Morgunblaðið - 26.04.1994, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. APRÍL 1994
55 '
Vegna mikillar aðsóknar sýnum við
TOMBSTONE í A-sal í 3 daga
Einn aðsóknar-
mesti vestri fyrr
og síðar í Banda-
ríkjunum.
★ ★★S.V., Mbl.
★ ★ ★Ó.H.T., Rás 2.
Sýnd kl. 4.40,6.50,9
og 11.15.
Bönnuð innan 16 ára.
FRA LEIKSTJORA „ROCKY“
OG „KARATE KID“
Luke Perry (úr Beverly Hills
þáttunum),
Stephen Baldwin og Cynthia
Geary
Byggð á sannri sögu um Lane
Frost, sem varð goðsögn í Banda-
ríkjunum. Lane varð ríkur og
frægur og var líkt við James
Dean. Konur elskuðu hann,
menn öfunduðu hann og enginn
gat sigrað hann.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
9 og 11.
Bönnuð innan
14 ára.
SÍMI: 19000
Sami leikstjóri og leikstýrði „Betty Blue“.
Stórskemmtileg og fyndin spennumynd um ótrúlegt ferðalag þremenninga, sem
fátt virðast eiga sameiginlegt.
Aðalhlutverk: Yves Montand (síðasta kvikmynd þessa vinsæla leikara),
Oliver Martinez og Sekkou Sall. Leikstjóri: Jean-Jacques Beineix.
Sýnd kl. 5 og 9.
PÍAIMÓ
Þreföld Óskarsverðlaunamynd.
Sýnd kl. 4.50, 6.55,9 og 11.05.
Miðav. kr. 350
Far vel frilla mín
Sýnd kl. 9
Bönnuð innan 12 ára.
KRYDDLEGIIM HJÖRTU
Aðsóknarmesta erlenda myndin í
Bandaríkjunum frá upphafi.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Miðav. kr. 350
Hetjan Toto
Sýndkl. 5og7 Bönnuðinnan 12ára.
Miðav. kr. 350
Miðav. kr. 350
LÆVÍS LEIKUR Pottþéttur spennutryllir
Sýnd kl. 5,7,9 og 11. Bönnuð innan 16 ára.
Miðav. kr. 350
Níu efstu menn D-listans í Neskaupstað.
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Framboðslisti D-listans 1 Neskaupstað
Neskaupstað.
SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN
hefur ákveðið framboðslista sinn
til sveitarstjórnarkosninganna í
vor. Annar núverandi bæjarfull-
trúi flokksins, Stella Steinþórs-
dóttir, gefur ekki kost á sér til
áframhaldandi setu í bæjarsljórn.
Framboðslistinn er þannig skipað-
ur: 1. Magnús Sigurðsson, bæjarfull-
trúi, 2. Gunnar Á. Karlsson, bakara-
meistari, 3. Magnús D. Brandsson,
fulltrúi, 4. Jóna Jóhanna Steindórs-
dóttir, bóndi, 5. Guðmundur Sigfús-
son, tæknifræðingur, 6. Pálmi Stef-
ánsson, tannlæknir, 7. Jón Kr. Ólafs-
son, rafvirki, 8. Stella Steinþórsdótt-
ir, verkamaður, 9. Kristján Kristjáns-
son, 10. Tómas Zoéga, rafvirkja-
meistari, 11. Helgi Magnússon, vél-
virki, 12. Kristín Guðmundsdóttir,
húsmóðir, 13. Gísli Garðarsson, skip-
stjóri, 14. Bjöm Brynjarsson, raf-
virki, 15. Tómas Kárason, sjómaður,
16. Guðrún Ósk Hrólfsdóttir, nemi,
17. Þorgrímur Þorgrímsson, vélvirki
og 18. Magni Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri. - Ágúst.
Svanasöngur Montands
Kvikmyndir
Amaldur Indriðason
IP5 („IP5 — L’lile aux phchid-
ermes'j. Sýnd í Regnboganum.
Leikstjóri: Jean-Jacques Bei-
neix. Handrit: Beineix og Jacqu-
es Forgeas. Aðalhlutverk: Yves
Montand, Olivier Martinez,
Sekkou Sall, Geraldine Pailhas
og Colette Renard.
Einhver skemmtilegasta myndin
sem sýnd hefur verið á undanförn-
um kvikmyndahátíðum Frakka í
Reykjavík er IP5 — Fílaeyjan, sem
sýnd var hér á franskri kvikmynda-
viku árið 1992. Hún er kannski
þekktust fyrir að vera síðasta bíó-
mynd franska leikarans og
skemmtikraftsins Yves Montands
en hún er nú komin á almennar
sýningar í Regnboganum með ís-
lenskum texta. Montand lést
skömmu eftir að hann lék í síðasta
atriði sínu í myndinni en hún er
gerð af einum fremsta leikstjóra
Frakka, stílistanum Jean-Jacques
Beineix. Tvær myndir hans eru
Islendingum að góðu kunnar, tryll-
irinn glæsilegi „Diva“ og hin róm-
antíska og erótíska „Betty Blue“.
IP5 er frá árinu 1992 og er á
mjög umhverfisvænum og nýald-
arlegum nótum í frásögn af þrem-
um ólíkum mönnum af ólíkum kyn-
slóðum sem lenda saman á ferða-
lagi hver í sínum tilgangi. Myndin
hefst í dimmri stórborgarfirringu
Frakklands nútímans en boðar aft-
urhvarf til náttúrulegra gilda og
er á sína frönsku vísu í raun um
leitina að þessu sleipa kvikindi, sem
fáir vita nákvæmlega hvernig á að
skilgreina en kallast ást. Á suma
vegu ber myndin svolítinn keim af
Börnum náttúrunnar, annarri ljúfri
og ljúfsárri vegamynd sem ferðast
úr borg í sveit í leit að fortíð og
fábrotnara en auðugra lífi.
Montandpersónan er helsta ráð-
gáta myndarinnar. Hvað hann er
fæst aldrei uppgefið nákvæmlega.
Er hann seiðkarl gæddur töfrum
náttúrunnar eða dýrlingur, helgur
maður með lækningarmátt í sér-
stöku sambandi við náttúruna og
aðallega tré skógarins? Hann verð-
ur á vegi tveggja stórborgarbarna,
tólf ára blökkudrengs og araba um
tvítugt, þegar þeir stela bíl sem
vill svo til að hann sefur í og sam-
an ferðast þeir um fallegar sveitir
Frakklands. Eldra borgarbarnið er
listfenginn veggjakrotari en þann
yngri dreymir um að sjá einhvern
tímann snjó í lífi sínu. Þetta er
þríeyki sem á vel saman.
Beineix hefur gott og næmt
auga fyrir hinum myndræna og IP5
er gullfallega tekin af samstarfs-
manni hans, Jean-Francois Robin.
Myndin er fyndin og skemmtileg
og hjartnæm og harmræn í senn
um samspil manns og náttúru. Hún
er umhverfisvæn í lýsingu sinni á
galdrinum sem býr í náttúrunni en
ekki síður mannvæn í kómískri frá-
sögn sinni um galdurinn sem býr
í hreinni vináttu, fornum ástum og
nýjum og ekki síst samkennd ein-
staklinga af ólíkum kynþáttum.
IP5 er vel leikin af félögunum
Olivier Martinez og Sekkou Sall,
sem eru vinirnir tveir úr borginni,
en Montand gnæfir yfir myndinni.
Hann er stórkostlegur í siðasta
hlutverki sínu, aldinn og vís sérvitr-
ingur. Allt það besta við þessa
hrífandi mynd er tengt honum og
minningu hans á einhvern hátt.
Amnesty um mannréttindabrot i Kólumbíu
Hópar innan hers-
ins stunda „félags-
legar hreinsanir“
í KOLUMBÍU er löng lýðræðisleg hefð, en þrátt fyrir það hefur herinn
mikil ítök í stjórn landsins. Langvinnar deilur milli skæruliðahópa, eitur-
lyfjabaróna og hersins hafa kostað þúsundir manna lífið. Hópar innan
hersins stunda „félagslegar hreinsanir" þar sem á skipulagðan hátt er
útrýmt heimilisíausum, götubörnum, hommum, lesbíum, vændiskonum,
grunuðum afbrotamönnum og fólki sem hefur haft afskipti af mannrétt-
indamálum. Stjórnvöld hafa sýnt vilja til að virða mannréttindi en virð-
ast ekki hafa stjórn á dauðasveitum hersins. Þetta kemur fram í bréfi,
sem íslandsdeild Amnesty International hefur sent Morgunblaðinu.
Presidente de la República, Palacio
se Narino, Bogotá, Columbia. Fax:
Þann 29. janúar 1992 var Blanca
Velero de Durán skotin í návígi af
tveimur borgaralega klæddum mönn-
um. Samkvæmt vitnum voru þrír lög-
reglumenn vitni að atburðinum, en
aðhöfðust ekkert. Þann 4. janúar sl.
viðurkenndu tveir sjóliðar opinberlega
að þeir hefðu verið fengnir til verks-
ins af leyniþjónustu hersins. Blanca
Velero de Durán var ritari mannrétt-
indasamtakanna CREDHOS.
Þann 4. júlí 1990 „hvarf“ Alirio
de Jesús Pradraza Becerra, lögfræð-
ingur og baráttumaður fyrir mann-
réttindum í Bogota í Kolumbíu. Hann
hafði haft yiðkomu í verslunarmið-
stöð á leiðinni heim úr vinnu. Sam-
kvæmt fjölmörgum vitnum námu 8
borgaralega klæddir menn, vel vopn-
um búnir, Dr. Pedraza á brott.
„Hvarf“ dr. Pedraza var strax til-
kynnt til umboðsmanns mannrétt-
inda. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
til að hafa upp á honum halda herinn
og lögregluyfirvöld áfram að neita
að hann sé í haldi. Tveir menn úr
ríkislögreglunni voru handteknir í
október 1992 vegna gruns um að
bera ábyrgð á hvarfi dr. Pedraza.
Þeir voru látnir lausir í júlí 1993 án
þess að koma fyrir rétt.
Amnesty International á íslandi
hvetur fólk til að skrifa til neðan-
greindra og fara fram á að morðið
á Blöncu og hvarf dr. Pedraza verði
rannsökuð og hinir ábyrgu sóttir til
saka. Bréfritarar eru einnig beðnir
um að hvetja stjórnvöld til að tryggja
öryggi þeirra sem starfa að mann-
réttindum.
President of Colombia, Senor
Presidente César Gaviria Trujillo,
+57 1 286 7434
Minister of Justice, Dr. Andrés
González, Ministro de Justicia, Min-
isterio de Justicia, Cerrera, No 9-63,
Bogotá, Columbia. Fax: + 57 1 284
0472.
------*-++-------
Borgara-
leg ferming
á sunnudag
SJÖTTA borgaralega fermingin
fór fram sunnudaginn 24. apríl í
Hafnarborg, menningar- og lista-
safni Hafnarfjarðar. Tuttugu ung-
menni og foreldrar þeirra tóku
þátt í athöfninni.
Kristín Steinsdóttir, rithöfundur,
Sigurður Sveinsson, íþróttamaður,
og Katla Einarsdóttir voru ræðu-
menn. Katla er fyrrverandi ferming-
arbarn úr fyrsta borgaralega ferm-
ingarhópnum. Einar Jónsson lék á
trompet og Camilla Söderberg og
Snorri Örn Snorrason léku á blokk-
flautu og theorba.
Borgaraleg ferming á íslandi byrj-
aði 1989 og nú hafa 105 unglingar
fermst á þennan hátt og rúmlega
1.400 manns verið viðstaddir athafn-
irnar. Félagið Siðmennt stendur fyrir
fermingunni og getur fólk sem hefur
áhuga á þvi eða á borgaralegri
nafngjöf eða útför haft samband við
Siðmennt.
'íí___________!_.««_.é&Á*. _ . .. --•.>.