Morgunblaðið - 26.04.1994, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. APRIL 1994
Stefnuskrá Siálfstæðisflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningar kynnt
Mikilsverðustu baráttu-
málin að efla atvinnulífið
MIÐSTÖÐ matvælaframleiðslu
verði á Akureyri, flotkví verði
komið upp, leik- og grunnskólar
verði undir sömu stjórn, Borgar-
braut yfir Glerár byggð á næstu
tveimur árum, framtíðarurðun-
arstaður fyrir sorp verði fundinn
og sorphaugum á Glerárdal verði
lokað, íþróttaskemman verði
áfram nýtt sem íþróttahús og
möguleikar skoðaðir á sameigin-
legri aðstöðu á yfirbyggðu svæði
fyrir knattspyrnu- og skauta-
íþróttina og lokið verði við við-
byggingu Amtsbókasafns. Þessi
atriði koma fram í stefnuskrá
Sjálfstæðisflokksins fyrir bæjar-
stjórnarkosningarnar í næsta
mánuði, sem frambjóðendur
flokksins kynntu á blaðamanna-
fundi i gær.
Sigurður J. Sigurðsson forseti
bæjarstjórnar skipar efsta sæti á
lista flokksins kynnti helstu stefnu-
mál og gerði jafnframt grein fyrir
ýmsum verkefnum sem unnið var
að á kjörtímabilinu. Hann sagði að
þrátt fyrir erfíðleikatímabil hefði
verið unnið ötullega að uppbygging-
arstarfi á ýmsum sviðum. Mikil-
verðustu baráttumál nýrrar bæjar-
stjómar á komandi kjörtímabili
verða að efla atvinnulífið eftir varn-
arbaráttu og framlög til endurreisn-
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Stefnuskráin kynnt
FRAMBJÓÐENDUR Sjálfstæðis-
flokksins fyrir bæjarstjórnar-
kosningarnar kynntu stefnuskrá
flokksins á fundi í gær. Frá
vinstri eru Guðmundur Jóhanns-
son, Borghildur Blöndal, Val-
gerður Hrólfsdóttir, Sigurður J.
Sigurðsson, Lilja Steinþórsdótt-
ir, Sveinn Heiðar Jónsson, Þórar-
inn B. Jónsson og Björn Jósef
Arnviðarson.
ar iðnfyrirtækja sem hafa verið
verkefni þessa kjörtímabils.
Sjálfstæðismenn vilja efla Akur-
eyri og Eyjafjörð sem miðstöð mat-
vælaframleiðslu m.a. með því að
efla rannsóknir og styðja við þróun-
arverkefni. Fram kemur í stefnu-
skránni að sjálfstæðismenn vilja að
komið verði upp flotkví á Akureyri
og að aðstaða verði til þjónustu við
erlend fiskiskip.
Ráðstefnubær
Einnig kemur þar fram að nauð-
synlegt sé að hvetja til aukinnar
notkunar íslenskrar framleiðslu og
nefndi Sigurður að marka mætti
leikreglur í þá átt að varðandi kaup
á vöru og þjónustu hjá Akur-
eyrarbæ yrði viðskiptum beint að
innlendri framleiðslu. Flokkurinn
vill að ráðinn verði ferðamálafull-
trúi og að mikilvægt sé að styrkja
möguleika bæjarins sem ráðstefnu-
bæjar m.a. með því að fyrirtæki í
bænum gerist aðilar að Ráðstefnu-
skrifstofu íslands. Þá vilja sjálf-
stæðismenn gera Akureyri að mið-
stöð innlendrar ferðaþjónustu en
skref í þá átt hafi þegar verið stigin.
Hlutverk og verkefni atvinnu-
málanefndar verða ■ endurskoðuð í
þá átt að skapa nefndinni meira
svigrúm til að sinna þróunarmálum.
Þá kemur fram í stefnuskránni að
sjálfstæðismenn vilja afnema heim-
ildir sveitarfélaga til ábyrgðarveit-
inga.
Guðmundur var val-
inn bæjarlistamaður
Eigendur Aðalstrætis 16 hlutu við-
urkenningu Húsfriðunarsjóðs
GUÐMUNDI Ármanni Siguijóns- manns á Akureyri til eins árs. Þá
syni myndlistarmanni hefur verið hlutu eigendur hússins númer 16
úthlutað starfslaunum bæjarlista- við Aðalstræti viðurkenningu
--------------- Húsfriðunarsjóðs.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Viðurkenningar veittar
GUÐMUNDUR Ármann Sigurjónsson myndlistamaður hlaut starfslaun
listamanns á Akureyri og eigendur Aðalstrætis 16, Karl Frímannsson,
Bryndís Þórhallsdóttir, Olafur Óskarsson og Aðalheiður Hafsteinsdótt-
ir, hlutu viðurkenningu Húsfriðunarsjóðs.
Menningarmálanefnd Akureyrar
Markaðssetning vatns í Bandaríkjunum mjög kostnaðarsöm
Of snemmt að segja hvort KEA
hefur úthald til að halda áfram
AKVA hf., sem pakkar vatni til útflutnings og er í eigu Kaupfélags
Eyfirðinga, flutti út um 1,5 milljón Iítra af vatni á síðasta ári, en það
eru 78 fjörutíu feta gámar af pökkuðu vatni. Vatnið var eingöngu flutt
úr til Boston í Bandaríkjunum, en Akva hf. á dótturfyrirtækið þar,
AKVA USA, sem sér um markaðsetningu þess. Samanlagt tap þessara
fyrirtækja var um 135 milljónir króna á liðnu ári, sem er töluvert
meira en áætlanir gerðu ráð fyrir, að því er fram kom í skýrslu stjórn-
ar og kaupfélagsstjóra KEA á aðalfundi félagsins á laugardaginn.
Á síðasta ári var ákveðið að beita
öllum kröftum að því að selja vatn-
ið í Boston. Eiginleg sala og mark-
aðssetning hófst um mánaðamótin
maí og júní í fyrra og var fjárfest
verulega í markaðssetningunni á
því ári. Virðist hún hafa tekist
sæmilega, en AKVA USA hefur
fengið allmargar viðurkenningar og
verðlaun fyrir markaðs- og auglýs-
ingaherferð á þessu svæði. Aðalá-
herslan verður lögð á að styrkja
dreifinguna og auka boðsöluna á
þessu ári, en á því sviði hefði mátt
takast betur til.
Aðalfundur Kaupfélags Eyfirðinga haldinn
Eignasala stuðlaði
að lækkun skulda
Áfram gætt aðhalds í rekstri
KAUPFÉLAG Eyfirðinga keypti hlutabréf í öðrum félögum fyrir 157
milljónir króna á liðnu ári. Félagið seldi bróðurpart hlutabréfa sinna
í Olíufélaginu hf. auk þess sem það seldi aðrar eignir. Aðalfundur
KEA var haldinn sl. laugardag þar sem þetta kom fram.
Alls voru keypt hlutabréf í Hafn- fyrir minni upphæðir.
arstræti 87-89 hf. - Hótel KEA -
fyrir tæplega 111 milljónir króna,
félagið keypti hlutabréf í SÍF fyrir
rúmar 17 milljónir króna, í Sænesi
hf. á Grenivík fyrir 15 milljónir, í
Kjötumboðinu hf. fyrir tæpar 7,5
milljónir og í Skinnaiðnaði fyrir rúm-
ar 3 milljónir.
Þá keypti KEA hlutabréf í Sveip
hf., Úrvinnslunni hf. og Strýtu hf.
fyrir 500 þúsund krónur, Laxá hf.
fyrir rúmar 600 þúsund krónur og
í Olíufélaginu hf., Kaupþingi Norð-
urlands og Fiskeldi Eyjafjarðar hf.
Kjötumboðið er arftaki Goða hf.
sem skuldaði KEA og var ekki unnt
að fá andvirðið greitt nema með því
að leggja andvirði skuldarinnar inn
sem hlutafé í Kjötumboðinu. SÍF var
breytt í hlutafélag á sl. ári og var
séreignarsjóðum þess breytt í hlutafé.
Fram kom í skýrslu stjórnar og
kaupfélagsstjóra að á liðnu ári seldi
félagið ýmsa varanlega rekstrarfjár-
muni, m.a. tvö hús við Hafnarstræti
fyrir 31 milljón króna. í árslok seldi
félagið % af hlutafjáreign sinni I
Olíufélaginu og var söluverð þess
um 200 milljónir króna. Einnig seldi
KEA hlutabréf sín í Samveri og
Eyfirska sjónvarpsfélaginu. Eigna-
salan kemur á móti fjárfestingum a
árinu og stuðlaði að því að skuldir
félagsins lækkuðu.
Áfram aðhald
Þegar ákveðnar fjárfestingar á
þessu ári eru að upphæð um 100
milljónir króna, m.a. vegna endur-
byggingar frystiklefa á Dalvík og
kaupa og uppsetningar rafmagnsket-
ils fyrir mjólkursamlag. Stefna fé-
lagsins er að fjárfesta ekki það mik-
ið að skuldir aukist, fari fjárfestingar
fram úr því sem þegar er ákveðið
verður helst að selja eignir á móti
þeim. Áfram verður haldið á þeirri
braut að gæta aðhalds á öllum svið-
um, lækka rekstrarkostnað og halda
áfram að lækka skuldir félagsins.
Markaðssetningin dýr
Nú stendur yfir -lokað hlutafjár-
útboð á markaði vestanhafs upp á
300-400 milljónir króna. Fram kem-
ur í skýrslunni að ekki sé enn vitað
hvernig og hvort hlutafjárútboðið
tekst, en framhaldið ræðst af því
hver niðurstaðan verður. Takist hlut-
afjárútboðið munu fjármunir verða
notaðir til að fjármagna vöxt fyrir-
tækisins og stækka dreifingarsvæðið
smátt og smátt. Enn þykir of
snemmt að segja fyrir um hvort
vatnsútflutningurinn á framtíð fyrir
sér, en möguleikarnir eru taldir mikl-
ir og engri annarri vöru í smásölu-
versluninni er spáð jafn mikilli aukn-
ingu á næstu árum og pökkuðu
vatni. „Hins vegar er markaðssetn-
ingin dýr og mikil samkeppni á þess-
um markaði. Það er því of snemmt
að fullyrða hvort KEA hefur úthald
til að halda áfram að rækta þennan
útflutning, en vissulega er þetta eitt
af þeim fáu sviðum sem félagið á
möguleika á að vaxa verulega á á
næstu árum og áratugum," segir í
skýrslunni.
Þröstur Ásmundsson formaður
Menningarmálanefndar Akureyrar
tilkynnti um viðurkenningarnar í
samsæti á Fiðlaranum á sumardag-
inn fyrsta. Guðmundur Ármann er
fimmti bæjarlistamaður Akureyrar,
en áður hafa Kristjana F. Arndal,
Jón Hlöðver Áskelsson, Margrét
Jónsdóttir og Jón Laxdal hlotið slík
starfslaun.
Guðmundur Ármann er fæddur í
Reykjavík árið 1944, hann stundaði
nám við Myndlista- og handíðaskóla
íslands frá 1963-1967 og síðan var
hann við framhaldsnám í Gautaborg
um skeið en hann hefur starfað á
Akureyri í rúma tvo áratugi. Síðustu
ár hefur hann m.a. unnið ötullega
að uppbyggingu svokallaðs Listagils.
Guðmundur Ármann þakkaði heið-
urinn og sagði að þegar hann flutti
til bæjarins fyrir 22 árum hefði hon-
um ekki dottið í hug að hann ætti
eftir að standa í þessum sporum.
Viðurkenning Húsfriðunarsjóðs
féll í skaut eigendum hússins Aðal-
stræti 16, sem hafa unnið að endur-
byggingu þess, en það er byggt alda-
mótaárið. Eigendur þess eru Karl
Frímannsson, Bryndís Þórhallsdótt-
ir, Ólafur Óskarsson og Aðalheiður
Hafsteinsdóttir. Karl sagði að ekki
væri nema ár síðan maður nokkur
hefði látið þau orð falla að hann
gæfí ekki vetrardekkin sín fyrir hús-
ið. Hann sagði eigendur hússins
hafa fundið fyrir miklum áhuga fólks
og vonaði að það hefði þau áhrif að
fleiri tækju sér slík verkefni fyrir
hendur.
Mörg þúsund manns
skoðuðu Svalbak E A
UM þrjú þúsund manns skoðuðu
Svalbak EA II, nýja frystitogara
Útgerðarfélags Akureyringa, á
laugardaginn, en þá var skipið
almenningi til sýnis.
Björgólfur Jóhannsson fjármála-
stjóri UA sagði að auk þess hefði
töluverð umferð fólks verið á sunnu-
daginn og á föstudag var starfs-
fólki, hluthöfum og fjölda annarra
boðið að skoða skipið.
„Það er greinlega mikill áhugi á
að skoða skipið og það komu mun
fleiri en við bjuggumst við,“ sagði
Björgólfur.
Svalbakur kom til heimahafnar á
föstudag eftir siglingu frá Kanada
þar sem hann var keyptur. Stefnt
er að því að skipið haldi í fyrstu
veiðiferð sína um miðja næstu viku
og verði úti fram að sjómannadegi
nema hann fylli sig fyrr en ætlunin
er að senda skipið á úthafskarfaveið-
ar á Reykjaneshrygg.