Morgunblaðið - 08.04.1995, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 08.04.1995, Blaðsíða 60
60 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1995 MORGUNBLAÐIÐ Ferdinand VES,MA'AM..REQUE5T PERMI55I0N T0 U5E THE PENCIl 5HARPENER... REMESÍPERMISSION TO BORROtú A PENOIL.. REQ0EST PERMI5SION TO 0ORROU) S0MÉ NOTE0OOK PAPER.. X REOUE5T PERMIS5IÖNT060 BACK TO RINPER6ARTEN Aun CYAOT r\\!ce ^irr wVClN.* /1k \ fIJ/l/l S ! S tjr 1 o 3~3' Já, kennari... bið Bið um leyfi til Bið um leyfi til að fá Bið um leyfi til að um leyfi til að nota að fá lánaðan lánaðan skrifpappír ... fara aftur í leikskól- yddarann... blýant... ann og byrja upp á nýtt... BKEF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Út-út um allt Frá Hirti Hjartarsyni: ÞÓTT maðurinn sé óumdeildur skap- ari tækninnar þá stendur hann oft frammi fyrir henni án þess að botna í henni - nær ekki að halda í við sjálf- an sig. Hann er oft lengi að átta sig á möguleikum sköp- unarverks síns og annmörkum. Það sama á við þegar ný tækni kemur í hendur þeim sem ekki hefur haft af henni að segja áður. Þekkt er dæmi úr íslenskum landbúnaði, þeg- ar vélvæðing hóf þar innreið sína. Þar sem börn höfðu frá upphafi ver- ið látin taka til hendinni við heyskap virtist mönnum liggja beint við að taka af þeim hin fomu amboð og setja upp á stórvirkar vinnuvélar. Afleiðingamar hafa oft verið skelfi- legar, og þótt ástandið hafí batnað hefur enn ekki mnnið fullkomlega upp fyrir mönnum að vinnuvélar og böm eiga ekki samleið. Saga af sama toga er að eiga sér stað í útflutnings- verslun þjóðarinnar, þ.e. menn hafa ekki áttað sig á takmörkunum og möguleikum þjóðarinnar, eða öllu heldur því sem tæknin býður upp á. Um 70% af útflutningsverslun okkar er við Evrópu og hagsmunir okkar þar ótvíræðir. Astæður svo mikilla viðskipta við Evrópu eru póli- tískar, í víðum skilningi, en þó fyrst og fremst landfræðilegar. Ástæðum- ar em m.ö.o. tæknilegar. Lega lands- ins gerði okkur til skamms tíma erf- itt fyrir að eiga viðskipti á fjarlæg- ari mörkuðum. Sá markaður sem við höfum orðið að einblína á hefur hins vegar mikilvæga annmarka: Hann er yfirfullur, staðnaður, og þar ríkir hörð samkeppni. Þar er ekki skortur á neinu - þótt margir líði skort. (Fá- tækt og eymd á Vesturlöndum er umkringd allsnægtum.) Vandamálið er nefnilega ekki það að framleiða vömr og veita þjónustu, - vandamál- ið er að selja. Þess vegna hefur öll umræða í viðskiptum færst yfir á markaðsmál; markaðs hitt og mark- aðs þetta. Þar sem Evrópumarkaður er staðnaður er helsta verkefni þjóðar- innar þar að halda sínum hlut og koma í veg fyrir að hann rýrni. Ef hins vegar ætlunin er' að sækja fram - svo einhverju muni - þá liggja möguleikar okkar á mörkuðum sem em að vaxa. Þeir markaðir eru ekki í Evrópu heldur öðrum deildum jarð- ar. í heimshlutum sem hafa verið að tvöfalda hlut sinn í heimsvið- skiptum sl. 10 ár; þeim hlutum heimsins sem eru okkur í raun ekki fjarlægari en Evrópa nema í póli- tískum og menningarlegum skiln- ingi. Landfræðilegar takmarkanir hafa verið yfirstignar með sam- gongu- og upplýsingatækni. Tæknin hefur s.s. opnað okkur nýja mögu- leika. Það sem á vantar er að stjórn- völd geri sér grein fyrir þeim mögu- leikum, einblíni ekki á Evrópu og ryðji braut fyrir viðskiptum annars staðar. Tveir flokkar hafa orðið til þess að þetta mál hefur ekki fengið þá umfjöllun í kosningabaráttunni sem það á skilið. Flokkurinn með skottið og hinn þama Einu sinni var flokkur sem hét bara Alþýðuflokkur og stóð fyrir eitthvað í íslenskri pólitík. Síðan liðu árin og flokkurinn gerðist hégóma- gjarn. Hann fékk sér voða fínt skott. Það lítur svona út: Jafnaðarmanna- flokkur Islands. Annar flokkur heitir Alþýðubandalag. Það er voða vondur flokkur, sem á voða voða vonda for- tíð. Alþýðubandalagið setti fram hugmyndir sem ganga undir nafninu „Útflutningsleiðin". En þar sem Al- þýðubandalagið er svona voðalega vont, þá hljóta hugmyndir þess að vera voða vondar líka. HJÖRTUR HJARTARSON, Freyjugötu, 36, Reykjavík. Rjörtur Hjartarson Um hvað skal kjósa? Frá Jóni Helgasyni: SAGT er að íslendinga setji jafnan hljóða þegar komist er að kjarna málsins og hætt er að þrasa um aukaatriði. Þetta má til sanns vegar færa og er í þvi sambandi nærtækt að líta til kosningabaráttunnar sem ágerist nú með degi hveijum. Hvernig væri að koma sér að kjarnanum í hvelli og knýja stjórn- málamenn um svör við grundvallar- spurningum í stað þess að velta sér upp úr hisminu? Landbúnaðarmál beinlínis verða að skipa stóran þátt í kosningunum. Hagkvæmt kerfi í stað hítar sómdi sér vel sem slagorð fyrir menn eins og Þorvald Gylfason sem bera gæfu til að sjá að við óbreytt kerfi verður ekki búið. Það er sorglegt en satt að nátengt vandanum í landbúnaði er ófremdarástandið í ríkisfjármál- um. Það er krafa að lagðar verði fram raunhæfar tillögur um úrbæt- ur, s.s. með aukinni skattheimtu eða hagræðingu, t.d. í landbúnaði, m.ö.o. ítarlegra verkáætlana er þörf. Með því er ekki átt við hina rýru slagorðabók Alþýðubandalagsins sem þó má segja til hróss að kemst næst því að geyma einhveijar tillög- ur, öfugt við það sem segja má um aðra stjórnmálaflokka. Afar brýnt er að fjárfestingar hér á landi margfaldist til að stuðla að óbreyttu atvinnustigi og hagvexti. Skemmst er frá því að segja að á þessu stigi máls hafa engar tillögur birst frá sexflokknum í áttina að þessu. Liður í þessu máli er aðild að ESB en samkvæmt skýrslum Háskólans er margt sem bendir til aukinna fjárfestinga í kjölfar aðild- ar. Öllum stjórnmálaflokkum ber hreinlega skylda til að leggja fram vandaða og skýra stefnu í þessum málum, taka afstöðu og reiða til höggs til lausnar vanda þjóðarinnar. Hvernig væri að láta kosningar einu sinni snúast um það hvernig eigi að baka vandaða köku öllum til góða og sniðganga þá sem hafa enga uppskrift en þykjast þó vita allra manna best hvernig á að éta hana. JÓN HELGASON, Nesbala 90, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók verður framvegis varðveitt í Gagnasafni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari þar að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.