Morgunblaðið - 28.09.1993, Side 45

Morgunblaðið - 28.09.1993, Side 45
t 3 I Í i i i i i i i i i -+ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. SEPTEMBER 1993 45 „Og sýndu miskunn öllu því sem andar“ Frá Eddu Bjarnadóttur og Jórunni Sörensen: SÉRA Ólafur Oddur Jónsson prestur í Keflavík skrifar grein í Lesbók Morgunblaðsins hinn 28. ágúst sl. Þar ræðir hann vítt og breitt um skyldur og siðareglur fréttamanna og hvernig góð fjölm- iðlun eigi að vera. Hann víkur sér- staklega að þessum málum hér á landi og segir þá m.a.: „ ... en eitt er víst að hópar í samfélaginu, sem leita eftir peningum, völdum og áhrifum, hafa leynt og ljóst misnot- að fjölmiðla í eigin þágu.“ Þess vegna sé nauðsynlegt að vera á verði og treysta ekki gagnrýnis- laust upplýsingum fjölmiðla. Orð- rétt segir hann einnig: „Menn þurfa því að leggja mikið á sig til að verða sæmilega upplýstir borgarar. Guð forði okkur frá fólki sem fær allar sínar upplýsingar úr fjölmiðlum, margt að (sic) sem þar er borið fram er blátt áfram órökrétt, því er ætlað að kitla eða heilla og beina hugsun okkar frá því sem raunveru- lega skiptir máli. Mest sláandi dæmið nú er það sem kalla má tilfinningaleg rök, að þau séu jafn rétthá vísindalegum rökum, t.d. að tilfinningaleg rök Bandaríkjamanna í hvalamálinu séu jafn rétthjá vísindalegum rökum Norðmanna og íslendinga. Það má vel vera að þegar allt kemur til alls verði islendingar og Norðmenn að meta meiri hagsmuni í stað minni hagsmuna í hvalamálinu, en ef við höldum því fram að tilfinningaleg rök séu jafn rétthá vísindalegum rökum þá getum við allt eins farið að blístra á hvert annað“ (sic), eins og ágætur maður orðaði það eitt sinn. Dæmið sem presturinn velur er dálítið skrítið en kemúr þó sniðug- lega út því hann fellur sjálfur í þá gryfju sem hann er að vara við. Hann gleypir hráan áróður ís- lenskra fjölmiðla fyrir hvalveiðum. Okkur stöllum þykir auðvitað ákaflega mikið fyrir því að Ólafur Oddur skuli ekki hafa lesið eða þá að hann tekur ekki mark á því sem við höfum verið að skrifa í gegnum tíðina um hvalveiðimálin. Það er að vísu lítið að vöxtum miðað við það sem komið hefur frá hagsmunaaðil- um og stjórnvöldum. En þar kveður sannarlega við annan tón. Við höf- um ekki tileinkað okkur hið kalda viðhorf til hvalsins að líta einungis á hann sem auðlind - einhvem óskilgreindan massa sem má moka úr að vild á meðan stofnstærð leyf- ir. Rök sækjum við bæði í smiðjur fræðinga og hugsuða. Úr fyrri hópnum koma m.a. þær staðreyndir að íslendingar geta lifað ágætu lífi án þess að drepa hvali. En í báðum hópunum eiga heima þær ítarlegu vísindalegu kannanir sem sýna að ekki er hægt að drepa hvali á mann- úðlegan hátt og slík aðferð er ekki í sjónmáli. Það styður það sem Ólaf- Saga og fomleifar Frá Þorsteini Guðjónssyni: BJARNI F. Einarsson fornleifa- fræðingur er óefað fær maður á sínu sviði, en að sú kunnátta veiti honum sjálfkrafa rétt til fullyrðinga eins og þeirrar, að Ingólfur land- námsmaður í Reykjavík hafi aldrei til verið (Sjónvarpið 17. september sl.) virðist mér fráleitt. Um 1100 var uppi íslenskur sagnfræðingur að nafni Ari Þorgils- son og um hann er þess sérstakleg að geta, að svo margvíslega hafa frásagnir hans verið staðfestar, að fáar hafa traustari fundist. Á grunni þess sem hann ritaði — og annars frá 12. og 13. öld — tala menn á sviði sagnfræðinnar um öryggi um landnámstíð og í fram- haldi af því á sviði sérfræða, einnig með öryggi um landnáms-öskulag (um 898). En það var þetta landsnámsösku- lag sem Bjarfti Einarsson sást vera róta í í sjónvarpsfréttum 17. sept- ember og var hann þar með óvart kominn í fang Ara fróða. Þeir mega bijótast vel um, pottormarnir, ef þeir ætla að losa sig úr þeirri bónda- beygju. ÞORSTEINN GUÐJÓNSSON, Rauðalæk 14, Reykjavík. VELVAKANDI GEISLAÐ KJÖT V ARHUGAVERT? HVORT vilja húsmæður frekar geislað kalkúnakjöt frá Benel- úxlöndunum eða ferskt lamba- eða kalkúnakjöt úr hinni dásam- legu Mosfellssveit. I útlöndum er kjöt sérstaklega merkt ef það er geislað til að auka geymsluþolið og þar með getur fólk valið hvort það viíl geislað kjöt eða ekki. Þetta á líka við um innflutt grænmeti og ávexti. Mér finnst að íslensk- ir kaupmenn og innflytjendur eigi að merkja hvort matvaran sé geisluð eða ekki. Lúlla GÆLUDÝR Snúður er týndur HANN Snúð- ur hvarf að heiman frá sér að Skóla- gerði 32, Kópavogi, þann 6. sept- ember sl. Hann er ómerktur og aðeins stærri og feitari en á myndinni. Þeir sem kynnu að hafa orðið hans varir vinsamlega hringi í síma 44503. Kettlingar TVEIR stálpaðir, yndislegir, kettlingar, eyrnamerktir oggelt- ir, óska eftir góðu heimili sem fyrst. Helst saman. Upplýsingar í síma 19552. TAPAÐ/FUNDIÐ Týnt armband GULLARMBAND með grænum steinum tapaðist við Grænuhlíð 4 eða Suðurlandsbraut 22. Finnandi vinsamlega hringi í Sif í síma 681596 eða 689050. Fundarlaun. Týnt veski LITIÐ marglitt veski með öku- skírteini, húslyklum og ýmsu smávægilegu tapaðist aðfarar- nótt sunnudagsins 19. septem- ber, annað hvort í leigubíl á milli Fossvogs og Bíóbarsins eða fyrir utan Bíóbarinn. Finnandi vinsamlega hafi samband í síma 38284. ur Oddur segir um hvernig hags- munahópar notfæra sér fjölmiðla í eigin þágu, að upplýsingum um dauðastríðs hvalsins er stungið und- ir stól - jafnvel gögnum frá Al- þjóða hvalveiðiráðinu. Þótt það sé vissulega nauðsyn- legt að styðjast við niðurstöður fræðilegra kannana þá vefst það sannarlega ekki fyrir okkur stöllun- um að gefa einnig gaum að tilfinn- ingalegum rökum. Það er vert um- hugsunar hvers vegna svona marg- ir Islendingar geta ekki sætt sig við og gera lítið úr rökum sem höfða til tilfinninga. Orðið virðist vera búið að tapa réttri merkingu og það er notað sem einhvers konar skammaryrði til að beija niður eða gera lítið úr skoðunum sem passa ekki í kramið. Vita þeir annars nokkuð hvað við er átt þegar talað er um tilfinningar? Þekkjum við ekki öll réttlætistilfinninguna? Gleðina? Og hvað um hugrekki, vin- áttu, hamingju, samúð, miskunn- semi og kærleika? Allt eru þetta tilfínningar sem við megum ekki bæla eða einskorða við eina tegund í dýraríkinu - manninn, heldur leyfa þeim að vaxa og njóta sín og ná til alls sem lífsanda dregur. EDDA BJARNADÓTTIR hópstjóri Skuldar - vinnuhóps Sambands dýravcrndarféiaga íslands til verndar villtum dýrum. JÓRUNN SöRENSEN, formaður SDÍ. Pennavinir Japönsk 25 ára kona með áhuga á ferðalögum, kvikmyndum og Is- landi: Nobuko Mizutani, 3-5-10-406 Hoshigaoka, Hirakata, Osaka, 573 Japan. Frá Ghana skrifar 21 árs piltur með áhuga á íþróttum, bókalestri og krossgátum: Alban Baidoe, P.O. Box 1135, Cape Coast, Ghana. Tvítugur Breti með áhuga á tón- list (Depeche mode og Madonna): Paul Burns, 132 Evesham Road, Headless Cross, Redditch, Worcs. B97 5ER, England. Grísk 24 ára stúlka, verkfræð- ingur, með áhuga á bréfaskriftum, dansi, sundi, borðtennis og segl- brettasiglingum. Vill skiptast á frí- merkjum og póstkortum: Tina Koroli, M. Alexandrou 41, 17121 Athens, Greece. LEIÐRÉTTING Biðlaun Vegna bréfs um biðlaun heilbrigðis- ráðherra, sem birtist hér í blaðinu í fyrradag, skal tekið fram að bréf- ið barst blaðinu áður en ráðherrann tók ákvörðun um að falla frá bið- launum. Vinningstölur laugardaginn (T)Ía\ 25. sept. 1993 (i9)Œr i "l2Í)T37) (22) j VINNINGAR j viNNIbföSHAFA UPPHÆÐ Á HVERN 1 VINNINGSHAFA | 1. 5al5 I 0 2.151.644 £.. 4af5^AlA á 187.087 3. 4af5 | 95 6.794 4. 3al5 I 3.243 464 Heildarvinningsupphæö þessa viku: 4.676.000 kr. M • upplýsingarsImsvari91 -681511 lukkulIna991002 H RAÐLESTRARN AMSKEIÐ - NAMSTÆKNI Viltu margfalda afköst í starfi og námi um alla framtíð? Viltu lesa meira af góðum bókum? Viltu lesa góðar bækur með meiri ánægju? Skráðu þig þá strax á næsta hraðlestrarnámskeið sem laust pláss er á, en það hefst miðvikudaginn 6. október nk. Næsta námstækninámskeið sem laust pláss er á , hefst 23. október. Skráning alla daga í sfma 641091. H RAÐLESTRARSKOLIN N ...við ábyrgjumst að þú nærð árangri! 1978- 1993 □ NÝR SJÁLFVIRKUR OFNHITASTILLIR 0 VETRARSK0ÐUN Hefur þú hugleitt að fá pípulagningamanninn til að stilla hitakerfið í húsinu fyrir veturinn? Þannig gœtir þú komist hjd óþægindum og Lekkað orkureikninginn. = HÉÐINN = VERSLUN SELJAVEGI 2 SÍMI 91-624260 Fiat Uno Arctic - fyrir norðlægar slóðir Bestu bílakaupin! Uno Arctic býðst nú á miklu lægra verði en sambærir legir bílar frá V-Evrópu og Asíulöndum. .... 748.000 kr. á götuna, ryðvarinn og skráður. Það borgar sig að gera verðsamanburð við aðra bíla. Við tökum gamla bílinn upp í og lánum allt að 75% kaupverðs til 36 mánaða. Komið og reynsluakið I ÍTALSKIR BÍLAR HF. Skeifunni 17 -108 Reykjavík - sími (91) 677620 ARGUS/EÍA

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.