Morgunblaðið - 08.04.1995, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 8. APRÍL 1995
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Hug'sum
við með
heilanum?
DR. Mikael M. Karlsson heimspek-
ingur flytur opinberan fyrirlestur
við á vegum kennaradeildar Há-
skólans á Akureyri í dag, laug-
ardaginn 8. apríl, kl. 14.00 í húsi
skólans við Þingvallastræti, stofu
24.
Fyrirlesturinn nefnir Mikael
„Hugsum við með heilanum" og
mun hann fjalla um hvort það sé
rétt skilið að maður hugsi (skynji,
finni til o.s.frv.) með heilanum,
hvort hugsun fari fram í heilanum
og hvort hún sé e.t.v. ekkert annað
en heilastarfsemi.
Mikael er dósent í heimspeki við
Háskóla íslands og hefur ritað um
ýmis svið heimspekinnar og flutt
fyrirlestra víða um lönd. Fyrirlest-
urinn er ætlaður almenningi og er
öllum opinn.
Sultur í
Borgarbíói
KVIKMYNDAKLÚBBUR Ak-
ureyrar mun sýna norsku myndina
Sult eftir Knut Hamsun næstkom-
andi mánudag, 10. apríl. Sýnt er
í Borgarbíói og hefst sýningin kl.
18.30. Myndin er sýnd í samvinnu
við norska sendiráðið á Islandi.
Aðgangur er ókeypis.
mýkt
í matargerðina
AKRA
FLJÓTANDI
WhmwigMrafig
Nýr og spennandi
möguleiki i alla matargerÖ
•
Inniheldur
hollustuolíuna, rabsolíu
Þœgilegt beint úr
kæliskápnum
tsm \
SMJÖRLÍKISGERÐ
AKUREYRI !
l i s t i n a a h m a t b ú a
Ogrynni af snjó flutt af kjörstað Akureyringa við Oddeyrarskóla
Tveggja daga verk að
moka snjónum burtu
Morgunblaðið/Rúnar Þór
HAUKUR Valtýsson húsvörður sér til þess að kjósendur fái ekki
yfir sig klakastykki þegar þeir koma að kjósa í dag.
STARFSMENN Akureyrarbæjar
voru í óða önn að moka burtu
si\jó af kjörstað Akureyringa, við
Oddeyrarskóla í gærdag en nán-
ast ófært var um svæðið og sár-
afá bílastæði.
Guðmundur Guðlaugsson yfir-
verkfræðingur Akureyrarbæjar
sagði að um siðastliðin mánaða-
mót hefðilbærinn verið búinn að
eyða um 24 milljónum króna í
snjómokstur en það er nærri
helmingi hærri upphæð en áætl-
að var í fjárhagsáætlun fyrir allt
þetta ár. Ekki væri allt búið enn
og til að mynda hefði heill dagur
farið í að flylja snjó burt af svæð-
inu við kjörstað í allan gærdag.
Krafa aðkomast
klakklaust á kjörstað
„Það var ekki hjá því komist,
það er sjálfsögð krafa kjósenda
að komast klakklaust á kjör-
stað,“ sagði Guðmundur en hann
bætti við að ef hlánaði hægt og
rólega þá yrði unnt að draga
verulega úr snjómokstrinum og
verkefnum sem honum fylgja.
„Við erum farnir að slaka svolít-
ið á, draga úr þessu enda kostn-
aðurinn orðinn ærinn,“ sagði
Guðmundur.
Hilmar Gislason bæjai-verk-
stjóri var með sínum mönnum
við Oddeyrarskólann I gær og
fylgdist með snjómokstrinum.
Hann sagði að þó svo að byrjað
væri að hæga á snjómokstrinum
væri nóg eftir, m.a. ýmsar leiðir
utan og ofan bæjarins sem ekki
hefði verið hægt að sinna þegar
mest var að gera í bænum.
Allt klárt á kjörstað
„Það er allt að verða klárt,“
sagði Haukur Valtýsson húsvörð-
ur í Oddeyrarskóla sem í gær
var að moka snjó af þaki skólans
og bijóta niður klaka. „Það hefur
verið feikimikill snjór hérna, sér-
staklega sunnan við skólann þar
sem var illfært fyrir bíla. Þeir
komu héra bæjarstarfsmenn í
vikunni og fluttu snjó af svæðinu
og hafa svo verið hér í allan
dag, þannig að það eiga allar að
komast hér um þegar kjörstaðir
opna.“
Skoflustunga að kvíarstæði fyrstu flotkvíar landsins tekin
Væntingar um aukin verk
fyrir skipasmíðaiðnaðinn
JAKOB Björnsson, bæjarstjóri á
Akureyri, tók fyrstu skóflustungu
að kvíarstæði við flotkví Akur-
eyrarhafnar sunnan slippstöðvar-
skemmunnar á Ákureyri í gær en
þar með hófst fyrsti áfangi að
uppsetningu fyrstu flotkvíar á ís-
landi.
Flotkvíin er nú í smíðum hjá
ríkisskipastöðinni Baltija í
Kleipeda í Litháen og verður hún
afhent 2. maí næstkomandi. Hún
verður síðan dregin til Akureyrar
af þýska dráttarskipinu Fairplay
XIV og er búist við að siglingin
taki um tvær vikur.
Gerð kvíarstæðis verður lokið
7. júní næstkomandi og eru verk-
takar G. Hjálmarsson hf. og Möl
og sandur, undirverktakar þeirra
eru Björgun hf. og Suðurverk hf.
sem annast gerð skjólgarðs og
gijótvarnar. Alls verða 143.500
rúmmetrar grafnir út af svæðinu
Sýningu
Iðunnar
að ljúka
SÝNINGU Iðunnar Ágústsdóttur
myndlistarkonu í húsakynnum
Ljósmyndastofunnar Norður-
myndar við Hafnarstræti 90 á
Akureyri lýkur á morgun, sunnu-
dag. Sýningin verður opin bæði á
laugardag og sunnudag frá kl.
14.00 til 18.00.
Á sýningunni eru myndverk,
smámyndir málaðar á gullgrunna
og margs konar listmunir og
skartgripir úr postulíni.
og verður efnið flutt að Krossa-
nesi þar sem það verður notað til
landfyllingar.
Kostnaður um 250 miHjónir
Heildarkostnaður við kaup og
undirbúning flotkvíarinnar er um
250 milljónir króna og leggur rík-
issjóður til fé til kvíarstæðisins,
70% af kostnaði eða um 50 milljón-
ir króna. Þá er kvíin sjálf styrkhæf
samkvæmt hafnarlögum, en Hafn-
arsjóður Akureyrar fjármagnar
kaupin og framkvæmdir að öðru
leyti.
Slippstöðin-Oddi annast rekstur
flotkvíarinnar og verður gerður
leigusamningur við fyrirtækið, en
vonir eru bundnar við að verkefni
stöðvarinnar muni stóraukast með
tilkomu kvíarinnar. Hægt verður
að taka öll stærstu fiskiskip ís-
lendinga upp í flotkvína til við-
halds og viðgerða, þar með talið
alla stærstu frystitogara landsins
og flest flutningaskip landsmanna.
Messur
AKUREYRARPRESTAKALL:
Fermingarguðsþjónustur verða (
Akureyrarkirkju á pálmasunnudag
kl; 10.30 og 13.30.
GLERÁRKIRKJA: Fermingarguðs-
þjónustur kl. 10.30 og 14.00. á
pálmasunnudag.
HJÁLPRÆÐISHERINN: Sunnu-
dagaskóli kl. 13.30 á morgun,
hjálpræðissamkoma kl. 20.00, allir
velkomnir. Heimilasamband fyrir
konur á mánudag kl. 16.00.
KAÞÓLSKA KIRKJAN: Messa í
dag, laugardag kl. 18.00 og á
morgun sunnudag kl. 11.00.
Kvíin tekur 5.000 þungatonn, hún
er 117 metra löng og 24 metra
breið að innanmáli og getur tekið
skip með 7,6 metra djúpristu. Þá
fylgir ýmiss konar búnaður kvínni,
svo sem kranar og rafdrifnir
vinnupallar á brautum. Upptaka
skipa er auðveld, henni er sökkt,
kjalblokkir og skorður stilltar eftir
gerð skipsins, því síðan komið fyr-
ir og kvínni lyft.
Lyftistöng fyrir atvinnulífið
Jakob Björnsson bæjarstjóri
rakti við athöfn í gær aðdragand-
ann að því að ráðist var í flotkvíar-
kaupin. Fram kom í máli hans að
dráttarbraut í eigu Akureyrar-
hafnar væru orðin rúmlega 20 ára
gömul og farin að gefa sig. Leggja
hefði þurt í 85 milljóna króna
kostnað við endurbætur á henni
en niðurstaðan orðið sú að kaupa
flotkví, gera lágmarksendurbætur
á dráttarbrautinni eða fyrir um 8
milljónir króna og nota hana eink-
um fyrir minni fiskiskip. „Við telj-
um að tilkoma flotkvíarinnar verði
lyftistöng fyrir skipasmíðaiðnað-
inn á Akureyri og hún muni verða
atvinnulífi í bænum og uppbygg-
ingu þess til framdráttar,“ sagði
bæjarstjóri.
Samgönguráðherra, Halldór
Blöndal, sagði að eðlilegt væri að
fyrsta flotkví landsins væri sett
upp á Akureyri, þar væri mikil
verkþekking á sviði skipasmíða-
iðnaðar og í Eyjafirði væri ein
sterkasta togaraútgerð landsins,
vel væri að henni staðið og útgerð-
in hefði fengið góða þjónustu á
Akureyri. „Sterk slippstöð er for-
senda fyrir að svo verði áfram,“
sagði samgönguráðherra.