Morgunblaðið - 15.06.1994, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Stórglæsileg 178 fm parhús á þessum eftirsótta stað
í grónu hverfi. Til afh. nú þegar tilb. að utan, fokhelt
að innan. Einnig er hægt að fá húsið lengra komið.
Áhv. 6 millj. húsbréf með 5% vöxtum. Verð 9,1 millj.
- Farðu strax að skoða! Húsið er opið.
Morgunblaðið/Kristinn
Þingið sett
UM 850 lyfjafræðingar frá Norðurlöndunum sækja nú þing í
Háskólabíói. Þetta er fjölmennasta þing norrænna lyfjafræðinga,
sem haldið hefur verið.
Birkihvammur 11 og 11 a - Kóp.
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 38A,
VIÐAR FRIÐRIKSSON,
; LÖGG. FASTEIGNASALI,
HEIMASÍMI 27072.
29077
Lausar íbúðir:
ÞJÓNUSTUÍBÚÐiR ELDRI
l
Stofuíbúö aö Fannborg 8 (Miðbæ Kópavogs)
2ja herb. íbúö aö Fannborg 8 (Yfirbyggt bílastæði) 1
3ja herb. íbúö viö Kópavogsbraut
Eldri umsóknir óskast endurnýjaðar.
Eyðublöð fást á skrifstofunni að Kópavogsbraut 1. |
Uppl. í síma 604100 virka daga kl. 8.00 -16.00. |
Viötöl og upplýsingar um valkosti eldri borgara
í húsnæðismálum mánudaga og miðvikudaga.
I
I
L -----,
• Öryggisvakt allan sólarhringinn
• Heitur matur alla daga
• Þjónustukjarni með fjölbreytta þjónustu
• Viðhald húsnœðis annast Sunnuhtíðarsamtökin
• Sunnuhlíðarsamtökin annast rekstur hjúkrunar-
heimilis, dagvistar og íbúða fyrir eídri borgara
21150-21370
LÁRUS Þ. VALDIMARSS0N, framkvæmdastjóri
KRISTJÁN KRISTJÁNSS0N, loggiltur fasteignasali
Til sýnis og sölu m.a. eigna:
Rúmgott einbhús - hagkvæm skipti
Nýl. timburh. m. innb. bílsk. á glæsil. útsýnisstað í Seljahverfi. Eigna-
skipti mögul. Góð lán áhv. Mjög góð kjör.
Á góðu verði við Álfheima
sóirík 3ja herb. íb. 85,3 fm á 1. hæð. Sérþvaðstaða. Sólsvalir. Geymsla
í kj. Húsið er nýsprunguþétt. Verð aðeins kr. 6,3 millj.
Lítil séríb. - stór bílskúr
Einstaklíb. 2ja herb. tæpir 50 fm nettó á jarðh./kj. v. Laugarnesveg.
Mjög góð. Sérinng. Sérhiti. Góð sér geymsla. Stór og góður bílsk.
(vinnuhúsnæði) 49,8 fm. Verð aöeins kr. 4,5 millj.
Góðar fbúðir á góðum kjörum
2ja herb. suðuríb. á 2. hæð v. Hraunbæ 53 fm. Sólsvalir. Útsýni. 40
ára húsnlán 3,1 millj. Tilboð óskast.
2ja herb. íb. á 7. hæð 63,6 fm i lyftuh. v. Kríuhóla. Ágæt nýstandsett
sameign. Yfirbyggðar svalir. Fráb. útsýni. Tilboð óskast.
Á söluskrá óskast
góð 3ja-4ra herb. íb. í borginni í skiptum f. glæsil.' sérhæð í nágr.
Vesturbæjarskóla. Óvenju hagst. greiðslukjör.
Ennfremur óskast eignir í gamla bænum. Mega þarfn. standsetn.
Syðst við Birkimel
sólrík íb. á 3. hæð um 80 fm. Góð sameign. Vins. staður. Tilb. óskast.
• • •
Viðskiptum hjá okkur fylgir
ráðgjöf og traustar upplýs-
ingar. Opið á laugardögum.
Norrænt þing um lyfjafræði
Fjölmennasta þing
fráupphafi
FJÖLMENNASTA norræna lyfja-
fræðiþing, sem hefur verið haldið
var sett í Háskólabíói á mánudag.
Þingið sækja um 850 lyfjafræðingar
frá Norðurlöndunum en þema þess
er „Fagmennska í lyfjafræði." Guð-
björg Edda Eggertsdóttir, forseti
þingsins, segir að þemað vísi. til
þess að starf lyfjafræðinga, sé að
færast frá því að afgreiða lyf yfir
í alhliða þjónustu.
„Til að mynda var Dr. Jo Asvall,
forstjóri Evrópuskrifstofu Alþjóða
heilbrigðismálastofnunarinnar
WHO, með mjög áhugaverðan fyrir-
lestur, þar sem hann hvatti apótek
til að taka upp þjónustu við reyk-
ingafólk, þ.e. að bjóða fólki, sem
vill hætta að reykja, upp á nám-
skeið. Hann taldi að það væri eitt
brýnasta verkefni í heilbrigðisþjón-
ustunnni í dag af því að reykingar
væru stærsta heilbrigðisvandamálið
í Evrópu,“ segir Guðbjörg Edda.
Leyft að auglýsa lyf
Með tilkomu EES-samningsins
mun lyfjamarkaðurinn breytast
töluvert hér á landi. Til dæmis má
auglýsa þau lyf, sem ekki þarfnast
lyfseðils, frá og með næstu mánað-
armótum. Þá verður því smám sam-
an á næstu fimm árum komið í
framkvæmd að ítarlegur upplýs-
ingaseðill fylgi með öllum lyfjum
þegar þau eru afhent. Frá 1. nóvem-
ber 1995 geta allir lyfjafræðingar
opnað apótek með samþykki við-
komandi sveitarfélags. Umhverfi
lyfjafræðinga mun því breytast
umtalsvert á næstu árum að mati
Guðbjargar Eddu og sú staðreynd
einkennir þetta þing. Þinginu lýkur
í dag, miðvikudag.
Eignahöllin
Suóurlandsbraut 20, 3. hæó.
Síml 68 OO 57
Við Laugardalinn
Parh. með tveimur íb. og bílsk. Aðalíb. 168 fm og minni íb. 54 fm
á jarðh. með sérinng. Bílsk. 36 fm. Verð um 15 millj. Makaskipti
mögul. og jafnvel sala í tvennu lagi.
Smáíbúðahverfi
Efri sérh. ca Í00 fm á rólegum stað við Hæðagarð. Yfirbygginga-
réttur. Vel umgengin íb. Laus fljótt. Verð um 8 millj.
Við Maríubakka
100 fm 3ja-4ra herb. íb. með miklu útsýni á besta stað í Bökkun-
um. Stórar svalir. Mjög stór geymsla í kj. Ekkert áhv. Verð um 7
millj.
Sérhæð í Garðabæ
Neðri hæð, jarðh. í tvíbýlish. við Hæöabyggð. Stærð 230 fm sem
skiptast í tvær íb. hvor með sérinng. Áhv. Byggsj. og húsbr. ca
4,8 millj. Makaskipti vel mögul. Eign sem gefur ýmsa mögul.
Fossvogur
3ja-4ra herb. íb. á miðhæð (2. hæð) í góðu húsi við Kelduland.
Falleg sameign. Stórar sólsvalir. Laus nú þegar. Gott verð. Ekk-
ert áhv. Góð fjárfesting.
Ásbraut - Kóp. - með bflskúr
4ra herb. vönduð íbúð á efstu hæð með sérinng. af svölum.
Glæsil. útsýni. Stór bílsk. með öllum lögnum fylgir. Verðmæt
sameign. Vel byggt hús á góðum stað. Áhv. Byggsj. ca 2,5 millj.
Laus eftir samkomul. Makaskiptu mögul.
Árbæjarhverfi - Kvíslar
Nýl. stórt raðh. með góðu útsýni. Tvennar svalir. Fallegur arinn.
Stór bílskúr. Glæsil. hús fyrir stóra fjölskyldu á góðum stað.
Skipti á minni eign (sérh.) koma til greina.
Leitum að
Verslunarhúsnæði í Reykjavík. .Ýmislegt kemur til greina.
Einnig vantar sórbýli í Garðabæ. Raðh. og/eða hæðir.
Sigurður S. Wiium, sölustj. heimas. 627788.
Nýir tím-
ar í lyfja-
fræði
LYFJAFRÆÐINGAR standa á
tímamótum. Áherslan í starfi
þeirra er að færast frá því að
selja eingöngu lyf, í að selja
lyfjameðferðir. Þetta segir
Nils-Olof Strandqvist, forseti
FIP, alþjóða-
samtaka
lyfjafræð-
inga. í FIP
eru 75 aðild-
arfélög frá
55 löndum
með samtals
um 300 þús-
und lyfja-
fræðingum
innanborðs.
Nils-Olof er sérstakur gestur á
Norræna lyfjafræðiþinginu,
sem nú er haldið í Háskóla-
bíói. Hann fjallaði þar um þá
þróun, sem mun eiga sér stað
innan lyfjafræðinnar fram að
aldamótum.
Undanfarin ár hefur sú þróun
átt sér stað um allan heim að
fleiri og fleiri lyf er hægt að fá
án lyfseðla. Þetta hefur gerst í
kjölfar sparnaðar í heilbrigðis-
kerfinu en lyf, sem hægt er að
fá án lyfseðils, þarf síður að
niðurgreiða. Samfara þessu hef-
ur fólk því orðið að reiða sig í
auknum mæli á ráðgjöf lyfja-
fræðinganna í apótekunum.
„Það er mjög mikilvægt,"
segir Nils-Olof Strandqvist, „
að öll lönd, þar á meðal Norður-
löndin, setjist niður og ræði við
yfirvöld hvernig best er hægt
að nýta krafta lyfjafræðinga í
heilbrigðiskerfinu. Þar á ég við
hvernig lyfjafræðingar geti ráð-
lagt sjúklingum en ekki bara
selt þeim lyf í þeim tilgangi að
græða peninga. Lyfjafræðingar
eru alltaf til staðar. Það þarf
ekki að bóka tíma fyrirfram,
maður einfaldlega gengur inn í
apótekið, spyr spurninga og fær
svör.“
Heilsa mikils fjölda í veði
Stefnumótandi áætlanir á
sviði lyfjafræðinnar fara fram á
mun víðari alþjóðlegum grund-
velli en innan ESB. Þess vegna
telur Nils-Olof aðspurður að það
muni ekki hafa áhrif á ísland á
þessu sviði að standa utan ESB.
Auk þess muni ísland taka upp
reglur ESB í gegnum EES.
Það er áætlað að sögn Nils-
Olof að um 20% til 25% af inn-
lögnum á sjúkrahús komi til af
rangri lyfjanotkun fólks. Heilsa
fjölda fólks og miklir fjármunir
eru því í húfí að lyfjameðferð
heppnist. Lyfjafræðingar verða
því að mati hans að fá að fylgj-
ast með lyfjameðferð sjúklinga
°g fylgja henni eftir allt frá
upphafi og til loka hennar. Þeir
verða, segir hann, að fá tæki-
færi til að grípa inn í ef of lítið
af lyfjunum eru tekin, of mikið
eða ef lyfin virka ekki á sjúkling-
inn.
Sjábu hlutina
í víbara samhengi!
- kjarni málsins!