Morgunblaðið - 26.04.1994, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. APRIL 1994
VIÐSiaPll/fflVINHUUF
Valur Valsson, bankastjóri á aðalfundi íslandsbanka hf.
Rekstrarkostnaður
hefur lækkað um
22,3% á ijóruni árum
Verðmæti fullnustueigna og ávísana í lögfræðilegri innheimtu
óx um tæpan milljarð á síðasta ári
REKSTRARKOSTNAÐUR Islandsbanka hf. hef-
ur lækkað um 843 milljónir króna á síðustu fjór-
um árum eða um 22,3% að raungildi og starfs-
fólki hefur fækkað um 188 eða tæplega 22% frá
því bankinn tók til starfa, að því er fram kom
í ræðu Vals Valssonar, bankastjóra Islands-
banka, á aðalfundi bankans í gær. Þar kom fram
að það eru mikil framlög á afskriftarreikning
sem ráða úrslitum um verri afkomu bankans en
vonast hafi verið eftir, en tölur um afkomu bank-
ans fyrstu þijá mánuði ársins þegar hann var
rekinn með 94 milljóna króna hagnaði bendi til
að þáttaskil hafi orðið í rekstrinum. Gert er ráð
fyrir að enn fækki um 50-60 stöðugildi í bankan-
um á þessu ári. Vaxtamunur bankans á síðasta
ári eftir framlög á afskriftarreikning nam 0,8%
og bókfært verðmæti fullnustueigna, sem bankinn þurfti að leysa til sín
á síðasta ári og ávisana í lögfræðilegri innheimtu óx um tæpan milljarð
á síðasta ári og nam um áramót 2.757 milljónum króna.
Valur Valsson
Fjármunatekjur bankans á síðasta
ári námu 6.443 milljónum króna
samanborið við 6.504 milljónir árið
áður og ljármagnsgjöld voru svipuð
og árið 1992 eða um 3.700 milljónir
króna. Framlag á afskriftareikning
útlána nam 2.205 milljónum saman-
borið við 1.512 milljónir árið 1992.
Valur sagði að vaxtamunur hefði
farið jafnt og þétt lækkandi á síð-
ustu árum. Arið 1990 hefði vaxta-
munur fyrir framlag á afskriftareikn-
ing verið 5% og 4% eftir framlög á
afskriftareikning. Samsvarandi tala
hefði lækkað í 4,7% árið 1992 og í
2,2% eftir framlag á afskriftareikn-
4
Morgunverdarfundur
miðvikudaginn 27. aprfl 1994
f Átthagasal, Hótels Sögu kl. 08.00 - 09.30
RIKISKAUP,
ÚTBOÐABANKIÍSLANDS
OG ÚTBOÐABANKI EES
Þessi fundur fjallar um ný viðhorf og nýja möguleika.
Annars vegar varðandi innkaup hins opinbera ó verkum,
vörum og þjónustu, svo og innkaupakerfi Ríkiskaupa.
Hins vegar um "byltíngu" í umfangi og kynningu útboða,
aðganginn að TED, Útboðabanka EES
og stofnun ÚTIS, Útboðabanka íslands
(dæmi tekið um útboð hugbúnaðarverkefna).
__ F'ummælendur:
Júlíus S. Ólafsson, forstjóri Ríkiskaupa,
Ásgeir Jóhannesson, fv. forstjóri,
Lilja Ólafsdóttir, aðstoðarmaður forstjóra SKÝRR
og Jón Þór Þórhallsson, forstjóri SKÝRR.
Op/s "púit"
Fundarmönnum býðst að kynna viðhorf sín
og bera fram fyrirspurnir.
Fundurinn er opinn, fundargjala m. morgunverði kr. 1.000
Afsláttarverð fyrir námsmannahópa.
Þátttöku þarf að tilkynna fyrirfram í síma 676666
(svarað kl. 08-16 virka daga).
VERSLUNARRAÐ ISLANDS
ing. Á síðasta ári hefði vaxtamunur
fyrir framlag á afskriftareikning ver-
ið 4,5% og 0,8% eftir að framlag á
afskriftareikning hefði verið tekið frá.
Þjónustutekjur bankans voru svip-
aðar milli ára, 1.782 milljónir í fyrra
samanborið við 1.804 milljónir árið
áður. Valur sagði að allt frá haustinu
1989 hefðu tiltölulega litlar breyting-
ar verið gerðar á gjaldskrá bankans
og að umtalsverður hluti kostnaðar
af greiðslumiðlun í landinu hefði ver-
ið borinn uppi af vaxtamun. Nú yrði
ekki haldið lengra áfram á þeirri
braut og ekki lengur undan því vik-
ist að færa verðlagningu innláns-
stofnana í það horf að þeir greiði
fyrir þjónustuna sem noti hana.
Bankinn hafi haft verðlagsmál sín
til endurskoðunar undanfarnar vikur
og muni smám saman færa gjald-
skrána í raunhæfara horf.
Lausafjárhlutfall hækkaði
Fram kom að lausafjárstaða Is-
landsbanka hefði verið mjög traust
á síðasta ári og batnað eftir því sem
leið á árið. Innistæður í Seðlabanka
og aðrar innistæður námu samtals
tæpum tíu milljörðum króna í árslok
og hækkaði lausafjárhlutfallið úr
12,5% í upphafi ársins í 17,5% í des-
ember. Lausafjárhlutfallið að meðal-
tali var 14,4%. Bætta lausafjárstöðu
megi rekja til aukins aðhalds í útlán-
um á sama tíma og innlán hafi vax-
ið, enda hafi heildarútlán bankans
numið 45.260 milljónum á síðasta
ári sem sé nánast sama og árið 1992,
en útlánaaukning í bankakerfinu í
Úr ársreikningum íslandsbanka ^7 1990-93
1990 1991 1992 1993
Kekstur (i milljonum kr.)
Vaxtamunur eftir framlag í afskriftareikning útlána 2.048 1.841 1.279 492
Þóknun og hagnaður (tap) hlutdeildarfélaga 1.708 1.788 1.882 1.791
Rekstrarkostnaðurog skattar (3.308) (3.567) (3.338) (2.937)
Hagnaður (tap) 448 62 (177) (654)
Efnahagur (i milljónum kr.)
Sjóður, bankainnistæður og verðbréf 9.544 8.890 9.095 9.998
Útlán 35.046 41.167 42.675 42.181
Ýmsar eignir 3.937 4.283 4.148 3.536
Varanlegir rekstrarfjármunir 2.842 2.819 2.627 2.522
51.369 57.159 58.545 58.237
Innlán og bankabréf 34.734 39.398 39.855 42.301
Aðrar skuldir 12.651 12.370 13.515 10.772
Víkjandi lán 0 0 0 610
Eigið fé 3.984 5.391 5.175 4.554
51.369 57.159 58.545 58.237
Starfsmenn, meðalstöðugildi 892 862 797 726
Fjöldi útibúa 39 33 32 29
Hlutfallstölur af heildarfjármagni
Vaxtamunur eftir framlag í afskriftareikning útlána 4,0% 3,4% 2,2% 0,8%
Þóknun og hagnaður (tap) hlutdeildarfélaga 3,3% 3,2% 3,2% 3,0%
Rekstrarkostnaður og skattar -6,4% -6,5% -5,7% -4,9%
Hagnaður (tap) 0,9% 0,1% 0,3% -1,1%
Eiginfjárhlutfall bankans (BIS) 12,2% 11,2% 11,4%
Eiginfjárhlutfall bankans og dótturfélaga (BIS) 11,0% 10,0% 10,3%
Meðalstaða heildarfjármagns 51.768 54.700 59.014 59.512
heild hafi verið 7% á síðasta ári.
Innlán og bankabréf námu 42.301
milljón í árslok og jukust um 6,1%.
Ef einungis er litið á innlánin voru
þau 34.881 milljón króna og jukust
um 5,4% milli ára. Eigið fé í árslok
nam 4.554 milljónum króna, auk 600
milljón króna víkjandi láns sem boðið
var út á verðbréfamarkaði á síðasta
ári. Eiginijárhlutfall var 11,4% sam-
kvæmt svonefndum BlS-reglum og
að meðtöldum dótturfélögum 10,3%,
en lágmarkshlutfall samkvæmt lög-
um er 8%.
Valur gerði að umtalsefni að und-
ir liðnum útlán í ársreikningi hefði
mestur vöxtur orðið í öðrum eignum
en þar væri um að ræða eignir sem
bankinn hefði orðið að leysa til sín
á uppboðum, auk ávísana í lögfræði-
legri innheimtu. Samtals hefði þessi
liður vaxið um 960 milljónir á síð-
asta ári og hefði numið um áramót
2.757 milljónum króna. Áætlað væri
að heildarsöluverðmæti óseldra eigna
ÁÐALFUNDUR 1994
Aðalfundur Granda hf. verður haldinn föstudaginn 29.apríl 1994 í matsal fyrirtækisins að
Norðurgarði, Reykjavík og hefst fundurinn kl. 17:00
DAGSKRÁ
í. Venjuleg aöalfundarstörf skv. 18.gr. samþykkta félagsins o
3. Tillaga um útgáfu nýrra hluta
4. Önnur mál, löglega upp borir.
GRANDI HF. NORÐURGARÐI, 101 REYKJAVÍK
af þessu tægi hefði um áramótin
numið tæpum tveimur milijörðum og
hefði vaxið um 300 milljónir frá ár-
inu áður. Oseldar eignir í árslok
væru 138, en hefðu verið 113 árið
áður og á síðasta árið hefðu verið
seldar 109 eignir samanborðið við
72 eignir árið áður.
Samkeppnisstaðan styrkst
Valur sagði að væntingar manna
varðandi það að unnt væri að auka
rekstrahagkvæmni í bankakerfinu
með sameiningu banka hefðu ræst,
en i júní í sumar eru fimm ár frá
því fjórir bankar sameinuðust og úr
varð íslandsbanki. Á þessum tíma
hefði útibúanetið verið stokkað upp
og útibúum fækkað um fjórðung.
Yfírstjóm hefði verið einfölduð og
stoðdeildum fækkað úr 34 í 11.
Rekstrarkostnaður nú næmi 4,9% af
heildarijármagni bankans hefði num-
ið 8% á árinu 1988. Jafnvægispunkt-
ur vaxtamunar væri nú um 2% en
hefði þurft að vera um 5% hjá bönk-
unum íjórum árið 1988. Þrátt fyrir
samdrátt í kostnaði hefði viðskipta-
magn haldist svipað og markaðshlut-
deild væri nær óbreytt. Með samein-
ingunni hefði útlánadreifingin verið
jöfnuð og endurspeglaði hún nú mun
betur íslenska lánakerfið en verið
hefði áður. Samkeppnisstaða bank-
ans hefði styrkst og hann væri nú
mun betur búinn til að mæta væntan-
legri aukinni erlendri samkeppni en
verið hefði. Rekstrarhagkvæmnin
hefði aukist og afkoman fyrir fram-
lög á afskriftarreikning hefði batnað
um rúmlega hálfan milljarð króna á
íjórum árum úr 1.013 milljónum árið
1990 í 1.551 milljón króna árið 1993.
Það væru hins vegar framlög á af-
skriftarreikning sem yllu tapi síðustu
tveggja ára og gleyptu ávinninginn
af hagræðingunni og þó ýmislegt
bendi til þess að betri tímar geti
verið framundan sé Ijóst að afskrift-
ir útlána verði enn um sinn miklar.
Síðar sagði hann: „Ýmislegt bend-
ir til þess að á þessu ári verði nokk-
ur kaflaskipti í þróun efnahagsmála
í landinu. Langur vegur er frá því
að erfiðleikp,r séu úr sögunni. Heimil-
in og atvinnulífið glíma enn við mik-
il vandamál og lánastofnanir munu
áfram finna fyrir því. En það sjást
þó ýmis merki um bata. Það hefur
þegar átt sér stað mikil uppstokkun
í atvinnulífinu og einstökum fyrir-
tækjum. Eftir þær breytingar koma
fyrirtækin heilbrigðari til leiks og í
mörgum tilvikum fer hagnaður vax-
andi. Heimilin eru einnig að aðlaga
sig erfiðri stöðu. Þegar hagur við-
skiptavina bankans batnar dregur
úr þörf fyrir framlög í afskriftareikn-
ing og hagur bankans batnar.“