Morgunblaðið - 21.03.1995, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 21.03.1995, Blaðsíða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1995 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Sex látnir og 3.200 veikir af völdum banvæns gass í Tókýó • • Onnur eiturefna- árásin á tæpu ári 'nl/vn Dnnlnr Tókýó. Reuter. TAUGAGAS varð að minnsta kosti sex manns að bana í járnbrautar- stöðvum í Tókýó í gærmorgun. Um 3.200 manns veiktust af völdum gassins, þar af 16 alvarlega. Hylkjum með gasinu var komið fyrir á 16 neðanjarðarstöðvum í borginni en ekki er vitað hverjir það gerðu eða hvers vegna. Þykir málið minna um margt á dauðsföll í annarri jap- anskri borg fyrir tæpu ári en þá barst eiturgas inn í fjölbýlishús að nóttu til, varð átta að bana auk þess sem um 200 manns veiktust. Atburðurinn átti sér stað á há- annatíma í gærmorgun, um kl. 8 að staðartíma. Fimm hinna látnu voru vegfarendur á leið til vinnu, einn var járnbrautastarfsmaður sem hugðist fjarlægja hylki sem gasið var í á einni brautarstöðinni. Gasið lak úr litlum hylkjum á stærð við nestisbox á sextán jámbrautar- stöðvum samtímis. Gasið er ósýni- legt og lyktarlaust. Að sögn fólks sem leið átti um brautarstöðvarnar, misstu nokkrir vegfarendur meðvitund um það leyti sem hylkjanna varð vart. Skelfíng greip um sig á sumum stöðvunum, sem voru þegar rýmd- ar. Fann fólk sem andaði eiturguf- unum að sér fljótlega fyrir ógleði, sjóntmflunum, höfuðverk og önd- unarerfíðleikum. í gær voru 603 á sjúkrahúsi og þar af voru 16 mjög illa haldnir. Aðrir fengu að fara heim að lokinni meðferð. Enginn hefur lýst ábyrgðinni á hendur sér og segir lögreglan úti- lokað að einn maður hafi verið að verki eða gaslekinn hafí orðið fýrir slysni. Segir hún um kaldrifjað morð að ræða. Nokkrir lestarfar- þegar kváðust hafa séð grímu- klædda menn og menn með sólgler- augu skilja eftir pakka í lestunum. Einn dropi banvænn Gasið sem um ræðir er sarin, taugagas sem þýskir vísindamenn þróuðu í heimsstyijöldinni síðari. Notkun þess er bönnuð samkvæmt Genfarsáttmálanum en talið er að írakar hafí notað það er þeir frömdu flöldamorð á Kúrdum árið 1988. Sarin er baneitrað, einn dropi af því nægir til að drepa mann en gasið lamar taugakerfíð. Ekki er til þekkt lækning við eitrunaráhrifum. Erfítt er að framleiða sarin og er ekki vit- að til þess að það sé gert í Japan. Hins vegar er talið að það hafí ver- ið framleitt í Mið-Austurlöndum. Japanskir sérfræðingar sögðu ólíklegt að árásin hefði verið gerð af stjórnmálaástæðum þar sem eng- inn hefði lýst yfír ábyrgð á tilræð- inu. Þá væri ljóst að í hópnum sem komið hefði hylkjunum fyrir væru sérfræðingar í meðferð eiturefna, þar sem sarin væri afar vandmeð- farið efni. Annað tilfelli í júní í júní sl. létust átta íbúar í borg- inni Matsumoto á síðasta ári á dul- arfullan hátt og um 200 manns veiktust. Síðar kom í ljós að sarin hafði lekið út á einum stað í borg- inni og orðið öllu kviku að bana í 100 metra radíus. Á þeim tíma voru uppi getgátur um að gasið kynni að hafa lekið úr tönkum sem japanski herinn hefði skilið eftir. Engar sannanir fengust fyrir þessu. Jón Magnús Kristjánsson, sölu- stjóri SH í Tókýó, fer alla jafna með lest til vinnu um svipað leyti og gasið lak úr hylkjunum. Fyrir tilviljun breyttist áætlun hans, svo að hann átti ekki leið um umrædd- ar brautarstöðvar. Reuter EITT fórnarlamba taugagassins, sem komið var fyrir á sextán brautarstöðvum í Tókýó í gærmorgun, liggur á brautarpalli en ungur maður, sem hulið hefur vit sín, reynir að koma til hjálpar. Bandarískar krabbameins- rannsóknir Skemmir tóbak litninga? LÆKNAR við John Hopk- ins-háskólann í Bandaríkj- unum telja sig hafa komist að því hvernig tóbak ýti undir hættuna á krabba- meini. Telja þeir að efnið skaddi ákveðna litninga og geri það geri illkynja frum- um auðvelt að fjölga sér. Við rannsókn á sjúkling- um með krabbamein í höfði og hnakka kom í ljós að tóbak veldur skaða á litn- ingi er nefnist p53 og vinn- ur gegn myndun krabba- meins. Skaðist þessi litn- ingur eykst hættan á því að illkynja frumur nái að fjölga sér og breytast í æxli. Greina læknarnir frá þessu í nýjasta hefti JVew England Journal ofMedic- ine. Þetta er í fyrsta skipti sem læknum tekst að sýna fram á tengsl tóbaks við skemmdir á p53. Þá komustjæknarnir að því að aukin hætta er á ferðum hjá þeim sem bæði reykja tóbak og drekka áfengi. Læknarnir skilgreindu reykingamann sem ein- stakling er hefði reykt að minnsta kosti pakka af síg- arettum á dag í að minnsta kosti tuttugu ár og drykkjumann þann er neytti að minnsta kosti únsu af sterku áfengi dag- lega í langan tíma. Reuter LIPPONEN tekur við heitri súpu á kosningafundi í Helsinki sl. laugardag. Vegna efnahagserfiðleik- v anna og vaxandi fátæktar hefur nokkuð verið um slíkar súpugjafir. Afganistan Taleban á undanhaldi Kabúl. Reuter. STJÓRNARHER Afganistans hrakti liðsmenn Taleban-hreyfingarinnar frá mikilvægri herstöð sunnan við Kabúl í umfangsmikilli árás á sunnu- dag. Taleban veitti litla andstöðu. Liðsmenn hreyfingarinnar hörf- uðu um 25 km frá herstöðinni og þetta er annar ósigur hennar á einni viku. Stjórnarherinn virðist nú hafa Kabúl og nágrenni algjörlega á valdi sínu í fyrsta sinn frá því múslimafylkingarnar tóku við völd- unum af stjórn kommúnista árið 1992. Að minnsta kosti 50 Taleban- menn biðu bana í árásinni og 250 særðust. Stjórnarherinn náði einnig 15 skriðdrekum, nokkrum flug- skeytabyssum og tveim þyrlum, auk þess sem 200 manns voru teknir til fanga. Taleban-hreyfíngin er einkum skipuð heittrúuðum námsmönnum. Mikill vandi bíður nýrr- ar stj órnar í Finnlandi Ilelsinki. Reuter. JAFNAÐARMENN voru sigurvegarar þing- kosninganna í Finnlandi á sunnudag en stjórnar- flokkarnir, Miðfiokkur og Hægriflokkur, töpuðu þingmeirihluta sínum. Það mun því koma í hlut Paavos Lipponens, leiðtoga jafnaðarmanna, að mynda nýja stjórn. Úrslitin voru þau, að jafnaðarmenn fengu 28,3% atkvæða og 63 menn kjörna, bættu við sig 15. Miðflokkurinn fékk 19,9% og 44 menn, tapaði 11, og Hægriflokkurinn 17,9%, 39 menn og tapaði einum. Af öðrum flokkum má nefna, að Vinstrabandalagið fékk 11,2% og 22 menn; Sænski þjóðarflokkurinn 5,1% og 11 menn; Græningjar 6,5% og níu menn; Kristilegir 3% og sjö menn og Ungfínnar 2,8% og tvo menn. Þrír flokkar aðrir fengu einn mann hver. Vonbrigði hjá konum Finnskar konur urðu fyrir miklum vonbrigðum með niðurstöðu kosninganna að því leyti, að þær höfðu gert sér vonir um, að konur yrðu jafnvel í meirihluta á nýju þingi. Af 200 þingmönnum náðu þó aðeins 67 konur kjöri eða 10 færri en í síðustu kosningum. í Finnlandi hefur ekki verið ríkisstjóm eins flokks í 80 ár og nú mun koma í hlut Lippon- ens að leiða næstu samsteypustjórn, Er búist við, að jafnaðarmenn fari með öðrum hvorum flokknum, Miðflokki eða Hægriflokki, og frétta- skýrendur segja, að hvernig sem stjórnin verði saman sett, muni lítil sem engin breyting verða á stefnu stjórnvalda í efnahags- og utanríkismál- um. Miklir erfiðleikar Lipponen fær við ærinn vanda að glíma. Skuldir finnska ríkisins eru gífurlega' miklar og atvinnuleysið eitt það mesta í Evrópu, nærri 20%. Hann hefur lofað að lækka fjárlagahallann um 240 milljarða ísl. kr. en hann hefur ekki sagt hvort það muni gert með skattahækkunum eða niðurskurði á opinberum útgjöldum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.