Morgunblaðið - 08.04.1995, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 08.04.1995, Blaðsíða 72
AST GÆÐATÖLVLJ R MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NBTFANG MBUSCENTRUM.IS / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85 LAUGARDAGUR 8. APRÍL1995 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Björgunar- þyrlan fær nafnið LÍF ^ÁKVÖRÐUN hefur verið tekin um að gefa nýju björgunarþyrlunni, sem kemur til landsins í júní, auð- kennisstafína LÍF. Nafnið er sótt í Vafþrúðnismál, en þar koma fyrir nöfnin Líf og Lífþrasir. Undirbún- ingur fyrir komu þyrlunnar gengur samkvæmt áætlun. Verið er að gera endurbætur á þyrlunni hjá þyrluverksmiðjunni í Marignane í Frakklandi. í þyrluna verður settur afísingarbúnaður, fjögurra ása sjálfstýring, tvöfalt björgunarspil og eldneytistönkum verður fjölgað þannig að þeir geti tekið u.þ.b. 3.700 lítra. Heim í júní Verkið gengur samkvæmt áætl- un og er reiknað með að vélin verði tilbúin snemma í sumar. Stefnt er að því að þyrlan komi til landsins 22. júní. Varahlutir, verkfæri og viðhalds- gögn eru þegar farin að berast til landsins. Þjálfun starfsmanna við- halds- og tæknideildar er vel á veg komin. I nóvember sl. fóru fjórir flugvirkjar til Aberdeen í Skotlandi til þjálfunar. í janúar fór annar hópur tæknimanna til náms til Marignane í Frakklandi. Á þessu ári eru liðin íjörutíu ár frá því Landhelgisgæslan hóf gæsluflug og tíu ár eru síðan björg- unarþyrlan TF-SIF kom til landsins. ENDURBÓTUM á nýju björgunarþyrlunni miðar vel í Frakklandi. Morgunblaðið/Þorkell FORYSTUMENN stjórnmálaflokkanna luku kosningabaráttunni með umræðum í sjónvarpi. Hér ræðast þeir við Davíð Oddsson, Jón Baldvin Hannibalsson og Halldór Ásgrímsson. 192 þúsund kjósendur velja nýtt Alþingi NÝTT Alþingi verður kosið í dag. Kosnir verða 63 þingmenn þar af 31 í Reykjanes- og Reykjavík- urkjördæmi. Rúmlega 192 þúsund manns eiga rétt á að greiða at- kvæði, sem er rúmlega 9.000 fleiri en í síðustu alþingiskosningum. Tíu framboðslistar eru í kjöri þar af bjóða sex fram í öllum kjör- dæmum. Búist er við að fyrstu tölur um úrslit liggi fyrir fljótlega eftir að kjörstaðir loka klukkan 22 í kvöld. Tæplega 17 þúsund kjósendur greiða atkvæði til Alþingis í fyrsta sinni í kosningunum í dag. Kjós- endum hefur fjölgað um 4.200 í Reykjavík frá síðustu kosningum. Fjölgunin í Reykjaneskjördæmi er álíka mikil. Á Suðurlandi og Norðurlandi eystra hefur kjósend- um fjölgað um 500 í hvoru kjör- dæmi, en í öðrum kjördæmum hefur óveruleg breyting orðið á ljölda kjósenda. Kjósendum á Vestfjörðum hefur fækkað um 3,5% frá síðustu kosningum. Fyrstu tölur fljótlega eftir klukkan 22 Flokkun atkvæða hefst í flestum kjördæmum síðdegis og er von á fýrstu tölum frá Reykjavík, Reykjanesi, Vesturlandi, Norður- landi vestra, Norðurlandi eystra og Suðurlandskjördæmi fljótlega eftir að kjörfundi lýkur klukkan 22. Ekki liggur fyrir hvenær úr- slit kosninganna munu liggja fyr- ir. Um 5.000 manns höfðu greitt atkvæði utan kjörfundar hjá sýslumannsembættinu í Reykja- vík í gær. Það er svipað og í síð- ustu kosningum. Langar biðraðir voru á skrifstofu sýslumanns í gær. Landskjörstjóm hefur ákveðið að kjördagur verði einn þar sem veðurspá er góð. í kosningalögum er ákvæði sem heimilar kjörstjórn að fresta kosningu í kjördeild ef veður hamlar kosningu, en ekki er búist við að til þess komi. ■ Alþingiskosningar 2/6/8/10/12/14/15 Verkfall boðað á farskipum SJÓMANNAFÉLAG Reykjavíkur hefur boðað vikulangt verkfall und- irmanna á kaupskipaflotanum sem hefst á miðnætti 16. apríl næstkom- andi ef ekki semst fyrir þann tíma. Að sögn Birgis Björgvinssonar stjómarmanns hafa viðræður við vinnuveitendur um gerð nýrra kjarasamninga rejmst með öllu ár- angurslausar en haldnir hafa verið fimm samningafundir, sá seinasti síðastliðinn miðvikudag. Hækkanir ASÍ nægja ekki Deilan stendur um grunnkaups- hækkanir undirmanna á farskipum og að sögn Birgis hafa vinnuveit- endur boðið sömu hækkanir og samið var um í kjarasamningum landssambanda ASI og vinnuveit- enda í febrúar en þær hækkanir nægja ekki, segir Birgir. Með verk- fallsboðuninni í gær fer kjaradeilan sjálfkrafa til meðferðar ríkissátta- semjara. Boðað verkfall á að standa til miðnættis 22. apríl. ----♦ ♦ ♦---- Fellt að binda kvótasölu FJÖLMENNUR hitafundur hlut- hafa í Ósvör hf. í Bolungarvík felldi tillögu eins hluthafa um að aukinn meirihluta þurfi til að selja veiði- heimildir. Fulltrúar bæjarsjóðs og Bakka hf. greiddu atkvæði á móti. Bæjarstjórn lét boða til fundarins til að afturkalla umboð stjómarinn- ar og kjósa nýja til þess að meiri- hluti bæjarstjómar fengi full völd í fyrirtækinu þar til ljóst yrði hvort Bakka kaupir hlutabréf bæjarins. Samkomulagsdrög lögð fram á úthafsveiðiráðstefnu SÞ Tíilaga íslendinga ínni þrátt fyrir andstöðu Noregs Boston. Morgunblaðið. SAMKOMULAGSDRÖG hafa verið lögð fram á fimmta fundi úthafsveiðiráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, sem nú er haldin í New York, og sagði Helgi Ágústsson sendiherra að þau væm „að mörgu leyti ásættanleg". Þar er bæði tekið inn ákvæði um að tryggja rétt strandríkja, sem eru „að miklu leyti háð“ fiskveiðum og haldið í ákvæði um að tekið verði tillit til þess að hve miklu leyti einstök ríki em háð fiskveiðum úr ákveðnum stofnum þegar teknar eru ákvarðanir um stjórnun og verndun þeirra í úthöfunum. Fyrra ákvæðið mætti andstöðu Norðmanna og Rússa og búist hafði verið við að hið seinna félli út. „Ég tel að það sé fyrst og fremst vegna okkar málflutnings," sagði Helgi, sem er í for- svari fyrir íslensku sendinefndina í viðræðunum, um það að ákvæðin skuli bæði vera með í drögun- um. Tillaga Islendinga um rétt ríkja, sem eru háð fiskveiðum, var tekin inn í grein draganna um nýja þátttakendur í svæðissamstarfi í fískveiði- stofnunum á borð við NAFO og NEAFC. Ákvað formaður ráðstefnunnar, Satya N. Nandan, að fella hana í drögin þrátt fyrir andstöðu Norð- manna og Rússa, sem hvorir tveggju mæltu gegn henni á ráðstefnunni. Tillagan fékk hins vegar meiri stuðning, en íslenska sendinefndin reiknaði með í upphafí, og tóku fulltrúar frá Chile, Indónesíu, Kiribati, Mexikó, Perú, Papúa-Nýju Guineu, Thailandi og Uruguay til máls henni til fulltingis með Kanada- menn í broddi fylkingar. Ákvæðið, sem var samþykkt að bæta við í drögin, á sér fordæmi í hinu svokallaða íslenska ákvæði Hafréttarsáttmálans frá árinu 1982. Þar segir að ákvæði um rétt og tilkall landluktra ’ ríkja og landfræðilega afskiptra ríkja til auðlinda í lögsögu strandríkja gildi „ekki gagnvart strand- ríki ef efnahagur þess er í mjög miklum mæli háður hagnýtingu hinna lífrænu auðlinda í sér- efnahagslögsögu þess“. Norðmenn andmæltu Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins and- mæltu Norðmenn tillögunni meðal annars á þeirri forsendu að íslendingar væru hátæknivætt físk- veiðiríki, sem hefði veiðigetu langt umfram þörf, og ættu því ekki að njóta forréttinda. Helgi Ágústsson svaraði Norðmönnum með því að vísa til 63. og 64. greinar hafréttarsátt- málans um strandríki til skilgreiningar á því hversu víðfeðm tillaga íslensku sendinefndarinn- ar væri. Til skýringar má taka fram að greinamar fjalla um samstarf um svokallaða deilistofna, sem finna má í sérefnahagslögsögu tveggja eða fleiri strandríkja, og mikla farstofna. Samkvæmt því myndu íslendingar til dæmis ekki geta notað tillöguna, sem var tekin inn í drögin, verði hún hluti af hinu endanlega samkomulagi til að krefj- ast hlutdeildar í stofnum, sem ekki fínnast í ís- lenskri sérefnahagslögsögu. Morgunblaðið hefur heimildir fyrir því að áhyggjur Norðmanna af því að íslendingar nái forréttindum í karfa- og síldveiðum liggi að baki andstöðu þeirra gegn íslensku tillögunni, en ekki er loku skotið fyrir það að Smugudeilan eigi þar einnig hlut að máli. Morgunblaðið/Sigurgeir Tveir geltir í trollið GJAFAR VE fékk tvo gelti í troll- ið á um 1.000 metra dýpi á Kötlu- hryg'g' síðastliðinn þriðjudag. Stærri fiskurinn mældist 42 sentimetra langur og sá minni 35 sentimetrar. Fiskur af þessari tegund hefur aðeins einu sinni áður veiðst hér við land, árið 1989. Geltirnir voru afhentir Fiska- og náttúrugripasafni Vestmannaeyja. Að sögn Krist- jáns Egilssonar, forstöðumanns safnsins, komu fleiri furðufiskar úr djúpinu í þessari veiðiferð Gjafars VE, þar á meðal bjúg- tanni og tegundir sem eftir er að greina.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.