Morgunblaðið - 08.04.1995, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 08.04.1995, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Kristján með nýja útgáfu- samninga við Naxos-útgáfuna Syngur í Kína og Japan 1997 KRISTJÁN Jó- hannsson hefur undirritað samning við óperuna í Flór- ens um að syngja í Kína og Hong Kong vorið 1997 í óper- unni Turandot eftir Puccini, auk þess sem fyrirhugað er að halda einnig til Japan í sömu ferð. Árið 1997 taka Kínveijar við yfir- ráðum í Hong Kong af Englendingum. Kristján söng í Tosca eftir Verdi í Flórens fyrir tveim- ur árum undir stjóm Zubin Met- ha, eins þekktasta stjómanda heimsins í dag. Óperan vinsæl í Austuriöndum „Við virtumst sætta okkur vel hvor við annan og síðan hefur hann boðið mér að syngja í Aidu sem ég gat ekki þegið, en ég greip hins vegar tækifærið þegar Turandot stóð til boða. Þeir era ekki margir tenóramir sem syngja Turandot í dag, þannig að ég reikna með að valið hafí verið einfalt fyrir hann,“ segir Kristján. Leikárið 1996-97 syngur Kristján í Turandot í Flórens en lagt verður upp í ferðina til Asíu um vorið og er hún mánað- arlöng. Fyrir tveimur áram söng Kristján hlutverk Turandot í Tókýó á vegum Arena, útileik- húss í Verona og segir óhemju spennandi áskorun að kynna vestræna óperahefð í Austur- löndum. Gaman sé að sjá hversu mjög Asíuþjóðir hafi hópast um óperatónlist seinustu árin. „Ef aðeins er horft til Austur- landa má sjá gífu- lega fjármuni sem varið er í þágu óperalistarinnar, einkum í Japan enn sem komið er. Fólk getur ímyndað sér hvað kostar að greiða ferð og uppi- hald fyrir hljóm- sveit og ópera sem er skipuð á þriðja hundrað manns, með leiktjöldum, búningum og öðra tilheyrandi í eins langan tíma og um ræðir í þessu tilviki," segir Krist- ján. Nýir markaðir að opnast Kristján kveðst álíta að í Aust- urlöndum geti verið að opnast nýir markaðir fyrir sig, ekki síst með alþjóðlegri geisladiskaútg- áfu Naxos-hljómplötuútgáfunn- ar, sem gerir út frá Hong Kong og er nú annar helsti útgefandi sígildrar tónlistar í heiminum. Til viðbótar við þá samninga sem gerðir hafa verið nú þegar við Naxos, undirritaði Kristján samning á dögunum um að syngja í óperanum Á valdi örlag- anna eftir Verdi og Turandot, sem verða hljóðritaðar síðar á þessu ári. „Með þessari nýju geislaplötu- útgáfu er að opnast gríðarstór markaður, því að þessar plötur ná til mannsins á götunni með tilheyrandi spilun í útvarpi og sjónvarpi auk auglýsinga. Þótt ég hafi verið mjög þekktur í óperuheiminum síðastliðin ár, er þetta skref að frægð stórstjöm- unnar,“ segir Kristján. Kristján Jóhannsson Morgunblaðið/RAX Tillögnr um betri nýtingu Perlunnar Ráðstefnusalur og spilavíti í tönkum HUGMYND um að tæma tvo af vatnstönkum Hitaveitu Reykjavík- ur í Öskjuhlíð og breyta öðrum þeirra í ráðstefnusal á tveimur hæðum en hinum í spilaviti og sýningarsal, var kynnt á fundi borgarstjómar á fimmtudag. Hugmyndin gerir ráð fyrir að tekjur umfram rekstrarkostnað vegna Perlunnar verði varið til að mynda sjálfstæðan tekjustofn fyrir menningu og listir í Reykjavík. Gunnar L. Gissurarson, borgar- fulltrúi Reylqavíkurlistans og for- maður Perlunefndar, kynnti hug- myndina og sagði að allar tillögur sem fram hefðu komið um betri nýtingu Perlunnar gerðu ráð fyrir byggð yrði ráðstefnuhöll í tengsl- um við hana. „Þetta er ágætis hugmynd en framkvæmd upp á liundruð milljóna ef ekki milljaðra sem yrði nqög umdeild bæði fjár- hagslega og einnig mjög umdeild með tilliti til umhverfismála,“ sagði Gunnar. Benti hann á að borgin greiddi árlega um 40 til 50 miHjónir með rekstri Perlunn- ar, þrátt fyrir þá starfsemi sem þar er rekin og viðunandi leigu- telqur. Tæma tvo tanka Gunnar sagði að hugmyndir Perlunefndar væru að í Perlunni yrði staðið fyrir stórauknum stuðningi við menningu og listir með rikulegu fjárframlagi. „Við tæmum tvo vatnsgeyma, það hefur engin áhrif á þjónustu eða öryggi Hitaveitunnar við borgarbúa," sagði hann. „Við breytum öðrum tankinum i ráðstefnusal á tveimur hæðum. Tankamir eru um það bil 400 fermetrar að flatarmáli og 10 metra háir þannig að auðvelt er að koma fyrir tveimur 400 fer- metra ráðstefnusölum í einum tanki. Þetta er arðbær starfsemi og það er mikil vöntun á ráð- stefnurými í borginni. Þetta er nýtískulegt hús og öll önnur þjón- usta er til staðar svo sem veiting- ar og annað.“ „Við tökum svo hinn tankinn og gemm úr honum spilavíti," sagði Gunnar. „Eg sagði spilavíti upp á tvær hæðir hvort um sig 400 fermetrar og þá meina ég alvöm spilaviti. Við gemm jarð- hæðina að opnum sýningarsal fyr- ir ýmsar sýningar, uppákomur og listviðburði. Veitingareksturinn heldur áfram í sinni mynd og þjón- ar þessari starfsemi." Fram kom hjá Gunnari að ár- lega koma um 70 þús. manns í Perluna, þar af eru 50 þús. ferða- menn og um 10 þús. þeirra kaupa þjónustu í Perlunni. Það væru því 40 þús. manns sem fara inn og út án þess að eyða krónu. „Þegar ekki er boðið upp á neitt þá kaup- ir maður ekkert," sagði hann. Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur um gjaldþrot Miklagarðs hf. Kröfum Fróns á sljóm og- framk væmdastj óra hafnað HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur sýknað fyrrum stjómarmenn og framkvæmdastjóra Miklagarðs hf. af kröfum Kexverksmiðjunnar Fróns um greiðslu 7,5 milljóna króna skaða- bóta vegna viðskiptavíxla sem ógreiddir vora við gjaldþrot félagsins í júní 1993. Kexverksmiðjan krafðist skaðabótanna á þeim forsendum að stjóm Miklagarðs og fram- kvæmdastjóra hefði borið skylda til að stöðva vörakaup með gjaldfresti, eins og átti við um kaup af Frón, enda hafi stjórninni mátt vera ljóst miðað við fjárhagsstöðu félagsins, að ekki væri unnt að greiða fyrir vörana að gjaldfrest- inum liðnum. Með aðgerðarleysi sínu hafi stjóm og framkvæmdastjóri valdið Frón tjóni. Fyrram stjómarmenn Miklagarðs höfnuðu kröfum Kexverksmiðjunnar Fróns. Þeir bentu á að stjóm Miklagarðs hf. hafi verið lítið virk, en framkvæmdastjóri félagsins haft mikil völd. Sönnunarbyrði um saknæmt athæfi hvíldi á stefnanda, sem hefði ekki sýnt fram á nein brot stjómarmanna. Framkvæmdastjórinn sagði að bókhaldsmál hefðu verið í miklum ólestri þegar hann tók við og allar áætlanir því rangar í mikjlvægum atriðum. Hann hafi ætíð verið í góðri trú um að hagur félagsins væri að vænkast. Stjórnarmenn í góðri trú í niðurstöðum Héraðsdóms kemur fram sú skoðun að stjómarmenn hafi verið í góðri trú um gjaldfæmi félagsins og rekstur, allt þar til endurskoðað bráðabirgðauppgjör fyrir árið 1992 lá fyrir á stjórnarfundi 22. mars 1993, sem og sú ákvörðun SÍS að hætta afskiptum af innflutningi og smásöluverslun og leggja fyrir stjóm Miklagarðs hf. að sélja fyrirtækið. Stjómarmenn hafi rækt eftirlitsskyldu sína eins og þeim hafi verið kostur og lög bjóði. Miðað við fyrirliggjandi rekstraráætlanir og hlutafiárloforð verði ekki talið að stjómendur félagsins hafi átt að krefjast gjaldþrotaskipta um áramótin 1992-1993, enda eiginfjárstaðan jákvæð miðað við þær forsendur. Ámælisverð vinnubrögð Hvað framkvæmdastjórann varðar segir í niðurstöðum Héraðsdóms að samkvæmt upp- kasti að uppgjöri fyrir fyrstu átta mánuði árs- ins 1992' hafi tapið á því tímabili verið 255 milljónir og stefnt í 436 milljóna tap á árinu öllu. Framkvæmdastjórinn hafi hins vegar lagt fyrir stjómina í desember uppgjör upp á 150 milljóna króna tap. „Verður að telja þau vinnu- brögð stefnda mjög ámælisverð af hans hálfu,“ segir í dóminum. Hvað viðskipti Fróns og Miklagarðs varðar segir í dóminum að þau hafi verið jöfn og stöð- ug. Ekki verði séð orsakatengsl milli þess þótt raunveraleg rekstrarstaða Miklagarðs hf. hefði legið fyrir fyrr og tjóns Fróns. Vísað er til þess að annar framkvæmdastjóra Fróns hefði borið að hafa vitað um erfíðleika í rekstri Mikla- garðs og hinn framkvæmdastjórinn sagt að Frón hefði haldið viðskiptunum áfram, þótt ekki hefði verið birt tilkynning í október 1992 um bættan hag fyrirtækisins. Tjónið verði ekki heldur rakið til þess að ekki hafí verið tilkynnt um hlutafjáraukningu til hlutafélagaskrár. Því beri einnig að sýkna framkvæmdastjórann. Dóminn kváðu upp Helgi I. Jónsson, héraðs- dómari og meðdómendumir Eggert Oskarsson héraðsdómari og Sverrir Ingólfsson, viðskipta- fræðingur og löggiltur endurskoðandi. Eystrasaltsráðið A Islandi boðin aðild ÍSLANDI býðst nú að gerast aðili að Eystrasaltsráðinu, en hingað til hefur það verið utan þess, eitt Norðurlanda. Utan- ríkisráðherra hefur borist er- indi frá utanríkisráðherra Pól- lands, sem nú gegnir for- mennsku í ráðherraráði Eyst- rasaltsríkja, þar sem tilkynnt er að samþykkt hefur verið að bjóða íslandi aðild. í fréttatilkynningu frá utan- ríkisráðuneytinu kemur fram að formlega verður gengið frá aðild íslands á fundi ráð- herraráðs Eystrasaltsráðsins sem haldinn verður í G’dansk í Póllandi 18. og 19. maí næst- komandi. Hveragerði Akvörðun sóknarnefnd- ar stendur SÉRA Jón Ragnarsson tekur við starfi sóknarprests Hver- gerðinga 1. október næstkom- andi. Þá lætur séra Tómas Guðmundsson af starfi eftir aldarfjórðungsþjónustu í prestakallinu. Ákvörðun sóknamefndar- innar um að kalla séra Jón, án undangenginna prestskosn- inga, hefur verið mótmælt. Þá hefur verið safnað undirskrift- um til að krefjast kosninga. Að sögn Guðmundar V. Ing- varssonar, formanns sóknar- nefndar, stendur ákvörðun nefndarinnar. Dýpkunarfélagið 20% upp í for- gangskröfur TÆP 20% greiddust upp í for- gangskröfur í þrotabú Dýpkunarfélagsins hf. á Siglu- firði eða tæplega 2,8 milljónir af samþykktun forgangskröf- um sem vora 14,8 milljónir kr. Ekkert fékkst upp í almenn- ar kröfur sem vora 244,6 millj- ónir kr. né heldur eftirstæðar kröfur. Skiptastjóri þrotabús- ins var Ólafur Bjömsson, hér- aðsdómslögmaður. Flugfreyj- ur funda eftir helgi ENGINN sáttafundur verður haldinn í kjaradeilu Flug- freyjufélagsins og Flugleiða fyrr en á mánudag, samkvæmt upplýsingum embættis ríkis- sáttasemjara. Sátttafundir í deilunni voru daglega í vikunni og stóðu lengi. Upp úr viðræðum slitn- aði í gærmorgun, en næst hitt- ast deiluaðilar á mánudag. Sumarhús til Siglufjarðar DREGIÐ var í vorpotti happ- drættis DAS í gær. Aðalvinn- ingurinn, 50 fermetra fullbúið sumarhús að Hraunborgum í Grímsnesi, kom á miða sem seldur var á Siglufirði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.