Morgunblaðið - 26.04.1994, Side 37
MQRGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1994
37
BORGAR- OG SVEITARSTJORNARKOSNINGARNAR 28. MAI
Skipulag og starfsemi
sjúkrahúsa í Reykjavík
eftir Sigríði
Snæbjörnsdóttur
Samvinnunefnd um verka-
skiptingu og samvinnu
Heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðherra skipaði í febrúar 1993
samvinnunefnd Háskóla íslands,
Borgarspítala og Landspítala til að
gera tillögu um samvinnu og verka-
skiptingu sjúkrahúsanna. Fulltrúar
Landakotsspítala komu síðar inn í
nefndina. Undirrituð átti sæti í
þessari nefnd. Nefndin skilaði til-
lögum sínum í nóvember 1993.
Ráðherra hefur nú kynnt niðurstöð-
ur sínar að tillögunum fengnum og
munu þær taka gildi fljótlega.
Miklar umræður urðu í nefndinni
sem eðlilegt er, þar sem verið var
að ræða einn umfangsmesta og
dýrasta málaflokk í opinberum
rekstri og voru gjarnan uppi mörg
sjónarmið sem tillit þurfti að taka
til. Hvenær er samkeppni milli
sjúkrahúsa hæfileg og æskileg án
þess að valda óþarfa tvöföldun?
Hvenær er verkaskipting milli
sjúkrahúsa hagkvæm þannig að
hámarksnýting verði á sérfræðing-
um í meðferð og umönnun? Hvað
þarf fjöldi sjúklinga að vera mikill
til að rökstyðja megi að þjónusta
skuli vera á fleiri en einum spítala?
Þetta voru meðal annars viðfangs-
efni sem voru til umfjöllunar.
í fámennu þjóðfélagi eins og við
búum í, er ekki alltaf hægt að yfir-
færa reynslu og þekkingu fjölmenn-
ari þjóða í heilbrigðismálum án sér-
stakra staðfæringa. Borgarspítali
og Landspítali gegna lykilhlutverki
í heilbrigðisþjónustu allra lands-
manna. Þess vegna er nauðsynlegt
að vel takist til um samvinnu og
verkaskiptingu þessara tveggja
spítala og að við nýtum alla þá
reynslu og þekkingu annarra þjóða
sem kemur okkur að gagni.
Fjárveiting af skornum
skammti
Takmarkað fjármagn hefur veru-
lega háð stjórnendum í sjúkrahús-
rekstri á undanförnum árum sem
oft og tíðum hefur valdið starfsfólki
og sjúklingum þungum áhyggjum.
Það hefur líka sannast hér sem
annars staðar að „neyðin kennir
naktri konu að spinna". Starfsfólk
hefur þrátt fyrir mikið persónulegt
óhagræði oft og tíðum sýnt ótrúlegt
hugmyndaflug og mikla fram-
kvæmdagleði í að leysa hin flókn-
ustu verkefni á hagkvæman hátt
með þarfir sjúklinga í huga. Gripið
hefur verið til ýmissa hagræðinga-
raðgerða, sem dæmi má nefna að
hjúkrunarfræðingar hafa endur-
skipulagt vörunotkun, endurskoðað
mótunaráætlanir og vinnutilhögun,
aukið eftirlit með allri starfsemi,
tekið afdráttarlausari afstöðu um
hvað sé nauðsynlegt í umönnun og
hvað ekki og þannig mætti lengi
telja.
Aukið álag og aukin afköst
Ofangreindar aðgerðir hafa ekki
farið fram hjá sjúklingum. Þeir
dvelja skemur inni á sjúkradeildum,
þar sem reynt er að þjappa saman
flókinni meðferð og umönnun á sem
allra stystan legutíma. Þessi sam-
þjöppun á þjónustu hefur leitt til
mjög aukins álags á allt starfsfólk
og um leið hafa afköst aukist. Sam-
fara þessari þróun hækkar rekstrar-
kostnaður á hvern legudag. Sjúk-
lingarnir fara veikari heim en fyrir
nokkrum árum. Þessi þróun hefur
að sjálfsögðu haft þau áhrif á
starfsfólk og starfsemi heimahjúkr-
unar og heimilishjálpar að bæst
hefur við þeirra stóra hóp skjólstæð-
inga nýr hópur veikra sjúklinga,
sem áður dvaldi á sjúkrahúsum.
Sigríður Snæbjörnsdóttir
„Ljóst er, að mikið
þrekvirki hefur verið
unnið inni á sjúkrahús-
um, sérstaklega í því
að halda uppi gæðum
annars vegar og halda
niðri kostnaði hins veg-
ar. Alltof lítið er gert
úr þessum staðreynd-
um. Ég þekki til rekst-
urs ýmissa sjúkrahúsa
bæði austan hafs og
vestan. Ég held að full-
yrða megi að óvíða er
veitt jafn mikil og góð
þjónusta á sjúkrahúsum
og veitt er hér í Reykja-
vík fyrir jafnlítinn
kostnað.“
Ljóst er, að mikið þrekvirki hefur
verið unnið inni á sjúkrahúsum,
sérstaklega í því að halda uppi
gæðum annars vegar og halda niðri
kostnaði hins vegar. Alltof lítið er
gert úr þessum staðreyndum. Ég
þekki til reksturs ýmissa sjúkrahúsa
bæði austan hafs og vestan. Ég
held að fullyrða megi að óvíða er
veitt jafn mikil og góð þjónusta á
sjúkrahúsum og veitt er hér í
Reykjavík fyrir jafnlítinn kostnað.
Astæðurnar eru eflaust margar en
ein aðalástæðan er sú að við höfum
á að skipa mjög hæfu og vel mennt-
uðu starfsfólki sem getur metið
aðstæður og tekið ákvarðanir um
hvaða meðferð og umönnun sé
nauðsynleg lrveiju sinn, bæði með
tilliti til lengri og skemmri tíma.
Fjárfesting í menntun heilbrigðis-
starfsfólks skilar sér á öllum stigum
heilbrigðisþjónustunnar.
Erfiðar ákvarðanir hverfa
ekki þótt þeim sé frestað
Því miður er svo komið nú, að
ekki verður meiri þjónusta fengin
fyrir það fjármagn sem fyrir hendi
er. Forgangsröðun verkefna verður
erfiðari með hverjum mánuðinum
sem líður og er nauðsynlegt að
meta hvort rétt hefi verið að henni
staðið til þessa. Nauðsynlegt er að
endurskoða rækilega hvernig fjár-
magni er skipti milli höfuðborgar-
svæðisins og landsbyggðarinnar
annars vegar og hvernig fjármagni
er skipti milli steinsteypu og launa-
og rekstrarkostnaðar hins vegar.
Það vita allir sem þekkja til rekst-
urs heilbrigðisþjónustu að öll
vandasamasta, kostnaðarsamasta
og sérhæfðasta þjónustan er og
verður á Borgarspítala og Landspít-
ala. Það er því hróplegt óréttlæti
að fýlgjast með, oft og tíðum,
hvernig fjármagni hefur verið út-
hlutað út um allar byggðir landsins
í engu samræmi við verkefnin sem
þar eru leyst af hendi á meðan stóru
sjúkrahúsin í Reykjavík eru snið-
gengin í fjárveitingum.
Ábyrgð stjórnmálamanna og
stjórnenda er mikil þar sem fjárveit-
ing til heilbrigðismála er til umræðu
og ákvörðunar. Ekki er hægt að
víkja sér undan þeim erfiðu ákvörð-
unum sem staðið er frammi fyrir,
en jafn augljóst er að ekki verður
öllum gert til hæfis. Það er skylda
þeirra sem fara með opinbert fé að
nýta það á sem allra skynsamastan
hátt en ekki að láta hentistefnu eða
tímabundnar vinsældir ráða ferð-
inni.
Höfundur er hjúkrunnrforstjóri
Borgarspítalans og 10. maðurá
lista Sjálfstæðisflokksins til
borgarstjórnarkosninga í vor.
TILBOÐ
Kr19,700f"tgr
STIGA kurlari 1300 W, sem
endurnýtir næringuna úr garð-
inum. Fjölbreytt úrval af sláttu-
vélum, valsavélum, loftpúöavél-
um, vélorfum, limgerðisklippum,
jarðvegstæturum, mosatæturum,
snjóblásurum o.fl.
/TIGFk
HAMRABORG 1-3
KÖPAVOGl SfWll 91-641864
V^terkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiöill!
Davíð S. Jónsson & C o . hf. sími 91-24333
varða
víðtæk
f jármálaþjónusta
Landsbanki
íslands
Bankl allra landsmanna
„Jöfn dreifing
útgjalda
... gjörið svo vel“
Pú gerir fjárhagsáætlun fyrir næstu 12
mánuði og þjónustufulltrúinn sér um
aö dreifa útgjöldunum jafnt á árið.
Varðan vísar þér leiðina að
fyrirhyggju í fjármálum.