Morgunblaðið - 26.04.1994, Side 39
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. APRIL 1994
39
Kjósum konur
eftir Þórönnu
Pálsdóttur
í komandi bæjar- og sveitar-
stjórnarkosningum er kjósendum
eins og endranær mikill vandi á
höndum. Kvennalistinn í Kópavogi
býður Kópavogsbúum upp á nýja
pólitík sem tekur mið af þörfum
kvenna og fjölskyldna þeirra. Um
þessar mundir keppast núverandi
bæjarfulltrúar um að sýna og
sanna ágæti sitt og karpa um leið
sín í milli á síðum dagblaðanna.
Meirihlutinn stærir sig af gerðum
sínum og minnihlutinn tætir niður.
Tölur og línurit eru misvísandi og
erfitt að greina hvað rétt er. Þetta
er hin hefðbundna aðferð sem
notuð þegar ætlunin er að segja
kannski ekki nema hálfan sann-
leikann.
Konur til áhrifa og valda í
bæjarslgórn
Konur í Kvennalistanum bjóða
nú fram starfskrafta sína í annað
sinn til að breyta umræðunni, hafa
áhrif á forgangsröðunina og koma
sjónarmiðum kvenna og fjöl-
skyldna þeirra að. í bæjarstjóm
Kópavogs hefur um nokkurra ára
skeið verið við lýði mikið karla-
veldi. í bæjarstjórn sitja 7 karlar
og 4 konur og ekki er neinni konu
treyst til að sitja í bæjarráði, en
þar sitja 5 bæjarfulltrúar. Ef eng-
ar breytingar verða í ár fækkar
konum í bæjarstjórn. Er það vilji
Kópvogsbúa að hlutur kvenna
minnki úr 36% í 27%? Við uppstill-
ingu á framboðslistum í Kópavogi
í vor hefur hlutur kvenna veikst
mjög. Konur færast niður eftir list-
unum og áhrif þeirra minnka. Þær
eiga enn erfiðara en áður með að
koma málum, sem brenna á kon-
um, á framfæri og standa vörð
um mikilvæg málefni, sem ekki
skilja eftir sig augljós minnismerki
eins og hús og götur. Þessu viljum
við Kvennalistakonur breyta. Við
bjóðum fram sterkar konur til að
hafa áhrif i bæjarstjórn.
Eflum miðbæinn
Lengi vel var skipulag bæjarins
heldur losaralegt. Menn settu nið-
ur hús og hús eftir hendinni. Fyr-
ir u.þ.b. aldarfjórðungi var ákveðið
að breyta um stefnu, taka skipu-
Iagið föstum tökum og skapa hér
líflegan og aðlaðandi miðbæ, þar
sem bæjarbúar gætu verslað og
fengið alla nauðsynlega þjónustu.
Miðbærinn er risinn, en ekki nema
til hálfs og ósköp er ráðaleysið
mikið við að ljúka verkinu. Enn
sem komið er hefur ekki tekist að
skapa grundvöll fyrir iðandi mann-
líf á miðbæjarsvæðinu. Margar
byggingar standa þar auðar og
raunar víðar um bæinn. Margt er
samt vel gert á svæðinu en nú
þarf að endurskoða allt skipulag
þess og efna til samkeppni um
verkið í held. Það er tímaskekkja
að Ieita ekki eftir hugmyndum um
mikilvægustu málefni bæjarbúa
eins og skipulagsmálin eru. Tilvist
skipulagsskrifstofunnar tryggir
ekki endilega bestu lausnina. Það
er á ábyrgð bæjarstjómar að
Kópavogsbúar eignist miðbæ sem
þeir geta verið stoltir af. Það þarf
að greiða fyrir smárekstri og
skapa aðstæður fyrir smáiðnað í
miðbænum. Ef til vill mætti breyta
einhveiju af þessu auða húsnæði
í miðbænum í menningarmiðstöð
með minni tilkostnaði en byggja
nýja. Þetta viljum við Kvennalista-
konur m.a. athuga þegar við kom-
umst í bæjarstjóm. Það þarf að
leita markvisst eftir ódýrari leiðum
til að stemma stigu við skuldasöfn-
un bæjarins. Kópavogsbúar hafa
of lengi þurft að sitja uppi með
dýrar og hálfkláraðar byggingar
eins og t.d. Listasafnið og sund-
laugina sem hefur verið í byggingu
í 30 ár og enn er langt í land að
hún verði fullgerð.
Unglingar og samgöngur
Mikið er rætt og ritað um um-
hverfismál og umhverfísvernd.
Tvískinnungur er mikill í því hvað
umhverfisvemd er. Hér í bæ virð-
ist umhverfísvemd snúast um
gatnagerð til að greiða fyrir notk-
un einkabíla. Mun áhrifaríkari leið
til umhverfisvemdar er að draga
úr notkun einkabfla. Það á einnig
að vera verkefni hverrar bæjar-
stjórnar að sjá til þess að bæjarbú-
ar komist á sem einfaldastan og
öruggastan hátt milli staða hvort
sem er gangandi, hjólandi eða með
almenningsvögnum. Góðar al-
menningssamgöngur er hags-
munamál íjölskyldunnar. í Kópa-
vogi er einn tónlistarskóli, einn
myndlistarskóli og æfingar
íþróttafélaganná em dreifðar um
allan bæ. Foreldrar em á sífeldum
akstri um bæinn og vilja ekki að
böm fari hjólandi vegna slysa-
hættu. Engar hjólabrautir em
meðfram helstu umferðarleiðum.
Sem foreldri hef ég lengi furðað
mig á hvers vegna unglingar nota
ekki strætisvagna. Það gerði ég
sjálf sem unglingur hér í bæ fyrir
rúmum aldarfjórðungi. Þá var einn
vagn sem fór „hringinn“ í bænum
og tók það á annan tíma. Það
þótti ekkert tiltökumál að sitja í
strætó hálftíma eða meir. Það vill
gleymast að tímaskortur hijáir
ekki æskuna eins og okkur full-
orðna fólkið. Ástæðan fyrir því að
unglingar nota ekki strætó er að
það er dýrt. Ferðir fyrir Austurbæ-
ing með strætó í sundlaugina
kosta 220 krónur fyrir 14 ára
ungling og 110 krónur fyrir 10
ára barn. Fyrir 25 ámm gátum
við sem sóttum skóla til Reykjavík-
ur fengið miða á bæjarskrifstof-
unni með það miklum afslætti að
i 12, siaii 44433.
í Kaupmannahöfn
F/EST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁÐHÚSTORGI
Þóranna Pálsdóttir.
„Bæjarstjórnin sinnir
ekki ungling-unum og
þrátt fyrir margendur-
teknar beiðnir um fé-
lagsmiðstöðvar í aust-
urbæinn gerist ekki
neitt.“
um munaði. Er það ekki liður í
umhverfisvænu uppeldi að venja
börn og unglinga á að nota al-
menningssamgöngutæki? Það þarf
að selja farmiða í strætó, sem
nota má innanbæjar, með miklum
afslætti. Það væri tilraun til að
létta á akstri foreldra og þörfínni
á tveimur bílum á hveiju heimili.
Veðrið er stundum þannig að
ástæða er til að fara í strætó á
einni stoppistöð og úr á þeirri
næstu. Hér er á ferðinni mjög
mikilvægt mál, sem varðar fjöl-
skylduna á marga vegu, mál sem
bærinn getur sinnt mun betur en
hann gerir nú. Hagræðing í stræt-
isvagnarekstri með það eitt að
markmiði að lækka rekstrarkostn-
aðinn er ómarkviss og getur verið
fjandsamleg íbúunum.
Ófélagsbundnir unglingar -
félkgsmiðstöðvar
Bæjarstjómir Kópavogs hafa á
undanförnum árum lagt mikið af
mörkum til íþróttafélaga bæjarins
og er það vel, en betur má ef
duga skal. Hér í bænum er, eins
og í öðmm bæjarfélögum, stór
hópur barna og unglinga sem ekki
er í neinum félögum. Það hentar
ekki öllum að stunda íþróttir eða
skipulagt tómstundastarf. Til að
koma til móts við þennan hóp
þarf bærinn að koma upp félags-
miðstöðvum. Austurhluti bæjarins
hefur vaxið hratt undanfarin ár
og eins og oft vill verða þegar
uppbygging bæjarhluta er mjög
hröð vilja unglingarnir gleymast.
Þau fá engan samastað. Bæjar-
stjórnin sinnir ekki unglingunum
og þrátt fyrir margendurteknar
beiðnir um félagsmiðstöðvar í
austurbæinn gerist ekki neitt.
Málinu er drepið á dreif með því
að karpa um hvort félagsmiðstöðv-
ar eigi að vera í skólunum, mið-
bænum eða einhvers staðar annars
staðar. Þetta eru óviðunandi
vinnubrögð. Á meðan á þessu
karpi stendur eru margir ungling-
ar í reiðileysi og vandamálin hlað-
ast upp. Þessum unglingum hefur
ekki einu sinni verið gert kleift
að komast á ódýran hátt í Ekkó,
félagsmiðstöðina í vesturbænum.
Málið snýst ekki um húsnæði held-
ur um það hvar unglingarnir eru
og hvernig þeir hafa það. Bæjar-
stjórninni er skylt að leysa þetta
mál í samvinnu unglingana og
foreldra þeirra. Það þarf að ráða
fagfólk til að sjá um félagsmið-
stöðvar. Það getur varla verið
raunhæf lausn fyrir þann stóran
Qkuskóli
Islands
Námskeið tii aukinna ökuréttinda
(meirapróf) hefst 16. maí nk.
Á sama tíma hefst rútunámskeið og fylgir
því ókeypis skyndihjálparnámskeið.
Innritun stendur yfír.
Geymið auglýsinguna.
Okuskóli Islands hf.,
Dugguvogi 2, sími 683841.
ys*
NÁMSREIÐ í WINDOWS FORRSTUN
- fyrir forritara
Efni:
■ Saga Windows (1.0, 2.0.WIW3.1/3.11)
- Framtíð (Chicago/Win 4.0, Daytona/NT 3.11,
Cairo/NT 4.0)
- Windows högun
- Forritaskil (API, WOSA, MAPI, ODBC, OLE, TAPI,
Pen, Fjölmiðlun)
- Forritunarumhverfi (VB, VC++, SDK, TPW,
Access, Paradox, Excel...)
- SDK forritun
- Forritahönnun i viðbragðs umhverfi
- Úttak (GDI, skjár, prentari, skrá)
- Inntak (Mús, lyklaborð, klukka)
- Minnisstjómun
- Upplýsingaöflun (Bækur, blöð, CD diskar o.fl.)
- Aðaláhersla á C forritun með SDK
Undirstaða:
- Þekking á forritun í C, Pascal eða Fortran er æskileg.
Leiðbeinandi:
- Björn R. Sveinbjömsson, kerflsfræðingur.
Námskeiðið hefst 7. maí. Innritun er hafln í síma 616699.
Tölvuskóli Reykiavíkur
BORGflRTÚNI 28.105 REVKJAVÍK, sími 616699. fax 616696
hóp af unglingum sem ekki stund-
ar íþóttir, hefur engan áhuga á
íþróttum og vill helst ekki í íþrótta-
hús koma, að láta íþróttafélögin
ein sjá um að rekstur félagsmið-
stöðvar.
Hér að ofan hefur verið bent á
fáein atriði sem betur mega fara
en þaireru mörg málin sem ekki
hafa verið nefnd. Ég hvet alla
Kópavogsbúa til að kynna sér
stefnumál Kvennalistans fyrir
komandi bæjarstjórnarkosningar
og veita Kvennalistakonum braut-
argengi til að breyta áherslum í
bæjarstjórn. Það þarf sterkar kon-
ur í bæjarstjóm til að standa vörð
um mikilvæga málaflokka.
Höfundur er veðurfræðingur og
skipar fjórða sæti á lista
Kvennalista í Kópavogi.
Bílamarkaöurinn
Smiðjuvegi 46E
V/ReykjanesbrauC
Kopavogí, sími
S7180O
Tilboðsverð: Range Rover 4ra dyra '84,
hvítur, sjálfsk., ek. 129 þ.t sóllúga o.fl.
Gott eintak. Selst á kr. 630 þús. stgr.
(vegna flutnings erlendis).
MMC Colt GU '93, rauður, 5 g., ek. að-
eins 2 þ. km. V. 1040 þús.
MMC Lancer EXE '92, sjálfsk., ek. 31 þ.,
rafm. í rúöum, central læsing o.fl. V. 1090
þús., sk. á ód.
Nissan Sunny 1600 SLX 4x4 '90, 5 g.,
ek. 70 þ., rafm. í rúðum o.fl. V. 830 þús.,
sk. á ód.
Renault 21 GTX Nevada 4x4 station
'90, dökkgrænn, 5 g., ek. 61 þ., rafm. í
rúðum o.fl. V. 1180 þús., sk. á ód.
MMC Colt GTi '89, rauður, 5 g., ek. 90
þ., álfelgur, rafm. í rúðum o.fl. V. 830 þús.
Honda Civic '86, grár, 4ra dyra, sjálfsk.,
ke. 71 þ. V. 340 þús.
Daihatsu Charade CX '88, rauöur, 5 dyra,
5 g., ek. 80 þ. V. 390 þús.
MMC Lancer GLXi hlaðbakur '90,
sjálfsk., ek. 52 þ., rafm. í rúðum o.fl.
V. 850 þús.
Honda Civic Sedan LSi '92, sjálfsk., ek.
36 þ. Sem nýr. V. 1290 þús.
Subaru Legacy Arctic 2,0 '93, 5 g.. ek.
aðeins 9 þ., álfelgur, rafm. í rúðum o.fl.
V. 2060 þús., sk. á ód.
Toyota 4Runner EFi '85, rauöur, 5 g., ek.
113 þ., sérskoöaður, 35“ dekk, 4:10 hlut-
föll, sóllúga o.fl. Gott eintak. V. 1080 þús.
Nissan SLX 1.6 station 4x4 '91, 5 g.,
ek. 31 þ., rafm. í öllu. V. 1090 þús.
Toyota Corolla XL '88, 3ja dyra, 4 g., ek.
61 þ., reyklaus. V. 520 þús.
Toyota Carina II GLi 2000 '90, sjálfsk.,
ke. 70 þ., m/öllu. V. 990 þús.
Nissan Sunny 1600 SLX 4x4 '90, 5 g.,
ek. 70 þ., rafm. í rúðum o.fl. V. 830 þús.,
sk. á ód.
Toyota Corolla STD '90, rauður, 4 g., ek.
79 þ. V. 590 þús.
MMC Colt GLX '89, rauður, 5 g., ek. 85
þ. V. 690 þús., sk. á ód. *
Daihatsu Charade TX '90, 5 dyra, 5 g.,
ek. 73 þ. V. 590 þús.
Subaru Justy J-12 '87, 5 g., ek. 96 þ.,
sóllúga o.fl. V. 390 þús.
Nissan Micra GL ’91, 5 g., ek. 45 þ.
Toppeintak. V. 590 þús.
MMC Pajero V-6 '91, 5 g., ek. 40 þ., ál-
felgur, rafm. í rúðum o.fl. V. 1890 þús.,
sk. ó ód.
Fjörug bílaviðskipti
Vantar góða bfla á sýningarsvæðið.