Morgunblaðið - 26.04.1994, Page 34
34
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1994
BORGAR- OG SVEITARSTJORNARKOSNINGARNAR 28. MAI
MARKU S ARGUÐ-
SPJALL ENDALAUSA
eftir Jónas
Engilbertsson
Ekki flettir fólk blöðum nú síð-
ustu dagana án þess að rekast á
skrif biðlaunaþegans Markúsar
-‘Arnar Antonssonar. Ekki verður
sagt að hinir endalausu langhundar
borgarstjórans fyrrverandi séu mál-
efnaríkir enda ef til vill ósanngjörn
krafa. Ekki leynir sér að í skrifum
mannsins gætir beiskju og særinda
og er það að mörgu leyti skiljanlegt
eftir hina kostuiegu atburðarás síð-
ustu vikna og þeirrar staðreyndar
að Markús Orn er nú utan hins
pólitíska veruleika ásamt félaga sín-
um Sveini Andra Sveinssyni. Hvort
sem rétt er eða ekki sem illar tung-
ur segja að Markús Örn hafi verið
þvingaður til að segja af sér er hitt
þó afar athyglisvert að tveir aðal-
leikarar í SVR-málinu skuli nú
standa utan sviðs og er spurning
hvort þeir ágætu menn hafi séð
fyrir atburðarásina sem þeir hrinda
af stað með einkavæðingunni á SVR
og er raunar ekki enn séð fyrir end-
ann á. Hefðu kannski sumir betur
haft í huga orðtök eins og „í upp-
hafi skyldi endinn skoða“, eða „oft
veltir litil þúfa þungu hlassi“. En
það er nú svo eins og sagt er, að
þú tryggir ekki eftir á. En þá að
langhundi Markúsar í Morgunblað-
inu. 8. apríl grípur hann í síðasta
hálmstrá íhaldsins þar sem honum
er að sjálfsögðu ljóst að íhaldið fer
Jónas Engilbertsson
„Þó að Inga Jóna telji
þessar staðreyndir til
marks um öfluga at-
vinnumálastefnu þá er
því öfugt farið um
Reykjavíkurlistann.
Hann telur að hér sé á
ferðinni neyðarástand í
atvinnumálum, ónýt at-
vinnumálastefna.“
AÐALFUNDUR
HLUTABRÉFASJÓÐSINS HF.
Aðalfundur Hlutabréfasjóðsins hf. verður haldinn á
Hótel Sögu. Skála, ráðstefnuálmu, 2. hæð,
miðvikudaginn 27. apríl 1994 og hefst hann kl. 16.15.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 14. gr.
samþykkta félagsins.
Dagskrá fundarins og ársreikningur félagsins liggja
frammi til sýnis fyrir hluthafa á skrifstofu félagsins
að Skólavörðustíg 12, 2. hæð, Reykjavík.
Fundargögn verða afhent á fundarstað.
Stjórn Hlutabréfasjóðsins hf.
m Jw'A'* AM lioripí ^pjjp
Metsölublaó á hverjum degi!
halloka í málefnaumræðu eins og
venjulega. í Morgunblaðsgreininni
vitnar biðlaunaþeginn Markús Örn
í grein Óskars Bergssonar, for-
manns Félags ungra framsóknar-
manna í Reykjavík, og tekst þar að
finna ummæli andstæð sameigin-
legu framboði. En grein Markúsar
lýsir samt fyrst og síðast hræðslu
Sjálfstæðisflokksins við Reykjavík-
urlistann. í raun má þakka Markúsi
fyrir þessa grein því hún hefur þau
áhrif ein að þjappa enn betur saman
því fólki sem stendur að Reykjavík-
urlista. í Morgunblaðinu 9. apríl er
enn ritsmíð eftir Markús Örn. Þar
kemur fram mikil hræðsla við að
íbúar hverfanna komi til með að
hafa eitthvað að segja um eigin mál
og auðvitað finnst lýðræðissinnan-
um mikla það óskaplegt. Að sjálf-
sögðu á að miðstýra öllu úr ráðhús-
inu að dómi Markúsar, ekkert annað
kemur til greina.
Þá er rétt að víkja aðeins að grein
Ingu Jónu Þórðardóttur í Mbl. 8.
apríl, en hún skipar 3. sæti. á lista
Sjálfstæðisflokksins. Hjá henni
kemur fram að meirihlutinn hafi
staðið að öflugri atvinnumálastefnu.
í þessu sambandi má geta þess að
um 3.000 manns eru atvinnulausir
um þessar mundir. Þó að Inga Jóna
telji þessar staðreyndir til marks um
öfluga atvinnumálastefnu þá er því
öfugt farið um Reykjavíkurlistann.
Hann telur að hér sé á ferðinni neyð-
arástand í atvinnumálum, ónýt at-
vinnumálastefna. Hér er því um að
ræða gagnstætt pólitískt mat. Það
er kjósendum hollt að hugleiða. Hins
vegar má minna á að Inga Jóna
Þórðardóttir naut að sjálfsögðu góðs
af átaksverkefni árið 1992 sem
einkavæðingarráðgjafí borgarstjóra
og þáði fyrir það 2.758.885 kr.
Ymsir aðrir einkavinir þáðu greiðsl-
ur vegna ráðgjafar, t.d. vegna
einkavæðingar SVR, lögmenn
Höfðabakka 236.239 kr., stjórnun
og eftirlit HR 235.554 kr., Eignam-
iðlun 80.407 kr. og verkfræðistofa
Stefáns Ólafssonar 217.407 kr. Þar
að auki fékk sú sama verkfræði-
stofa 558.757 kr. vegna breytinga
á rekstrarformi Pípugerðarinnar.
En því miður eiga ekki allir kost á
slíkum átaksverkefnum, því það er
sama gamla sagan um Jón og séra
Jón.
Höfundur er vagnsíjóri
Reykjavíkurborgar oginnir
vinnuskyldu sína af hendi hjá SVR
hf. Hann er frambjóðandi á
Reykjavíkurlistanum.
Skjótvirkur stíflueyðir
Eyðir stíflum
fljótt
• Tuskur
• Feiti
• Lífræn efni
• Hár
• Dömubindi
• Sótthreinsar
einnig lagnir
One Shot fer
fljótt að stíflunni
af því að það er
tvisvar sinnum
þyngra en vatn.
Útsölustaðir:
Shell- og Esso
-stöðvar
og helstu byggingavöru-
verslanir.
Dreifing: Hringás hf.,
sími 677878 - fax 677022
Asdís Halla Bragadóttir Áshildur Bragadóttir
Ásta Þórarinsdóttir
Helga Jónsdóttir Inga Dóra Sigfúsdóttir
Ingibjörg Kaldalóns
Ingibjörg Gísladóttir
ísól Fanney Ómarsdóttir Jóhanna Vilhjálmsdóttir
Marta María Ástbjörnsdóttir Ragnheiður Guðmundsdóttir
Vopn sem hætt
eru að bíta
eftir Asdísi Höllu Braga-
dóttur, Ashildi Bragadótt-
ur, Astu Þórarinsdóttur,
Helgu Jónsdóttur, Ingu
Dóru Sigfúsdóttur, Ingi-
björgu Grétu Gísladóttur,
Ingibjörgu Kaldalóns, ísól
Fanneyju Ómarsdóttur,
Jóhönnu Vilhjálmsdóttur,
Mörtu Maríu Astbjörns-
dóttur og Ragnheiði Guð-
mundsdóttur.
Baráttan fyrir jöfnum rétti karla
og kvenna hefur verið háð alla öldina
og enn er barist. Ýmsir sem telja sig
kvenréttindasinna og segjast leggja
sig fram við að jafna rétt kynjanna
beita hins vegar vopnum sem fyrir
löngu eru hætt að bíta. Fólk skreyt-
ir sig hátíðlega merkingarlausum
orðum og frösum en engin tilraun
gerð til að ná fram auknu jafnrétti
karla og kvenna í raun. Dæmi um
hóp hlaðinn klisjum er kosninga-
bandalag Alþýðubandalagsins,
Framsóknarflokksins, Kvennalistans
og Alþýðuflokksins, sem segist hafa
hugmyndir kvenfrelsis að leiðarljósi.
Á tveimur stöðum í illa útfærðri
stefnuyfirlýsingu bandalagsins er
fjallað sérstaklega um konur. Á öðr-
um staðnum segjr að auka þurfi hlut
kvenna í embættismannakerfinu. Á
hinum segir að stuðla beri að launa-
jöfnun milli karla og kvenna í þjón-
ustu borgarinnar. Slík orð um að
auka þurfi og stuðla beri að þekkja
allir. Engar nánari útlistanir á þeim
er hins vegar að finna eða lýsingu á
þeim leiðum sem flokkarnir hyggjast
fara til að ná kvenfrelsinu fram.
Atvinna, leikskólapláss og
fæðingarorlof
í stefnuyfirlýsingu Sjálfstæðis-
flokksins fyrir borgarstjórnarkosn-
ingar í vor er að finna mjög ítarleg-
ar tillögur í atvinnu- og fjölskyldu-
málum, tillögur sem vel eru fallnar
til að jafna rétt karla og kvenna í
borginni.
- Sjálfstæðisfólk leggur fram ná-
kvæmar tillögur í atvinnumálum en
næg atvinna er mikilvæg í jafnréttis-
baráttunni.
- Sjálfstæðisfólk hyggst útrýma
biðlistum á leikskólum borgarinnar
fyrir 2 til 5 ara börn á næstu tveim-
ur árum. Á undanförnum ijórum
árum hefur Sjálfstæðisflokkurinn
byggt helmingi fleiri leikskólapláss
en vinstri meirihlutinn gerði á árun-
um 1978 - 1982, þrátt fyrir að bygg-
ing leikskóla hafí verið eitt helsta
loforð R-lista flokkanna fyrir kosn-
ingarnar 1978.
- Sjálfstæðisfólk mun auka stuðn-
ing við barnafjölskyldur. Hefja á við-
ræður við ríkið um lengingu fæðing-
arorlofs og um 100% nýtingu per-
sónuafsláttar maka.
Leiðir sem stuðla að jafnrétti
Ofangreindar leiðir stuðla að
auknum rétti karla og kvenna. í ljós
hefur komið að atvinnuleysi kemur
harðar niður á konum en körlum.
Næg atvinna, eins og Sjálfstæðis-
flokkurinn hyggst tryggja, er því
afar mikilvæg í jafnréttisbaráttunni.
Enginn velkist í vafa um nauðsyn
þess að öll 2-5 ára börn eigi víst
pláss á leikskóla. Þetta eru sjálfsögð
mannréttindi allra barna auk þess
sem þetta auðveldar konum vinnu
utan veggja heimilisins. Lenging
fæðingarorlofs miðar að því að feður
geti verið heima hjá börnum sínum
fyrstu mánuðina líkt og mæðurnar.
Samvera feðra og barna er grund-
vallarþáttur í auknum tengslum
þeirra á milli, sjálfsagður réttur feðra
og einn mikilvægasti hlekkurinn í
réttindabaráttu kvenna.
Flagga þarf fleiru en frösum
Ætli R-listinn að ná til kvenna
með því að vísa til „kvenfrelsis" verð-
ur hann að gera betur en flagga inn-
antómum frösum. í ljósi reynslunnar
treystum við því að Sjálfstæðisflokk-
urinn efni loforð sín og stuðli þannig
að jafnrétti kynjanna.
Höfundar cru áhugamcnn um
jafnréttismál og lelja að
hugmyndir sínar eigi bcst heima
innan Sjálfstieðisflokksins.