Morgunblaðið - 21.03.1995, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 21. MARZ 1995 29
AÐSEIMDAR GREIIMAR
Varnarbar-
átta kennara
VERKFALL kenn-
ara hefur nú staðið frá
17. febrúar síðastliðn-
um og enn virðist eng-
in lausn vera í sjón-
máli. Skólar eru lok-
aðir, börn eru ýmist
ein heima eða á þvæl-
ingi milli vina og
kunningja. Ungling-
arnir hafa sumir
hvetjir hætt í skóla
og fengið sér vinnu.
Flestir, svo sem börn-
in, foreldrar og kenn-
arar, hafa vaxandi
áhyggjur af deilu
kennara og ríkisvalds-
ins og vilja að hún verði leyst sem
fyrst og helst strax. Enginn, sem
þekkir til skólastarfs, virðist þó
vilja sjá lausn sem felist í því að
kennarar taki aftur til starfa án
þess að hafa fengið löngu tíma-
bæra leiðréttingu kjara sinna.
Skólarnir þurfa á stöðugleika að
halda og sá stöðugleiki fæst ekki
ef starfsfólkið á í sífelldu stríði við
vinnuveitenda sinn. Þetta skilja
þeir sem þekkja til reksturs fyrir-
tækja.
í kröfugerð kennara, sem lögð
var fram þann 25. nóvember á síð-
asta ári, kemur fram mikill
metnaður kennara til þess að bæta
skólastarf í landinu. Þessi metnað-
ur birtist meðal annars í því að
bjóða mun fleiri stundir til vinnu
í skólanum heldur én nú, í viðbót
við beina kennslu, til samvinnu og
þjónustustarfa við nemendur, for:
eldra og annað samstarfsfólk. í
kröfugerð kennara kemur einnig
fram skýr vilji þeirra til þess að
færa kjarasamninga kennarafélag-
anna nær þeim raunveruleika sem
blasir við þeim sem skólastarf í
landinu snertir beint. KröfUgerð
kennarafélaganna endurspeglar
einnig vilja kennara til þess að
framfylgja opinberri menntastefnu
þjóðarinnar eins og hún birtist í
lögum og reglugerðum.
Vinnuaðstæður og kjör kennara
og nemenda þeirra á grunnskóla-
framhaldsskóla- sem og háskóla-
stigi eru ekki boðlegar í þjóðfélagi
þar sem þjóðartekjur á mann eru
með því hæsta sem þekkist í
heiminum. Fjárframlög til mennta-
og menningamála eru til skamm-
ar. Þau lýsa skammsýni og ráða-
leysi stjórnmálamanna. Fjárfram-
lögin lýsa einnig hversu lítils ráða-
menn meta komandi kynslóðir.
Skólarnir hafa breyst ört á und-
anförnum árum, kröfur til kenn-
arastarfsins hafa aukist, náms-
framboð og kennslu-
aðferðir hafa tekið
stakkaskiptum á til-
tölulega skömmum
tíma. Þessar breyting-
ar, ásamt svo mörgum
öðrum sem orðið hafa
á skólastarfi, hafa
ekki skilað sér í bætt-
um kjörum til kenn-
ara. Nei, kjör þeirra
hafa versnað og
vinnuálag hefur verið
aukið án þess að sér-
staklega hafi verið
greitt fyrir það.
Breytinga er þörf
og þær breytingar sem
fyrst þarf að framkvæma eiga að
miða að því að bæta það starf sem
nú þegar fer fram innan veggja
skólanna. Þegar það hefur verið
gert er tímabært að ræða lengingu
Ríkisvaldið á að taka
eitt skref í einu, segir
Már Vilh.iálmsson,
með því að tengja
saman fjölffun skóla-
daga og minnkun á
kennsluskyldu.
á skólaárinu. I dag er það þannig
að vikuleg kennsluskylda er meiri
hér á landi en í nokkru nágranna-
landa okkar. Hvað með það gætu
sumir spurt. Er það bara ekki allt
í lagi? Svarið við þessu er: NEI!
Það er ekki allt í lagi vegna þess
að þessi mikla kennsluskylda
þrengir að öðrum þáttum skóla-
starfsins, þáttum sem snúa fyrst
og fremst að þjónustu við nemend-
ur og eru taldir geta gefið skóla-
starfi þann sveigjahleika sem því
er nauðsynlegur til þess að geta
brugðist skjótt við breyttum að-
stæðum og misjöfnum þörfum
nemenda.
Veiðieðlið er ríkt í okkur íslend-
ingum og oft gleðjumst við þegar
sjómenn afla vel. Þá er slegið upp
stórum fyrirsögnum og meðallaun
sjómanna eru reiknuð út frá einum
mettúr! Minningin um mettúrinn
lifir þar til einhver annar afíar
betur. Okkur hættir hins vegar til
að gleyma því að heildaraflinn
hefur dregist saman á undanförn-
um árum því fiskistofnarnir standa
ekki undir ásókninni. Heildarafla-
magnið skiptir heldur ekki öllu
máli, rekstrarkostnaður, nýting og
Már Vilhjálmsson
samsetning afla og það verð sem
síðan fæst fyrir skiptir ekki síður
máli.
Samninganefnd ríkisins virðist
hafa fengið þau fyrirmæli í samn-
ingaviðræðunum við kennara að
afla sem mest með sem minnstum
tilkostnaði, gæði aflans skipta ekki
máli. Það á að slá upp fyrirsögn!
Þessum hugsunarhætti mótmæla
kennarar. Þeir mótmæla honum
og hafa ítrekað bent samninga-
nefnd ríkisins og ráðamönnum í
þjóðfélaginu á skynsama leið til
þess að bæta og breyta skólastarfi
í landinu. Sú leið kostar peninga
en hún skilar þjóðfélaginu arði
þegar fram í sækir auk þess að
vera atvinnuskapandi. Það þarf
hins vegar kjark til þess að fara
þá leið og því hafa kennarar í til-
boði sínu ráðlagt ríkisvaldinu að
taka eitt skref í einu með því að
tengja saman fjölgun skóladaga
og minnkun á kennsluskyldu.
Gangi samninganefnd ríkisins
að tilboði kennara hefur verið stig-
ið stærra skref í átt að bættu skóla-
starfi hér á landi heldur en áður
hefur verið stigið í tíð þessarar
ríkisstjórnar. Það væri minnisvarði
sem núverandi stjórnarflokkar
gætu með sanni horft á með stolti
og glaðst yfir að hafa reist.
Höfundur er formaður
hagsmunanefndar Hins íslenska
kennarafélags.
Dagslcrá ferðamálaráðstefnu Ferðamálasamtalta
Suðurlands og Atvinnu- og ferðamálanefndar
Skaftárhrepps sem haldin verður á ICirltjubæjar-
klaustrí dagana 31. mars til 2. apríl 1995.
Föstudagur 31. mars 1995:
Kl. 13.30 Tónlistaratriði: Velkomin á Klaustur - í umsjá Tónlistarskólans.
Kl. 13 40 Setning ráðstefnunnar.
Kl. 13.50 íslensk menning og ferðaþjónusta: Björn Björnsson,
leikmyndahönnuður.
Kl. 14.40 Umhverfismál hótel og veitingahúsa: Erna Hauksdóttir,
framkvstj. Samband veitinga- og gistihúsa.
Kl. 15.30 Kaffihlé.
Kl. 16.00 Staða og uppbygginga ferðaþjónustu á landinu:
Gunnar Karlsson, hótelstjóri Hótel KEA og
lektor við Háskólann á Akureyri.
Kl. 17.00 Nauðsyn endurskoðunar laga og reglugerða
sem snerta starfssvið ferðaþjónustunnar:
Paul Richardsson, Ferðaþjónustu bænda.
Kl. 18.00 Gönguferð með leiðsögn:
Fararstjóri Hanna Hjartardóttir, skólastjóri.
Kl. 19.30 Kvöldverður
— Ráðstefnugestir skiptast á skoðunum fram eftir kvöldi.
Laugardagur 1. apríl 1995:
Kl. 09.30 Landsbyggðin séð með augum ferðaskipuleggjenda:
Halldór Bjarnason, framkvstj. Safaríferða.
Kl. 10.20 Umgengnin við landið okkar:
Guðjón Ó. Magnússon, landfræðingur.
Kl. 11.10 Afþreying skiptir máli: Karl Rafnsson,
hótelstjóri, Hótel Eddu á Kirkjubæjarklaustri.
Kl. 12.00 Hádegisverður.
Kl. 13.00 Hvað vil ég að sé iboði —
Hvernig vil ég að sé tekið á móti mér?
■ Ómar Ragnarsson, fréttamaður, rithöfundur o.fl.
Kl. 14.00 Ferðaþjónustan og framtíðin
séð með augum alþingismannsins:
'Árni Johnsen, alþingismaður Sunnlendinga,
Margrét Frímannsdóttir, alþingismaður Sunnlendinga.
Kl. 14.45 Uppbygging afþreyingar á landsbyggðinni:
María Guðmundsdóttir,
forstöðumaður Upplýsingamiðstöðvar ferðamála,
Jón Gauti Jónsson, hótelstjóri Hótel Flúðum hf.,
Rögvaldur Guðmundsson, ferðamálafulltrúi Hafnarfjarðar
fylgja málinu úr hlaði hvert með 10-15 mín. innlegg.
Kl. 15.30 Pallborðsumræður.
Kl. 17.00 Uppákoma að hætti heimamanna.
Kl. 19.30 Hátíðarkvöldverður í boði heimamanna.
Sunnudagur 2. apríl 1995:
KL 10.00 Aðalfundur Ferðamálasamtaka Suðurlands —
Fundurinn er opinn öllum sem áhuga hafa.
Kl. 12.00 Hádegisverður.
Kl. 13.00 Brottförfrá Kirkjubæjarklaustri.
Þátttöku á ráðstefnuna ber að tilkynna til Hótels Eddu
á Kirkjubæjarklaustri isíma 98-74799, fax 98-74614
eða til Ferðamálafulltrúa Suðurlands í síma 98-21088,
fax 98-22921 í síðasta lagi 26. mars.
Ráðstefnugjald er kr. 2.000.
Boðið er upp á gistingu og fæði fyrir
kr. 8.000 pr. mann miðað við tvo í herbergi.
Ókeypis sætaferðir fyrir ráðstefnugesti
frá Reykjavík og Höfn í Hornafirði.
Bílamarkaöurinn
Smiðjuvegi 46E
v/ReykjanesbrauL
Kopavogi, sími
567-1800
Löggild bílasala
Verið velkomin.
Við vinnum fyrir þig.
aðeins 54 þ. km., krómfelgur, 33“ dekk,
brettakantar. Gott útlit. V. 1.620 þús.
Suzuki Swift Geo Metro ’92, 5 dyra, hvít-
ur, 5 g., ek. 51 þ. km V. 620 þús. Tilboðs-
verð 550 þús.
Nissan Sunny SLX 4x4 ’90, 5 g., ek. 54
þ. km, rafm. í rúðum, centralæsing o.fl.
V. 850 þús. Tilboðsv. 780 þús.
Toyota Corolla GLi 1600 Liftback ’93,
hvítur, sjálfsk., ek. 35 þ.km., spoiler, rafm.
í rúðum o.fl. V. 1.290 þús.
Toyota Double Cap diesil ’91, blár, 5 g.,
ek. 83 þ. km., 38" dekk, 5:71 -hlutföll o.fl.
V. 1.750 þús.
Nissan Sunny 1600i ÓR ’94, steingrár,
sjálfsk., ek. 15 þ.km. Rafm. í rúðum, álfelg-
ur, spoiler (2). Einn með öllu. V. 1.260 þús.
MMC Galant GLSi hlaðbakur 4x4 '90, 5
g., ek. 70 þ. km., álfelgur o.fl. V. 1.150 þús.
Nissan Sunny 1.3 sendibfll ’90, stein-
grár, 5 g., ek. aðeins 41 þ. km. V. 680 þús.
Toyota Corolla XLi Special Series 5 dyra
'94, 5 g., ek. aðeins 12 þ. km., rafm. i
rúðum, spoiler, centralæsing o.fl. V. 1.130
þús.
Daihatsu Charade CS '88, 5 dyra, 4 g.,
ek. 57 þ. km. V. 380 þús.
Citroen BX 16 4x4 '91, 5 dyra, 5 g., ek.
aðeins 39 þ. km., rafm. í rúðum o.fl.
V. 990 þús.
Toyota Corolla GLi 1600 Sedan ’93, rauð-
ur, 5 g., ek. 20 þ. km., rafm. í rúðum o.fl.
V. 1.150 þús.
Suzuki Swift GL '88, 3ja dyra, 5 g., ek.
105 þ. km., skoðaður ’96. V. 290 þús.
Mazda 626 GTi ’89, 2ja dyra, einn m/öllu,
5 g., ek. 84 þ. km. V. 890 þús.
Fiat Uno 45S '91, 3ja dyra, 5 g., ek. 63
þ. km. V. 550 þús. Tilboðsv. 410 þús.
Daihatsu Charade TX ’91, 5 g., ek. 40
þ. km., tveir dekkjag. V. 620 þús.
Subaru Justy J-.12 '91, grænn, 5 g., ek.
47 þ. km. V^730 þús. Tilboðsv. 630 þús.
Subaru Legacy 2,0 Artic ED. '92, rauður,
sjálfsk., ek. 47 þ. km., álfelgur, rafm. í
öllu o.fl. V. 1.770 þús.
V.W. Vento 2,0 GL ’94, 5 g., ek. aðeins 5
þ. km., álfelgur, sóllúga o.fl. V. 1.650 þús.
Renault 19 TXE '91, 5 g., ek. 75 þ. km.,
rafm. í rúðum o.fl. V. 810 þús.
Ford Bronco 2,9 XLT '88, 5 g., ek. 112
þ. km. Gott eintak. V. 1.190 þús.
MMC Colt '90, sjálfsk., ek. 45 þ.km. rafm.
í rúðum o.fl. V. 730 þús.
Honda Civic Special GLi 16v ’91, rauður,
5 g., ek. 58 þ. km., sóllúga, rafm. í rúðum
o.fl. V. 850 þús.
Vantar góða bíla á skrá
og á staðinn.
Framsókn '95
Halldór Ásgrímsson
verSur á vinnustaðafundum í Reykjaneskjördæmi í dag og á fundi um sjávarútvegsmál
í Ólafsvík kl. 20.30. Miðvikudaginn 22. mars verður hann á ferð í
Norðurlandskjördæmi - vestra og á ferð um Vestfiröi fimmtudaginn 23. mars.
B Framsóknarflokkurinn