Morgunblaðið - 06.12.1994, Qupperneq 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 6. DESEMBER 1994
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
skólar/námskeið
ýmislegt
■ Tréskurðarnámskeið
Fáein byrjendapláss laus eftir áramót.
Góð jólagjöf.
Hannes Flosason,
sími 91-40123.
tölvur
STJÓRNUNARFÉLAGS ÍSLANDS
▲ uu t ncruM ______
69 77 69 Q3)
62 10 66 NÝHERJI
■ Tölvuskóli í fararbroddi
Öll hagnýt tölvunámskeið.
Fáðu senda námsskrána.
■ Tölvunámskeið
- Windows 3.1.
- Word 6.0 fyrir Windows og
Macintosh.
- WordPerfect 6.0 fyrir Windows.
- Excel 5.0 fyrir Windows og
Macintosh.
- PageMaker 5.0 fyrir Windows/
Macintosh.
- Access 2.0 fyrir Windows.
- Paradox fyrir Windows.
- PowerPoint 4.0 fyrir Windows/
Macintosh.
- Tölvubókhald.
- Novell námskeið fyrir netstjóra.
- Word og Excel uppfærsla og
framhald.
- Unglinganám.
- Windows forritun.
Kennt er á nýjustu útgáfur og veglegar
kennslubækur fylgja öllum námskeiðum.
Upplýsingar og skráning
í sfma 616699.
Tölvuskóli Reykíavíkur
Borgartúni 28, sími 616899
Blab allra landsmanna!
- kjarni málsins!
BJORN EINAR
ÞORLÁKSSON
-I- Björn Einar Þorláksson
• fæddist í Eyjarhólum í Mýr-
dal 29. júní 1939. Hann lést i
Landspítalanum 5. júlí síðast-
liðinn og fór útför hans fram
frá Skeiðflatarkirkju í Mýrdal
9. júlí.
YEGIR guðs eru órannsakanlegir.
Ótímabært er að deyja 55 ára gam-
all, en honum mági mínum og
frænda okkar hefur verið ætlað
annað hlutverk á æðri stöðum sem
okkur fínnst erfítt að skilja. Minn-
ingar koma upp í hugann. Frá því
að ég kynntist Bjössa er mér efst
í huga hlýjan frá honum í minn
garð og barna minna. Og eftir að
bamabörnin mín fæddust voru þau
ekki undanskilin umhyggju hans.
Hvort sem hann kom í heimsókn
eða hringdi spurði hann alltaf
frétta af þeim öllum, því honum
var umhugað um velferð okkar
allra. Þökkum við fyrir það. En
nú verða heimsóknimar og símtöl-
in ekki fleiri og sköknuðurinn er
sár.
„Þó ég sé látinn, harmið mig
ekki með táum. Hugsið ekki um
dauðann með harmi og ótta: ég
er svo nærri að hvert eitt ykkar
tár snertir mig og kvelur. En þeg-
ar þið hlæið og syngið með glöðum
hug, lyftist sál mín upp í mót til
ljóssins. Verið glöð og þakklát fyr-
ir allt sem lífið gefur, og ég, þótt
látinn sé, tek þátt í gleði ykkar
yfir lífínu. (Ók. höf.)
Ég er sannfærð um að Bjössi
hlær manna mest á gleðistundum
með okkur eins og hann gerði áð-
ur. Elsku Rósa, Agla, Sindri, Sol-
veig, Ingibjörg, Haraldur og Brig-
it, það er aðdáunarvert hvað þið
sýnduð mikið æðraleysi í veikind-
um Bjössa. Guð styrki ykkur og
lýsi veginn framundan.
Guðrún, Viðar, Guð-
björg E. og fjölskyldur.
Skilafrestur vegna
minningargreina
Eigi minningargrein að birtast á útfarardegi (eða í sunnudagsblaði
ef útför er á mánudegi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnu-
dags- og þriðjudagsblað þarf grein að berast fyrir hádegi á föstu-
dag. í miðvikudags-, fimmtudags-, föstudags- og laugardagsblað
þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir
birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða
eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum
birtingardegi.
R AÐ AUGL YSINGAR
Fataframleiðsla
Óskum að ráða starfskraft til saumastarfa í
verksmiðju okkar, Faxafeni 12.
Upplýsingar gefur verkstjóri á vinnustað eða
í síma 889485.
SJÓKUEÐAGERÐIN HF
FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
A AKUREYRI
Verkefnastjóri íhjúkrun
Staða verkefnastjóra í hjúkrun er laus til
umsóknar. Staðan er 50% og er veitt í eitt ár.
Verkefni: Sálgæslu- og stuðningshópar.
Við ráðningu verður tekið tillit til menntunar,
faglegrar þekkingar og reynslu umsækjanda.
Umsóknarfrestur er til 18. desember 1994.
Umsóknum sé skilað á skrifstofu hjúkrunar-
forstjóra.
Nánari upplýsingar gefur Ólína Torfadóttir,
hjúkrunarforstjóri í síma 30271.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Sjómannafélag
Hafnarfjarðar
Stjórnarkjör fyrir árin 1995-’96. Listi stjórnar
og trúnaðarráðs liggur frammi á skrifstofu
félagsins á Strandgötu 11. Öðrum listum ber
að skila fyrir kl. 18.00 21. desember, en þá
er framboðsfrestur útrunninn.
Stjórnin.
Til sölu á Flúðum
Ferðamálasjóður auglýsir til sölu Smiðjustíg
9 á Flúðum.
Um er að ræða einlyft einbýlishús, samsett
úr 5 Moel-einingum. Húsið stendur á 900 fm
leigulóð í ágætri rækt.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Ferða-
málasjóði, Hverfisgötu 6, eða í síma 91-
624070.
Ferðamálasjóður.
Málverkauppboð
15. desember
Tekið er á móti verkum í Gallerí Borg við
Austurvöll frá kl. 12.00-18.00 virka daga.
érzzéMt/
BÖRG
v/Austurvöll,
sími 24211.
Greiðsla húsaleigubóta
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur ákveðið að
taka upp greiðslu húsaleigubóta fyrir árið
1995, í samræmi við lög nr. 100/1994.
Húsaleigubætur eru ætlaðar tekju- og eigna-
litlu fólki, sem leigir á almennum markaði.
Húsaleigubætur koma til greiðslu frá og með
næsta mánuði eftir að réttur til bóta hefur
verið staðreyndur.
Tekið ervið umsóknum hjá Félagsmálastofn-
un Hafnarfjarðar, Strandgötu 8-10.
Upplýsingabæklingur og umsóknareyðublöð
liggja þar frammi.
Umsóknarfrestur er 15. hvers mánaðar, í
fyrsta sinn 15. desember 1994.
Skilyrði húsaleigubóta eru m.a. eftirfarandi:
★ Að umsækjandi hafi lögheimili í Hafnar-
firði.
★ Að umsækjandi hafi þinglýstan húsa-
leigusamning til a.m.k. sex mánaða.
★ Að umsækjandi leigi íbúð, en ekki ein-
staklingsherbergi.
★ Að leiguhúsnæðið sé ekki í eigu bæjar
eða ríkis.
Hafnarfirði, 30. nóvember 1994.
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði.
Ejga íslendingar
að sækja um
aðild að ESB?
( kvöld, þriðjudaginn 6. desember, heldur Heimdallur, f.u.s., fund
um hvort (íslendingar eigi að sækja um aðild að Evrópusamband-
inu. Frummælendur verða Björn Bjarnason, formaður utanrikismála-
nefndar Alþingis, Vilhjálmur Egilsson, alþingismaður og fram-
kvæmdastjóri Verslunarráðs (slands, og Glúmur Jón Björnsson, efna-
fræðingur og féhirðir Heimdallar.
Fundurinn verður haldinn í Valhölll, Háaleitisbraut 1, og hefst kl.
20.30.
Boðið verður upp á kaffi og eru allir velkomnir.
IIFIMD.M I UK
f • U S
IOOF Rb.4 = 1441268 - Jv.
□HL(N 5994120619 IVA/ - 2
Frl.
□FJÖLNIR 5994120619 III 1
FRL
□EDDA 5994120619 I 1 FRL.
ATKV.
AD KFUK,
Holtavegi
Fundur ( kvöld kl. 20.30 við
Holtaveg. „Tákn aðventunnar",
sr. Karl Sigurbjörnsson sér um
efnið. Allar konur velkomnar.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Jólasamvera fyrir eldri safnaðar-
meðlimi ( dag kl. 15.00. Allir
hjartanlega velkomnir.
FERÐAFÉLAG
® ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SÍMI 682S33
Aðventu- og myndakvöld
miðvikudaginn 7. des.
Miðvikudaginn 7. des. nk. verður
Ferðafélagið með aðventukvöld
(Breiðflrðingabúð, Faxafeni 14,
sem hefst kl. 20.30. Myndasýn-
ing er tengist Árbðk F( 1994
„Ystu strandir norðan Djúps".
Þetta er sýning sem m.a. hefur
verið á (safirði og Akureyri, en
nú er komið að höfuðborgarbú-
um og nágrönnum að sjá þessa
frábæru sýningu. Sýndar verða
myndir frá svæðinu sem bókin
fjallar um teknar af Birni Þor-
steinssyni, Grétari Eiríkssyni
o.fl. Höfundur bókarinnar, Guð-
rún Ása Grímsdóttir mun flytja
skýringar með myndefninu.
Allir velkomnir, félagar og aðrir.
Aðgangur kr. 500 (veitingar inni-
faldar í verði). Hægt verður að
kaupa bókina á staðnum, árgjald
er kr. 3.100 og kr. 3.600 fyrir
innbundna bók.
Árbókin hefur vakið verðuga at-
hygli fyrir skemmtilegan frá-
sagnarstíl höfundar, góðar lit-
Ijósmyndir, staðfræðikort og allt
sem viðkemur frágangi góðrar
bókar. Gerist félagar í Ferðafé-
laginu og eignist þessa um-
töluðu bók. Tilvalin jólagjöf.
Ferðafélag (slands.