Morgunblaðið - 27.11.1992, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. NÖVEMBER 1992 35
T T/1
8
'ÆMiXi'imimiirm
Skemmuvegur 6L • Pósthólf 9330 • 129 Reykjavík
Sími 670 880 • Fax 670 885
er útsláttarkeppni og taka fjögur
lið þátt í henni. Fyrri keppnin er á
milli ITC-Stjömu Rangárþingí og
ITC Eikar Nesi-vesturbæ
Reykjavík. Stjarna leggur til að
byggt verði heilsuhæli á Hveravöll-
um en Eik andmælir tillögunni.
Seinni keppnin er á milli ITC Mel-
korku Breiðholti og ITC Fífu
Kópavogi. Melkorka leggur til að
banna alla kjötneyslu á íslandi
næstu þijú árin. Fífa andmælir til-
lögunni. Allir eru velkomnir til
keppninnar. Þau tvö lið sem sigra
keppa síðan til úrslita eftir áramót.
(Fréttatilkynning)
VERTU VIÐBUIN
VETRINUM
Með vel hönnuðum og slitsterkum
vinnufatnaði frá Fristads heldur þú
kuldanum úti og hitanum inni.
Létt og þægileg föt sem gefa
hámarks hreyfingarfrelsi.
NYTT NYTT!
Undirföt frá Fristads fyrir veturinn.
Virka eins og gömlu góðu
ullarnærfötin nema þau
stinga ekki, halda .
líkamanum þurrum fK**'
Og hlýjum. Gæfti • Velliðan • Notagildl
Fyrirlestur um stuðn-
ing við fæðingu bams
ÓLÖF Ásta Ólafsdóttir, ljósmóðir
og hjúkrunarfræðingur M.N.,
flytur fyrirlesturinn Fræðsla og
stuðningur í kringum fæðingu
barns á vegum Málstofu í hjúkr-
unarfræðum. Ólöf vinnur að
rannsókn sem er lokaverkefni til
mastersprófs í hjúkrunarfræði
við háskólann í Utrecht í Hol-
landi og Cardiff í Wales.
Tilgangur rannsóknarinnar var
m.a. að gera hin flóknu störf sem
tengjast fræðslu og stuðningi í
kringum fæðingu barns sýnileg og
færa upp á yfírborðið það sjálfsagða
sem við berum ekki alltaf kennsl á
í erli dagsins; á þann hátt að lýsa
og benda á aðferðir sem ljósmæður
nota við fræðslu og stuðning sem
foreldrar sjálfir upplifa að hafi ver-
ið þeim til gagns eða ógagns.
Rannsóknaraðferðin er gæða-
bundin og byggir á fenómenólóg-
ískri hugmyndafræði (hermeneutic
phenomenological analysis). Opin
viðtöl við 12 nýorðna foreldra voru
tekin heima hjá þeim 3-4 vikum
eftir heimkomu. Foreldramir voru
beðnir að segja frá raunverulegum
atvikum í tengslum við fræðslu og
stuðning ljósmæðra, í og eftir fæð-
ingu; atburðum sem voru minnis-
stæðir og stóðu upp úr vegna þess
að samskiptin við ljósmæður hjálp-
uðu eða hjálpuðu ekki.
Málstofan verður haldin mánu-
daginn 30. nóvember 1992 kl. 12.15
í stofu 6 á 1. hæð í Eirbergi, Eiríks-
götu 34. Málstofan er öllum opin.
Ræðulið ITC Fífu Kópavogi 1991.
■ HALDIN verður í Menningar-
miðstöðinni Gerðubergi keppni í
mælsku og rökræðu á vegum III-
ráðs ITC og hefst hún kl. 13.00.
Þetta er fyrri hluti keppninnar sem
Jólakort
FEB
ÚT ERU komin lyá Félagi eldri
borgara í Reykjavík og nágrenni
jólakort með vatnslitamyndum
frá Reykjavík eftir Gerald
Musch.
Eins og undanfarin ár em kort-
in gefin út fyrir Félagsheimilissjóð
en árið 1990 keypti Félag eldri
borgara 4. hæðina á Hverfisgötu
105 með stuðningi Reykjavíkur-
borgar. Eftir að félagið eignaðist
fastan samastað fyrir starfsemi
sína var í mörg hom að líta. M.a.
varð að byggja brunastiga utan á
húsið, sem tókst með góðum stuðn-
ingi félagsmanna og annarra vel-
unnara félagsins. Fyrir liggur að
skipta um jám á þaki, en það mun
verða dýr framkvæmd.
28. nóvember nk. verður árshá-
tíð félagsins að þessu sinni og verð-
ur hún haldin í Ártúni, Vagnhöfða
11. Eins og venjulega er mikið
lagt upp úr góðum skemmtiatrið-
um og dansi.
(Úr fréttatílkynningu.)
Keflavík
Patricia sýn-
ir á Glóðinni
Vogum.
LISTAKONAN Patricia Hand
sýnir 60 verk á málverkasýn-
ingu á veitingahúsinu Glóðinni
í Keflavík frá 28. nóvember til
13. desember nk. og eru flest
verkanna unnin á silki.
Þetta er fimmta ei.nkasýning
hennar en á síðustu sýningu í
Vogum í september seldi hún á
fimmta tug mynda. Patricia er
afkastamikil listakona og hefur
reynt fyrir sér á ýmsum sviðum,
þar á meðal í keramik og hún
hefur gefið út ljóðabók á ensku. í
samtali við Morgunblaðið segir
Patricia það vera draum sinn að
vinna skúlptúr, en málun á silki
sé mjög skemmtileg.
Heiti sýningarinnar er Litríkt
ævintýri II en í sýningarskrá seg-
ir að það sé nafn sem gleðji hug
og hjarta í dimmu skammdeginu.
- E.G.
3M
Endurskinsefni
Frá jólahlaðborði Hótel Lindar.
Morgunblaðið/Svemr
Jólahlaðborð á Hótel Lind
HÓTEL Lind býður upp á jóla-
hlaðborð um helgar í nóvember
og síðan alla aðventuna bæði í
hádeginu og á kvöldin.
Á jólahlaðborði Lindarinnar eru
margir réttir og má meðal annars
finna þar síldarsalöt, fiski- og
lifrapaté, grafna ýsu, reyktan lax,
marineraðan físk, pottrétt, carvery
steik, alls konar salöt og pasta-
rétti, hefðbundinn íslenskan jólamat
eins og hangikjöt með grænum
baunum, kartöflujafningi, flat-
brauði og laufabrauði.
Verðið fyrir manninn er 1.590
krónur, böm undir sex ára aldri fá
frítt og böm sex til tólf ára greiða
hálft gjald.
VERKFRÆÐINGAR N
Muitið „SÓLARHÆÐAFUNDINN“
í dag föstudaginn 27. nóv í Verkfræðingahúsi,
Engjateig 9.
Frummælendur: Vífill Oddsson, form. VFÍ og
Guðmundur G. Þórarinsson varaformaður VFI.
Fundurinn hefst kl. 19:30 með síld, öli o.fl.
Verkfræðingafélag íslands.
________________________________/
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson
Patricia Hand með hundana sína, Smára og Pjakk.
...alltafþegar
við erum vandlát
I Lóninu á Loftleiðum
verður framreitt glæsilegt
jólahlaðborð á aðventunni,
frá 27. nóvember -
22t desember.
Matreiðslumeistarar
hótelsins sjá til þess að
hlaðborðið svigni undan
ljúffengum réttum -
bæði í hádeginu og á
kvöldin; hvítlauksrist-
aður smáhumar, síld,
hunangsreyktur lax,
Svartaskógar paté,
íIIUIfWM 1.395 KR.ÁMM grísasteik, reyksteikt
Á KVÖIjDIN 1.9SH KR. Á MM lambalæri, hreindýra-
* buff, ris á l'amande, kanelkrydduð epli,
| íslenskir ostar og ótal margt fleira.
| Allir jólahlaðborðsgestir eru sjálfkrafa þátt-
: takendur í glæsilegu ferðahappdrætti. Dregið
1 verður 23. desember um flugfar fyrir tvo með
Flugleiðum til London. Það fer vel um þig í
Lóninu og starfsfólk okkar leggur sig fram um
að gera þér borðhaldið sem ánægjulegast.
Borðapantanir í síma 22321.
FLUGLEIÐIR
HÖTEL LOFTLEIÐIR
Þegar jólin liggja í loftinu