Morgunblaðið - 26.04.1994, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. APRIL 1994
Fyrsta Rússlands-
heimsókn forsæt-
isráðherra Israels
Moskvu. Reuter.
YITZHAK Rabin, forsætisráðherra Israels, kom til Moskvu á
sunnudag og er fyrsti leiðtogi landsins sem fer í opinbera heim-
sókn til Rússlands. Rabin sagði að helsta markmið heimsóknarinn-
ar, sem stendur í fjóra daga, væri að fá Rússa til að taka meiri
þátt í friðarumleitunum í Miðausturlöndum. „Eg fæ tækifæri til
að útskýra afstöðu okkar fyrir ráðamönnum í Rússlandi í þeirri
von að Rússar geti tekið meiri þátt í friðarumleitununum, eins
og þeir hafa gert í Júgóslavíu, og ég vonast til að komast í miklu
nánara samband við þá,“ sagði forsætisráðherrann.
Rabin ræddi í gær við Viktor
Tsjernomyrdín, forsætisráðherra
Rússlands, sem sagði á sameigin-
legum blaðamannafundi þeirra að
gyðingum þyrfti ekki að standa
ógn af gyðingahatri í Rússlandi.
„Hér verður hvorki gyðingahatur
né fasismi," sagði Tsjemomyrdín
þegar hann var spurður um vin-
sældir Vladímírs Zhírínovskíjs,
þjóðernissinnans öfgafulla.
Zhírínovskíj hefur neitað
ásökunum um að hann sé
gyðingahatari en kryddar þó oft
mál sitt með árásum á gyðinga og
gagnrýnir áhrif þeirra í Rússlandi.
Rússneskir gyðingar segjast
beittir misrétti
Um hálf milljón rússneskra gyð-
inga hefur flutt til ísraels frá því
á miðjum síðasta áratug og marg-
ir þeirra kvörtuðu yfír því að hafa
verið beittir misrétti í Rússlandi.
Reuter
Gyðingafundur í Moskvu
YITZHAK Rabin, forsætisráðherra Israels, hitti rússneska gyðinga í Moskvu á sunnudag þegar fjög-
urra daga heimsókn hans til Rússlands hófst. A myndinni færa börn af gyðingaættum ráðherranum blóm.
Talið að hvítir öfgamenn beri ábyrgð á öldu sprengjutilræða í Suður-Afríku
Mikil fjárupphæð til höfuðs
hermdarverkamönnunum
Sjötti leið-
toginn á
fimm ár-
um í Japan
Jóhannesarborg. Reuter.
TIU manns létust og margir tugir særðust, margir lífshættulega,
er sprengja sprakk á leigubílastöð blökkumanna í útjaðri Jóhannesar-
borgar í gærmorgnn. Þá létu níu lífið er bílsprengja sprakk í mið-
borg Jóhannesarborgar á sunnudag. Er talið að menn úr AWB, öfga-
hreyfingu Búa, beri ábyrgð á sprengjutilræðinu en þeir hafa reynt
að spilla fyrir fyrstu lýðræðislegu kosningunum í landinu, sem hóf-
ust í morgun. Hefur ríkisstjórn Suður-Afríku heitið milljón randa
verðlaunum til handa þeim er gétur gefið upplýsingar er leiða til
handtöku tilræðismannanna. Þá sprungu sprengjur á fjórum kjör-
stöðum, víðs vegar um landið.
Verðbréf á fjármálamörkuðum í
Suður-Afríku lækkuðu verulega í
verði í kjölfar sprenginganna, en
þau höfðu hækkað töluvert eftir að
Inkatha-flokkur Zúlumanna iýsti
yfir þátttöku í kosningunum á mið-
vikudag í síðustu viku.
Sprengingin á sunnudag varð
skammt frá höfuðstöðvum Afríska
þjóðarráðsins (ANC) í borginni, en
allar spár benda til að það muni
vinna yfirburðasigur í kosningun-
um, sem standa í þijá daga. Craig
Kotze, lögreglumálaráðherra, sagði
lögreglu hafa góðar vísbendingar
um það hveijir kynnu að hafa verið
þama að verki en enginn hefur enn
lýst ábyrgðinni á hendur sér.
Sprengjan í gærmorgun sprakk
á leigubílastöð blökkumanna í út-
borginni Randfontein. Að sögn
Carls Niehaus, talsmanns ANC, ók
hvítur maður sendiferðabíl inn á
miðja stöðina og hljóp síðan í burtu.
Örskömmu síðar sprakk bíllinn.
Vitni segjast einnig hafa séð hvítan
mann hafa yfirgefið bílinn er sprakk
á sunnudag.
Freddie Hartzenberg, formaður
íhaldsflokksins, sem er fylgjandi
aðskilnaðarstefnunni, sagði flokk
sinn eða flokksmenn á^engan hátt
tengjast ódæðunum. „Ég'fordæmi
þetta. Það verður að fordæma öll
morð. Á slíkt get ég ekki fallist,"
sagði Hartzenberg og bætti við að
ofbeldi væri ekki lausnin á vanda
Suður-Afríku. Hann sagðist ekki
vita hver bæri ábyrgð á sprengjun-
um en taldi líklegt að um hægri
öfgamenn væri að ræða.
Miklar varúðarráðstafanir
vegna sprenginganna
Björn Bjarnason, formaður utan-
ríkisnefndar Alþingis, er nú staddur
í Jóhannesarborg þar sem hann
mun hafa eftirlit með kosningunum
fyrir hönd Evrópuráðsins. Fleiri ís-
lenskir eftirlitsmenn eru einnig í
Suður-Afríku og munu þeir verða
staðsettir hér og þar um landið.
„Sprengingin á sunnudagsmorgun
þar sem níu manns Iétust var hérna
rétt hjá hótelinu. Þetta gerðist ein-
ungis í um hundrað til tvö hundruð
metra ijarlægð." Björn sagðist ekki
hafa orðið var sprenginguna þar
sem hann var við messu er sprengj-
an sprakk. Hins vegar hefðu verið
miklar varúðarráðstafanir á hótel-
inu aðfaranótt mánudagsins og
gestir vaktir um miðja nótt vegna
gruns um að sprengju hefði verið
komið fyrir í nágrenni þess. Gestir
hefðu farið fram á ganga hótelsins
en þá verið sagt að engin hætta
væri á ferðum. Lögreglan hefði svo
sprengt bifreið skammt frá þar sem
talið var að sprengja væri falin.
„Það er greinilega mikil eftir-
vænting meðal fólks vegna kosn-
inganna. Ég hef farið í messur og
á samkomur það er greinilega mik-
il eftirvænting. Enda er þetta talinn
vera merkasti atburðurinn í 350 ára
sögu þessa lands,“ sagði Björn.
Tókýó. Reuter.
TSUTOMU Hata var í gær kjörinn
sjötti forsætisráðherra Japans á
fimm árum í atkvæðagreiðslu á
þingi Iandsins. Fréttaskýrendur
segja að erfitt verði fyrir hann
að halda sljórninni saman þar sem
fram hafi komið alvarlegur
ágreiningmr á meðal stjórnar-
flokkanna í mikilvægum mála-
flokkum.
Tsutomu Hata fékk meirihluta
atkvæða í báðum þingdeildunum.
Hann er 58 ára gamall, leiðtogi Sin-
seito, Endurnýjunarflokksins, og var
utanríkisráðherra í fráfarandi stjórn.
Hata kvaðst í gær vilja halda í
flesta af ráðherrum fráfarandi
stjórnar en fá Tomiichi Murayama,
leiðtoga Sósíalistaflokksins í stjórn-
ina. Sósíalistaflokkurinn er stærstur
stjórnarflokkanna átta.
Hata leggur áherslu á að knýja
fram fjárlög, sem hefur dregist í
nokkra mánuði, breyta skattakerfinu
og auka innflutning frá Bandaríkjun-
um til að minnka viðskiptahallann.
Kona Wests
sökuð um að-
ild að morði
Glouchester. Reuter.
ROSEMARY West, eiginkona Fredericks West
sem ákærður hefur verið fyrir að minnsta kosti
tíu morð, hefur verið sökuð um aðild að einu
morðanna. Mætti hún fyrir rétti í gær og verður
í varðhaldi þar til á föstudag. Rosemary West
er seinni kona Fredericks og er sökuð um að
hafa átt þátt í dauða Lyndu Gough, sem var nítj-
án ára er hún hvarf.
Lögregla telur að eitt hinna níu kvenlíka sem
fundust við hús West hjónanna sé af Gough. Tíunda
líkið fannst fyrir skömmu á akri nærri borginni.
Rosemary West var handtekin í tvígang í upphafi
rannsóknarinnar á „Hryllingshúsinu" en var látin
laus vegna ónógra sannanna.
Hún var handtekin í síðustu viku, sökuð um að
átt þátt í að nauðga ungri stúlku og að hafa ráðist
á sjö ára dreng. Auk hennar voru tveir karlar hand-
teknir fyrir að nauðga stúlkunni.
Lögreglan heldur áfram leit sinni að líkum á akrin-
um þar sem tíunda líkið fannst, en talið er að það sé
af fyrri konu West, Catherine.
Bæði ákærð
FJÖLDAMORÐINGINN Frederick West og eig-
inkona hans, Rosemary. Hún hefur nú verið
ákærð fyrir aðild að einu morða eiginmannsins,
auk þess sem hún er sökuð um nauðgun og mis-
þyrmingar.
Jeltsín boðar „pólitiska þjóðarsátt“
Rútskoj vill sameina
stjórnarandstöðuna
Moskvu. Reuter.
ALEXANDER Rútskoj, fyrrverandi varaforseti Rússlands, kvaðst á
sunnudag vera reiðubúinn að veita
Borís Jeltsín forseta.
Rútskoj sagði þetta í viðtali við
óháðu sjónvarpsstöðina NTV. Hann
kvaðst vilja verða í fylkingarbijósti
þeirra flokka sem myndu hafna til-
lögu Jeltsíns um að undirrituð verði
yfirlýsing um „pólitíska þjóðarsátt".
Jeltsín hefur lagt til að leiðtogar
þingflokkanna, þeirra á meðal
kommúnistar og þjóðernissinnar,
undirriti yfirlýsinguna á fimmtu-
dag. Ríkisstjórnin, mörg öflug lýð-
veldi, flest verkalýðssamtakanna og
nokkur trúfélög hafa þegar ákveðið
að undirrita hana.
Mikil óvissa er hins vegar um
afstöðu stjórnmálaflokkanna. Að-
eins þrír flokkar, þeirra á meðal
helsti flokkur markaðshyggju-
manna, Rússneskur valkostur, hafa
ákveðið að undirrita yfirlýsinguna.
sljórnarandstöðunni forystu gegn
Flokkur hagfræðingsins Grígoríjs
Javlínskíjs, Jabloko, er hins vegar
staðráðinn að vera ekki með og
segir yfirlýsinguna tilgangslausa.
Fimm aðrir flokkar, þeirra á meðal
Kommúnistaflokkurinn, Bænda-
flokkurinn og flokkur þjóðernis-
sinnans Vladímírs Zhírínovskíjs,
hafa ekki enn tekið afstöðu.
Rútskoj kvaðst vilja sameina þá
flokka sem undirrituðu ekki yfirlýs-
inguna og veita „pólitískri fjölda-
hreyfingu" forystu. Hann er talinn
líklegur til að bjóða sig fram í
næstu forsetakosningum, sem eiga
að fara fram árið 1996.
Rútskoj var Iátinn laus úr fang-
elsi 26. febrúar ásamt fleiri leiðtog-
um uppreisnarinnar gegn Jeltsín í
október í fyrra.