Morgunblaðið - 26.04.1994, Page 1

Morgunblaðið - 26.04.1994, Page 1
72 SIÐURB 92. tbl. 82. árg. ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1994 Prentsmiðja Morgunblaðsins Reynt að trufia fyrstu fijálsu kosningarnar í S-Afríku með sprengjutilræðum Yfírráðum hvítra manna lýkur með kosningiinum Dauði og tortíming AÐ minnsta kosti 19 manns týndu lífi í tveimur sprengju- tilræðum í Suður-Afríku í gær og í fyrradag og tugir manna slösuðust. Hér eru lögreglu- menn á vettvangi sprenging- arinnar, sem varð í gærmorg- un í einu úthverfi Jóhannesar- borgar en þar fórust 10 manns og hátt í 40 slösuðust, sumir lífshættulega. Jóhannesarborg, Höfðaborg. Reuter. BLÓÐUG sprengjutilræði settu svip sinn á lokasprett kosningabarátt- unnar í Suður-Afríku en alls týndu nítján manns lífinu í tveimur spreng- ingum í Jóhannesarborg á sunnudag og mánudag. Fleiri sprengjur sprungu víðs vegar um landið en urðu engum að bana. Yfirvöld greindu í gær frá því að verið væri að yfirheyra einn mann í tengslum við til- ræðin. Kosningarnar hefjast í dag og munu þær standa í þijá daga. I dag kjósa „sérstakir kjósendur“, aðallega fatlaðir og Suður-Afríku- menn, sem búsettir eru erlendis, en á miðvikudag og fimmtudag fara hinar almennu kosningar fram. Niðurstaðna kosninganna er iíkiega ekki að vænta fyrr en um helgina. Með kosningunum er bundinn endi á 350 ára yfirráð hvítra manna í Suður-Afríku og hélt þing þeirra síðasta fund sinn í Höfðaborg í gær, þar sem þingið var endanlega leyst upp. Brottflutningur þungavopna frá Gorazde virðist hafinn Rússlai ídsstj órn klofin í afstöðunni til Serba Stjórnmálaskýrendur telja flestir að sú ætlan tilræðismannanna að reyna að trufla kosningamar muni ekki ganga eftir. Þvert á móti auki sprengingarnar líkurnar á því að kjósendur kjósi annan stóru flokk- anna tveggja, Afríska þjóðarráðið (ANC) eða tjóðarflokk F.W. de Klerks forseta. Eru sprengjutilræðin talin vera tákn um vaxandi örvænt- ingu meðal hvítra öfgamanna úr röð- um Búa. De Klerk hét því í gær að kosning- arnar yrðu haldnar samkvæmt áætl- un. „Við ætium ekki að láta hægri- öfgamenn eða nokkurn annan tefja þessar kosningar," sagði forsetinn í gærmorgun. Þúsundir hafa fallið Pólitískt ofbeldi hefur verið fyrir- ferðarmikið í Suður-Afríku frá því að de Klerk nam aðskilnaðarstefnuna úr gildi árið 1990. Hafa rúmlega fimmtán þúsund manns fallið í inn- byrðis átökum blökkumanna á þeim tíma sem síðan er liðinn. Flestir ganga út frá því að Nelson Mandela og ANC muni vinna yfir- burðasigur í kosningunum. í við- skiptum í kauphöllinni í Jóhannesar- borg, þar sem menn gátu boðið í verðbréf miðað við spár um kosn- ingaúrslit, varð niðurstaðan sú að „Við erum að verða vitni að mikl- um umskiptum í efnahagsmálunum," sagði Edmond Alphandery, efna- hagsmálaráðherra Frakklands, á fundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Alþjóðabankans í Washington í gær en fjármálaráðherrar helstu iðnríkj- anna, Sjö-ríkja-hópsins, komu auk þess saman til sérstaks fundar. Theo Waigel, fjármálaráðherra Þýska- lands, sagði, að hagvöxtur í landinu yrði líklega um 1,5% og Kenneth Clarke, íjármálaráðherra Bretlands, ANC var spáð 55% fylgi, íjóðar- flokknum 24% og Inkatha 9,5%. Alls eru 22,7 milljónir manna á kjörskrá og er kosið um 200 þing- sæti af landslistum og 200 til viðbót- ar á kjördæmalistum. Einnig eru kosnir fulltrúar á níu héraðaþing og mun hvert þeirra útnefna tíu menn til að sitja í öldungadeild þingsins. ------------» ♦ ♦------ Er stjórii Hata fallin? Tókýó. Reuter. SÓSIALISTAR í Japan sögðu sig úr samsteypustjórninni í gær, aðeins nokkrum klukkustundum eftir að hafa staðið að kjöri Tsu- tomu Hata sem nýs forsætisráð- herra. Stjórnin hefur því ekki lengur meirihluta á þingi. Astæðan fyrir úrsögn sósíalista er sú, að samstarfsflokkarnir, mið- og hægriflokkar, mynduðu með sér einn þingflokk án samráðs við sósíalista. Tomiichi Murayama, leið- togi sósíalista, sagði, að þeir myndu segja af sér öllum embættum en myndu samt standa að afgreiðslu fjárlaganna. sagðist bjartsýnn á, að hagvöxtur í bresku efnahagslífi yrði um 2,5%. Þá er einnig búist við hagvexti á Italíu og í Svíþjóð er efnahagslífið að rétta úr kútnum. Theo Waigel sagði i gær, að nú yrði ráðist gegn fjárlagahalianum í Þýskalandi en Vestur-Þjóðveijar hafa veitt meira en 150 miiljarða marka árlega til uppbyggingar í austurhlutanum. Er stefnt að því að fjárlagahallinn verði ekki meiri en 3% af landsframleiðslu 1995. Washington, Moskvu. Reuter. BILL Clinton Bandaríkjaforseti sagði í gær að svo virtist sem þrýstingur af hálfu Atlantshafs- bandalagsins (NATO) og SÞ og hótanir um loftárásir á Bosníu- Serba við Gorazde hefðu dugað. Bosníu-Serbar hefðu staðið við fyrirheit um að hætta skotárás- um á Gorazde og virtust vera að draga stórskotaliðssveitir sínar út fyrir griðasvæði SÞ umhverfis borgina. Mikill ágreiningur virðist vera innan rússnesku ríkisstjórnarinnar um viðbrögð við árásum Bosníu- Serba á Gorazde og hafa utan- ríkis- og varnarmálaráðuneytið gefið út gjörólíkar yfirlýsingar um það á síðustu dögum. Clinton hvatti jafnframt til þess að settur yrði kraftur í að leysa Bosníudeiluna eftir pólitískum leiðum. „Nú er rétti tíminn til þess að heíja samninga að nýju,“ sagði Clinton. í þeim tilgangi var ætlun- in að utanríkisráðherrar Banda- ríkjanna, Frakklands og Bretlands ræddust við í London í gær. Á öndverðum meiði Athygli vakti í gær þegar Pavel Gratsjev, varnarmálaráðherra Rússlaiids, hvatti NATO til þess að falla frá hótunum um loftárásir á Bosníu-Serba. Með því virðist staðfestur klofningur milli ráðu- neyta í Moskvu því Andrej Koz- yrev utanríkisráðherra sagði á laugardag að loftárásir af hálfu NATO væru það eina sem hugsan- lega dygði gegn sveitum Serba við Gorazde. Gaf Gratsjev í skyn, að hann þekkti stöðuna í Bosníu bet- ur en Kozyrev en báðir heyra þeir undir Borís Jeltsín forseta. Sir Michael Rose, yfirmaður hersveita SÞ í Bosníu, sagði í gær að Serbar hefðu hafið brottflutn- ing stórskotaliðsvopna út af griða- svæðinu um Gorazde sem nær 20 kílómetra út frá borginni. Ferðaþjónusta vopn gegn atvinnuleysinu Antalya. Reuter. EFNAHAGS- og þróunarstofn- unin (OECD) telur að ferða- þjónusta verði helsta vopnið í baráttunni gegn atvinnuleysi í framtíðinni. Kom þetta fram á ráðstefnu í Tyrklandi. Alþjóða ferðamálaráðið (WTO) hefur áætlað að vöxtur í ferða- þjónustu verði frá 4,6% til 12,7% á ári fram til ársins 2005 en fram kom, að aðeins helmingur þess, sem ferðamenn eyddu, rynni til fyrirtækja í hinni hefðbundnu ferðaþjónustu. Því væri framlag hennar til atvinnusköpunar oft vanmetið. Vegna þess hversu árstíða- bundin ferðaþjónustan er, gætir meiri hreyfingar á starfsfólki og launin eru um 20% lægri en í öðrum starfsgreinum. Abdulkad- ir Ates, ferðamálaráðherra Tyrk- lands, hvatti til þess á ráðstefn- unni, að ferðaþjónustan yrði skil- greind alþjóðlega sem sjálfstæð atvinnugrein á borð við landbún- að og aðrar framleiðslugreinar. Sjá „Sjötti ...“ á bls. 28. Létt yfir evrópskum fjármálaráðherrum Mikil umskipti í efnahagslífinu Washington. Reuter. SAMDRÆTTINUM í efnahagslífinu er loks að ljúka að dómi fjár- málaráðherra helstu Evrópuríkjanna. Búist er við, að samdrátturinn snúist upp í 1,5% hagvöxt í Þýskalandi á þessu ári og álíka í Frakk- landi og í Bretlandi er hagvöxtur á fyrsta ársfjórðungi nú meiri en spáð hafði verið.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.