Morgunblaðið - 16.04.1994, Page 54
54
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 16. APRÍL 1994
KORFUKNATTLEIKUR
Morgunblaðið/Þorkell
Fögnuður
KEFLAVÍKURDÖMUR fógnuðu gnð-
arlega eftir að þær tryggðu sér ís-
landsmeistaratitilinn þriðja árið í röð.
Hér eru það Björg Hafsteinsdóttir,
Anna María Sveinsdóttir og Hanna
Kjartansdóttir sem stíga gleðidans.
BADMINTON
Tryggvi i
Malaysíu
Tryggvi Nielsen, hinn efnilegi 17
ára badmintonmaður úr TBR,
er nú í Malaysíu við æfíngar og
keppni. Hann fór þangað með fjór-
um dönskum unglingalandsliðs-
mönnum, sem eru þar undir stjórn
þjáifarans Michael Kjeldsen.
Keflavíkurstúlkurfagna þriðja árið í röð
Olga óstöðvandi
KEFLAVÍKURSTÚLKUR sýndu og sönnuðu í gærkvöldi að þær
eru bestar í körfuknattleik hér á landi. Þær sigruðu KR í fimmta
úrslitaleiknum með 68 stigum gegn 58 og urðu þar með ís-
landsmeistarar þriðja árið í röð og í sjötta sinn á sfðustu sjö
árum. Auk þess hafa stúlkurnar í IBK fimm sinnum orðið bikar-
meistarar á síðustu sjö árum þannig að engum ætti að bland-
ast hugur um hverjar eru bestar.
v
Kópavogur,
<: 91-641707
Hamraborg 1
slmi: 91-641'
insson
ugala 3.600 Akureyri,
399 Fax 96-12990 og 12581
smn
Það stefndi satt að segja í ein-
stefnu í upphafí leiksins. KR
komst 2:3 yfir með þriggja stiga
körfu en síðan gerði
Skúli Unnar ÍBK 15 stig í röð og
Sveinsson hafði 17:3 yfír er níu
skrifar mínútur voru liðnar.
Það er ef til vill ekki
mikill munur í körfuknattleik en
hjá kvenfólkinu er það dálítið mikið
því stúlkumar skora oftast minna
en karlarnir.
KR-stúlkur gerðu hver mistökin
af öðrum í sókninni og það nýttu
heimamenn sér til fullnustu. Spenn-
an virtist of mikil fyrir KR-inga,
og raunar Keflvíkinga einnig í upp-
hafi, en þeir voru fljótari að yfír-
stíga spennuna.
Eftir að Vesturbæingar vöknuðu
til lífsins tókst þeim að minnka
muninn og með gríðarlegri baráttu
og skemmtilega hreyfanlegri svæð-
isvöm tókst þeim að komast yfír,
40:42, í síðari hálfleik. Þá skiptu
þær um tíma yfír í pressuvörn sem
var alveg furðulegt því svæðisvöm-
in hafði gengið Ijómandi vel. Kefl-
víkingar komust inní leikinn á ný
og gerðu tíu stig í röð án svars og
þá var bjöminn unninn. Mikil orka
hafði farið í það hjá KR að vinna
upp muninn frá því í byijun fyrri
háifleiks og Keflavíkurstúlkur voru
of leikreyndar til að láta slíkt for-
skot tvívegis af hendi í sama leikn-
um.
Olga Færseth fór á kostum í liði
ÍBK. Hún er gríðarlega sterk. í
sókninni er hún stöðugt á ferðinni,
með eða án bolta, og í vöminni er
hún mjög lunkin að ná boltanum
af mótherjunum. Þegar hún hefur
boltann þá nær engin honum af
henni því hún kann sko að með-
höndla bolta stúlkan sú. Björg lék
einnig vel; truflaði mikið í vörninni
og dugleg að halda knettinum. Elín-
borg kom sterk inn í síðari hálfleik
og var mjög mikilvæg þá, tók nokk-
ur fráköst og gerði mikilvæg stig
og Anna María stóð fyrir sínu. Einn-
ig átti Guðlaug ágætan dag.
Það sem vantaði helst hjá KR
var sterkur leikstjórnandi sem gat
haldið knettinum, hjá þeim var eng-
in Olga og engin Björg. Þó svo
Helga ætti ágætan leik þá gerði
hún of mörg mistök sem kostuðu
hraðaupphlaup hjá ÍBK. Annars
léku KR-stúlkur ágætlega ef fyrstu
mínúturnar eru undan skildar. Guð-
björg, Eva og Helga voru bestar
og María átti ágætan dag, svo og
Kristín. Skiptingarnar hjá KR vöktu
um tíma furðu. Sumar stúlkurnar
voru varla komnar inná þegar þeim
var kippt útaf aftur; fengu ekki
tækifæri til að gera neitt.
Hvað gerist í Grindavík?
ÞAÐ ræðst í Grindavík í dag hvort nýtt nafn verður skráð á ís-
landsbikarinn í körf uknattleik karla, eða hvort nafn Njarðvíkur
verður skráð þar í áttunda sinn.
Hvort lið hefur sigrað tvívegis á
sínum heimavelli og svo virðist
sem heimavöllurinn vegi þungt;
1^1 UMFG hefur unnið
Skúli Unnar heimaleikina tvo með
Sveinsson 200 stigum gegn 174
skrifar eða 26 stiga mun,
UMFN sína með 191
stigi gegn 147 eða 44 stiga mun.
Grindvíkingar eru með ungt lið sem
hefur ekki mikla reynslu af úrslita-
ÞJÁLFARAR
Handknattleiksdeild IR óskar að ráða handknattleiksþjálf-
ara fyrir yngri flokka, fyrir starfsárið 1994-1995.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í nýja ÍR heimilinu við
Skógarsel eftir kl. 16.00 á daginn.
Umsóknum skal skilað þangað eða í pósthólf 9232,
129 Reykjavík, fyrir 1. maí ’94.
leikjum. Liðið hefur þó staðið sig
mjög vel í þeim leikjum sem búnir
eru, nema síðari hálfleik fjórða leiks-
ins. Ég hef þá trú að i dag sýni hin-
ir ungu leikmenn UMFG hvað þeir
eru orðnir hungraðir í titil, eða þeir
sætta sig hreinlega við hvað þeir eru
komnir langt.
Njarðvíkingar hafa gríðarlega
reynslu sem þeir hafa þó ekki nýtt
sér til þessa í keppninni. Nú þegar
komið er að úrslitastundu reynir á
hvort reynslan skilar sér og þó svo
ég hafí spáð Grindvíkingum sigri í
tímariti fyrr í vetur þá hallast ég að
því að Njarðvíkingar sigri. Þeir hafa
ekki leikið eins og þeir eiga að sér í
keppninni til þessa, og svona reynsl-
umikið lið hlýtur að smella saman
að lokum.
I gær sögðum við að leikur UMFN
og UMFG hefði endað 93:65. Hið
rétta er að Jóhannes Kristbjörnsson
skoraði úr tveimur vítaskotum á síð-
ustu sekúndunum og Njarðvík vann
því með 30 stiga mun, 95:65.
Úrslltakeppnin í körfuknattleik 1994 Meðaltalafárangri liðannaúr úrslitaleikjunum fjórum
86,75 STIG 91,25
15,25/21,50 Víti 15,75/25,50
6,50/20,50 3ja stiga 7,00/22,75
36,75 Fráköst 40,25
26,50 (vamar) 27,75
10,25 (sóknar) 13,50
10,00 Bolta náð 9,50
10,50 Boltatapað 10,50
14,75 Stoðsendingar 17,75
24,25 Viilur 22,00
URSLIT
IBK-KR 68:58
íþróttahúsið í Keflavík, fimmti og síðasti
úrslitaleikurinn um íslandsmeistaratitilinn
í körfuknattleik kvenna, föstudaginn 15.
apríi 1994.
Gangur leiksins: 2:0, 2:3, 17:3, 17:7, 21:7,
24:13, 28:1933:24, 33:27, 36:37, 40:42,
42:45, 52:47, 55:47, 55:52, 61:52, 64:58,
68:58.
Stig ÍBK: Olga Færseth 26, Anna María
Sveinsdóttir 14, Björg Hafsteinsdóttir 8,
Elínborg Herbertsdóttir 8, Hanna Kjartans-
dóttir 6, Guðlaug Sveinsdóttir 6.
Stig KR: Guðbjörg Norðfjörð 16, Eva Hav-
likova 15, Helga Þorvaldsdóttir 15, María
Guðmundsdóttir 9, Kristín Jónsdóttir 3.
Dómarar: Helgi Bragason og Kristján
Möller. Dæmdu vel.
Áhorfendur: Nærri 500
NBA-deildin
Leikir í fyrrinótt:
Washington - New York.........106:111
Orlando - Charlotte...........108:112
Houston - Sacramento..........104: 99
Utah - San Antonio............101: 90
Seattle-LAClippers...,........150:101
Golden State - Portland.......113:108
Haukar- UMFA 21:25
íþróttahúsið að Varmá, úrslitakeppnin í
handknattleik, 8-liða úrslit, 2. leikur, föstu-
degur 15. apríl 1994.
Gangur Ieiksins: 1:0, 3:1, 4:2, 7:5, 7:7,
9:7,11:9,11:11,12:12,12:15,13:17,14:18,
17:18, 17:20, 18:21, 20:22, 21:24, 21:25.
Mörk UMFA: Ingimundur Helgason 6/1,
Alexei Trúfan 4/2, Páll Þórólfsson 4/3,
Jason Ólafsson 3, Róbert Þ. Sighvatsson
3, Þorkell Guðbrandsson 1.
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk Hauka: Halldór Ingólfsson 7/3, Páll
Ólafsson 6/1, Petr Baumruk 4, Aron Krist-
jánsson 4, Siguijón Sigurðsson 3, Pétur
V. Guðnason 1.
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Hákon Sigurjónsson og Guðjón
L. Sigurðsson. Höfðu góð tök á hröðum leik.
KA - Selfoss 27:23
KA-húsið:
Gangur leiksins: 0:1, 2:1, 3:2, 4:5, 5:6,
7:6, 9:7, 11:8, 12:10, 14:10, 14:11. 14:12,
17:12, 17:13, 19:13, 19:15, 20:15, 21:16,
22:18, 23:20, 23:21, 24:22, 25:23, 27:23.
Mörk KA: Alfreð Gíslason 8, Valdimar
Grímsson 8/4, Jóhann G. Jóhannsson 3,
Leó Örn Þorleifsson 2, Helgi Arason 2
Valur Arnarsson 2, Erlingur Kristjánsson
1, Ármann Sigurvinsson 1.
Utan vallar: 14 mín.
Mörk Selfoss: Sigurður Sveinsson 5/3,
Gústaf Bjarnason 4, Einar Guðmundsson
3, Einar Gunnar Sigurðsson 3, Sigurjón
Bjarnason 3, Jón Þórir Jónsson 2, Oliver
Pálmason 1, Sigurpáll Árni Aðaísteinsson
1/1.
Utan vallar: 8 mín.
Dómarara: Sigurgeir Sveinsson og Gunnar
Viðarsson, dædu þokkalega, en gerðu noiþ<-
ur mistök.
Áhorfendur: Troðfullt KR-hús.
UM HELGINA
■JÚDÓ: íslandsmeistaramótið verður í
KA-húsinu á Akureyri kl. 13 í dag.
■TROMP: Islandsmótið í Tromp-fimleik-
um verður í Laugardalshöllinni í dg kl. 10
og 14.
■BLAK: Víkingur og ÍS leika annan leik
sinn í úrslitakeppni blaki kvenna kl. 18 í
Austurbergi á morgun, sunnudag.
■KNATTSPYRNA: Litla-bikarkeppnin
hefst í dag. Kl. 12 leika ÍA - Grótta, en kl.
14 leika Selfoss - HK, FH - Ægir, Grinda-
vík - Haukar, ÍBV - UMFA, Stjarnan -
Víðir, ÍBK - Reynir S. og UBK - Skallagrím-
ur.
Tveir leikir verða í Reykjavíkurmótinu. I
dag kl. 17 leika Fram - ÍR og á sunnudag
kl. 20 Fylkir - Víkingur.