Morgunblaðið - 26.04.1994, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1994
7
I
►
I
I
i
i
I
Í
i
i
i
i
i
i
i
i
h
Þessi sýnafjöldi gerir 31,5 prósent
af stangaveiðinni. 359 sýni, eða
82 prósent reyndust vera af nátt-
Úrvinnslu lokið um laxveiðina 1993
Enn mikill haf-
beitarlax í ánum
Fiskifræðingarnir Friðjón Már Viðarsson og Sigurður Guðjónsson hjá
Veiðimálastofnun hafa lokið úrvinnslu hreistursýnatöku og örmerkja-
lesningu úr Elliðaánum, Leirvogsá og Botnsá í Hvalfirði með tilliti til
hlutdeildar eldis- og hafbeitarlaxa í laxveiðiám á Suðvesturlandi. Þeir
segja í skýrslu sinni, að fáu sé við niðurstöður frá 1991-1993 að bæta,
„enn sé mikið af hafbeitarlaxi í ánum með tilheyrandi erfðarblöndunar-
hættu fyrir náttúrulega laxa.“ Þó segja þeir félagar, að nokkuð hafi
dregið úr fjölda hafbeitarlaxa á undanförnum árum auk þess sem
kvíalax sé nánast horfinn eins og kvíaeldið. „Leggja þarf ofurkapp á
að tryggja að hafbeitarlax fari á sleppistað og í því sambandi verður
að skoða m.a., seiðagæði, sleppistaði og sleppitækni.
438 hreistursýni af löxum úr
Elliðaánum voru lesin, en þeim var
safnað jafnt yfir allt veiðitímabilið.
Jónshús fær
styttuaf
Jóni Sigurðs-
syni að gjöf
Gjofm fjarmognuð
með fótsporum Is-
lendinga um Islend-
ingaslóðir Kaup-
mannahafnar
Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdótt-
ur, fréttaritara Morgunblaðsins.
STYTTA af Jóni Sigurðssyni var
um helgina afhent Jónshúsi til
gjafar af Jónasi Þorsteinssyni.
Salóme Þorkelsdóttir forseti
sameinaðs Alþingis veitti gjöf-
inni viðtöku fyrir hönd Alþingis,
sem er eigandi Jónshúss, að við-
stöddum Ólafi Egilssyni sendi-
herra íslands í Kaupmannahöfn.
Styttan er úr gifsi og er eins og
styttan, sem er í Alþingi. Jónas
sagði við afhendinguna að stytt-
an væri fjármögnuð með fótspor-
um íslendinga um Kaupmanna-
höfn, því hann hefur staðið fyrir
gönguferðum um íslendingaslóð-
ir borgarinnar.
Jónas Þorsteinsson rekur ferða-
skrifstofuna In Travel Scandinavja,
en hún sér meðal annars um ís-
landsferðir, en einnig ferðir til og
frá Norðurlöndum. Undanfarin ár
hefur Jónas skipulagt gönguferðir
um íslendingaslóðir borgarinnar og
njóta þær vaxandi vinsælda. Þegar
styttan af Jóni Sigurðssyni var föl
datt honum í hug að fjármagna
kaup hennar með ferðunum að
hluta, þannig að gjöfin yrði afrakst-
ur af fótsporum Islendinga í borg--
inni. Gönguferðirnar hafa verið
mjög vinsælar og sagði Jónas að
hann vildi láta einhvern njóta þess-
arar velgengni. Þegar eru þijú
hundruð manns bókaðir í göngu-
ferðir í sumar. Styttan er gerð af
norskum listamanni árið 1972 og
var á sínum tíma gerð í fimm ein-
tökum. Þar af er eitt í Alþingishús-
inu.
Þegar Salóme Þorkelsdóttir veitti
styttunni viðtöku þakkaði hún þá
einstöku ræktarsemi við minningu
Jóns og virðingu fyrir Jónshúsi, sem
gjöfin sýndi. Jónshús væri Alþingi
mikils virði og lögð væri áhersla á
að þar væri haldið uppi menningar-
legu starfi. Um leið þakkaði hún
prestshjónunum, þeim Lárusi Þ.
Guðmundssyni og konu hans Sigur-
veigu Georgsdóttur fyrir þá alúð,
sem þau sýndu húsinu og starfsem-
inni þar. Sr. Lárus þakkaði Jónasi
einnig gjöfina og sagði að gefand-
inn kæmi oft í Jónshús og hefði
sýnt því hlýhug áður með því að
gauka að því gjöfum og koma með
ýmsar hugmyndir um það sem bet-
ur mætti fara í húsinu.
Styttunni verður komið fyrir í
Jónshúsi, en þar var í fyrra opnuð
minningarsýning um Jón Sigurðs-
son, sem Bryndís Sverrisdóttir þjóð-
háttafræðingur sá um að innrétta
og setja upp á sínum tíma.
Hafbeitarlax?
Hér glímir Magnús L. Sveinsson
fyrrverandi forseti borgarstjórn-
ar við fyrsta lax siðasta sumars
úr Elliðaánum.
úrulegum löxum, en 79 sýni, eða
18 prósent, reyndust vera af haf-
beitarlöxum. Enginn kvíalax
fannst. Samkvæmt þessu hafa
náttúrulegir laxar í stangaveiði
sumarsins verið 1140, en hafbeitar-
laxar 250. Heildarmagn eldislaxa
hefur minnkað frá árinu 1992. Þar
vegur þyngst fækkun kvíalaxa, en
hafbeitarfiskum hefur einnig fækk-
að. í þessum athugunum var Elliða-
ánum skipt í fimm svæði. Hafbeit-
arlaxinn greindist í nokkru magni
upp um alla á, en mest var þó af
honum neðst í ánni. Við þetta má
síðan bæta, að alls fundust fjórir
örmerktir laxar frá Laxeldisstöð
ríkisins í Kollafirði í Elliðaánum og
einn örmerktur lax úr náttúruleg-
um merkingum í Elliðaánum kom
fram í hafbeitarstöðinni í Hrauns-
firði.
I Leirvogsá voru niðurstöður
svipaðar. Þar voru tekin 345 sýni
sem voru 80,6 prósent af heildar-
stangaveiðinni. Var og sýnum safn-
að jafnt yfir veiðitímann. Náttúru-
legir laxar voru 285, eða 82,6 pró-
sent, en hafbeitarlaxar voru 59, eða
17,1 prósent. Einn kvíalax veidd-
ist. Miðað við þessar tölur þá hafa
náttúrulegir laxar verið 354, haf-
beitarlaxar 73 í heildarveiðinni. Að
ógleymdum einum kvíalaxi. Heild-
armagn eldislaxa hefur minnkað
hér eins og í Elliðaánum og enn
vegur þyngst fækkun kvíalaxa, en
magn hafbeitarlaxa hefur staðið í
stað frá 1992.
í Botnsá í Hvalfirði voru sýnin
aðeins 14 talsins sem gerir 23 pró-
sent af heildarveiðinni. Náttúruleg-
ir laxar voru 6, eða 42,9 prósent,
en hafbeitarlaxar voru 8, eða 57,1
prósent. í skýrslunni segir að lítið
sé hægt að segja því fá sýni séu
til staðar auk þess sem sex þeirra
séu úr klakveiði í október, en þá
sé reynt að velja náttúrulegan lax
með því að byggja á útlitsmati.
New York Stock IZxciiaiige á okkar hcimaveUi
NY SYN FYRIR
ÍSLENSKA FJÁRFESTA
Vertu á heimaveM en fjárfestu
í erlendum verðbréfctsjóðum
Fjárfestingarfélagið Skandia hefur bent
á nýja möguleika fyrir íslenska fjárfesta
°g tryggt þeini aðgang að alþjóðlegum
verðbréfamörkuðum.
Viðskiptavinir Skandia eiga þess nú
kost að kaupa hlut í erlendum verð-
bréfasjóðum sem fjárfesta um allan
heim.
Skandia.er fjölþjóðlegt fyrirtæki með
umtalsverða reynslu á alþjóðlegum
peningamarkaði.
Nýttu þér þekkingu og faglega ráðgjöf
starfsfólks Skandia við val á erlendum
verðbréfasj óðum.
Nú gefst einnig tækifæri til að kaupa ein-
stök hlutabréf í arðbærum,
erlendum fyrirtækjum
með litlum tilkostnaði.
Erlendar fjárfestingar
eru eðlileg viðbót við
umsýslu íslenskra fjárfesta.
Kynntu þér möguleikana sembjóðast!
Fjárfestingarfélagiö Skandia hf.
...greiðir götu þína á alþjóðlegum verðbrefamarkaði
Skandia
Löggilt veröbréfafyrirtœki • Laugavegi 170, sími 61 97 00 • Útibú: Kringlunni, sími 68 97 00 • Akuneyri, sími 1 22 22 • FjárfestingarfélagiÖ Skandia hf. er alfarið í eigu Skandia-samsteypunnar
H—