Morgunblaðið - 21.03.1995, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 21.03.1995, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1995 11 Rætt um framtíð öldrunarþj ónustu Morgunblaðið/Kristinn FRÁ ráðstefnu um öldrunarþjónustu sem var haldin á Hótel Loftleiðum á föstudaginn. Félag sljórnenda í öldrunarþjónustu, Félag íslenskra öldrunarlækna, Samband íslenskra sveitarfé- laga, Oldrunarfræðifélag Islands og Oldrunarráð íslands stóðu fyrir ráðstefnunni. RÁÐSTEFNA um öldrunarþjón- ustu var haldin á Hótel Loftleiðum á föstudaginn, með þátttöku full- trúa stjórnmálaflokka. Þátttak- endur í pallborðsumræðum voru Ásta B. Þorsteinsdóttir, Alþýðu- flokki, Ásta Ragnheiður Jóhannes- dóttir, Þjóðvaka, Guðrún Helga- dóttir, Alþýðubandalagi, og Guð- mundur Hallvarðsson, Sjálfstæðis- flokki. Mannsæmandi líf Ásgeir Jóhannesson, formaður Sunnuhlíðarsamtakanna í Kópa- vogi og samstarfsnefndar um málefni aldraðra, vakti athygli á að þeir sem voru á aldrinum 50-59 ára fyrir sjö árum ættu hundrað milljarða króna samkvæmt skatt- framtali. „Þetta fólk er 57-66 ára í dag. Fólk í fyrsta árganginum verður löggild gamalmenni eftir eitt ár og kemur með tíu milljarða meðferðis. Það koma því hundrað milljarðar á næstu tíu árum í eign- um í öldrunargeirann. Ég spyr þetta góða fólk sem hér situr hvaða framtíðarsýn það hafi fyrir þetta fólk á næstu tíu árum? Hvernig á það að njóta lífs- ins fyrir sínar eignir? Hvernig verður þjónustan? Ég nefni að 75% fólks 65 ára og eldri fyrir tveimur árum bjuggu í eigin húsnæði,.25% þarf að hjálpa og þar koma lífeyr- 19,9% treysta Davíð best til að jafna kjör SAMKVÆMT niðurstöðum könn- unar sem Félagsvísindastofnun Háskóla íslands gerði fyrir viku- blaðið Þjóðvaka treysta 19,9% að- spurðra Davíð Oddssyni best til að jafna lífskjörin á íslandi og 19,8% sögðust treysta Jóhönnu Sigurðardóttur best til þess. I könnuninni var spurt hveijum af eftirtöldum stjórnmálaleiðtog- um viðkomandi treysti best til að jafna lífskjörin á íslandi. 19,9% sögðust treysta Davíð Oddssyni best, 19,8% Jóhönnu Sigurðardótt- ur, 15,6% Halldóri Ásgrímssyni, 6,3% Ólafi Ragnari Grímssyni, 5,9% Kristínu Ástgeirsdóttur og 3,3% Jóni Baldvini Hannibalssyni. 10,2% sögðust ekki treysta neinum þessara, 5,9% neituðu að svara og 13,7% sögðust ekki vita hveijum þeir treystu best. Könnun Félagsvísindastofnunar var gerð dagana 2.-6. mars síðast- liðin og var stuðst við slembiúrtak úr þjóðskrá sem náði til 1.200 manna á aldrinum 18-75 ára af öllu landinu. Viðtölin fóru fram í gegnum síma og alls fengust svör frá 860 af þeim 1.200 sem komu í úrtakið, en það er 71,7% svarhlut- fall. issjóðirnir til. Það þarf að gera þessu fólki kleift að lifa mann- sæmandi lífi og með reisn.“ Guðrún Helgadóttir nefndi í svari sínu, líkt og Ásta Ragnheið- ur, að hennar flokkur vildi sveigj- anleg starfslok. Einnig að fólk fái að dvelja á eigin heimili eins lengi og kostur sé og fái aðstoð við það. „Við viljum jafnframt hafa HALLDÓR Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, leggur til að reglum um skattafslátt vegna hlutabréfakaupa verði breytt á þann veg að draga megi slík kaup frá skatti mánaðarlega. Ennfremur að sá afsláttur aukist ef lífeyrissjóður viðkomandi taki þátt í kaupunum. „Við framsóknarmenn teljum að það sé meginviðfangsefni næstu ríkisstjórnar að örva fjárfestingu og efla atvinnulífið og við sjáum ekki að það verði gert nema með þátttöku almennings, lífeyrissjóða og fjárfestingu erlendra aðila,“ sagði Halldór. Þátttaka lífeyrissjóðs „Eitt af því sem við teljum að þurfi að gera er að breyta þessum afslætti. Það muni virka betur ef fólk getur dregið frá ákveðna fjár- hæð mánaðarlega. Jafnframt höf- um við viðrað þá hugmynd að ef lífeyrissjóður viðkomandi aðila legði fram á móti þá fengi launþeginn meiri skattafslátt. Við erum ekki að tala um að lífeyrissjóðirnir fari sjúkrastofnanir og hjúkrunar- heimili fyrir þá sem þess þurfa og mótmælum harðlega meðferð á borð við þá sem nefnd hefur verið að loka Hafnarbúðum þar sem fólk hefur búið árum saman með sama starfsfólkinu. Einnig höfum við mótmælt harðlega niðurskurði í sjúkrahúsum Reykjavíkur, sem hefur ekkert sparað. Við viljum að leggja í fyrir- tæki nema þeir telji þau traust og það verður að vera þeirra mat,“ segir Halldór. Áskrift að hlutabréfum í sínu fyrirtæki Halldór nefnir til útskýringar að með sama hætti og einstaklingar séu nú áskrifendur að spariskírtein- um ríkissjóðs þá geti þeir orðið áskrifendur að hlutabréfum í fyrir- tækjum mánaðarlega, til dæmis í því fyrirtæki sem þeir vinna hjá og greitt þá minni staðgreiðsluskatt fyrir vikið. Þegar hann er spurður hvort ekki þurfi að vera einhver sérstök hvatning fyrir lífeyrissjóð- ina að taka þátt í þessum hluta- bréfakaupum sem veita myndu ein- stakiingnum skattafslátt, svarar hann: „Lífeyrissjóðirnir hljóta auð- vitað að vilja standa með sfnu fóiki.“ Kjósendur góðir! STJÓRNMÁLABÁRÁTTAN tekur á sig nýjan svip nú þegar nær dregur kosningum. Frambjóðend- ur kynna stefnumál sín og reyna að vinna hylli kjósenda. Óveður og ófærð hafa truflað ferðalög frambjóðenda líkt og annarra landsmanna. Þrátt fyrir torleiði til lands og sjávar hafa víða verið haldnir vinnustaðafundir, líkt og í gær hjá SKYRR þar sem fram- bjóðandinn Vilhjálmur Þorsteins- son kynnti stefnu Alþýðuflokks. Morgunblaðið/Jón Svavarsson * Hugmynd Halldórs Asgrímssonar Mánaðarlegur skatt- afsláttur vegna hlutabréfakaupa að gamalt fólk sé þátttakendur í samfélaginu.“ Heimahjúkrun eða stofnanir? Einnig kom fyrirspurn frá Jóni Björnssyni, félagsmálastjóra Akureyrarbæjar. Peningar, sem þyrfti til að byggja upp heimaþjón- ustukerfi, væru bundnir í stofnun- unum, bæði í steinsteypu og rekstri. Því mætti spyija fulltrúa flokk'anna hvort ætti að byggja fleiri stofnanir. Ef svo væri ekki var spurt hvort nota mætti pen- inga sem annars hefðu farið til byggingarframkvæmda til að efla heimaþjónustu. Í svari sínu sagðist Ásta B. Þorsteinsdóttir oft hafa velt því fyrir sér hvort verið væri að taka tilliti til byggingariðnaðarins með því að leggja áherslu á nýbygging- ar og hvers vegna væri jafn erfitt og raun bæri vitni að skipta um viðhorf hvað þjónustu við aldraða varðaði. Sagði hún að þarfir aldraðra og fjölskyldna þeirra virtust ekki allt- af hafa verið haldnar í heiðri. „Ég vil leggja áherslu á að einkalíf fólks og sjálfsákvörðunarréttur séu virt og að virðing fyrir ein- staklingnum sé höfð í fyrirrúmi,“ segir Ásta og leggur til sambýli aldraðra, svokölluð stoðbýli og fámenn heimili í stað stofnana. „Þar sem hægt er að hafa heimilisbrag, þar sem einkalífið ræður ferðinni. Þetta eiga að vera heimili fólks en ekki vinnustaðir starfsmanna. Við verðum að fara að gera okkur grein fyrir því að eins og málum er háttað eru stofn- anir vinnustaðir í fyrsta lagi en heimili fólks í öðru lagi.“ íslensk Rdðstefna í Bœndahöllintti við Hagatorg fimmtudaginn 30. mars nk. frá kl. 8.30 til 18.00 Bændasamtök íslands í samvinnu við Bændaskólinn á Hólum, Rannsóknastofnun landbúnaðarins og Veiðimálastofnun standa fyrir ráðstefnu um málefni bleikjueldis á íslandi. Á ráðstefnunni munu ýmsir frumherjar og framleiðendur í greininni flytja erindi, auk vísindamanna sem munu kynna helstu niðurstöður rannsókna sinna. Farið verður yfir þróun greinarinnar og framtíðarhorfur m.t.t. fyrirgreiðslna banka og fjármagnsstofnana, bleikjufóðurs, úrvinnslu og vöruþróunar, markaðsmála og útflutnings. Verð: Þátttökugjald er kr. 2.500. (Ráðstefnugögn og hádegisverður innifalinn). Sérstök vildarkjör fyrir þá, sem vilja gista á Hótel Sögu: Gisting með morgunverði frá kr. 2.600 pr. mann í eins manns herbergi. Ath! Gistingu þarf að panta með góðum iyrirvara og geta þess um leið að um ráðstefnuna „íslensk bleikja ’95“ sé að ræða. Ráðstefnan er öllum opinl Skráning þátttakenda er þegar hafin í símum 56 30 300, 56 30 338 og 56 30 308. ÍSLENSKUR LANDBÚNAÐUR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.