Morgunblaðið - 16.04.1994, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. APRÍL 1994
23
Afkoma Sparisjóðs Reykjavíkur og* nágrennis í fyrra sú besta frá upphafi
Híigimður um
86 millj. króna
á síðasta árí
AFKOMA Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis (SPRON) varð á sl.
ári sú besta frá upphafi, en hagnaður ársins nam alls um 86 milljón-
um króna samanborið við 42,6 milljónir árið áður. A árinu voru lagð-
ar til hliðar 107,8 milljónir í afskriftarreikning útlána til að mæta
hugsanlegum skuldatöpum og er það heldur lægri tala en áður. Á
afskriftarreikningi standa nú um 212,5 milljónir. Lausafjárstaða spari-
sjóðsins hefur verið mjög góð á síðustu misserum og því óvenju miklu
fé verið ráðstafað til kaupa á ríkisverðbréfum. Hins vegar hefur ver-
ið skortur á traustum lántakendum, að því er fram kom á aðalfundi
sparisjóðsins í gær.
AÐALFUNDUR — Á aðalfundi SPRON í gær var gert
grein fyrir afkomunni á síðasta ári sem var hin besta frá upphafí,
en hagnaður á árinu 1993 var um 86 millljónir króna. Á myndinni
eru taldir frá vinstri Markús Örn Antonsson, Jón G. Tómasson og
Baldvin Tryggvason.
Innlán sparisjóðsins í árslok að
meðtalinni verðbréfaútgáfu voru alls
7.086 milljónir og hækkuðu um
12,1% á árinu. Þessi aukning er
meiri en meðaltalsaukning innlána
og verðbréfaútgáfu hjá viðskipta-
bönkum og sparisjóðum þannig að
markaðshlutdeild SPRON jókst úr
3,7% í 3,9%. Heildarútlán námu alls
5.655 milljónum án afskriftarreikn-
ings útlána og höfðu aukist um 9%.
Baldvin Tryggvason, sparisjóðs-
stjóri SPRON, sagði á aðalfundinum
í gær að framlag í afskriftarreikning
væri um 48 milljónum hærra en
stefnt hefði verið að í áætlunum
fyrir árið 1993. „Ástæðan fyrir því
er sú að við teljum ráðlegt að búast
við því að fleiri skuldir kunni að
tapast en við áætluðum í upphafí
ársins. Stafar það fyrst og fremst
af vaxandi verðrýrnun veðsettra
eigna fyrir lánum sem talin voru vel
tryggð þegar þau voru veitt fyrir
3-4 árum. Við það bætist að því
miður hafa mun fleiri almenn lán
einstaklinga og fyrirtækja lent í al-
varlegum vanskilum nú vegna rýrn-
andi atvinnutekna og vaxandi at-
vinnuleýsis."
Eigið fé í árslok var 731,1 milljón
ogjókst um 116 milljónireða 18,9%.
Eiginfjárhlutfall samkvæmt nýju
BlS-reglunum sem tóku gildi 1. jan-
úar 1993 var 13% í árslok 1993.
Árið áður var hlutfallið 12,1%.
I árslok voru stöðugildi við spari-
sjóðinn 81,7 og fækkaði þeim um
8,5 á árinu. Þessi fækkun varð í
kjölfar endurskipulagningar og hag-
ræðingar á öllum afgreiðslustöðum
sparisjóðsins og fólst fyrst og fremst
í því að ráða ekki nýtt fólk í stað
þeirra sem hættu á árinu.
Á fundinum var samþykkt að
greiða stofnfjáreigendum 15% arð
af stofnfjáreign sinni. í ráði er að
fjölga stofnfjárfestum verulega á
næstunni.
í stjórn voru endurkjörnir þeir Jón
G. Tómasson, Hjalti Geir Kristjáns-
son og Gunnlaugur Snædal en borg-
arstjórn hafði á fundi sínum þann
7. apríl kjörið í stjórn þau Hildi Pet-
ersen og Sigurjón Pétursson.
Hugbúnaður
IBM íÞýskalandi
leitar eftir sam-
starfi við Streng hf.
IBM í Þýskalandi hefur leitað eftir samstarfi við Streng hf. um að
þróa frekar nýjan samskiptahugbúnað sem tengir viðskiptahugbún-
aðinn Fjölni við SQL-gagnagrunnana Oracle og Informix. Þessi bún-
aður var hannaður af Streng og vakti athygli fulltrúa IBM á CeBit-
tölvusýningunni í Hannover í Þýskalandi nýverið. Fjölnis-hugbúnað-
urinn er danskur að uppruna og er seldur í mörgum iöndum en
hefur verið endurbættur verulega hjá Streng á undanförnum árum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Streng var mest áhersla lögð á að
kynna hinn nýja samskiptahugbún-
að á CeBit-sýningunni. Hugbúnað-
urinn var einnig kynntur af Dan-
soft International sem var með tvo
kynningarbása á sýningunni. Sýndu
forráðamenn IBM í Þýskalandi
þessari lausn verulegan áhuga og
leituðu eftir samstarfi um að þróa
búnaðinn fyrir IBM-stórtölvur og
gagnagrunninn DB2. Gert er ráð
fyrir talsverðum tekjum af sölu
þessa búnaðar í rekstraráætlunum
Strengs á þessu ári. Strengur
kynnti einnig EDI-kerfi í Fjölni á
sýningunni og standa yfir viðræður
við Dansoft International um dreif-
ingu á kerfinu erlendis.
Lyfjagerð
Grænt ljós á einka-
væðingu Pharmacia
Stokkhólmi. Reuter.
SÆNSKA lyfjafyrirtækið Pharmacia hefur fengið grænt ljós frá
iðnaðarráðuneytinu í Stokkhólmi til þess að undirbúa lokaþátt einka-
væðingar í júníbyrjun.
Sérfræðingar telja að 14 milljarð-
ar sænskra króna muni fást fyrir
46% hlutabréfaeign ríkisstjórnar-
innar og að því verði hér um að
ræða mestu einkavæðingu, sem
sögur fari af í Svíþjóð. Kynning-
arbæklingur verður gefinn út 24.
maí.
Ráðuneytið kveðst stefna að því
að selja eign ríkisins í Pharmacia í
júní, en segir að enn sé í athugun
hvernig sölunni verði hagað. Jan
Ekberg, stjórnarformaður Pharm-
acia, sagði, að Svíþjóð yrði aðsetur
helmings hlutabréfanna og afgang-
urinn yrði seldur erlendis. Rikis-
stjórnin verður að taka endanlega
ákvörður. um hvenær salan skuli
hefjast.
Ekberg sagði, að ríkið vonaðist
til þess að öll hlutabréfin yrðu seld
í einu, en að sögn blaðsins Dagens
Industri getur verið að 117 milljón-
ir hlutabréfa verði seldar í tveimur
lotum með sex mánaða millibili.
Pjárfestum í fyrri lotu yrði einnig
boðinn forkaupsréttur í síðari lotu.
Vegna einkavæðingarinnar hefur
Pharmacia einnig í hyggju að skrá
hiutabréfin í Bandaríkjunum. Ek-
berg sagði enn fremur, að Pharmac-
ia og ríkisstjórnina greindi ekki á
um einkavæðingaráætlunina.
AB Volvo er annar mesti hluthaf-
inn í Pharmacia og á 70 milljónir
hlutabréfa eða 28%. Volvo eignaðist
hlutabréfin samkvæmt samningi við
ríkisstjórnina í fyrra þegar fyrrver-
andi fyrirtæki í eigu ríkisins, Proc-
ordia AB, var skipt í Pharmacia og
Branded Consumer Products (BCP)
AB.
Ekberg sagði, að kynningarbæk-
lingi Pharmacia yrði dreift í Evrópu
og Bandaríkjunum og þar yrði að
finna upplýsingar frá Volvo um hlut
fyrirtækisins í Pharmacia.
Pharmacia kann að bera á góma
á árlegum aðalfundi Volvo í næstu
viku. Samkvæmt uppliaflegum
samningi við ríkisstjórnina hefur
Volvo heitið því að selja ekki liluta-
bréf sín í Pharmacia fyrr en í fyrsta
lagi 18 mánuðum eftir einkavæð-
inguna.
BESTU
BÍLAKAUPIN! '94
FIAT UNOABCTIC
—fyrir norðlœgar slóðir
Fiat Uno Arctic býðst sem fyrr á miklu lægra verði en
sambærilegir bílar frá Y-Evrópu og Asíulöndum.
Verð frá kr. 779.000 (UN0 45 3D)
á götuna — ryðvarinn og skráður.
Það borgar sig að gera verðsamanburð við aðra bíla. Við tökum
gamla bdinn uppí og lánum allt að 75% kaupverðs til 36 mánaða.
Sýnunt 1994 árgerðina af
Fiat Uno Arctic um Iwlgina
Opið frá 13-16 laugardag og sunnudag.
Komiðog
reynsluakið
BBESn
ÍTALSKIR BÍLAR HF.
Skeifunni 17 • 108 Keykjuvík • sími (91)677620