Morgunblaðið - 13.05.1993, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. MAÍ 1993
„Kringla heimsins, sú er
U
mannfólkið byggir . .
Hugleiðingar um landfræðikennslu í grunn- og framhaldsskólum
eftir Óttar Ólafsson
Greinl
Landfræði sem sjálfstæð kennslu-
grein hefur átt erfitt uppdráttar í
skólakerfinu hér á landi og víðar á
undanförnum áratugum. Ein af
ástæðunum er nýskólastefnan sem
fólst í samþættingu landfræði, sögu
og félagsfræði í samfélagsfræði í
grunnskólum. Afleiðingarnar sjást
meðai annars á því að íjöldi nem-
énda í framhaldsskólum gerir sér
ekki grein fyrir landaskipun á jörð-
inni.,Undirritaður hefur jafnvel orðið
vitni að því að 16 og 17 ára nemend-
ur geta ekki staðsett Bandaríkin,
Japan og ýmis lönd V-Evrópu á
landakorti. Þetta er bagalegt í ljósi
þess að samskipti á milli landa vaxa
stöðugt og brýna nauðsyn ber til að
leysa ýmis alþjóðleg vandamál, t.d.
er snerta mengun, á sameiginlegum
vettvangi. Víða um heim fer nú fram
átak til að styrkja stöðu greinarinn-
ar í skólum.
Landafræði eða landfræði?
Hugtakið „geographia" er komið
úr grísku og þýðir orðrétt jarð- eða
landlýsing („gé“=jörð og „grap-
hein“=lýsing). Er það skiljanlegt í
ljósi þess að lengst af var það hlut-
verk landfræðinnar að varpa ljósi á
ðkunn lönd í fjarlægum heimsálfum.
Hér á landi heitir fræðigreinin landa-
fræði. Fleirtölumyndin er í raun
rangnefni og samræmist ekki venj-
um við nafngiftir flestra annarra
fræðigreina, samanber jarðfræði og
stærðfræði. Nær væri að kalla grein-
ina landfræði því í raun snýst hún
ekki bara um þvervísindalegar rann-
sóknir á einstökum löndum eða
svæðum heldur einnig um rannsókn-
ir á afmörkuðum þáttum eins og
loftslagi og gróðri.
Um hvað fjallar landfræði?
Sá hluti landfræðinnar sem íjallar
um afmörkuð svæði eins og lönd eða
heimsálfur nefnist svæðalandfræði.
Eftir að landaskipan á jörðinni varð
ljós og myrkviðir Afríku og S-Amer-
íku voru kannaðir beindist athygli
landfræðinga í vaxandi mæli að því
að skoða útbreiðslu og samspil ein-
stakra hluta. Gott dæmi um það er
flokkun á loftslagi jarðar sem Aust-
urríkismaðurinn Köppen setti fram
snemma á þessari öld, en fram að
þeim tíma var stuðst við loftslags-
flokkun frá tímum Forn-Grikkja. Sú
grein landfræðinnar sem fjallar um
afmörkuð svið nefnist almenn land-
fræði.
Almenn landfræði skiptist í
tvennt. Annars vegar í mannvistar-
Kínverskt sumar er
gengið í garð í Sjanghæ,
þar sem flöldi gimilegra
rétta blómstrar á
sumarmatseðlinum.
Sumartílboð Sjanghæ:
Moitai kokteill
Forréttur:
Chai-Tang grænmetissúpa með
þrennskonar kjöti
Aöalréttir:
Djúpsteiktur humar sumarsins
Szechuan súrsætt svínakjöt
Ma Lak lambakjöt
Swanton kjúklingur
Eftirréttir:
Pisang Goreng djúpsteiktir
bananar og ís
Kokteill, forréttur,4 réttir og
eftirréttur aðeins 1.390 d mann
LAUGAVEGI28 SÍM116513
landfræðj sem fjallar um veru
mannsins á jörðinni og hvernig hann
hefur nýtt sér auðlindir hennar bæði
tii góðs og ills. Undirgreinar mann-
vistarlandfræði eru m.a. hagræn
landfræði og borgarlandfræði. Hins
vegar er náttúrulandfræði sem fjall-
ar um loftslag, gróðurfar, jarðveg
og hafið. Undirgreinar hennar eru
t.d. loftslagsfræði og jarðvegsfræði.
Hafa ber í huga að ýmsar greinar
sem fiokkast undir landfræði á lægri
skólastigum eru í raun meira eða
minna sjálfstæðar fræðigreinar þeg-
ar komið er á háskólastig.
Oft er erfitt að draga skýran mun
á milli landfræði og annarra fræði-
greina. Hvar á t.d. að gera greinar-
mun á veðurfræði og loftslagsfræði?
í rauninni er slíkt ekki hægt og
ekki ástæða til. Loftslag og veður
er sitt hvor hliðin á sama hlutnum.
í fyrra tilvikinu er verið að fjalla
um langtímaástand lofthjúpsins en
í því síðara er verið að fjalla um
skammtímaástand hans og þá krafta
sem að baki liggja. Hér er komið
að kjarna málsins og í þessu felst
styrkur landfræðinnar sem kennslu-
greinar í grunn- og framhaldsskól-
um.
Hvers vegna að kenna
landfræði?
Landfræði er samþætt grein sem
á snertiflöt við margar aðrar fræði-
greinar (sjá mynd). Munurinn felst
í því að landfræði skoðar hluti frá
öðru sjónarhorni. Má að þessu leyti
líkja landfræði við vísindamanninn
sem gengur upp á hæsta fjallið til
að skoða það sem fyrir neðan ligg-
ur. Þannig getur hann betur áttað
sig á staðsetningu einstakra hiuta
og samhengi þeirra. Hlutverk snerti-
greinanna er hins vegar að rannsaka
einstaka hluti nánar. Þetta felur
einkum í sér tvennt: í fyrsta lagi er
í landfræði hægt er að gera mörgu
skil á skipulegan og yfirgripsmikinn
hátt. Þannig fæst grunnur sem gott
Ottar Ólafsson
„Undirritaður hefur
jafnvel orðið vitni að
því að 16 og 17 ára
nemendur geta ekki
staðsett Bandaríkin,
Japan og ýmis lönd
V-Evrópu á landa-
korti.“
er að byggja á kennslu og nám í
öðrum greinum, bæði raun- og fé-
lagsgreinum. í öðru lagi er land-
fræði afar jarðbundin grein í orðsins
fyllstu merkingu. Hún lýsir jörðinni
eins og hún er á hveijum tíma en
gefur ekki færi á túlkunar- eða vafa-
atriðum nema að litlu leyti saman-
borið við ýmsar aðrar greinar eins
og sögu og féiagsfræði.
Tími og rúm mynda umgjörð um
tilveru okkar á jörðinni. Sagan fjall-
ar um gang tímans en landfræðin
um rýmið. Til að átta sig á skipan
heimsmáia hveiju sinni er nauðsyn-
legt að þekkja til landaskipunar.
Lega Islands með tilliti til haf- og
loftstraum gerir landið byggilegt.
Nýjasta tæknin í baráttu okkar við
gróður- og jarðvegseyðingu felst í
því að taka stafrænar gervihnatta-
myndir og vinna úr þeim í tölvum.
Um þetta er fjallað í landfræði og
margt fleira.
Hvað á að kenna og hvar -
hugleiðingar?
Eins og allir þekkja gekk nýskóla-
Misríð Jjgjg.
1
sem peir segja u
LADDI S V1N1R
íeita svlía M® ^Um
þegar a&rir fara aö sofc
pantanir í síma 91 -29900
-lofar góðu!
fitíBcl ->®Ttrn«n i*n
Síöasti pöntunardagur Macintosh-
tölvubunaöar með verulegum afslætti er
Innkaupastofnun ríkisins
Borgartúni 7, Rvk. Sími: 91-26844