Morgunblaðið - 21.03.1995, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1995 27
með samningi okkar hafi vinnu-
frelsi hans verið takmarkað. Þessi
takmörkun er þó óveruleg og ein-
göngu afleiðing af þeim réttmætu
hagsmunum sem gerð er grein
fyrir hér á undan. Eðli máls sam-
kvæmt geta slík ákvæði ekki gilt
nema í '/2-1 ár. Þá er til þess að
líta að maður með íslenskt tann-
læknaleyfi getur sett upp stofu
og hafið störf hvar sem honum
sýnist, ekki bara hér á íslandi
heldur í öllum löndum hins Evr-
ópska efnahagssvæðis. Þetta er
mun meira fijálsræði en margar
aðrar stéttir búa við, t.d. getur
maður með lækningaleyfi ekki
hafið störf sem heimilislæknir á
Selfossi, lyfjafræðingur getur ekki
opnað þar apótek, bóndi getur ekki
hafið búskap án þess að kaupa tii
þess kvóta og sjómaður getur ekki
róið til fiskjar án þess að greiða
fyrir leyfi dýrum dómum.
Ef tannlæknir þrátt fyrir alla
þessa möguleika og frjálsræði tel-
ur hag sínum best borgið með því
að hefja störf á tannlæknastofu
Arna Jónssonar, er honum það að
sjálfsögðu leyfilegt. Ég hef haft
nokkra aðstoðartannlækna starf-
andi á stofu minni og hefur sam-
starf mitt við þá verið hið ánægju-
legasta. Ragnar Árnason er eina
undantekningin.
Ragnar gerir einnig mikið úr
því að vegna ungs aldurs hafi
hann ekki gáð að sér í samningum
við sér eldri og reyndari mann.
Benda verður því á að aldursmun-
ur á okkur er aðeins 5 ár og þeg-
ar Ragnar réðst til starfa hjá mér
var hann kominn á 33ja aldursár.
Varla verður því haldið fram að
maður á þeim aldri sé ekki orðinn
nógu gamall til að taka ábyrgð á
gerðum sínum. Spyija má hvort
tannlæknir, sem ekki vill taka
ábyrgð á þeim skriflegu samning-
um sem hann gerir, sé fær um að
taka ábyrgð á sínum sjúklingum.
Ragnar naut hagstæðra kjara í
starfi hjá mér. Meðal annars voru
tekjur hans um 30% hærri en al-
gengt er hjá aðstoðartannlæknum.
Allan starfstímann minntist hann
ekki á að hann væri á einhvern
hátt ósáttur við samning okkar
eða óskaði eftir breytingum á hon-
um. Áður en til málareksturs kom
í deilumáli okkar reyndi ég til
þrautar að ná samkomulagi en
hann neitaði öllum samningum.
Ekki verður hjá því. komist að
nefna að í þeim viðræðum hafði
hann uppi hótanir um illt umtal
og niðrandi greinar í blöðum.
Svigurmæli Ragnars um mig
persónulega og rekstur tann-
læknastofu minnar á Selfossi eru
ekki svaraverð. Eftir að grein hans
birtist hafa mjög margir, meðal
annars læknar, tannlæknar og
sjúklingar mínir, haft samband við
mig og fjölskyldu mína. Allir hafa
lýst furðu yfir tilefnislausri árás
Ragnars á mig og starfsheiður
minn. Ég vil þakka þeim öllum
fyrir stuðninginn og hlýjan hug.
Höfundur er tannlæknir.
=PreCatch
að reykja
Pre-Patch kerfið hjálpar þér að hætta að reykja
fyrir fullt og allt í 3 hlutum á 3 vikum (en ekki á 1 degi).
Kannanir hafa sýnt að 7 af hverjum 10 sem nota
Pre-Patch hætta að reykja.
Pre-Patch er þrjár gerðir munnstykkja sem komið er fyrir á sígarettunni.
Pre-Patch dregur úr því nikótínmagni sem þú andar að þér með
sígarettureyknum um 80% á 3 vikum. í kerfinu eru 42 munnstykki ásamt
hollráðum og nákvæmum leiðbeiningum um notkun kerfisins.
APÓTEKID
PRE-PATCH FÆST í NÆSTA APÓTEKI
Reyklaus til Florida
Þegar þú kaupir Pre-Patch kerfið áttu um leið
möguleika á að taka þátt í leik á Bylgjunni og
Stöð 2 þar sem spennandi vinningar eru í boði.
Svaraðu spurningunum sem fylgja með í
pakkanum og sendu - með nafni þínu og
heimilisfangi. Þá ertu komin(n) í pott sem dregið
verður úr á Bylgjunni og Stöð 2.
Meðal vinninga eru Aloe Vera snyrtivörur,
Plus+White tannhreinsikrem og síðast
en ekki síst, ferð með Flugleiðum til
Fort Lauderdale í Florida.
(t
0
SIB02
Fre<Patch
Lambakjöt I karrísósu. Handa fjórum
0
N
(Ð
H
cc
<
>
<
><
1U
h
1 kg lambakjöt með beini, t.d.
framhryggur eða bógur
Vatn
1- 2 tsk salt
hvítur eða svartur pipar úr kvöm
2- 3 negulnaglar (má sleppa)
1 laukur, saxaður gróft
Sósa: 1 1/2 msk smjörlíki
1-2 tsk karri
2 1/2-3 msk hveiti
5 dl af soði
Kjötið er snyrt og sett í pott ásamt kryddinu og lauknum. Vatni er hellt á svo
að fljóti yfir. Suðan er látin koma upp og froðan veidd vandlega ofan af. Kjötið
er soðiö í 30-45 mínútur eða þar til það er meyrt og rétt aðeins laust frá
beinunum. Kjötið er fært upp og skorið í bita en beinin tekin burt. Smjörlíkið
er braett f potti og karríið látið kráuma f því i 1-2 mínútur. Hveitið er síðan
hrært saman við. Þá er heitu soðinu hellt út í smám saman og hrært vel á
milli. Sósan er látin sjóða f nokkrar mfnútur og kjötið sett út í. Rétturinn er
borinn fram með hrfsgrjónum og einnig er gott að hafa með honum gulrætur
sem eru þá soðnar með kjötinu. Annar réttur fæst með því að sleppa karríinu
og krydda sósuna i staðinn með 3 msk af söxuðu nýju dilli (eða 2 tsk af
þurrkuðu), 1-2 msk af sítrónusafa og, ef þurfa þykir, 1/4 tsk af sykri.
GOTT FÓLK -■