Morgunblaðið - 21.03.1995, Blaðsíða 8
MORGUNBLAÐIÐ
8 ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1995
FRÉTTIR
Handtekinn fyrir
ab vera meö þorsk
r Gri^AO SJD---9J'
Mundu nú að passa þig á helvítis þorskinum, Gvendur.
Áform um að fækka hjúkrunarrýmum fyrir aldraða
Stjórn Félags eldri
borgara mótmælir
Morgunblaðið/Árni Sæberg
FÉLAG eldri borgara í Reykjavík mótmælir áformum um fækk-
un hjúkrunarrýma vegna brýnnar þarfar í borginni. Frá vinstri:
Guðríður Ólafsdóttir, framkvæmdasljóri FEB, Páll Gíslason
formaður og Bergsteinn Sigurðarson, meðstjórnandi.
STJÓRN Félags eldri borgara í
Reykjavík mótmælir harðlega áætl-
unum um að fækka hjúkrunarrýmum
fyrir aldraða með fyrirhuguðum lok-
unum hjúkrunardeilda á Hvítabandi,
í Hafnarbúðum og í B-álmu Borgar-
spítalans og með flutningi sjúklinga
af hjúkrunardeild Heilsuvemdar-
stöðvarinnar yfir á Grensásdeild
Borgarspítalans.
í ályktuninni segir að á Hvíta-
bandi og í Hafnarbúðum dvelji að
jafnaði 45 sjúklingar með mikla
hjúkrunarþyngd. Einnig að ráðgert
sé að flytja þá sjúklinga á tvær nýj-
ar deildir á Landakoti, sem rúmi allt
að 40 sjúklinga, og þar eigi einnig
að koma fyrir 15 sjúklingum vegna
lokunar deildar í B-álmu Borgarspít-
alans.
196 í brýnni þörf
Þá segir að Reykvíkingar megi
ekki við fækkun um 20 hjúkrunar-
rúm. Samkvæmt vistunarmati hafi
ÞAÐ ER rangt að fækka eigi
hjúkrunarrýmum fyrir aldraða hjá
Sjúkrahúsi Reykjavíkur, segir Sigfús
Jónsson, formaður bráðabirgða-
stjómar sjúkrahússins.
Sigfús segir, að hið sanna í málinu
sé eftirfarandi. Ákveðið hefur verið,
eftir að um 40 m. kr. framlag fékkst
úr framkvæmdastjóri aldraðra, að
innrétta tvær deildir á Landakoti 2A
og 3B. Önnur deildin verður rekin
sem 18 rúma öldrunarlækningadeild
og þangað fluttir 14 sjúklingar af
deild B-4 á Borgarspítala. Hin deild-
in verður rekin sem 22 rúma hjúkr-
unardeild og þangað fluttir rúmlega
196 einstaklingar verið í brýnni þörf
fyrir að komast í hjúkrunarrými,
aldraðir sjúklingar sem ekki sé leng-
ur hægt að veita viðunandi hjúkrun
ogþjónustu í heimahúsum.
Á blaðamannafundi, þar sem
20 hjúkrunarsjúklingar úr Hafnar-
búðum. Með þessari aðgerð er rúm-
um_ fjölgað um 4-5.
Ákveðið var á fundi bráðabirgða-
stjómar Sjúkrahúss Reykjavíkur
þann 24. febrúar sl. að flytja sjúkl-
inga af Heilsuvemdarstöð á Grensás-
deild en sú ákvörðun er nú til endur-
skoðunar hjá stjórninni. Á sama
fundi var ákveðið að kanna m.a.
flutning sjúklinga frá Hvítabandi í
Heilsuvemdarstöð síðar á árinu. Með
því er einungis verið að kanna flutn-
ing á rúmum milli húsa til að auka
hagkvæmni í rekstri en ekki verið
að ræða um breytingu á fjölda rýma.
ályktunin var kynnt, kom fram að
félagið telur brýnasta verkefnið í
heilsugæslu eldra fólks í Reykjavík
fjölgun hjúkrunarrúma. Félagið
leggur ríka áherslu á að nú þegar
verði hafist handa um byggingu
hjúkrunarheimilis í Suður-Mjódd,
sem lengi hafi verið á dagskrá, og
að hægt verði að taka það í notkun
fyrir árslok 1996.
Auka þarf heimaþjónustu
í greinargerð með áðurnefndri
ályktun kemur fram að talið sé að
þörf sé fyrir 630 dvalarrými í Reykja-
vík. 368 dvalarrými séu til staðar
og því vanti 262. 709 hjúkrunarrými
séu til i borginni en þörfin metin 959
og því skorti 250.
„Augljóst er af samanburði við
önnur Iönd að við gætum aukið
heimaþjónustu og létt nokkuð af
þrýstingi á biðlista, en jafnframt er
ljóst að ekki verður komist hjá því
að lokum, að veita meiri hjúkrun og
aðhlynningu en hægt er að veita
heim og þá með vistun á hjúkrunar-
heimili.
Ástand mála í Reykjavík er þvílíkt
að ekki er hægt að fækka hjúkrunar-
rýmum og láta sparnaðarráðstafanir
bitna í slíkum mæli á þessari þjón-
ustu við aldraða borgara," segir í
niðurlagi greinargerðarinnar.
Hjúkrunarrúmum
fækkar ekki, að sögn
stj órnarformanns
Öfærð í Húnaþingi
Morgunblaðið/Karl Á. Sigurgeirsson
STEFÁN Gíslason, einn fjórtán flutningabílstjóra, sem teppt-
ust í bílum sínum milli Hvammstanga og Blönduóss.
Flutningalest
tepptí lVí
sólarhring
FJÓRTÁN vöruflutningabílar
voru tepptir í Línakradal
milli Hvammstanga og
Blönduóss frá aðfaranótt fímmtu-
dags fram á sunnudag. Bílstjórar
þeirra voru sóttir á snjóbíl björg-
unarsveitarinnar Káraborgar á
Hvammstanga og komu þeir á
Vertshúsið á Hvammstanga um
kl. 15 á föstudag. Morgunblaðið
fékk viðtal við bílstjórana, þegar
þeir höfðu nærst og náð áttum.
Bílarnir voru á tveim stöðum,
við Vatnshorn austan undir
Vatnsnesfjalli og einnig við Stór-
hól á Hrísahálsi. Tíu bifreiðir
voru að koma að sunnan, vöru-
flutningabifreiðar og einn olíu-
bíll, en fjórir gámaflutningabílar
voru á suðurleið. Þeir komu allir
á svæðið um kl. 2 aðfaranótt
fimmtudags og voru ökumennirn-
ir því búnir að vera tepptir í bílum
sínum í einn og hálfan sólar-
hring. Björgunarsveitin á
Hvammstanga reyndi að nálgast
þá síðdegis á fimmtudag, en varð
að hætta við vegna óveðurs.
Höfðu bílarnir samband við
Hjálparsveit skáta á Blönduósi
og fóru frá þeim tveir sérbúnir
bílár, jeppi og sendibíll, en kom-
ust ekki alla leið vegna óveðurs
og ófærðar. í annarri tilraun
Hvammstangasveitarinnar náðist
til iestarinnar, sem fyrr segir.
Bílstjórarnir lýstu ástandinu á
þá leið, að þeir hefðu átt von á
að Vegagerð ríkisins myndi opna
veginn á fimmtudagsmorgun,
eins og áætlun væri. Veðrið að-
faranótt fimmtudags hefði verið
slæmt og höfðu þeir
tafist um klukkustund
í ófærðinni vegna
jeppabifreiðar sem var
þarna á ferð. Sá tími
hafi skipt sköpum um
áframhald. Á fimmtudagsmorg-
un hafi verið skaplegt allt til kl.
10, en veðurspá slæm. Þeir voru
í sambandi við Vegagerðina á
Hvammstanga, sem sér um þenn-
an hluta hringvegarins, en svörin
hafi verið á þá leið að ekki yrði
opnað að svo stöddu. Þegar leið
á fimmtudagsmorguninn brast á
kolvitlaust veður, sem stóð fram
á laugardag. Bílunum var lagt
þétt, þannig að nokkurt skjól
myndaðist fyrir flesta. Þegar bíl-
arnir voru yfirgefnir voru aliir
olíulitlir, sumir frá í gær. Sumir
eru með kæli-/hitakerfí á flutn-
ingakössunum sem tengdir eru
aðalvél bílanna. Slík kerfi þurfa
talsverða orku, þannig að veruleg
eldsneytiseyðsla verður þótt bif-
reiðin sé kyrr. Þá voru bílarnir
mjög klammaðir, frosinn stýris-
gangur og olíukerfi og á sumum
var kominn snjór í lofthreinsara.
Farmur bílanna var marg-
breytilegur, ferskur fiskur, sem
átti að fara með flugfragt til út-
landa, ávextir og grænmeti, t.d.
5 tonn á einum bíl frá Sauðár-
króki, málning, vörulager í versl-
un, sem átti að opna á Akureyri
á laugardag, matvörulager á
Húsavík, kísilgúr, sem átti að ná
skipsflutningi í Reykjavík, spil í
fiskiskip og svo mætti Lengi telja.
í máli bílstjóranna kom fram,
að kröfur til flutningsaðila hafi
breyst mjög á örfáum árum.
Flutningar á ferskum físki eru
mjög miklir, bæði milli löndunar-
hafna og fiskvinnslustöðva og
ekki síst flutningur á flughöfn í
Keflavík. Þar má nánast engu
skeika. Þá hafa verslanir á lands-
byggðinni breytt mjög innkaupa-
venjum sínum og í sumum tilfell-
um eigi verslanir sinn vörulager
á flutningabílum. Nefnt var í
þessu sambandi Hagkaup á Ak-
ureyri og einnig verslanir á Húsa-
vík. Umbúðir vöru, t.d. ávaxta
0g grænmetis, hafi einnig breyst,
þannig að varan sé nú mun við-
kvæmari fyrir hitabreytingum.
Bílstjórarnir voru þungorðir í
garð Vegagerðarinnar og sögðu
stjórnun snjómoksturs ekki vera
í takt við tímann. Nefndu þeir
sem dæmi að‘ gámaflutningabíll
greiddi 39 krónur á kílómetra í
þungaskatt, sem rynni beint til
VR. Fullyrtu þeir, að 70 af hund-
raði þungaskatts kæmi
frá vöruflutninga- og
fólksflutningabifreið-
um. Ein ferð milli
Reykjavíkur og Akur-
eyrar báðar leiðir væri
um 1.000 km, þannig mætti segja
að þessi bílalest greiddi um 550
þúsund krónur beint til VR fyrir
utan öll önnur gjöld af rekstrin-
um. Hlytu þeir að gera kröfu til
að fá þjónustu eftir bestu föng-
um. Ljóst væri, að þeir sem sjálf-
stæðir atvinnurekendur eða
þeirra vinnuveitendur yrðu fyrir
verulegum bótakröfum vegna
skemmda á farmi og einnig tap-
aðist dýrmætur tími sem færi í
töf sem þessa. Bæta þyrfti sam-
skipti Vegagerðarinnar og flutn-
ingaaðila. Koma mætti skilaboð-
um um breytilega opnun í gegn-
um flutningamiðstöðvar og auð-
velda þannig flutningsaðilum að
taka ákvarðanir um ferðir í tilfell-
um sem þessum.
Snjómokstur
úr takti við
tímann