi bókina, sem er 228
bls.
Mál og menning hefur gefið út
skáldsöguna Dreyrahimin eftir Her-
björgu Wassmo í kiljubroti. Sagan
er sjálfstætt framhald bókanna Hús-
ið með blindu glersvölunum og Þögla
herbergið, þriðja og síðasta bókin í
sagnabálkinum um stúlkuna Þóru,
sem færði Herbjörgu Wassmo bók-
menntaverðlaun Norðurlandaráðs
árið 1987. Hannes Sigfússon íslensk-
aði bókina, sem er 256 bls.
Aparici
Nýborg;
URVAL FLISA
ÁBETRA
VERÐI
í líkamanum? Það auðveldar nýt-
ingu á kalki úr fæðunni og kalkið
er nauðsynlegt fyrir beinabygging-
una. Kalk fáum við aðallega úr
mjólk og mjólkurmat og D-vítamín
fáum við fyrst og fremst úr lýsi og
feitum fiski. Við erum alltaf að
byggja upp og endumýja bein og
þurfum því að neyta mjólkur- og
fiskafurða í nægilegu magni að
staðaldri.
Flestir íslendingar fá nægilegt
kalk og D-vítamín í fæðunni. Þó
eru á þessu undantekningar. Sam-
kvæmt könnun Manneldisráðs fá
margar íslenskar konur of lítið kalk
og D-vítamín. Þetta er þeim mun
alvarlegra þar sem konum um og
eftir tíðahvörf er hættara við bein-
þynningu en öðmm og brjóta því
oftar beinin sín. Draga má úr þess-
ari hættu með því að drekka 3-4
glös af mjólk að staðaldri og taka
reglulega eina teskeið af lýsi. Það
er sama hvaða mjólk er drukkin,
undanrenna, léttmjólk, nýmjólk eða
súrmjólk og sama hvort það er
þorska- eða ufsalýsi en minna þarf
af lúðulýsi. Hafa ber í huga að
hæfileg hreyfing og þjálfun er einn-
ig nauðsynleg til þess að styrkja
beinin.
í lýsinu er einnig ríkulegt A-vít-
amín sem kemur í veg fyrir nátt-
blindu og styrkir slímhúðir líkam-
ans. Það eykur hollustu lýsis og
styður þau gömlu reynsluvísindi að
þeir sem taka lýsi verða síður kirtla-
veikir og ekki eins kvefsæknir.
Fitan í lýsinu er sérlega holl
Á seinni árum hefur komið í ljós
að hollusta lýsis er ekki bara bund-
in við A- og D-vítamín. Fitan í lýs-
inu er sérstaklega holl. Fita sjávar-
dýra er fjölómettuð en fíta spen-
dýra mettuð, hún ér hörð. Þessi
harða fíta er óholl og þeim sem
neyta hennar í óhófí er hætt við
æðakölkun og fá því frekar hjarta-
og æðasjúkdóma. Þetta, ásamt
reykingum og hreyfingarleysi, er
talin orsök þess hve Vesturlandabú-
um er hætt við að fá þessa sjúk-
Jón Þorsteinsson
„Niðurstaðan er sú að
við eigum að taka lýsi
og drekka mjólk alla ævi
til þess að minnka líkur
á beinþynning’u og bein-
brotum. Gigtarsjúkling-
ar geta auk þess dregið
úr notkun gigtarlyfja
með því að taka lýsi.“
dóma. Aftur á móti fá Grænlending-
ar og Japanir sístir slíka sjúkdóma
því þeir neyta mikillar fitu úr fiski
og öðrum sjávardýrum með mjúkri
fítu og fjölómettuðun. fitusýrum.
Komið hefur í ljós að fitusýrum-
ar í lýsinu hafa ýmis önnur holl
áhrif. Aðdragandi að þeirri vitn-
eskju var sú uppgötvun að aspirin
og skyld gigtarlyf hömluðu virkni
sérstaks hvata sem breytir svokall-
aðri arachidonsýru í prostaglandin.
Prostaglandin eru fitusýrur sem
myndast sérstaklega mikið í ýmsum
bólgusjúkdómum, s.s. liðagigt, og
valda sársauka. Gigtarlyfín draga
úr sársauka og bólgum með því að
hindra myndun prostaglandina en
þessi verkun hefur fylgikvilla í för
með sér því prostaglandinin vernda
magaslímhúðina. Því hættir mörg-
um manninum sem fær þessi bólgu-
og verkjastillandi lyf til að fá mag-
asár og jafnvel magablæðingu og
sprunginn maga. Því þarf ætíð að
fara með gát og forðast að gefa
magasárssjúklingi slík lyf.
Það var því merkileg uppgötvun
þegar það kom í ljós að fjölómettuð
fítusýra EPA, ein aðalfítusýran í
lýsinu, brotnar niður í líkamanum
í skaðlaus prostaglandin. Og það
sem er ennþá merkilegra er að lík-
aminn virðist ýta til hliðar þeim
skaðlegu prostaglandinum sem
valda bólgu og sársauka þegar
nægilegt magn er gefíð af EPA.
Því er hægt með lýsisgjöf að draga
úr bólgu og sársauka og einnig með
því að gefa lýsisþykkni í hylkjum
sem nær eingöngu innihalda fitu-
sýruna EPA. Með slíkri lýsisgjöf
er hægt að draga úr þörfínni fyrir
gigtarlyf og þetta er sérstaklega
mikilvægt fyrir þá gigtarsjúklinga
sem einnig hafa magasár.
Áhrif mataræðis á
liðagigtarsjúklinga
Það gekk lengi vel illa að sýna
fram á nokkur áhrif mataræðis á
liðagigtarsjúklinga þar til fram kom
í dýratilraunum að fóðrun með
fjölómettuðum fítusýrum hafði
bólgu- og sársaukastillandi áhrif.
Klíniskar tilraunir með lýsisþykkni
(EPA) gerðar á liðagigtarsjúkling-
um leiddu til svipaðrar niðurstöðu;
bólga, sársauki og stirðleiki minnk-
uðu. Lýsi gerir því ótvírætt gagn
þó það komi ekki í stað hefðbund-
innar gigtarmeðferðar.
Niðurstaðan er sú að við eigum
að taka lýsi og drekka mjólk alla
ævi til þess að minnka líkur á bein-
þynningu og beinbrotum. Gigtar-
sjúklingar geta auk þess dregið úr
notkun gigtarlyfja með því að taka
lýsi.
Höfundur er yfírlæknir á
Gigtardeild Landspítalans.
^EiimwiuiO
YERKFÆRI
FYRIR FAGMENN
Gtobusi
-heimur gceöa!
LÁGMÚLft s|- REYKlAVtK - SIMI 91 - 681555
nru
(SLENDINGUR ERLENDIS er bók sem
getur sparað þér baeði fyrirhöfn og
peninga og gert ferðina ánægjulegri.
Meðal efnis er:
• Endurgreiðsla virðisaukaskatts.
• Samanburður á breskum,
evrópskum og bandarískum
fatastærðum.
• Tollar og tollaálagning.
• Gisting hjá Islendingum erlendis.
• Hvernig hringja á til fslands.
• Þjórfé um viða veröld.
• Öll neyðamúmer greiðslukortana.
• Heimllisföng sendiráða og
ræðismanna íslands erfendis.
• 4ra hliða gengisskráning.
• Kort.
• Vegabréfið og vegabréfsáritanir.
• Tfmamismunur milli landa.
• Dagbók og margt fleira.
BÓK SEM HJÁLPAR
ÞÉR AÐ FERÐAST
Fæst (næstu bókabúð.
Lokasprettur
sumarsins
ífrjálsum
tímum
SUMARKORT-Frjáls mæting
Sumarkort býöur uppá frjálsa mætingu, eins oft og þú vilt innan þeirrar
tfmalengdar og á þeim tfmum dags sem þú sjálf velur. Þetta er nýjung
hjá okkur og vonumst viö til þess aö hún eigi eftir að þjóna þér vel.
4 ViKNA KORT FYRIR ALLA ALDURSHÓPA
Fimm daga vikunnar geturöu
mætt eins oft og þú vilt.
SVONA FERÐ PÚ AÐ:
Þú kemur eða hringir í síma 813730
og pantar kort.
Gult kort fyrir morguntfma.
Grænt kort fyrir síödegistfma.
Rautt kort fyrir kvöldtfma.
Ljósatímar fylgja fyrir
þœr sem vilja,
Bamapössun fyrir hádegi
Pöntunarsími 813730
ViÖ hefjum aftur hefðbundið starf f
september og bjóðum sem fyrr flokka
einsog;
Toppi til Táar, Stutt og strangt,
Rólegt og Gott, Almennt kerfi og
Púl og Sviti.
Innritun í vetrarnámskeiöin hefst um
næstu mánaðarmót.
Sími: 813730
Sinniö pöntunum stundvislega.
SUÐURVERI • HRAUNBERGI 4
Skútuvogi 4 - Sími 812470