Morgunblaðið - 26.04.1994, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1994
23
Kveiktí
mann-
lausum bíl
BÍLL gjöreyðilagðist í bruna
aðfaranótt sunnudags og leik-
ur grunur á að kveikt hafi
verið í honum. Þrír unglings-
piltar sáust hlaupa frá bíln-
um, sem stóð í stæði við
Laugaveg 66 og skömmu síð-
ar gaus upp mikill eldur.
Slökkviliðinu gekk greiðlega
að ráða niðurlögum hans, en
bíllinn er ónýtur eftir. Pilt-
anna var leitað og gat vitni
gefið greinargóða lýsingu á
þeim. Þeir höfðu þó ekki fund-
ist í gær.
Morgunblaðið/Sverrir
Óheppilegt að
birta nöfn 3ja
frambjóðenda
- segir Arni Sigfússon borgarstjóri
ARNI Sigfússon borgarstjóri segir það óheppilegt að nöfn þriggja fram-
bjóðenda eins stjórnmálaflokks skuli hafa birst í auglýsingu fþrótta-
og tómstundaráðs vegna hátíðarhalda á sumardaginn fyrsta. Segist
hann vilja tryggja að slík endurtaki sig ekki, en Sigrún Magnúsdóttir
borgarfulltrúi Framsóknarflokksins hefur gagnrýnt nafnabirtinguna
og hvernig staðið var að hátíðarhöldum í Þróttheimum á vegum íþrótta-
og tómstundaráðs á sumardaginn fyrsta.
Fyrirspurn vegna kosningafundar R-lista í Réttarholtsskóla
Bann við stj órnmálafund-
um í grunnskólum brotið
MEIRIHLUTI í skólamálaráði Reykjavíkur hefur lagt fram fyrirspurn
til Sigrúnar Magnúsdóttur fulltrúa Framsóknarflokksins í ráðinu, vegna
kosningafundar sem R-listinn hélt í Réttarholtsskóla. Fram kemur að
fulltrúar meirihlutans hafa fengið fjölmargar fyrirspurnir frá borg-
arbúum um þennan fund, þar sem þeir lýsa furðu sinni yfir staðsetn-
ingu fundarins. I 40 ár liafi verið lagt bann við stjórnmálafundum í
grunnskólum borgarinnar.
í fyrirspurn meirihlutans segir að:
„Sá einstæði atburður gerðist sl.
þriðjudag að pólitísk samtök héldu
kosningafund í einum af grunnskól-
um borgarinnar. Hér er um að ræða
forsvarsmenn R-listans og Réttar-
holtsskóla." Fram kemur að síðastlið-
in 40 ár hafi verið lagt bann við
misnotkun á grunnskólum borgar-
innar til þess að halda pólitíska kosn-
ingafundi, hvað þá að til umræðu
hafi verið að eitt stjórnmálaafl nýtti
sér slíka aðstöðu. Ljóst sé að ekki
hafi verið leitað til Skólaskrifstofu
Reykjavíkur um beiðni fyrir notkun
húsnæðisins.
Þá segir, „Því er sú spurning lögð
fyrir forystumann R-listans, sem er
einnig í skólamálaráði Reykjavíkur,
Sigrúnu Magnúsdóttur, með hvað
leyfi slíkur fundur hafi verið haldinn
sem þverbrýtur allar reglur um
flokkspólitískt hlutleysi í notkun
skólahúsnæðis?
Er foiystumaður R-listans sam-
mála að slík misnotkun fái að við-
gangast og ef svo er hvers vegna
það er nú forsvaranlegt, sem i yfir
40 ár hefur verið samhljóða hafnað
af borgai’yfirvöldum?"
Fram kemur að þessum forsvars-
manni í Skólamálaráði beri skylda
til að upplýsa hvort hún hafi í hyggju
frekari misnotkun af þessum toga,
svo unnt sé að taka málið upp af
réttmætum yfirvöldum og ákveða
hvort hætt skuli við þá stefnu að
grunnskólahúsnæði sé verndað fyrir
flokkspólitískum kosningafundum.
Sigrún óskaði eftir að fá að svara
fyrirspurninni á næsta fundi skóla-
málaráðs.
Borgarstjóri sagði að það sem
mestu máli skipti væri að þúsundir
barna og foreldra hafi gert sér glað-
an dag á sumardaginn fyrsta og
fagnað sumri á skemmtunum á veg-
um félaga, samtaka og félagsmið-
stöðva. I sameginlegri auglýsingu
sem birst hafi í Morgunblaðinu, hafi
verið talið upp það sem í boði var á
vegum félagsmiðstöðva, skóla,
skátafélaga, Gerðubergs og íþrótta-
félaga. „Það sem snýr að Þróttar-
svæðinu er að í félagsmiðstöðinni
Þróttheimum var dagskrá á vegum
foreldrafélaga í Langholts- og Voga-
skóla, Þróttheima og Knattspyrnufé-
lagsins Þróttar," sagði Árni. „Ég var
fenginn til að leiða skrúðgöngu frá
Vogaskóla að Þróttheimum og vona
að forsvarsmanni R-listans þyki það
ekki hafa verið óviðurkvæmilegt. Á
félagssvæði Þróttar fóru fram ýmis
skemmtiatriði, bæði á vegum Þrótt-
heima og knattspyrnufélagsins
Þróttar. Það er rangt sem haldið er
fram í fréttatilkynningu R-listans,
sem Morgunblaðið vitnar til að
íþrótta- og tómstundaráð og Þrótt-
heimar hafi verið í sérstöku sam-
starfi við félag sjálfstæðismanna í
þessu hverfi vegna skemmtunarinn-
ar. Það er þá frekar að spyija for-
svarsmenn Knattspyrnuféíagsins
Þróttar hvort þeir hafi átt slíkt sam-
starf og ekki mitt að svara um það.
Það er einnig spurning hvort ræða
eigi við mig um bækling sem sjálf-
stæðismenn í ákveðnu hverfi dreifa
til að hvetja fólk til að mæta á
íþróttasvæðið við Þróttheima. Það
hlýtur að vera á ábyrgð útgefanda.
Það hefur reyndar marg komið fram
að þessi kynning var algerlega óháð
og án vitundar starfsmanna íþrótta-
og tómstundaráðs eða Þróttheima.“
I auglýsingu í Morgunblaðinu var
dregið saman það sem fram fór á
hinum ýmsu stöðum í borginni og
birt nöfn ýmissa fyrirtæki, sem
studdu verkefnið auk þess sem nefnd
voru nöfn þriggja frambjóðenda eins
stjórnmálaflokks. „Ég tel að það
vera óheppilegt og vil tryggja að slíkt
endurtaki sig ekki þó erfitt sé að
ætla sér að hafa hönd í bagga og
heildaryfirlit um það mikla starf og
þau mörgu verkefni sem fram fara
á slíkum dögum á vegum hinna
ýmsu aðila og álitamál hvor maður
á að skipt sér af,“ sagði borgarstjóri.
*
Oskar Finnsson um ummæli borgarfulltrúa
Hef stutt Þrótt
undanfarin ár
ÓSKAR Finnsson veitingamaður á veitingahúsinu Argentínu er ósáttur
við ummæli Sigrúnar Magnúsdóttur borgarfulltrúa Frainsóknarflokks-
ins í hans garð og fyrirtækis hans. Sigrún hefur átalið að hann hafi
verið auglýstur, sem grillmeistari á útihátíð á vegum íþrótta- og tóm-
stundaráðs við Þróttheima, þar sem hann sé frambjóðandi á lista Sjálf-
stæðisflokksins og kosningastjóri í hverfinu. Óskar segist vera styrktar-
aðili Þróttar og hann hafi á undanförnum árum efnt til grillveislu í
þeirra nafni og svo muni verða áfram. Þá hafi Sjálfstæðisflokkurinn
nú sem endranær gefið út blað og dreift á hvert heimili í hverfinu
fyrir væntanlega kosningar og að sjálfsögðu hafi þótt rétt að auglýsa
þar væntanlega hverfahátíð á vegum félaga og félagasamtaka í hverf-
inu á sumardaginn fyrsta.
Oskar segist vera ósáttur við þá
fullyrðingu Sigrúnar að hann hafi
sett að skilyrði að hans yrði getið í
auglýsingu íþrótta- og tómstunda-
ráðs, þar sem dagskrá sumardagsins
fyrsta var tíunduð. „Ég bý í hverfinu
og hef búið í mörg ár,“ sagði hann.
„Fyrirtæki mitt er líka styrktaraðili
Iþróttafélagsins Þróttar og styrkir
það á hveiju ári með grillveislum.
Ef auglýsingin er skoðuð sem birtist
í Morgunblaðinu síðastliðinn fimmtu-
dag þá sést að í öðrum hverfum er
verið að auglýsa Goða, Egil Skalla-
grímsson, Dansstúdíó Sóleyjar og
Söngskóla Eddu Borg svo dæmi sé
tekið en Sigrún ræðst allt í einu á
eitt fyrirtæki. Þeir hjá íþrótta- og
tómstundaráði segja eðlilegt að ef
menn vilji styrkja borgina með gjöf-
um þá eigi að sjálfsögðu að geta
þess í auglýsingu þeirra. Það að ég
er á lista flokksins hefur ekkert með
það að gera.“
Samband við starfandi félög
Óskar benti á að þegar hátíð sem
þessi væri haldin í hverfinu þá væri
haft samband við öll starfandi félög
innan hverfisins og þar á meðal Sjálf-
stæðisfélagið. Sjálfstæðismenn vildu
veg hverfisins sem rnestan, að það
byggðist upp og að hugsað væri um
íþróttafélagið, sem þar væri fyrir
börnin. „Þarna eru börnin mín og
mér er ekki sama hvernig þetta félag
er,“ sagði hann.„ Ég hef þá trú að
ef R-listinn væri með eitthvað félag
í hverfinu eða hefði áhuga á hverfinu
eða uppbyggingu á íþróttum almennt
þá hefði þeim verið boðið að vera
með en þeir hafa ekki starfað í þessu
hverfi."
Óskar sagði það dæmigert fyrir
Sigrúnu sem oddvita R-listans að
halda því fram að áróðri hafi verið
dreift til allra barna í hverfinu. Hið
sanna væri að nú rétt eins og fyrir
aðrar kosningar hefði Sjálfstæðisfé-
lagið dreift 4.800 bæklingum til allra
ibúa hverfisins. í bæklingnum væru
upplýsingar um hvar skrifstofa
flokksins væri til húsa, upplýsingar
um fundi með frambjóðendum og
fleira. „Að sjálfsögðu bar okkur
skylda til að minnast þar á þessa
hátíð sem halda átti í hverfinu okkar
á sumardaginn fyrsta," sagði hann.
„Það sem ég veit að er sárt fyrir
Sigrúnu er að hún hefur búið hér til
margra ára og það hafa verið 150
til 300 manns sem tekið hafa þátt í
þessari hátíð en nú brá svo við þátt-
takendur voru eittþúsund. Þegar litið
er til síðust kosninga þá sést að yfir
helmingur borgarbúa eru sjálfstæð-
ismenn. Þannig að ef útiloka á alla
sjálfstæðismenn frá samkomum á
vegum borgarinnar þá mundi enginn
inæta.“
SUMAR-VÖRUR
fást ekki ódýrarí annars staðar
KAFFIBORÐ
06 TVEIR STÓLAR
3.99lk
garðstoll^
m/hau baki
Fimm stillingar á baki
Reykjarvikurvegi
Hamarfirði