Morgunblaðið - 13.05.1993, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1993
Ráðgerður niðurskurður varnarliðs á Keflavíkurflugvelli
Ekkí teikn á lofti um sam-
drátt hjá Ratsjárstofnun
JÓN E. Böðvarsson, framkvæmdastjóri Ratsjárstofnunar, seg-
ir að starfsemi stofnunarinnar sé ekki ónæm fyrir hugsanleg-
um niðurskurði á varnarsvæði varnarliðsins en hins vegar
séu engin teikn á lofti um það í dag að draga eigi úr starf-
semi Ratsjárstöðvanna og kvaðst hann telja ólíklegt að svo
yrði. Að undanförnu hefur verið unnið að undirbúningi að
fjárhagsáætlun Ratsjárstofnunar vegna næsta fjárhagsárs
sem hefst 1. október og sagði Jón að gengið væri út frá því
að reksturinn yrði óbreyttur í öllum grundvallaratriðum.
Ratsjárstofnun rekur ratsjár-
stöðvamar á Miðnesheiði, Bola-
fjalli, Gunnólfsvíkuríjalli og
Stokksnesi. 62 íslenskir starfs-
menn starfa hjá stofnuninni en
Bandaríkjamenn greiða allan
kostnað við rekstur stöðvanna en
gert er ráð fyrir að rekstrargjöld
á þessu ári verði 512 millj. kr.
Jón sagði áð niðurskurður innan
vamarsvæðisins hefði væntanlega
ekki mikil áhrif á starfsemi Rat-
sjárstofnunar að öðm leyti en því
að hann kæmi niður á þeirri þjón-
ustu sem Ratsjárstöðvarnar sækja
til vamarliðsins, svo sem vara-
hlutaþjónustu en ef breytingar
yrðu myndi Ratsjárstofnun þá
væntanlega sækja þá þjónustu til
Bandaríkjanna.
Dýr búnaður
Aðspurður hvort áform um
brottflutning flugsveita frá Kefla-
vík hefði áhrif á starfsemi Ratsjár-
stofnunar sagði Jón að það væri
í senn herfræðileg og stjómmála-
leg spuming sem hann væri ekki
í stöðu til að meta. Benti hann þó
á, að sá búnaður sem settur hefði
verið upp í ratsjárstöðvunum væri
mjög dýr og stofnkostnaður af
byggingu stöðvanna hefði verið
hár. „Þetta er hluti af heildarkeðju
sem nær frá Miðjarðarhafi, upp
til Evrópu, yfír til Kanada og nið-
ur Bandaríkin, þannig að ég á
ekki von á að það muni þykja fýsi-
legt að klippa út hluta af þeirri
mynd.
Þetta er viðbúnaðarkerfí, sem
er mjög dýrt að setja upp en hlut-
fallslega ódýrara að reka það. Líf-
tími þess er 20-30 ár og því þykir
mér ótrúlegt að þetta verði lagt
niður," sagði Jón.
Morgunblaðið/Þorkell
Uppgröftur á
Ingólfstorgi
BÚIST má við því að margvís-
legar mannvistarleifar eigi eft-
ir að finnast við uppgröft Ing-
ólfstorgs við Aðalstræti en þar
eru ráðgerðar miklar fram-
kvæmdir á vegum Reykjavíkur-
borgar í sumar og næsta sum-
ar. Á litlu myndinni sést bein-
tala sem hefur að öllum líkind-
um legið lengi í jörðu.
VEÐUR
IDAGkl. 12.00
Heimild: Veðurstofa Istands
(Byggt á veðurspá kl. 16.1S í gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 13. MAI
YFIRLIT: Yfir Grænlandi og Grænlandshafi er víðáttumikil 1044mb hæð.
Við suðurströndina er örgrunnt lægðardrag sem eyðist.
8PA: Fremur hæg norðlæg átt í fyrramálið en breytileg átt síðdegis.
Bjart veður að mestu. Hiti 2 til 10 stig, hlýjast sunnanlands.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Norðaustan átt. Skýjað og smá él á annesjum
norðanlands, en bjart veður sunnanlands. Hiti á bilinu 2 til 10 stig aö
deginum qg hlýjast syðra, en hætt við næturfrosti.
HORFUR A LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Austan- og norðaustan átt.
Rigning eða slydda með suðaustur- og austurströndinni, él á annesjum
norðanlands, en bjart veður suðvestanlands. Áfram kalt á laugardag
en heldur hlýnandi á sunnudag.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30,
22. 30.Svarsími Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 990600.
o
Heiðskírt
/ / r
F F
F F F
Rigning
&
Léttskýjað
* f *
* F
F * F
Slydda
&
Hálfskýjað
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Skýjað
V ^
Skúrír Siydduél
Alskýjað
*
V
H
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörín sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.^
10° Hitastig
Súld
v
Þoka
stig..
FÆRÐA VEGUM: (10.17.30 ígær)
Greiðfært er um alla helstu þjóðvegi landsins. Á vestanverðu landinu
hafa orðið skemmdir á vegum vegna vatns og aurskriða en unnið er
að viðgerð og er víða lokið. Byrjaður er vormokstur á Klettshálsi, Dynjand-
isheiöi, Lágheiði og Mjóafjarðarheiði.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og
í grænni línu 99-6315. Vegagerðin.
3
VEÐUR VIBA UM HEIM
kl. 12.00 igær að ísl. tíma
fitti veður
Akureyri 6 léttskýjað
Reykjavík 9 skýjað
Bergen 11 léttskýjað
Heteinki 20 iéttskýjað
Kaupmannahöfn 21 skýjað
Narssarssuaq 16 léttskýjað
Nuuk 3 skýjað
Osló 20 léttskýjað
Stokkhólmur 22 léttskýjað
Þórshöfn 6 rigning á síð.klsl.
Algarve 20 léttskýjað
Amsterdam 23 léttskýjað
Barcelona vantar
Berlín 26 léttskýjað
Chicago 17 hðlfskýjað
Feneyjar 20 þokumóða
Frankfurt 21 þokumófia
Glasgow 13 léttskýjað
Hamborg 23 léttskýjað
London 15 mistur
LosAngeles 14 léttskýjað
Lúxemborg 1B skúrir
Madrid vantar
Malaga 18 rigning
Mallorca 22 skýjað
Montreal 15 léttskýjað
NewYork 21 skýjað
Orlando 22 léttskýjað
Parfe 19 skýjað
Madelra 20 hðlfskýjað
Róm 21 þokumóða
Vín 24 léttakýjað
Washington 22 skýjað
Winnipeg 8 heiðskírt
Fundu forna bein-
tölu og vefnaðar-
bút í miðbænum
BEINTALA og vefnaðarbútur, sem gætu verið frá því fyr-
ir tíma þéttbýlis í Reykjavík, fundust þegar framkvæmdir
hófust við nýtt Ingólfstorg í miðbæ Reykjavíkur. í dag
verður jarðlag, þar sem hlutirnir fundust, kannað nánar.
Bjami Einarsson, fomleifa-
fræðingur hjá Árbæjarsafni,
sagði að þegar grafíð hefði verið
niður í bílastæði sunnan Steind-
órsplans hefði verið komið niður
á þykkt, svart jarðlag. „í þessu
lagi eru fískibein, kindabein og
nautgripabein, tréspænir og þar
fundust hlutimir tveir, beintala
og vefnaðarbútur,“ sagði hann,
„Aldur og tilurð þessa lags er
óljóst enn sem komið er, en mig
gmnar að það sé gamalt, eða
eldra en þéttbýli í Reykjavík.
Samsvarandi lag fannst svo þeg-
ar grafið var við Vallarstræti."
Bjarni sagði að vonandi feng-
ist leyfi hjá fomleifanefnd til að
kanna jarðlögin betur og yrði það
þá gert í dag. „Slík rannsókn á
jarðlögunum myndi ekki tefja
vinnu við Ingólfstorg, því ég
reikna með að hægt yrði að hliðra
til verkum á meðan,“ sagði
Bjami.
Sjö tonn af kaffi
hurfu úr geymslu
SJÖ tonn af kaffi, eða 600 kassar, hafa horfið úr vöru-
geymslu við Súðarvog á undanfömum vikum. Ekki er vitað
hvernig þjófamir bám sig að, en ljóst er að allnokkur vinna
hefur verið að bera kaffið út úr húsinu.
Eigandi kaffísins, heildsali í
Reykjavík, leitaði til rannsóknarlög-
reglu ríkisins í gær. Hann leigir
hluta geymsluhúsnæðis við Súðar-
vog, en hafði ekki komið þangað í
nokkrar vikur. Þegar hann ætlaði
að vitja kaffíbirgða sinna kom hann
að tómum kofanum.
Að sögn Harðar Jóhannssonar,
yfírlögregluþjóns hjá RLR, er ekki
ljóst hvemig þjófurinn komst inn í
geymsluna.
Kaffið er í um 600 kössum, 24
pakkar I hveijum kassa og vegur
hver pakki um 500 grömm. Það er
amerískt, ber heitið Club Special
og er í bláum pökkum með silfruð-
um röndum. Heiidsalinn hefur selt
kaffið til veitingahúsa og fæst það
í aðeins einni matvömverslun, sem
er við Laugaveg. Rannsóknarlög-
reglan óskar eftir að verslunareig-
endur eða aðrir þeir, sém verða
varir við að Club Special kaffí sé
boðið til sölu, geri lögreglu viðvart.
Kaffiþamb
Ljóst er, að komi þjófurinn kaff-
inu ekki í verð, verður ærinn starfi
fyrir hann að drekka það sjálfur,
Sjö tonniim stolið
SJÖ tonn af Club Special kaffi
hurfu úr geymslu við Súðarvog.
því það ætti að duga í tugi þúsunda
lítra. Hann verður. því að. sitja við
kaffidrykkju fram á næstu öld,
ætli hann að koma því í lóg.