Morgunblaðið - 21.03.1995, Page 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1995
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Morgunblaðið/Rúnar Þór
FRÁ vinstri: Jakob Björnsson bæjarstjóri, Hermann Sigtryggsson íþróttafulltrúi, Ólafur G. Einarsson
menntamálaráðherra, Þröstur Guðjónsson formaður ÍBA og Reynir Karlsson íþróttafulltrúi að gæða
sér á köku í tilefni opnunar vetraríþróttamiðstöðvarinnar.
Vetraríþróttamiðstöð íslands stofnuð á Akureyri
Skapar sóknarfæri í upp-
byggingu vetraríþrótta
Áhrif langvarandi
vetrarveðurs og
kennaraverkfalls
Fólk er
orðið mjög
niðurdregið
„VIÐ verðum varir við það að
fólk er orðið mjög niðurdregið,"
sagði séra Birgir Snæbjörnsson,
prófastur og sóknarprestur á
Akureyri, um langvarandi vetr-
arhörkur að viðbættu kennara-
verkfalli sem víða hefði erfið-
leika í för með sér á heimilum.
„Þetta íþyngir fólki greini-
lega,“ sagði sr. Birgir. Hann
sagð að það væri orðinn ríkur
þáttur í bænahaldi að biðja fyrir
því að óveðurstíð linnti og að
kennaraverkfall leystist og í
predikun i messu í Akureyrar-
kirkju á sunnudag hefði verið
rætt um þessi mál.
Víða erfiðleikar
„Við heyrum það mjög að
margir eiga í erfiðieikum," sagði
sóknarpresturinn, en viða væri
um tvöföld vandræði að ræða,
börnin væru heima vegna kenn-
araverkfallsins og ófærð og
óveður gerðu að verkum að úti-
vinnandi foreldrar gætu ekki í
eins miklum mæli komist heim
yfir daginn. „Fólk er áhyggju-
fullt og mér finnst sem margir
séu að missa trúna á þjóðfélagið.
Börnin fá enga fræðslu þó svo
það sé skylt samkvæmt lögum
að sjá þeim fyrir fræðslu. Marg-
ir geta ekki séð sér og sínum
farborða, við heyrum af miklum
vandræðum á heimilum víða í
bænum. En við verðum að vona
að þessu linni hvoru tveggja,
kennaraverkfallið leysist og vor-
ið fylgi vetri,“ sagði sr. Birgir.
VETRARÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐ ís-
lands á Akureyri var formlega stofn-
uð við hátíðlega athöfn í íþróttahöll-
inni á laugardag.
Ólafur G. Einarsson menntamála-
ráðherra undirritaði reglugerð um
Vetraríþróttamiðstöðina þar sem
kveðið er á um hlutverk hennar og
þá var undirritaður samstarfssamn-
ingur milli ríkis,_ Akureyrarbæjar,
íþróttasambands íslands og íþrótta-
bandalags Akureyrar én miðstöðin
er sameign þessara aðila.
„Þetta er mikil viðurkenning fyrir
Akureyrarbæ og skapar mörg sókn-
arfæri í uppbyggingu vetraríþrótta
í bænum. Nú höldum við áfram af
fullum krafti við undirbúning þess
að koma hér upp alhliða vetraríþrótt-
amiðstöð," sagði Hermann Sig-
tryggsson, íþróttafulltrúi Akur-
eyrarbæjar. „Við munum byija á því
að sameina kraftana og huga að
brýnustu rnálurn."
Hermann sagði að meðal þess sem
á döfinni væri yrði að koma á tengsl-
um við framhaldsskóla þannig að
hægt yrði að koma upp vetrar-
íþróttamenntasetri í bænum og í
framtíðinni yrði sett upp sérstök
skíðabraut fyrir þá sem vilja stunda
íþróttina af kappi með öðru námi.
„Þetta myndi auka fjölbreytni í skól-
um bæjarins."
Þá nefndi íþróttafulltrúi að í kjöl-
farið yrði unnið að því að gera Akur-
eyri að fyrsta flokks alþjóðlegum
keppnisskíðastað, bæði fyrir alpa-
greinar og skíðagöngu. Þá yrði í
samvinnu við ferðaþjónustufólk unn-
ið að uppbyggingu staðarins hvað
varðar ástundun bæði almennings
og keppnisfólks í vetraríþróttum.
Hvað skautaíþróttina varðar væri
brýnasta verkefnið að byggja yfir
skautasvellið og huga að annarri
uppbyggingu á skautasvæðinu.
„Þetta hefur verið lengi í burðar-
liðnum og við munum fara rólega
af stað, en að mínum dómi hefur
þessi viðurkenning á Akureyri sem
miðstöð vetraríþrótta á landinu
mikla þýðingu," sagði Hermann.
Starfsfólk
í Kristnesi
veðurteppt
STARFSFÓLK Kristnesspítala
búsett á Akureyri varð veður-
teppt á spítalanum þegar óveðr-
ið skall á í lok síðustu viku. Bíl-
ar sem sendir voru eftir fólkinu
og með mat þangað komust
ekki alla leið.
Halldór Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri, braust fram
að Kristnesi í blindbyl síðdegis
á fímmtudag, hann tók matvæl-
in úr matarbílnum og flutti upp
á spítalann á sínum „fjallabíl".
Fólksflutningabíll var einnig
stopp vegna ófærðar.
Tólf starfsmenn spítalans
ætluðu heim eftir vinnu á
fimmtudag en aðeins þrír fóru
heim, þeir sem ekki áttu að
mæta til vinnu daginn eftir.
„Það var alveg vitlaust veður,
blint og mikil ófærð,“ sagði
Halldór en það tók hann tæpa
tvo klukkutíma að aka frá Krist-
nesspítala og í bæinn, leið sem
tekur um 10 mínútur að aka að
öllu jöfnu
Ljóðasam-
Keppni
í TILEFNI af „Vorkomu í Eyja-
flarðarsveit" dagana 19. til 23.
apríl efnir menningarmálanefnd
Eyjaijarðarsveitar til ljóðasam-
keppni.
Veitt verða verðlaun fyrir þijú
bestu ljóðin. Skiladagur ljóða er
í síðasta lagi 10. apríl næstkom-
andi og skulu þau send for-
manni menningarmálanefndar,
Þuríði Schiöth, Hólshúsum.
Ljóðunum þarf að skila undir
dulnefni og nafn höfundar að
fylgja með í lokuðu umslagi.
Gæsluvöllum
lokað vegna
snjóalaga
VEGNA snjóalaga á gæsluvöll-
um bæjarins sér leikskólanefnd
sér ekki fært að hafa vellina
opna þar sem ekki er hægt að
tryggja öryggi barnanna, en all-
ar girðingar eru á kafí í snjó.
Hefur leikskólanefndin farið
fram á við bæjarráð að fá fjár-
veitinginu til að moka snjó af
tveimur gæsluvöllum, Bugðu-
velli og Lundavelli, en loka öðr-
um völlum þar til ástandið batn-
ar og hægt verður að tryggja
öryggi þeirra bama sem þar eru.
Bændafundir
með landbún-
aðarráðherra
HALLDÓR Blöndal landbún-
aðarráðherra efnir til funda
með bændum á þriðjudags- og
miðvikudagskvöld.
Fyrri fundurinn verður í Ýd-
ölum í Aðaldal í kvöld, þriðju-
dagskvöldið 21. mars og hefst
hann kl. 20.30. Sá síðari verður
annað kvöld, miðvikudags-
kvöldið 22. mars kl. 20.30.
Jíosið í
Iþrótta- #
skemmunni?
KJÖRSTJÓRN Akureyrarbæjar
hefur lagt til við bæjarráð að
kjörstaður við alþingiskosning-
amar 8. apríl næstkomandi verði
í Oddeyrarskóla þar sem kosið
hefur verið um árabil.
Verði ekki hægt að kjósa í
Oddeyrarskóla vegna kennara-
verkfalls leggur kjörstjórn til að
kosið verði í íþróttaskemmunni.
Einnig er lagt til að kjördeildir
verði átta.
Bæjarráð samþykkti tillögur
kjörstjórnar á fundi sínum í gær.
„íslenskur sjávarútvegur á alþjóðavettvangi"
Ráðstefna um sjávarútveg í Háskólabíói (sal 3) laugardaginn 25. mars.
Ráðstefnustjóri: Gestur Geirsson.
DAGSKRÁ:
09.30 Innritun.
10.00 Jón Þórðarson, forstöðumaður
sjávarútvdeildar. HA, setur ráðstefnuna.
10.10 Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegsráðherra.
10.35 Jóhann Sigurjónsson, aðstoðarforstjóri
Hafró.
10.55 Jónas Haraldsson, lögmaður LÍÚ.
11.15 Sævar Gunnarsson, formaður
Sjómannasambands íslands.
11.35 Fyrirspurnir og almennar umræður.
12.00 Matarhlé. Hádegisverður á Hótel Sögu.
Þátttökutilkynningar eða fyrirspurnir berist, sem fyrst, Ráðstefnugjald er 3.500 kr., innifalin eru
um símbréf 96-30998 eða símsvara 96-26138. ráðstefnugögn og veglegur hádegisverður
Vinsamlegast tilgreinið miðafjölda, nafn og heimilisfang á Hótel Sögu.
ásamt vinnu- og heimasíma.
ÍSLANDSBANKI (Sjá eínníg auglýsingu á bls. 617 í Textavarpinu).
Akureyri
Félag sjávarútvegsfræðinema við Háskólann
SJOVAtSígTALMENNAR
L
Landsbanki
íslands
13.00 Jón Baldvin Hannibalsson,
utanríkisráðherra.
13.25 Sighvatur Bjarnason, framkvæmdastjóri
Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum.
13.50 Grímur Valdimarsson, forstöðumaöur RF.
14.15 Steingrímur J. Sigfússon Alþýðubandalagi.
Halldór Ásgrímsson Framsóknarflokki.
Jóna Valgerður Kristjánsdóttir Kvennalista.
Ágúst Einarsson Þjóðvaka.
15.45 Fyrirspurnir og almennar umræður.
17:00 Steindór Sigurgeirsson formaður
Stafnbúa slítur ráðstefnunni.