Morgunblaðið - 26.04.1994, Side 31
30
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. APRIL 1994
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar:
691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði
innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið.
Richard Nixon
Richard Nixon, sem lézt sl.
laugardag, var án efa einn
merkasti forseti Bandaríkjanna á
síðari helming þessarar aldar. A
sérkennilegum stjómmálaferli reis
hann stundum mjög hátt. Hann
gjörbreytti stefnu Bandaríkja-
manna gagnvart Kína. Frá því að
kommúnistar tóku völdin í þessu
fjölmennasta ríki veraldar nokkru
eftir lok heimsstyijaldarinnar síð-
ari og þar til Nixon sendi Kissing-
er í leyniför til Kína, hafði ekki
aðeins algert sambandsleysi verið
á milli Bandaríkjamanna og Pek-
ingstjórnarinnar, heldur hálfgert
stríðsástand á köflum. För Nixons
til Kína í kjölfar leyniferðar Kiss-
ingers breytti heimsmyndinni í
einni svipan.
Þegar litið er til þess, hvað
Formósustjórnin hafði notið sterks
stuðnings í Bandaríkjunum, stuðn-
ings, sem átti sér djúpar rætur í
samskiptum Bandaríkjamanna og
Kína, fór ekki á milli mála, að það
þurfti gífurlegt pólitískt hugrekki
til þess að stíga þetta skref. Nixon
hafði þann kjark til að bera. Hann
"hafði áratugum saman verið einn
helzti forystumaður hægri afla í
repúblikanaflokknum og einmitt
þess vegna gat hann beitt sér fyr-
ir þessari byltingarkenndu breyt-
ingu á utanríkisstefnu Bandaríkja-
manna. Þeir sem voru líklegastir
til að gagnrýna slíka stefnubreyt-
ingu treystu Nixon. Hið sama gerð-
ist löngu síðar, þegar Reagan beitti
sér fyrir slökunarstefnu með samn-
ingaviðræðum við Gorbachev, m.a.
hér í Reykjavík, en það var upphaf-
ið að hruni Sovétríkjanna. í þessum
viðræðum hafði Reagan stjörnu-
stríðsáætlunina í bakhöndinni, en
slík framkvæmd var Sovétríkjun-
um ofviða.
í forsetatíð Nixons varð einnig
mikil breyting á samskiptum
Bandaríkjanna og Sovétríkjanna.
Nixon hafði áratugum saman verið
einn harðasti andstæðingur komm-
únista meðal bandarískra stjórn-
málamanna og var óvæginn í
gagnrýni sinni á Sovétríkin. Þess
vegna kom það áreiðanlega mörg-
um á óvart, að hann beindi sam-
skiptum þessara tveggja risavelda
í þann farveg að leiddi til slökunar
á þeirri spennu, sem hafði ríkt á
milli þeirra frá upphafi kalda
stríðsins. En einnig í þessum efn-
um naut Nixon trausts þeirra, sem
líklegastir voru til að gagnrýna
slíka stefnubreytingu. Hann kom
í raun úr þeirra röðum og þess
vegna var honum treyst.
Þegar Nixon tók við forsetaemb-
ætti í Bandaríkjunum af Lyndon
Johnson voru afskipti Bandaríkja-
manna af stríðinu í Víetnam í há-
marki. En jafnframt hafði magnast
innan Bandaríkjanna andstaða við
þátttöku í þessu stríði og sú and-
staða leiddi til þess, að Johnson
gaf ekki kost á sér til endurkjörs.
Nixon hóf fljótlega markvissar
aðgerðir til þess að losa Banda-
ríkjamenn út úr þessu stríði. Það
gerði hann með því jöfnum höndum
að auka hernaðaraðgerðir Banda-
ríkjamanna og hefja leynilegar við-
ræður við Víetnama um lyktir
stríðsins. Honum tókst að lokum
að kalla bandaríska hermenn heim
án þess að þeir biðu beinan ósigur
á vígvellinum.
Þetta þrennt stendur upp úr,
þegar horft er yfir forsetaferii Nix-
ons. Með tilvísun til þessara að-
gerða og þá fyrst og fremst stefnu-
breytingar hans gagnvart Kína og
Sovétríkjunum, sem lagði grunninn
að stórbættum samskiptum risa-
veldanna þriggja næstu tvo áratugi
á eftir, er hægt að halda því fram
með rökum, að hann sé einn merk-
asti forseti Bandaríkjanna á síðari
helming þessarar aldar.
En Nixon átti sér aðrar hliðar,
sem stjórnmálamaður, sem ekki
voru eins rismiklar. Snemma á
stjórnmálaferii hans laut hann lágt
í vinnubrögðum í stjórnmálabarátt-
unni, sem leiddu til þess, að fjöl-
margir Bandaríkjamenn van-
treystu honum alla tíð. Þessi dökka
hlið á stjórnmálaferli hans sást
þegar í upphafi er hann barðist
fyrir sæti á Bandaríkjaþingi ungur
að árum. Hennar gætti einnig í
kosningabaráttunni 1952, þegar
Eisenhower var kjörinn forseti og
Nixon varafbrseti. Þá hugleiddi
Eisenhower í einhverja sólarhringa
að skipta um varaforsetaefni. Nix-
on sýndi þá hver baráttumaður
hann var í stjórnmálum og sneri
erfiðri stöðu sér í vil.
Barátta Nixons og Kennedys,
tveggja ungra og hæfileikamikilla
manna, um forsetaembættið á ár-
inu 1960 vakti mikla athygli um
heim allan. Litlu munaði og telja
ýmsir, að sjónvarpseinvígi þeirra
hafi að lokum ráðið úrslitum.
Kennedy hafi sigrað í þeim með
glæisbrag. En því hefur verið hald-
ið fram jafnan síðan að kosningas-
vindl hafi tryggt Kennedy sigur.
Nixon neitaði að gera ágreining
um úrslit kosninganna á þeirri for-
sendu, að slíkt mundi skapa óþol-
andi óvissu um æðsta embætti
þjóðarinnar. Margir töldu, að hann
hefði með þeirri ákvörðun sýnt
mikla stjórnvizku.
Watergate-málið sýndi þá veik-
leika í persónuleika Nixons, sem
birtust í upphafi stjórnmálaferils
hans og fylgdu honum alla tíð. Til
þessa dags finnst fólki með ólíkind-
um hvers konar samtöl og ráða-
brugg fór fram í Hvíta húsinu í
Washington. Þegar Nixon yfirgaf
Hvíta húsið hefðu fáir trúað því
að hann ætti eftir að hasla sér
völl á nýjan leik, sem virtur fyrr-
verandi forseti.
En á síðustu tuttugu árum hefur
Nixon komið fram á sjónarsviðið
á ný, sem stjórnmálamaður, sem
hlustað hefur verið á um allan
heim og forystumenn þjóða hvar
sem er í veröldinni hafa talið sér
sóma af að taka á móti og ræða
við. Fyrir nokkrum vikum var hann
á ferð í Rússlandi og eftir þá ferð
skrifaði hann grein um málefni
Rússlands í blöð á Vesturlöndum,
sem birtist m.a. hér í Morgunblað-
inu og sýndi yfirburðaþekkingu og
yfirsýn um málefni fyrrum lýð-
velda Sovétríkjanna og þau vanda-
mál, sem þar er við að etja.
Þegar upp er staðið verður Nix-
ons minnzt sem merkilegs forseta,
sem hafði grundvallaráhrif á þróun
heimsmála á síðari hluta þessarar
aldar og það til hins betra.
Lögmaður Haralds Haraldssonar vegna sölu SR-mjöls
4 í bankaráði áttu
hagsmuna að gæta
MÁL það sem Haraldur Haraldsson í Andra hefur höfðað til að fá ógilt
útboð og sölu á hlutabréfum íslenska ríkisins í SR-mjöli hf. til um 180
aðila sem keyptu hlutabréf ríkisins í fyrirtækinu fyrir 725 milljónir króna
hinn 29. desember var tekið til dóms í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær
að loknum vitnaleiðslum og málflutningi. Kröfur Haralds, sem Sigurður
G. Guðjónsson hrl. reifaði í málflutningnum, byggjast á því að við undir-
búning og töku þeirrar stjórnváldsákvörðunar sem útboð á hlutabréfum
ríkissjóðs í SR-mjöIi og sala þeirra hafi verið hafi ekki verið gætt þeirra
form- og efnisreglna, sem stjórnvöld verði að fylgja þegar þau taki jafn-
veigamiklar ákvarðanir og þá að ráðstafa ríkiseignum. Þannig hafi sjávar-
útvegsráðherra og starfsmenn hans, þ. á m. Verðbréfamarkaður Islands-
banka, sem falið var að hafa umsjón með sölunni, og söluhópur sem
skipaður var að tillögu stjórnar SR-mjöls, svo og framkvæmdanefnd um
einkavæðingu, þverbrotið fjölmargar viðurkenndar sljórnsýslureglur og
sérstakar Verklagsreglur um framkvæmd einkavæðingar auk þess sem
reglur um útboð hafi verið brotnar við framkvæmd útboðs á hlutabréfun-
um. Gunnlaugur Claessen ríkislögmaður og sex aðrir lögmenn, sem fluttu
málið fyrir hönd hinna stefndu, kröfðust sýknu af kröfum Haralds og
vísuðu rökstuðningi lögmanns hans á bug.
Sigurður G. Guðjónsson sagði að í
greinargerðum lögmanna stefndu
væri því haldið fram að samningur
ríkisins við kaupendur SR-mjöls væri
einkaréttarlegur gerningur sem
stjórnsýslureglur tækju ekki til. Rétt
væri að hvað samningsrétt varðaði
væri samningurinn einkaréttarlegs
eðlis en ljóst væri að það gæti leitt
til ógildingar slíks gernings að van-
hæft stjórnvald hafi þar átt hlut að
máli. Sala hlutabréfanna væri form-
lega á ábyrgð Þorsteins Pálssonar
sjávarútvegsráðherra og ekkert benti
til vanhæfis ráðherrans en hæfisreglur
taki ekki aðeins til þess sem fari með
ákvörðunarvald heldur nái þær til allra
sem komi að undirbúningi ákvörðun-
ar. Það að túlka hæfisreglur svo
þröngt að þær nái aðeins yfir ráð-
herra gangi gegn þeim grunnhug-
myndum sem að baki hæfisreglum búa
og sé ætlað að tryggja fyrst og fremst
að óhlutdrægni þeirra sem ákvarðanir
taki sé hafin yfir vafa. Eðlileg og rúm
túlkun vanhæfisreglna leiði hins vegar
til þeirrar niðurstöðu að Verðbréfa-
markaður Islandsbanka, sem er að
öllu leyti í eigu íslandsbanka og dótt-
urfyrirtækja hans, hafi verið vanhæf-
ur til að undirbúa ákvörðunartöku um
sölu hlutabréfanna eftir að í ljós kom
að í öðrum kaupendahppnum voru
ýmsir stórir hluthafar í íslandsbanka
og sé þetta þeim mun Ijósara að ráð-
herra hafi sjálfur lýst því yfir að
ákvörðun hans hafi í einu og öllu
byggst á tillögum VÍB og þeirra sem
önnuðust undirbúninginn en ekki á
sjálfstæðu mati ráðherrans.
Hagsmunaárekstrar
í kaupendahópnum hafi verið að
finna Eignarhaldsfélag Alþýðubank-
ans, stærsta einstaka hluthafann í
Islandsbanka og fyrrum vinnuveit-
anda Björns Björnssonar fram-
kvæmdastjóra hjá íslandsbanka og
núverandi stjórnarformanns VÍB.
Einnig Sjóvá-Almennar, 8. stærsta
hluthafa Islandsbanka, IJraupnissjóð-
inn, sem að hluta sé í eigu VÍB og
þar sé Ragnar Önundarson fram-
kvæmdastjóri hjá íslandsbanka stjórn-
arformaður. Þá hafi í kaupendahópn-
um verið 21 útgerðarfélag sem séu
aðilar að LÍÚ, samtökum þar sem
Kristján Ragnarsson formaður banka-
ráðs íslandsbanka sé í forsvari og eigi
hiut í bankanum, þótt Kristján gegni
formannsstöðunni í krafti hlutafjár-
eignar Fiskveiðasjóðs. Þá hafí í kaup-
endahópnum verið Lífeyrissjóður
verslunarmanna, stór hluthafi ! ís-
landsbanka, og Þróunarfélagið þar
sem bankaráðsmaðurinn Guðmundur
Garðarsson sitji í stjórn en hann sé
að auki formaður Útgerðarfélagsins
Freys en það hafi einnig verið í kaup-
endahópnum.
Fjörir af þeim sjö mönnum, sem
sitji í bankaráði Islandsbanka, hafi
átt hagsmuna að gæta í þeim hópi,
sem fékk að kaupa hlutabréfin í SR-
mjöli. Vegna þessara tengsla verði að
telja VÍB aigjörlega vanhæft til að
leggja hlutlaust mat á tilboð frá þess-
um aðilum.
Vanhæfisreglur eru hlutlægar
Sigurður G. Guðjónsson rakti hlut-
verk VÍB í þessum viðskiptum. Sig-
urður B. Stefánsson, framkvæmda-
stjóri VÍB, hafi ekki gefíð skýr svör
um hlutverk fyrirtækisins í söluferlinu
en Hreinn Loftsson, formaður fram-
kvæmdanefndar ríkisstjórnarinnar um
einkavæðingu, hafi verið klár á því
að VÍB hefði getað skuldbundið ríkið
um það við hvern skyldi semja. Ljóst
væri að það hefði ekki verið ráðherra
sem ákveðið hefði að selja hópnum
sem Jónas A. Aðalsteinsson og Bene-
dikt Sveinsson voru í forsvari fyrir
heldur hafi hann fallist á samning
þann sem Sigurður B. Stefánsson og
Hreinn Lpftsson lögðu fram til undir-
skriftar. í sambandi við vanhæfi VÍB
og Sigurðar B. Stefánssonar, fram-
kvæmdastjóra hans, til að koma nærri
þessari sölu skipti það ekki máli að
VÍB lúti eftirliti bankaeftirlits, sem
hafi þó ekki afskipti af einstökum
sölutilboðum, og að framkvæmda-
stjórinn segist ekki hafa rætt máiið
við nokkurn úr bankastjórn eða
bankaráði Islandsbanka. Vanhæfi
snúist um hlutleg atriði en ekki hug-
læg, sem erfitt sé að meta. Hin hlut-
læga aðstaða sé sú að það séu stór-
felld eigna- og hagsmunatengsl milli
íslandsbanka og þeirra aðila, sem Sig-
urður B. Stefánsson hafi talið að
semja bæri við. Jafnvel þótt hugsan-
legt sé að huglæg afstaða Sigurðar
B. Stefánssonar sé sú að hann hafi
unnið að málinu af bestu samvisku
verði að draga hæfi hans í efa.
Sigurður sagði að ekki aðeins hafi
Sigurður B. Stefánsson og VÍB verið
vanhæf til að fjalla um málið heldur
einnig Hreinn Loftsson hrl., formaður
framkvæmdanefndar um einkavæð-
ingu, sem hafi starfað með VÍB og
söluhópnum að mati á tilboðum og
hafi setið fundi þar sem um málið var
fjallað. Hreinn hafi ásamt Sigurði B.
Stefánssyni, Jónasi A. Aðalsteinssyni
og Benedikt Sveinssyni „kokkað
samninginn sem salan byggðist á“.
Hreinn hafi auk þess samið þær verk-
lagsreglur um einkavæðingu sem rík-
isstjórnin hafi sett sér en þær hafi
verið þverbrotnar við söluna.
Vanhæfi Hreins Loftssonar til að
koma að sölu hlutabréfa ríkisins í
SR-mjöli byggist á því að á sama tíma
og verið var að ganga frá sölu hluta-
bréfanna hafi kollegar hans og sam-
eigendur í fyrirtækinu Lögmenn
Höfðabakka 9 sf. staðið í viðræðum
við Sjóvá-Almennar um að taka að
sér lögfræðileg verkefni fyrir trygg-
ingafélagið. Við lok tilboðsfrestsins
hafi aðeins eitt tilboð borist sem full-
nægði skilyrðum Verklagsreglna um
einkavæðingu og það hafi verið tilboð
Haralds Haraldssonar.
Þátttaka Sigurðar B. og Hreins
næg ógildingarástæða
Frá Jónasi A. Aðalsteinssyni og
Benedikt Sveinssyni hafi borist bréf
þar sem þeir hafi fyrir hönd hóps 25
aðila lýst sig reiðubúna til viðræðna
um kaup á fyrirtækinu fyrir verð sem
ekki væri lægra en nafnvirði hluta-
bréfanna. Hreini Loftssyni hafi á
þeirri stundu borið að segja Benedikt
Sveinssyni, stjórnarformanni Sjóvár-
Almennra, að hópur hans væri úr leik,
þar sem ekki lægi fyrir frá honum
eiginlegt tilboð. Það hafi Hreinn hins
vegar ekki sagt á sama tíma og hann
vissi að kollegar hans á lögmannsstof-
unni áttu í samningaviðræðum við
Sjóvá-Almennar um lögfræðileg verk-
efni. „Ég held að þátttaka Sigurðar
B. Stefánssonar í nafni VÍB, og ráð-
gjöf Hreins Loftssonar, eiganda Lög-
manna Höfðabakka 9, sem þjónar
Sjóvá-Almennum, sé eitt og sér alveg
nóg til þess að ógilda þessa málsmeð-
ferð við sölu ríkiseigna fyrir tæpa tvo
milljarða króna,“ sagði Sigurður G.
Guðjónsson.
Ein ástæða þess að krafist er ógild-
ingar á sölu SR-mjöls er sú að stjórn-
völd hafi vanrækt þá upplýsinga-
skýrslu sem þeim beri að sinna sam-
kvæmt reglum stjórnsýsluréttar. Har-
aldi Haraldssyni hafi þrátt fyrir ítrek-
aðar óskir ekki reynst unnt að fá nein-
ar upplýsingar um fyrirtækið þó þær
væru nauðsynlegur grunnur fyrir til-
boðsgerð fyrr en 17. desember 1993
þegar aðeins voru fimm virkir dagar
til loka tilboðsfrestsins, sem rann út
28. desember.
Upplýsingamar hafi ekki aðeins ver-
ið nauðsynlegar til að unnt væri að
gera sér grein fyrir verðmæti fyrirtæk-
isins og þar með tilboðsfjárhæð og
greiðsluskilmálum heldur ekki síður til
að unnt væri að kynna upplýsingarnar
þeim aðilum, sem rætt hafði verið við
um þátttöku í kaupum á hlutabréfun-
um, fjánnögnun þeirra að hluta og
uppgreiðslu áhvílandi langtímaskulda
við Landsbanka íslands. Þannig hafi
stofnefnahagsreikningur fyrirtækisins,
sem stofnað var í júlí 1993, ekki verið
lagður fram fyrr en í desember og
þótt nú sé því haldið fram að eitt skil-
yrði sem tilboð þyrfti að uppfylla hafi
verið að í kaupendahópi væm heima-
menn á þeim fimm stöðum á Norður-
og Austurlandi þar sem SR-mjöl rækir
starfsemi, hafi slíkt aldrei komið fram
í skilmálum útboðsins.
Loðvík XIV
„Það er óþolandi að í samfélagi
nútímans hagi menn sér eins og Loð-
vík XIV, sagði Sigurður og sagði að
sífellt væru gerðar harðari kröfur til
hæfis í stjórnsýslu og minnti þar á
útskurð samkeppnisráðs um vanhæfi
framkvæmdastjóra VSÍ og fleiri til
að sitja í samkeppnisráði.
Þá sagði Sigurður að þrátt fyrir
reglur hafi aldrei verið látið reyna á
tilboð Haralds, sem hafi hljóðað upp
á mun hærri fjárhæð en endanlegt
söluverð og hafí auk þess verið um
staðgreiðslu innan 15 daga.
Þá sagði Sigurður G. Guðjónsson
að þrátt fyrir yfirlýsingar um að ekki
hafi verið um eiginlegt útboð að ræða
við söluna beri öll gögn sem VÍB lét
frá sér fara vegna sölunnar með sér
að um útboð á hlutabréfum hafi verið
að ræða og eigi lög um framkvæmd
útboða við um sölu ríkissjóðs á hluta-
bréfum sínum í SR-mjöli hf. Gegn
þessum lögum hafí verið brotið með
því að opna ekki öll tilboð á grund-
velli útboðs samtímis að viðstöddum
bjóðendum eða fulltrúum þeirra. ít-
rekuðum óskum Haralds um að fá að
vera viðstaddur opnun tilboða hafí
verið hafnað. í lögum sé útboð skil-
greint þannig að með því leiti kaup-
andi skriflegra bindandi tilboða og
eigi skuli taka tilboði sem sé í veru-
legu ósamræmi við útboðsskilmála.
Þrátt fyrir það hafi verið gengið til
samninga um sölu á hlutabréfunum
við aðila sem hafði sent inn yfirlýsingu
sem hafi ekki getað talist fullgilt til-
boð þar sem enginn tilboðsgjafi hafi
verið tilgreindur og ekkert kaupverð
auk þess sem- í yfirlýsingunni hafi
ekki falist skuldbinding af neinu tagi.
VÍB hafi viðhaft forval til að ákveða
hveijir fengju að taka þátt í útboðinu
sem því teljist lokað og samkvæmt
lögum beri við lokað útboð að taka
hagstæðasta tilboði eða hafna öllum.
Óumdeilanlegt sé að tilboð Haralds
hafi verið hærra og með betri greiðslu-
kjörum en samið hafi verið um við
kaupendurna. Brot á lögum um útboð
leiði undantekningarlaust til þess að
útboð skuli lýst ógilt.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1994
31
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lögmenn rísa úr sætum þegar dómarar ganga í
salinn. Frá vinstri: Arngrímur Isberg héraðsdóm-
ari, Hjördís Hákonardóttir, héraðsdómari, dóms-
forseti, Helgi I. Jónsson, héraðsdómari, Gunnlaug-
ur Claessen, ríkislögmaður, Þórunn Guðmundsdótt-
ir, hrl, Gísli Baldur Garðarsson hrl, Olafur Gústafs-
son, hrl, Aðalsteinn Jónasson hdl, Hákon Árnaon
hrl og Einar Gunnarsson hdl. Á innfelldu mynd-
inni eru Haraldur Haraldsson og lögmaður hans,
Signrður G. Guðjónsson, hrl.
Deilan um birtingn skýrslu um SR-mjöl
Forsætisnefnd-
in hefur ekki af-
skipti af málinu
FORSÆTISNEFND Alþingis ákvað í gær að hafa ekki afskipti af því
hvenær Ríkisendurskoðun skilar fjárlaganefnd Alþingis greinargerð
um sölu á hlutabréfum ríkisins í SR-mjöli. Olafur Ragnar Grímsson
formaður Alþýðubandalagsins fór fram á það að greidd verði atkvæði
á Alþingi í dag um það hvort birta eigi skýrsluna eða ekki.
Auk þess sem að framan er rakið
eru kröfur Haralds m.a. byggðar á
því að með þeirri stjórnsýsluákvörðun
sem sala hlutabréfanna hafi verið
hafi stjórnvöld ekki gætt þess að upp-
fyllt væri upplýsingaskylda, rann-
sóknarskylda og sá andmælaréttur
sem beri að taka mið af við stjórn-
valdsathafnir.
Fyrir hönd hinna stefndu, sem eru
um 180 talsins — auk sjávarútvegs-
ráðherra fyrir hönd ríkisins allir nú-
verandi eigendur SR-mjöls hf., flytja
málið sjö lögmenn: Gunnlauguj' Claes-
sen ríkislögmaður, Hákon Árnason
hrl., Þórunn Guðmundsdóttir hrl., Ein-
ar Gunnarsson hdl., Ólafur Gústafsson
hrl., Gísli Baldur Garðarsson hrl. og
Aðalsteinn Jónasson hdl. Þeir skiptu
með sér verkum og fjallaði Gunnlaug-
ur Claessen fyrst um ætlað vanhæfi
VÍB og kröfur reistar á stjórnarfars-
rétti.
Utan sviðs stjórnsýsluréttar
Hann sagði að samningurinn um
sölu á SR-mjöli væri einkaréttarlegs
eðlis og utan við svið stjórnsýslurétt-
ar, og þeirra krafna sem þær reglur
gerðu til málsmeðferðar við stjórnar-
athafnir. Eftir gildistöku stjórnsýslu-
laganna 1. janúar 1994 væri hins
vegar ljóst að við gerð samninga
mætti ekki ganga gegn hinum sér-
stöku hæfiskröfum stjórnsýslulag-
anna en engar slíkar kröfur hefðu
verið gerðar fyrir gildistöku laganna
en samningurinn um sölu hlutabréfa
í SR-mjöli var gerður 29. desember
1993.
Verði hins vegar talið að slíkar
kröfur hafi einnig verið gerðar fyrir
gildistöku stjórnsýslulaganna þá
kvaðst Gunnlaugur Claessen telja að
engar hæfisreglur hafi verið brotnar.
Hæfi ráðherra hafi ekki verið vefengt
á neinn hátt og ekki heldur hæfi
þriggja manna söluhóps, sem í voru
Arndís Steinþórsdóttir, skrifstofu-
stjóri í sjávarútvegsráðuneyti og þá-
verandi formaður stjórnar SR-mjöls,
Arnar Sigurmundsson, stjórnarmaður
SR-mjöls, og Skarphéðinn Berg Stein-
arsson, frá fjármálaráðuneytinu. Hæfi
VÍB og Hreins Loftssonar væri ve-
fengt en VÍB væri ekki stjórnvald af
neinu tagi og engar hæfiskröfur gætu
náð til slíkra aðila, hvorki fyrir né
eftir gildistöku stjórnsýslulaga þar
sem VIB fari ekki með neitt opinbert
vald eða hafi stjórnsýslu með höndum
en slíkt sé forsenda þess að hæfiskröf-
ur séu gerðar en jafnvel þótt slíkar
kröfur verði gerðar standist VIB þær
enda engin tengsl milli þess fyrirtæk-
is og aðila í kaupendahópnum og við
meðferð málsins hafi Sigurður B. Stef-
ánsson engin fyrirmæli sótt til stjórn-
armanna, bankaráðsmanna eða
bankastjóra.
Pólitísk, ekki lögfræðileg,
kröfugerð
í ræðu sinni hafi Sigurður G. Guð-
jónsson íjallað um að „gígantísk"
eignatengsl milli aðila og sjálfsagt
væri það rétt að mikil eignatengsl
væru þarna milli aðila. Sigurður hafi
hins vegar fullyrt að dómstólar ættu
að taka á því máli og tryggja að eðli-
leg dreifíng valds og eigna eigi sér
stað. Ríkislögmaður sagði að það
væru ekki ný sannindi að í fámennis-
þjóðfélagi væru tengsl milli manna
og hagsmunir samofnir en Sigurður
hefði talað eins og þetta væri eitthvað
sem verið væri að uppgötva núna.
Haraldur Haraldsson hefði vitað áður
en tilboð voru opnuð að Eignarhalds-
félag Alþýðubankans og Sjóvá væru
í hópi Jónasar Aðalsteinssonar en
ekki hreyft mótbárum fyrr en eftir
að samningur var gerður.
Ályktanir lögmannsins um vanhæfi
VÍB væru fremur pólitískar en lög-
fræðilegar og gengju lengra en nokk-
ur lögfræðileg skýring á því hvað
geri menn vanhæfa. Engir dómar
styðji túlkun lögmannsins á hæfisregl-
um.
Ríkislögmaður hafnaði því að ekki
hefði verið sinnt rannsóknarskyldu og
andmælarétti við mat á tilboðum, þau
tilboð sem bárust í hlutabréfin hefðu
verið metin með rökstuðningi.
Þegar leitað hefði verið upplýsinga
um hveijir stæðu að tilboðum hefðu
Jónas A. Aðalsteinsson og Benedikt
Sveinsson getað upplýst hveijir stæðu
að tilboði þeirra en erfiðlega hefði
gengið að fá upplýsingar um hvetjir
stæðu að tilboði Haralds og við rann-
sókn hefði komið í Ijós að fáar þeirra
forsendna sem Haraldur hefði sagt
að stæðu að baki tilboði sínu hefðu
staðist. Lögmaður Haralds hefði
kvartað undan því að ekki hefði verið
leitað til Haralds þegar yfniýsingum
hans og fulltrúa Búnaðarbankans bar
ekki saman um íjármögnun tilboðsins
en í skýrslu fyrir dómi hefði Haraldur
staðfest að þar hefði fulltrúi bankans
farið með rétt mál.
Hver sá sem hlýtt hefði á framburð
Haralds hljóti að hafa sannfærst að
sú ályktun að tilboð hans hvíldi á
ótraustum grunni væri rétt.
Ríkislögmaður sagði það ranga full-
yrðingu að betra tilboði hefði verið
hafnað. Ráðherra þyrfti ekki aðeins
að meta tilboð á grundvelli íjárhæðar
heldur þyrfti einnig að líta til þess að
kaupandi hefði bolmagn til að reka
fyrirtækið. Rekstur fyrirtækis á borð
við SR-mjöl væri sveiflukenndur og
þrátt fyrir að það væri nú að rétta
úr kútnum hefði það um árabil verið
rekið með hundruð milljóna halla. Með
tilliti til þeirra byggðarlaga á Norður-
og Austurlandi sem eigi allt sitt undir
rekstri fyrirtækisins þurfí aðilar að
reka það sem geti staðið undir sveiflu-
kenndum rekstri og gætt þannig hags-
muna almennings.
Hákon Árnason hrl. rökstuddi þá
skoðun að Haraldur Haraldsson ætti
ekki lögmæta sakaraðild að málinu
og því bæri að sýkna stefndu af kröf-
um hans. Sönnunarbyrði hvíli á stefn-
anda, Haraldi, en hann hafi ekki sýnt
fram á að eiga neitt tilkall til hags-
muna sem kreljist þess að samningur
um sölu SR-mjöls verði ógiltur og
ómögulegt sé að koma auga á að rétt-
arstaða Haralds breytist við það eitt
að samningurinn verði ógiltur.
Sýkna eða frávísun
Haraldi beri engin nauðsyn til þess
að kreijast ógildingar á sölunni. Telji
hann sig hafa orðið fyrir tjóni þannig
að sér beri skaðabætur frá ríkinu
geti hann látið á þá kröfu reyna í
skaðabótamáli án ógildingar og ef
ekki í skaðabótamáli þá sóst eftir við-
urkenningu krafna sinna í viðurkenn-
ingarmáli, einnig án ógildingar.
Tvenns konar niðurstaða sé hugs-
anleg í málinu; frávísun þar sem Har-
aldur eigi ekki lögvarinna hagsmuna
að gæta eða sýkna vegna skorts á
sakaraðild Haralds Haraldssonar.
Þórunn Guðmundsdóttir hrl. fjallaði
um kröfur Haralds sem reistar eru á
meintu broti á Verklagsreglum um
framkvæmd einkavæðingar og sagði
að þær reglur hefðu verið samþykktar
12. október 1993 þegar söluferli hluta-
bréfa ríkisins í SR-mjöli hefði þegar
verið hafið. Reglurnar væru ekki sett-
ar eða birtar með formlegum hætti
og væru ekki sjálfstæð stjórnvaldsfyr-
irmæli eða réttarheimild heldur innan-
húss vinnureglur fyrir starfsmenn
stjórnsýslunnar. Brot á verklagsregl-
um valdi því ekki ógildi stjórnvaldsat-
hafna og þriðji maður geti ekki byggt
á þeim rétt en jafnvel þótt talið yrði
að Haraldur Haraldsson gæti byggt á
þeim rétt yrði ekki séð að verklags-
reglurnar hefðu verið brotnar við sölu
SR-mjöls.
Ranglega hafí því verið haldið fram
að engin úttekt hafi verið gerð á efna-
hag SR-mjöls, rétt sé að VÍB hafi
gert slíka úttekt og á grundvelli henn-
ar afhent Haraldi ýmis gögn. Með
auglýsingum hefði öllum verið tryggð-
ur réttur til að bjóða í eignirnar en
til sölu hefðu verið eignir fyrir á ann-
an milljarð króna og ekki hefði staðið
til að selja þær öðrum en þeim sem
hefðu Ijárhagslega getu til kaupanna.
Ymis atriði hefðu ekki verið upplýst
fyrr en á lokastigum málsins m.a.
vegna samkeppnishagsmuna fyrir-
tækisins. Sigurður G. Guðjónsson
hefði gert þá athugasemd að Haraldi
hefði ekki verið kynnt að þátttaka
heimamanna væri skilyrði fyrir kaup-
um. Það skilyrði hefði þó komið fram
í greinargerð með lagafrumvarpi því
sem heimilað hefði söluna og þótt lög-
fræðingur Haralds sem komið hefði
fram fyrir hans hönd í málinu hefði
ekki kynnt sér lögin hefði það skilyrði
ekki farið fram hjá Jónasi Aðalsteins-
syni og Benedikt Sveinssyni.
Haraldur segi að með því að óska
eftir fyrirfram upplýsingum um ljár-
hagslegan styrk hans hafi verklags-
reglur verið brotnar en í raun snúist
málið um það að hefði Haraldur haft
nauðsynlegan fjárhagslegan styrk til
að standa við tilboð sitt hefði hann
væntanlega ekki gert við það athuga-
semdir að eftir væri spurt. Það að
hann hafí ekki getað fært sönnur á
íjárhagslegan styrk til að reiða af
hendi þær 801 milljón króna, sem til-
boð hans hafi 'hljóðað upp á, hafi ráð-
ið því að hinu tilboðinu var tekið.
Ekki hefði verið rétt að bíða af sér
þann 15 daga frest sem Haraldur
óskaði eftir til að afla fjárins því á
þeim tíma hefði hitt tilboðið runnið
úr gildi. Þá hafnaði Þórunn fullyrðing-
um um að aðeins tilboð Haralds hafi
fullnægt skilyrðum sem setja verði
formlegum tilboðum. Tvö fonnleg til-
boð hafi borist og því tilboði hafi ver-
ið tekið þar sem í boði hafi verið trygg-
ar greiðslur, dreifð eignaraðild og til-
lit til hagsmuna hlutaðeigandi byggð-
arlaga.
Loks sagði Þórunn að Sigurður G.
Guðjónsson og Haraldur Haraldsson
hefðu ekki gert athugasemdir við
meint hagsniunatengsl Sjóvár-
Almennra og VIB á frumstigum máls-
ins þegar Haraldur Haraldsson hefði
sagt við þá sem undirbjuggu söluna
að Sjóvá-Álmennar væru í hópi þeirra
aðila sem stæðu að tilboði sínu.
Þingflokkur Alþýðubandalagsins
skrifaði forsætisnefnd bréf fyrir
helgi þar sem farið var fram á að
skýrsla Ríkisendurskoðunar yrði birt.
En ríkisendurskoðandi hafði þá lýst
því yfir að hann myndi ekki afhenda
fjárlaganefnd skýrsluna fyrr en eftir
málflutning fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur í máli Haralds Haralds-
sonar, sem hann höfðaði til að ógilda
sölu hlutabréfanna. Sá málflutningur
fór fram síðdegis í gær.
í gærmorgun kom forsætisnefnd
Alþingis saman og samþykkti eftir-
farandi: „Forsætisnefnd mun ekki
hafa afskipti af því hvenær ríkisend-
urskoðandi skilar íjárlaganefnd
greinargerð um sölu á hlutabréfum
í SR-mjöli hf. og sem nefndin óskaði
eftir. Forsætisnefnd mun taka upp
viðræður við ríkisendurskoðanda um
hvernig eðlilegt sé að haga skýrslu-
gerð af þessu tagi í framtíðinni sam-
anber bréf ríkisendurskoðanda dag-
sett 20. apríl 1993.“ Salome Þorkels-
dóttir forseti Alþingis sagði á Al-
þingi í gær að þetta hefði verið ein-
róma niðurstaða nefndarinnar, en
tveir nefndarmenn voru ekki á fund-
inum, Guðrún Helgadóttir þingmað-
ur Alþýðubandalags og Pálmi Jóns-
son þingmaður Sjálfstæðisflokks.
Alvarlegt skref
Olafur Ragnar Grímsson mót-
mælti þessari niðurstöðu forsætis-
nefndar í umræðum um störf þings-
ins í gær. Hann sagði að forsætis-
nefnd færði engin rök fyrir því hvers
Nefndin hélt fund í gær og sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðsins
er það mat nefndarmanna að hún
eigi að geta náð sameiginlegri niður-
stöðu. Nefndarmenn munu þó ekki
enn sammála um hvort leggja eigi
til að hrefnuveiðar heíjist þegar í
sumar, eða hvort sjávarútvegsráð-
herra verði látið eftir að meta hve-
nær veiðarnar geti hafist. Þá vilja
sumir nefndarmenn að í áliti nefnd-
arinnar komi fram að stefna skuli
að veiðum á stærri hvölum en aðrir
vilja ekki ganga svo langt að svo
stöddu.
STJÓRN og trúnaðarmannaráð
Flugvirkjafélags íslands hefur
samþykkt að segja upp kjara-
sainningum við Flugleiðir sem
Félagsdómur hefur úrskurðað að
í gildi séu til 28. júlí næstkomandi.
Að sögn Hálfdáns Hermannssonar
formanns Flugvirkjafélagsins verður
það gert nú innan skamms, en upp-
sagnarfrestur samninganna er þrír
vegna forsætisnefnd hefði ákveðið
að láta það líðast að upplýsingum
væri haldið leyndum fyrir Alþingi.
Það væri alvarlegt skref ef forsætis-
nefnd skapaði fordæmi um að einn
embættismaður, þ.e. ríkisendurskoð-
andi, gæti tekið ákvörðun um að
halda skýrslum leyndum, sem lægju
tilbúnar fyrir í málum sem óskað
hefði verið eftir að yrðu rædd í þing-
salnum. Ekki væri hægt að fámenn
forsætisnefnd geti ein og sér tekið
ákvörðun af þessu tagi og því fór
Ólafur Ragnar fram á að greidd yrðu
atkvæði um það á Alþingi í dag hvort
birta ætti skýrsluna eða ekki.
----------♦ ♦ ♦----
Mj ólkurfræðingar
Samþykktu ný-
gerða samninga
NÝGERÐIR samningar Mjólkur-
fræðingafélags Islands við Vinnu-
málasamband samvinnufélaganna
voru samþykktir af félagsmönn-
um á fundi í gær og síðastliðinn
föstudag.
Geir Jónsson formaður félagsins
segir að haldnir hafí verið tveir fund-
ir af þessu tilefni, á Akureýri á föstu-
dag og á Selfossi í gær. Félagsmenn
eru urn 100 og segir Geir að líklega
hafi 70-80 greitt atkvæði en samn-
ingarnir voru að hans sögn sam-
þykktir með miklum meirihluta.
Það mun vera almenn skoðun
nefndarmanna að íslendingar geti
með fullum rétti hafið hrefnuveiðar
á grundvelli aðildar að Norður-Atl-
antshafssjávarspendýraráðinu, og
aðild að Álþjóðahvalveiðiráðinu komi
ekki til greina að óbreyttri stefnu
þess ráðs.
Fallið hefur verið frá því að nefnd-
in leggi fram þingsályktunartillögu
á Alþingi um að skora á sjávarút-
vegsráðherra að hefja hrefnuveiðar
enda sé nefndinni aðeins ætlað að
koma með tillögur til sjávarútvegs-
ráðherra um framhald hvalveiðimála.
mánuðir. í kvöld er félagsfundur hjá
flugvirkjum, sem m.a. fjallar um
uppsögn samninganna.
Viðræður um hagræðingarmál
hófust á nýjan leik milli samninga-
nefndar flugvirkja og Flugleiða í
gærmorgun. Einar Sigurðsson blaða-
fulltrúi Flugleiða sagði að þeini við-
ræðum yrði haldið áfram, og næsti
fundardagur yrði væntanlega ákveð-
inn í dag.
Hvalveiðinefnd þingflokka
Tillaga um hrefnuveið-
ar líkleg niðurstaða
LÍKLEGT er talið að nefnd fulltrúa allra þingflokka á Alþingi nái
saman um tillögu til sjávarútvegsráðherra um að hrefnuveiðar í at-
vinnuskyni hefjist hér við land eins fljótt og unnt er. Stefnt er að því
að nefndin skili á næstu dögum skýrslu til sjávarútvegsráðherra með
tillögum sínum.
Kjarasamningum flug-
virkja verður sagt upp