Morgunblaðið - 21.03.1995, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1995 15
Söluverð
var rúmur
milljarður
Fréttaskýring
Olíufélagíð hf. og Texaco greiddu ríflega
þrefalt nafnverð iyrír 45% hlut Sunda hf. í
Olíuverslun íslands, að því er fram kemur
í frásögn Péturs Gunnarssonar af baksviði
og aðdraganda viðskiptanna.
SALA Gunnþórunnar Jóns-
dóttur, ekkju Óla Kr. Sig-
urðssonar, á 45% hlutafjár
í Olís fyrir um það bil 1
milljarð króna, sem kunngerð var
sl. laugardag, markar endapunkt
ákveðinnar togstreitu sem staðið
hefur innan félagsins síðan Óli Kr.
Sigurðsson féll frá í júlí 1992. Sú
togsteita er þó ekki eiginlegt tilefni
viðskiptanna heldur hugmyndin um
samstarf olíufélagnna tveggja, Olís
og Olíufélagsins, í því skyni að sjá
hagsmunum þeirra sem best borgið
í nýju rekstrarumhverfi, þar sem
afskipti ríkisins af olíuviðskiptum
eru hverfandi miðað við það sem
áður var og samkeppni við öflugt
erlent fyrirtæki er liklega á næsta
leiti.
Gunnþórunn Jónsdóttir hefur
ekki fallist á að ræða sölu hlutafjár-
ins við blaðamenn og Steingrímur
Eiríksson, lögmaður hennar, sem
setið hefur í varastjórn Olís, and-
mælir í samtali við Morgunblaðið
staðhæfingum annarra viðmælenda
Morgunblaðsins úr stjórn félagsins
um að þess hafi greinilega orðið
vart að Gunnþórunn hafí, allt frá
því að hún tók sæti eiginmanns síns
í stjórn félagsins, ekki talið sig
hafa nægileg völd miðað við eignar-
hlutdeild sína í Olís.
Allt frá því að Texaco eignaðist
fjórðungshlut í Olís og félaginu var
borgið frá gjaldþroti árið 1989 hef-
ur verið samkomulag um að ákvarð-
anir um stærri mál þessa almenn-
ingshlutafélags skyldu teknar í
samráði stærstu hluthafa en þeim
ekki ráðið til lykta með atkvæða-
greiðslum í krafti eignaraðildar.
Breytt umhverfi
Frá 1. september sl. varð veruleg
breyting á rekstrarumhverfi olíufé-
laganna í landinu með afnámi flutn-
ingsjöfnunar og slökun á opinberum
afskiptum, jafnframt því sem í raun
var opnað fyrir samkeppni í olíuvið-
skiptum. Sú staðreynd -----------
kom fram í haust þegar
Olíufélagið hf. lækkaði
útsöluverð sitt á olíu
verulega og fór þá að
bjóða viðskiptavinum olíu
á lægra verði en fyrir-
tækið hafði t.d. skömmu
áður treyst sér til að bjóða ÚA í
sérstöku útboði þar sem Ölís hreppti
hnossið.
Frammi fyrir hinu nýja umhverfi
hafa olíufélögin farið að huga að
möguleikum sínum í harðari sam-
keppni og hafa litið til möguleika
á að lækka kostnað við innkaup,
dreifingu og birgðahald. Innan Olíu-
verslunar íslands hf. hefur um skeið
verið litið til nánara samstarfs við
annan hvorn helstu keppinautanna
á markaðinum. Fregnir af fyrirhug-
aðri innrás kanadíska olíufélagsins
Irving Oil hafa orðið til að hraða
Deilur Gunn-
þórunnar
og Óskars
komu
Skeljungi illa
þessari þróun og ýta á íslensku olíu-
félögin að gera það sem í þeirra
valdi stendur til að mæta aukinni
samkeppni.
Þessar aðstæður lágu fyrir í febr-
úar þegar Gunnþórunn Jónsdóttir
gerði, samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins, tilraun til að ná
fram breytingum á skipun stjórnar
Olíuverslunar íslands til að styrkja
þar stöðu sína í samræmi við eign-
arhlutdeild sína á kostnað Texaco.
Þau áform náðu ekki fram og sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins voru það ekki síst smærri hlut-
hafar og menn á borð við Þorstein
Má Baldvinsson í Samherja, sem
situr í stjórn félagsins og er jafn-
framt fulltrúi stórs viðskiptaaðila,
sem réðu úrslitum um að Gunnþór-
unn varð undir í þeim slag.
Nú sex vikum síðar hefur Gunn-
þórunn selt öll hlutabréf sín í félag-
inu. Menn í hópi viðmælenda Morg-
unblaðsins innan félagsins telja að
ákvörðun hennar um sölu bréfanna
tengist vonbrigðum hennar með
þessa niðurstöðu en Steingrímur
Eiríksson, lögmaður Gunnþórunn-
ar, leggur þó áherslu á að salan sé
á engan hátt tengd hugsanlegum
misklíðarefnum innan stjórnarinn-
ar.
Þrír mögulegir kaupendur
Frá því að það tók að spyrjast
út að 45% hlutabréfa í Olíuverslun
íslands kynnu að vera til sölu þótti
ljóst að einkum kæmu þrír aðilar
til greina sem kaupendur: Irving
Oil, Skeljungur og Olíufélagíð hf..
Irving Oil sýndi málinu verulegan
áhuga en Steingrímur Eiríksson
segir þó að til samningaviðræðna
við Kanadamennina hafi aldrei
komið.
Skeljungur hf. sýndi einnig bréf-
unum mikinn áhuga og allt fram á
laugardag taldi það félag sig hafa
vilyrði fyrir því að hlutabréfin yrðu
ekki seld nema fyrst yrði haft sam-
--------- band við Skeljung og
mönnum þar gefinn kost-
ur á að bjóða.
Síðustu 2-3 vikur voru
úrslit málsins í raun fyrir-
séð, samkvæmt upplýs-
ingum Morgunblaðsins,
því að strax í upphafi
marsmánuðar komust viðræður 01-
íufélagsins og Gunnþórunnar á það
stig að líklegt þótti að samningar
tækjust.
Steingrímur Eiríksson segir að
engin ákvörðun verið tekin um sölu
hlutabréfa Sunda hf., fyrr en í
marsmánuði og hann tekur fram
að eftir að viðræður við Olíufélagið
hófust hafi ekki verið rætt við aðra
um kaup á hlutabréfunum.
Viðmælendur Morgunblaðsins
telja að deilur þær sem urðu milli
Óskars Magnússonar og Gunnþór-
unnar um forstjórastól í félaginu
FULLTRÚAR olíufélaganna bera saman bækur sínar fyrir blaða-
mannafund á laugardag, þar sem kaupin voru gerð opinber.
Markaðshlutdeild olíufélaganna 1994
Samkvæmt ársskýrslum Oiíufélagið Olís Skeljungur
Bensín 40,08% 27,80% 32,12%
Gasolía 44,18% 28,80% 27,02%
Svartolía 45,21% 29,60% 25,19%
Þotueldsneyti 60,18% 21,90% 17,92%
Samtals 44,66% 28,21% 27,13%
Markaðs- hlutdeild samt. 1994 ^-Skeljungur Hl Olísif ^OIíufélagið £7) g ^sso) p Skel jungur oo/ rt— Olís og Olíufélagið
Lykiltölur úr rekstri olíufélaganna
Milljónir kr., 1994 rtölur frá 1993) Olíufélagið Olís Skeljungur
Velta 8.525,6* 5.751,8 6.013,6
Hagnaður 198,4* 101,9 124,9
Markaðsvirði 3.700,2 1.842,5 2.229,9
í hópi
auðugustu
íslendinga
GUNNÞÓRUNN Jónsdóttir, 49
ára ekkja Óla Kr. Sigurðssonar,
er óumdeilanlega í hópi auðug-
ustu íslendinga og er talið að
hún geti með dreifðum fjárfest-
ingum öðlast mikil áhrif í við-
skiptalífi landsins og náð völd-
um í fyrirtækjum sem hafa mik-
ið umleikis nú eftir að hlutabréf
einkafyrirtækis hennar, Sunda
hf, í Olíuverslun íslands hafa
verið seld fyrir um það bil 1
miHjarð króna
Gunnþórunn Jónsdóttir er
ekki allra og hefur verið um-
deild meðal samstarfsmanna
sinna í Olíuverslun Islands und-
anfarin ár. Þar hefur hún látið
flest til sín taka og jafnvel beitt
sér af hörku í smæstu málum,
samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins.
í þeim slag sem oft hefur ver-
ið háður um völd innan félagsins
eftir að Óli Kr. Sigurðsson féll
frá þykir hún oft hafa sýnt af
sér umtalsverða kænsku og þeir
sem tekist hafa á við hana bera
m.a. lof á það hvernig hún hefur
skipulagt sína vinnu og á þá
ráðgjafa sem hún hefur leitað
til.
Nánustu samstarfsmenn
hennar innan fyrirtækisins hafa
verið þeir Sveinlaugur Krist-
jánsson, framkvæmdastjóri fjár-
reiðudeildar Olís og náinn sam-
starfsmaður Óla Kr. Sigurðsson-
ar til margra ára, Tryggvi
Geirsson, löggiltur endurskoð-
andi og formaður Þróttar og
Steingrímur Eiríksson lögmað-
ur.
Einnig hefur sonur Gunnþór-
unnar, Jón Kristjánsson, for-
stöðumaður Innkaupa- og sölu-
deildar Olís, hefur einnig verið
í innsta hring samstarfsmanna
hennar.
eftir fráfall Óla Kr. Sigurðssonar
hafi haft veruleg áhrif á að Skelj-
ungi gafst ekki kostur á að bjóða
í hlutabréfin.
Þetta er skýrt með því að Skelj-
ungur stofnaði í lok janúar sl. fyrir-
tækið Orkuna hf. í samstarfi við
Bónus og Hagkaup, þar sem Óskar
Magnússon er nú forstjóri, í því
skyni að reisa og reka bensínstöðv-
ar í tengslum við stórmarkaði Hag-
kaups og Bónuss og deilur Óskars
og Gunnþórunnar hafi skilið eftir
sig þau spor að þetta hafi unnið
gegn því að hún gengi til viðræðna
við Skeljung.
Breytingar á stjórn
Búist er við talsverðum breyting-
um í stjórn Olíuverslunar íslands
nú þegar kaup Olíufélagsins og
Texaco á 45% hlut Gunnþórunnar
eru frágengin.
Stjórn Olíuverslunar íslands er
nú skipuð Gísla Baldri Garðarssyni,
lögmanni Texaco, formanni, Gunn-
þórunni Jónsdóttur, Birni Halldórs-
syni í Neptúnus, Þorsteini Má Bald-
vinssyni í Samheija, Ágústi Einars-
syni, og Karsten M. Olesen og Uffe
Bjerring Petersen, fulltrúum
Texaco í Danmörku. í varastjórn
sitja Steingrímur Eiríksson, lög-
maður Gunnþórunnar, Gunnar Sig-
valdason útgerðarmaður á Ólafs-
firði og Finnbogi Jónsson á Nes-
kaupstað.
Gunnþórunn mun nú væntanlega
ganga úr stjórninni ásamt Birni
Halldórssyni og Steingrími Eiríks-
syni.
Morgunblaðið hefur ekki upplýs-
ingar um hveija nýju eignaraðilarn-
ir muni tilnefna. Ekki er, sam-
kvæmt heimildum blaðsins, talið
líklegt að fulltrúar Olíufélagsins
taki þar sæti. Olíufélagið — jafnt
og aðrir hluthafar — muni leggja
áherslu á að standa vörð um sjálf-
stæði Olís og reyna þannig m.a. að
vernda eftir megni þau verðmæti
sem felast í viðskiptavild félagsins
og orðspori þess sem almennings-
hlutafélags sem standi utan við
stríðandi blokkir í viðskiptalífinu.
Menn óttast að verði Olís og Esso
spyrt saman í vitund almennings
geti slíkt valdið því að Olís missi
viðskipti yfir til Skeljungs.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins keyptu Olíufélagið og
Texaco hlutabréf Gunnþórunnar
Jónsdóttur á gengi sem nam ríflega
þreföldu nafnverði en skráð gengi
hlutabréfanna við síðustu sölu á
verðbréfaþingi þann 16. þessa
mánaðar nam 2,75. Vitneskja um
áhuga Irving Oii á bréfunum er
talin hafa ráðið allmiklu um hið
háa söluverð.
Eignarhlutur Gunn-
þórunnar var samkvæmt
upplýsingum Morgun-
blaðsins um 305 milljónir
króna að nafnvirði.
Á aðalfundi Olís sl.
fimmtudag kom ekki
fram að samningar um þessa
breyttu eignaraðild væru á loka-
stigi. Þar var ákveðið að greiða
hluthöfum 10% arð en Morgunblað-
inu er ekki ljóst hvort arðurinn
rennur til kaupanda eða seljanda.
Óvíst er talið að endanlega fáist
staðfestar upplýsingar um það
hvaða verð Olíufélagið hf. og
Texaco gáfu fyrir hlut Gunnþórunn-
ar Jónsdóttur í Olís fyrr en ársreikn-
ingur Olíufélagsins fyrir árið 1995
liggur fyrir.
Miðað við að hlutabréfin hafi
verið keypt á ríflega þreföldu nafn-
verði hefur söluverðið verið um það
bil 1 milljarður króna en söluhagn-
aður verður aðeins skattlagður að
svo miklu leyti sem söluverðið er
umfram gengið 2,6-2,7.
Yfirverð
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins mun Gunnþórunn hafa
náð samningum um yfirverð fyrir
hlutabréf Sunda hf., yfir því gengi
sem í raun var samið um og er
hugsunin sú að það yfirverð nægi
til að greiða þann skatt sem henni
ber að greiða af söluhagnaði.
Heimildarmenn Morgunblaðsins
telja líklegt að u.þ.b. 100 millj.
króna af söluverði hlutabréfanna
muni renna til sona Óla Kr. Sigurðs-
sonar, Janusar og Sigurðar Ola, en
á undanförnum mánuðum keypti
Gunnþórann hlut þeirra fyrir
150-170 milljónir króna.
Hömlur voru á við-
skiptum með hlutabréf
eigenda Sunda hf. og
hafði félagið sjálft for-
kaupsrétt að fölum hluta-
bréfum og hluthafar
sjálfir að því frágengnu.
Félagið neytti þess for-
kaupsréttar gagnvart bræðrunum
og komust Olísbréf Sunda þannig
í einkaeign Gunnþórunnar. Miðað
við markaðsgengi bréfa í Olís, 2,75,
var verðmæti hlutabréfa bræðr-
anna, í gegnum aðild þeirra að
Sundum, um 275 milljón króna
virði.
Steingrímur Eiríksson vildi ekki
tjá sig um þetta atriði að öðru leyti
en því að hann benti á að rétt væri
að hafa í liuga að sala á hlutabréf-
unum í Olís þýðl ekki að hluthafar
í Sund hf. hafi rétt til að láta gi-eiða
sér út úr félaginu andvirði bréfanna.
Olís hefur um
skeið horft
til samstarfs
við keppi-
nauta